Dagblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978.
9
Skoðanakönnunin um stjórnarmyndun:
Hvað segja þingmeim?
Vottur um að við stef num að réttu marki
— segirFinnurTorfiStefánsson (A)
„Mér sýnist þetta vera heldur lítiö úr- hann álits á niðurstöðum 1 Um likurnar á að af vinstri stjórn
tak hjá ykkur en ég geri ráð fyrir, að i skoðanakönnunarinnar. „Það má segja, verði get ég ekkert sagt í augnablikinu.
þessu felist einhver vísbending,” sagði 'að þetta sé ánægjulegur vottur um, að Hvort tveggja getur orðið ofan á en von-
Finnur Torfi Stefánsson er DB innti viðséumaðstefnaaðréttumarki. andi skýrist þetta næstu daga.” — GAJ
Óvarlegt að taka ekkert mark
á skoðanakönnunum
— segirAlbertGuðmundsson(D)
„Ég tel mjög óvarlegt að taka ekkert
raark á skoðanakönnunum,” sagði Al-
bert Guðmundsson og bætti við „ef
við leggjum saman fylgi þessara flokka
annars vegar og Sjálfstæðisfiokksins
hins vegar, þá er þetta ósköp likleg
niðurstaða. Ég vil ekki horfa framhjá
þeirri hættu sem að steðjar. Við sjálf-
stæðismenn höfum tapað fylgi og
vinstri flokkamir hafa unnið á. — Já.
Ég tel, að þessi niðurstaða hljóti að
vera örvandi fyrir þá, sem taka þátt i
þessum vinstri viðræðum, að finna
þennan meðbyr, sem kemur fram í
þessari niðurstöðu.”
Um likurnar á vinstri stjórn vildi
Albert lítið segja en bætti við: „Þeir
Þessa leið bérað reyna til þrautar
— sagðiGilsGuðmundsson (G)
Gils Guðmundsson (Alþbl.): þrautar, eins og reyndar aðrir þingmenn Eins og staðan er nú er erfitt að segja
„Almennt séð er ég því mjög ein- Alþýðubandalagsins. Fjarri fer þvi þó að meira um þetta, en málin kunna að skýr-
dregið fylgjandi að reyna þessa leið til sama sé upp á hvaða býti það verður. ast eitthvað I dag.” _ BS
Ólafur RagnarGrímsson (G)
Könnunin hvatning til
myndunar vinstri stjórnar
— Felurí sér athyglisverða ábendingu
um áherzlu sem ríkir hjá fólki
„Þótt könnun af þessu tagi gefi ekki
til kynna tölulega nákvæman stuðning
við mismunandi tegundir stjóma,” sagði
Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður,
„þá felur hún samt í sér athyglisverða
ábendingu um þá áherzlu, sem er ríkj-
andi hjá fólki.
Könnunin sýnir að sú leið til stjórnar-
myndunar, sem Alþýðubandalagið beitti
sér fyrir fær yfirgnæfandi mestan stuðn-
ing. Alþýðubandalagið hafnaði við-
ræðum um nýsköpunarstjórn og beitti
sér fyrir því að fá Framsóknarflokk og
Alþýðuflokk til viðræðna um myndun
vinstri stjórnar og könnunin sýnir að þar
hefur Alþýðubandalagið bent á þá leið,
sem greinilega nýtur mests fylgis meðal
fölks. Vonandi er að könnunin verði
mönnum enn frekari hvatning til þess að
láta slíka stjórnarmyndun takast og þeir
forráðamenn í Alþýðuflokki og Fram-
sóknarflokki, sem I siðustu viku voru í
málgögnum sínum að benda á aðrar teg-
undir ríkisstjórna, sjái að þessar hug-
myndir hafa lítinn hljómgrunn hjá þjóð-
inni.
Mér finnst einnig athyglisvert,” sagði
Ólafur Ragnar, „að rúmur helmingur
þeirra sem svör gefa, kýs ríkisstjórn, sem
Sjálfstæðisflokkurinn á ekki aðild að og
ætti það að verða þeim forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins, sem sýknt og heil-
agt halda því fram, að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé kjölfesta þjóðarinnar, tilefni til
einhverrar sjálfsgagnrýni.
