Dagblaðið - 17.07.1978, Page 34

Dagblaðið - 17.07.1978, Page 34
34 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1978. Útboð Framkvæmdanefnd um byggingu leiguíbúða á Siglufirði auglýsir hér með eftir tilboðum í að byggja fokheld tvö fjölbýlishús með samtals 12 íbúðum að Laugarvegi 37 og 39, Siglu- firði. Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofunni á Siglufirði og á teiknistofu Karls-Eriks Rock- sen, Skipholti 1, Reykjavík frá 18/7 1978 gegn skilatryggingu að upphæð kr. 20.000. Tilboð verða opnuð á skrifstofu bæjarstjórans á Siglufirði mánudaginn 31/7 1978 kl. 17.00. Bæjarstjórinn Sigluf irði. Bókari óskast Bókari óskast á skrifstofu vinnuheimilisins á Reykjalundi. Heilsdags framtíðarstarf í góðri vinnuaðstöðu. Upplýsingar gefur skrifstofu- stjóri, Helgi Axelsson, í síma 66200. Vinnuheimilið Reykjalundi. 28311 SÍIVII 28311 Fasteignasalan Eignavör Hverfisgötu 16 A. Ti/sö/u: 3 herb. íbúð við Karfavog, 3 herb. íbúð við Kópavogsbraut, 3 herb. íbúð við Rauðarúrstíg, góð íbúð, 4 herb. jarðhœð við Álfliólsveg, 4—5 herb. við Álfaskeið, bílskúrsréttur, 5 herb. íbúð við Miklubraut. Hús á Eyrarbakka, hús á Stokkseyri. Höfum einnig sumarbústaðalönd við vatn og bústaði til sölu, hægt að greiða með skuldabréfi eða bifreið. Okkur vantar flestar stœrðir íbúða á skrá og sumarbú- staði með góðu landifyrir félagasamtök. Heimasimar eru: 41736 Einar Óskarsson, 74035 P6tur Axel Jónsson lögfreeðingur. Sérhæfum okkur í Seljum í dag: Saab 96 árg. '71, 1740 rámcentimetra mótor, ca 110 hestöfl. Bifreiðin erhvit og svört með útvikkun á brettum. Bifreiöinnifylgirallurátbúnaður til rallíaksturs, svo sem veltigrind, 4 punkta öryggisbelti, twin master speedpilot, öryggishjálmar, kastarar ogfleira. Auto Bianchi árg. 77 Auto Bianchi árg. 78 Saab 99 árg. 72, ekinn 98 þús. km Saab 99 árg. 73,ekinn 97 þús. km Saab 99 árg. 74, ekinn 68 þús. km Saab 99 árg. 75,4ra dyra, sjálfskiptur. Saab 95 station árg. 74 Saab 99árg. 76, ekinn 39 þús. km 'Saab 99árg. 76, ekinn 53 þús. km. Látíð skrá bíla, höfum kaupendur að ýmsum árgerðum. s ueÍM*t^ BJÓRNSSON Aco BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK Nóg að gera í garð- vinnunni núna Hvað á helzt að gera í júlí, ágúst og september? Nú eru fjölmargar blómjurtir farnar að hækka og margar hverjar í fullum blóma. Ef ekki er [jegar búið að binda þær upp þarf að gera það núna. Ef gerir rok og rigningu getur það alveg eyðilagt jurtirnar. Nota má ýmsar að- ferðir við uppbindinguna, t.d. stinga niður bút af plasthúðuðu vírneti i kringum plöntuna eða nota 3—4 prik af mátulegri hæð og binda band á milli þeirra'. í eldri görðum fellur alltaf eitthvað til af greinum sem má klippa til og stinga niður i kringum lágvaxnari jurt- ir. Það er ekki eins áberandi og prik og bönd. Mesta listin við upphenginguna er að gera það þannig að sem allra minnst beri á henni. Dreíf plantið núna Nú er hentugur tími til þess að dreifplanta fjölærum og tvíærum plöntum sem sáð var til I maí. Til þess að fá bellis og stjúpur til þess að blómstra snemma næsta vor er hent- ugt að sá til þeirra nú, en plönturnar verður að geyma í vermireit í vetur. Þegar blöðin á páskaliljum og túli- pönum fara að gulna má skera þau af. Ef það er gert of snemma veikir það jurtirnar. Grafið upp laukana að lokinni blómstmn Tilvalið er að grafa nú upp lauka sem þarf að planta um og þurrka þá. Þeir eru siðan gróðursettir á ný í sept- ember. Páskaliljur og smálaukar geta staðið i mörg ár á sama stað, en túli- pana þarf helzt að grafa upp og þurrka árlega. Um miðjan mánuðinn er góður timi til að taka græna græðlinga af ýmsum runnum og eins af víði og ösp. Ágúst Þó að enn sé hlýtt í veðri og allt i fullum blóma er ekki úr vegi að fara að hugsa til haustsins. margir hafa yndi áf því að skera blóm I vasa. Hentugast er að hafa sérstakt blómabeð til þeirra hluta til þess að taka ekki alltof mikið af blómum úr garðinum. Blóm yfir veturinn Til þess að geta haft eitthvað í vasa yfir haust- og vetrartímann er sjálfsagt að nota þurrkuð blóm. Má þar nefna hin eiginlegu eilífðarblóm en einnig ýmsar tegundir garðblóma, svo sem silfurhnapp, vallhumal, mariustakk, sveipstjörnu, •nækoll og fleiri. Gerið sjálf tilraunir með fleiri tegundir, það getur verið mjög spennandi. Einnig eru margir fræstönglar skemmtilegjr í vasa og eins puntstrá af mörgum gerðum. En þau verður að skera áður en þau ná fullum þroska. í ágúst er heppilegur tími til að taka græðlinga af nokkrum tegundum plantna sem illa gengur að láta lifa yfir veturinn. Má þar nefna lambseyra, hraunbúa, stúdentanellikku og fleiri nellikkuafbrigði. Einnig má fjölga og yngja upp ýmsar steinhæðaplöntur, svo sem steinbrjót, hnoðra, skriðblóm o.fl. Er þeim stungið I sólreit, þaðer að Anamaðkurínner hreinleg skepna sem óhreinkar ekki gönginsín Þess vegna hjálpar hann garðeigendum og bændum með því að koma súrefni ofan í jörðina Flestir vita að ánamaðkurinn gerir gagn í görðum okkar. Þeir eru ekki aðeins góðir fyrir veiðimennina, sem geta aftur á móti verið hreinustu skaðræðisgripir í görðunum, þegar þeir eru að leita ánamaðkanna. Ánamaðkar eru tvikynja. Þegar þeir halda brúðkaup festa þeir sig saman með einkennilegum hringböndum. Síðan fara þeir sitt í hvora áttina og eiga börn, eða öllu heldur egg, hvor helmingur i sínu lagi. Fáir vita að ánamaðkar eru þaktir hárum sem snúa aftur. Með því að strjúka fingri fram og aftur eftir ána- maðkinum má finna hvað snýr fram og hvað aftur á honum. Þetta notfærir moldvarpan sér en hún er einn höfuð- óvinur ánamaðkanna. Hún þreifar fyrir sér með snoppunni og gleypir siðan maðkinn með höfuðið á undan. Þá er engin hætta á að hann standi i henni. Er hann fallegur? Mörgum finnst ánamaðkurinn fallegur þegar búið er að skola af honum moldina, langur og vöðva- stæltur. Hann hefur tvö lög af vöðvum alla leið út á hala, hring- vöðvar, þversum og lengdarvöðvar langsum. Höfuðið er að vísu ekki eins áberandi og hjá mönnunum en þver- rifan — munnurinn — er i lagi. Hins vegar er sjónin ekki sem bezt. Ekki er hann tilfinningalaus og sennilega finnur hann lykt. Snerting við salt eða áburðarefni fær hann til að sprikla — mótmæla. Undir húðinni eru frumur sem eru viðkvæmar gagnvart birtu. Sennilega fleiri á framendanum. Ef lýst er á hann með vasaljósi að nóttu til er hann fljótur að stinga sér. segja græðlingunum, og gler eða plast yfir. Tilvalið er að snyrta limgerðið með einni klippingu fyrir haustið. September Nú má færa til fjölærar jurtir sem staðið hafa of þétt og skipta þeim, sem orðnar eru of fyrirferðarmiklar. Það sést betur núna en í vor, þá voru menn búnir að gleyma hvaða jurtir voru stærstar. Að jafnaði skal skipta snemmblómstrandi jurtum að hausti en þeim sem blómgast síðar er betra að skipta að vorlagi. Köfnunarefni á blettínn Ef grasbletturinn er farinn að gulna skal bera köfnunarefnisáburð á hann. Rótarvöxtur er nú hafinn hjá fjölær- um laukjurtum. Þess vegna er gott að gefa þeim skammt af blönduðum garðaáburði. Einnig þarf að fara að planta laukum fyrir næsta vor. Einkum er áríðandi að páskaliljur séu gróðursettar snemma svo þær nái að festa rót fyrir veturinn. Ef til vill standa sumarblómin ennþá. Það getur borgað sig að fórna nokkrum þeirra frekar en að geyma laukana of lengi. Um leið og blöðin eru farin að sviðna á dalium og begóníum eru hnýðin tekin upp og komið í vetrar- geymslu. Geymsluaðferðirnar eru margar og hver og einn verður að nota þá sem honum hentar bezt. Sumir hrista aðeins mestu moldina af þeim og raða þeim i kassa með mold, mosa og sandi eða spænum á milli hnúð- anna. Aðrir þvo hnýðin vandlega og þurrka, vefja þeim inn I dagblöð og geyma þau síðan I plastpoka. Potta- ræktaðar dalíur er bezt að geyma i pottunum. Geymslan á að vera loft- góð, svölenfrostlaus. -H.L. Ánamaðkar anda í gegnum húðina. Þess vegna þurfa þeir alltaf að vera rakir. Ef þeir þorna kemst loftið ekki í gegn og þeir deyja af súrefnisskorti. Hins vegar þola ánamaðkar ekki að vera i vatni, þá drukkna þeir. Étur ekki mold Ánamaðkar lifa ekki á mold. Þeir geta étið mold ef í henni eru lífræn efni. Þeir sækja aðallega i fallin lauf- blöð, laus strá og dauðar jurtaleifar. Dregur maðkurinn það ofan í göngin sín. Borðsiðir þeirra þættu ekki finir í mannheimum. Ánamaðkurinn skyrpir i matinn til þess að hann renni Ijúf- legar niður í hann. Þið hafið áreiðanlega séð smáhaug- ana sem ánamaðkurinn skilur eftir ofanjarðar. Hann er hreinlegur og vill ekki óhreinka göngin sín meðeigin úr- gangi. Hann gerir garðeigendum og bændum mikinn greiða með því að bæta moldarlagið og með því að grafa holur svo súrefni komist til annarra dýraogjurtaætna. Takiðeftir hvernig hann hreyfirsig. Hann dregur fyrst hringvöðvana saman svo að hann verði mjórri og lengri, síðan, þegar hann fer að skríða ofan í holuna, draga lengdarvöðvarnir sig saman svo hann verður digrari og styttri og eins og festist i holunni og dregur afturendann að sér. Ánamaðkurinn bætír við moldina Dýrafræðingar hafa komizt að raun um að í einum hektara lands geta verið minnst 133 þúsund ánamaðkar. Sportveiðimenn þurfa þvi ekki að hafa samvizkubit vegna ánamaðkanotk- unar sinnar. Þeir ættu aðeins að sýna þá tillitssemi að fara ekki inn í einka- garða án leyfis og stórskemma þar með því að troða niður blóm og velta til steinum og eyðileggja þannig oft margra ára jarðvinnslu garðeigand- ans. Á veturna grefur ánamaðkurinn sig dýpra niður og liggur þar i nokkurs konardvala. Það hefur verið mælt hversu mikla mold ánamaðkurinn bætir við moldar- lagið með því að strá kalki i tilrauna- svæði. Tíu árum seinna fannst þetta lag 10 cm undir flötinni. Þannig hefur ánamaðkurinn árlega bætt einum cm við gróðurmoldina ofan á flötinni. H.L. Ánamaðkarnir eru með beztu vinum veiðimanna sem eru aftur á móti engir aufúsugestir garðeigenda, þegar þeir læðast inn i skrautgarða á næturþeli og ræna sér möðkum. DB- mynd Hörður Vilhjálmsson.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.