Dagblaðið - 17.07.1978, Blaðsíða 40
Sjórall 78:
Munaði 2 mínútum á
Láru og Hafdísi til
Ólafsvíkur
— eftir erf iða siglingu í vondu veðri
f rá ísafirði. Koma kl. 17 í dag
Það munaði aðeins tveii.iur
mínútum á Láru 03 og Hafdisi 09
þegar bátarnir komu til Ólafsvíkur um
hálffjögurleytið í nótt; Hafdís hafði
vinninginn.
Bátarnir fóru í samfloti frá lsafirði i
gærdag og sóttist erfiðlega í vondu
veðri beint i fangið — stundum allt að
því roki, miklum straumi og erfiðu sjó-
lagi. Látraröstin var illúðug að sjá og
hikuðu áhafnir bátanna tveggja
nokkuð þar við, en eftir góða aðstoð
farstöðvaeigenda í landi, á Patreksfirði
og viðar, lögðu þeir í röstina og kom-
ust klakklaust yfir í samfloti.
1 Ólafsvík var mikill viðbúnaður i
gærkvöld og góð stemmning meðal
allra þeirra, sem biðu á bryggjunni
fram eftir nóttu og fylgdust með bát-
unum í barningi þeirra móti veðri og
vindum. Heldur hafði fækkað á
bryggjunni þegar áhafnir Láru og Haf-
dísar — hjónin Lára Magnúsdóttir og
Bjami Björgvinsson og Hallur Fr.
Pálsson og Brynjólfur Brynjólfsson —
stigu á land, blaut og hrakin. Þar var
þó móttökunefnd og færði hafnar-
stjórinn í Ólafsvík, Kristján Helgason,
þeim minjagripi aðgjöf.
í morgun'var fyrirhugað aö bátamir
legðu af stað frá Ólafsvik til Reykja-
vikur fyrir hádegið og eiga þeir því að
lenda við Loftsbryggju um kl. 17.
Áhafnir Hafróts og Signýjar ætla að
sigla á móti þeim og munu þvi bátamir
fjórir renna allir saman inn á Reykja-
vkurhöfn, eftir eitt strangasta sjórall
sem háð hefur verið. ÓV/GS, Ólafsvík
Mikill mannfjöldi var á öllum bryggjum og á strandlengjunni við hafnarsvæðið
þegar Hafrót og Signý komu til hafnar i gærkvöldi.
— DB-mynd JR.
STARFSVOLLUR
EYÐILAGÐUR
Börnin á starfsvellinum við Laugar- Furðulegt er það að enginn skuli
nesskóla urðu fyrir miklum leiðindum taka eftir aðgerðum sem þessum. Stór
um helgina. Litla þorpið þeirra, „Hið umferðaræð á aðra hönd, íbúðarhús á
nýja Grjótaþorp”, sem þarna var að hina. Hlýtur talsverður fyrirgangur að
rísa úr kassafjölum á skólalóðinni, hafa fylgt eyðileggingarstarfi þessu,
hafði að miklu leyti verið jafnað við sem trúlega hefur átt sér stað í gær-
jörðu. kvöldi eða nótt. . irp
Sjópósturinn
kominn og verður
seldurí dag
Mikið hefur verið spurt um sjópóstinn
sem hafður var með bátunum í Sjóralli.
Takmarkað upplag umslaga með póst-
stimplum aðalviðkomustaða er nú
komið með Hafróti og Signýju, en í dag
kemur svo lokasendingin af póstinum.
Frímerkjamiðstöðin selur umslögin til
safnara og annarra áhugamanna í dag
og næstu daga eða meðan birgðir endast.
Ágóði af sölunni er notaður til að standa
straum afkostnaði viðrallhaldið.
Á myndinni er Ásgeir H. Eiriksson að
taka við hluta af póstinum úr Hafróti i
gærkvöldi.
DB-mynd Guðjón.
Það fer vel á með Marteini Valdimarssyni og Funa sem á Skógarhólamótinu
reyndist ofjarl allra annarra hesta á brokki. Funi setti nýtt íslandsmet f 1500
metra brokki. — DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
Skógarhóla-
mótið fór hið
bezta fram
„Engin óhöpp að heitið gæti urðu á
Landsmóti hestamanna og í heild má
segja að mótið hafi farið mjög vel fram,”
sagði Jón Guðmundsson' yfirlögreglu-
þjónn á Selfossi. 20—26 manna sveit
lögreglumanna var á mótinu alla dagana
en sú sveit þurfti ekki að beita sér að ráði
vegna góðrar framkomu gesta.
Jón sagði að tiltölulega fáir hefðu ver-
ið fluttir á brott sakir ölvunar en þó tveir
til þrir tugirmanna.
Það óhapp varð helzt að á fimmtu-
dagskvöldið varð hestur fyrir bíl á móts-
svæðinu og slasaðist svo illa að hann
varðaðaflífa.
—ASt.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGLR 17. JÚLÍ1978
Uppgjör
„Skáta-
sirkuss”
r
I
dag
„Okkur barst fyrir helgina bréf frá
Bandalagi íslenzkra skáta þar sem til-
kynnt er að fjárhagslegs uppgjörs sirkus-
sýningarinnar sé að vænta i dag,” sagði
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri í
'menntamálaráðuneytinu, í samtali við
DB í morgun.
I frétt I DB 7. júlí sl. var það haft eftir
Páli Gíslasyni, skátahöfðingja, að um
eða yfir 50% af ágóða sem yrði af sirkus-
sýningu Gerry Cottle í Laugardalshöll
rynni til einkafyrirtækisins Jókers. í
framhaldi af því ritaði menntamálaráðu-
neytið Bandalagi islenzkra skáta bréf og
óskaði eftir að það gerði grein fyrir
hvernig hagnaði af sirkussýningunni
yrði varið. Það var skilyrði ráðuneytisins
fyrir því að fella niður skemmtanaskatt
af sirkusnum að allur ágóði færi til bygg-
ingar æskulýðsheimilis skáta.
■gm
Sofnaði út frá
logandi
vindlingi
Rúmlega sextugur maður hlaut tals-
verð brunasár seint á föstudaginn er
eldur varð laus í herbergi hans í húsi við
Hátún. Talið er að maðurinn hafi
sofnað út frá logandi vindlingi og kvikn-
aði í rúmi hans. Vaknaði maðurinn ekki
fyrr en rúmföt og föt hans voru í Ijósum
logum og brenndist hann talsvert. Hann
liggur nú í Landspítalanum.
-ÁSL
Mikið um
slys í
umferðinni
Allmikill erill var hjá slysarannsókna-
deild lögreglunnar um helgina og hlutu
margir sár I slysum, þó ekki sé um stór-
slys að ræða. í morgun varð ungur piltur
fyrir bíl á Kleppsvegi við Dalbraut. Var
hann fluttur í slysadeild en var ekki tal-
innalvarlega slasaður.
Í gær voru fjórir fluttir í slysadeild
eftir harðan árekstur á mótum Reykja-
vegar og Hofteigs og aðfaranótt laugar-
dags slasaðist farþegi í bíl sem lenti i
árekstri á mótum Grensásvegar og Bú-
staðavegar.
- ASt.
1 KaupiðV
TÖLVUR >
OGTÖLVUUR
BANKASTRÆTI8
.^Ml 276^