Könnunin staðfestir úrslit kosning-
anna. Stjórnarforystu Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks er hafnað og yfir-
gnæfandi meirihluti vill ríkisstjórn, þar
sem Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur
eiga samleið.”
— JH
Ekkert við slíka stjórn að athuga—anna
hefðu Alþýðuf lokkur og Alþýðubandala
átt að reyna stjórnarmyndun
— sagði ÞórarinnSigurjónsson (B)
„Erfitt er að gera sér grein fyrir því
ennþá, hvernig stjórn verður mynduð.
Út af fyrir sig hefi ég ekkert að athuga
við slíka stjórn eins og nú er reynt að
mynda, ef skilmálar viðsemjenda eru
ekki óaðgengilegir. í því tilliti vantarenn
mikiðáskýrar línur.
Annars er ég þeirrar skoðunar eins og
ég hefi verið, að Alþýðuflokkur -og Al-
þýðubandalag hefðu átt að reyna
stjórnarmyndun. Úrslit kosninganna ciu
■ 'nföld en sterk röksemd fyrir því, og
það var yfirlýst af formanni Fram-
sóknarflokksins, að með hlutleysisstuðn-
ingi við hana, væri slík stjórnarmyndun
möguleg.
Nú innan skamms byrjar fundur þing-
flokks og framkvæmdastjórnar Fram-
sóknarflokksins. Væntanlega verða þar
skýrðar hugmyndir viðsemjenda okkar i
málinu.” _ BS
REYKIÐJAN HE
SMIÐJUVEGI 36 © 7 63 40
önnumst hvers konar matvælareykingar
fyrir
verslanir, mötuneyti og einstaklinga.
Ekki hægt
að draga
þetta öllu
lengur
— segir Jóhanna
Sigurðardóttir(A)
„Ég er hissa á þvi, að ekki hafi fleiri
mælt með nýsköpunarstjórn,” sagði
Jóhanna Sigurðardóttir er DB spurði
hana, hvað henni þætti um niðurstöður
skoðanakönnunar DB. „Þetta er auð-
vitað lítið úrtak og ég vil ekki býggja
mikið á því. Þá á ég einnig von á, að þær
viðræður sem eru i gangi hafi haft ein-
hver áhrif á afstöðu fólks. Fólk er orðið
langeygt eftir stjórnarmyndun og fyrir
helgina lá i loftinu að vilji væri fyrir
hendi hjá þeim flokkum sem nú eru að
ræðast við. Annars hef ég ekki verið
sannfærð um fullan vilja hjá Alþýðu-
bandalaginu. Það á eftir að koma í Ijós
hvernig þeir taka hugmynd okkar um
kjarasáttmála, sem við teljum þýðingar-
mesta atriðið I þessu öllu saman. Það
liggur i loftinu, að ekki sé hægt að
draga þetta öllu lengur. Það verður að
fara að sjást árangur. Annars á ég von á,
að niðurstöðu sé að vænta eftir daginn á
morgun,” sagði Jóhanna Sigurðardóttir
að lokum.
• GAJ
eru I alvöru að tala saman. Þetta eru
engir spjátrungar heldur menn sem
taka sitt hlutverk alvarlega. Þeim
hefur verið falið þetta umboð og ég tel
að þeir vinni að þessu af heilum hug
alveg eins og sjálfstæðismenn gerðu ef
þeir stæðu í slíkum viðræðum. Það
væri að blekkja sjálfan sig að láta i það
skína að þeir væru með leikaraskap.
Það þýðir þó ekki að þeir nái endilega
saman,” sagði Albert að lokum.
— GAJ
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiða, tildæmis:
Saab árg. '68, VW 1600 árg. '68, Willys
árg. '54, Fiat 850 S árg. '72. Moskvitch
árg. '72. Chevrolet Chevelle árg. '65,
Fiat 125 S árg. '72.
Einnig höfum viö úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um alltland.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10- Sáni 11397
\ _ »
Ólafsvík —
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra í Ólafsvík er laust til um-
sóknar. Umsóknir unVstarfið ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist oddvita
Ólafsvíkurhrepps, Alexanders Stefánssonar,
fyrir 31. ágúst 1978.
Hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps