Dagblaðið - 18.10.1978, Síða 1
Sríálst
úháð
daghlað
4. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1978-231. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTIII. — AÐALSÍMI 27022.
Bóndinnað
Hjarðarbóli
óttast
að bændur
leyni
veikinni:
„Ég tel aðalvandann við þetta að
menn muni reyna að leyna sjúkdómn-
um af ótta við niðurskurð og lógi kind
og kind i kyrrþey, komi riðueinkenni
fram á þeim,” sagði Halldór
Guðmundsson bóndi að Hjarðarbóli í
Ölfusi og jafnframt sláturhússtjóri SS
á Selfossi í viðtali við DB í gær.
Sauðfjárveikinefnd hefur ákveð-
ið að fjárstofn hans, 150 kindur,
skuli skorinn niður. Hefur Halldór og
kona hans eytt mikilli vinnu í að rækta
upp fé sitt i átta ár, með þeim árangri
að fallþungi dilka þeirra er 4 til 5 kg
hærri en að meðaltali en fita ekki
mikil.
Hafi eitthvað komið upp i fjárstofni
Halldórs hefur hann sent sjúku
kindurnar að Keldum til rannsókna og
þar kom i ljós að riðuveiki var í fé
hans.
Upphafsorð sín styður Halldór m.a.
með orðum bónda, er hann hitti eftir
að niðurskurður kinda Halldórs lá
fyrir: „Þetta er maklegt á þig því ef
eitthvað kemur upp í fénu hjá þér,
rýkur þú með það að Keldum”
(Rannsóknastofnun landbúnaðarins).
Halldór sagði að riðu hefði fyrst
orðið vart á Suðvesturlandi í Fjárborg
Reykvíkinga fyrir tiu árum og ekki
væri hægt að lita á sofandahátt
Sauðfjárveikinefndar öðruvisi en áætl-
un um að rækta upp þessa veiki.
-G.S.
„ÞER VAR NÆR AÐ
KJAFTA FRÁ”
— sagði bóndi við hann þegar hann f rétti um niðurskurð á Hjarðarbóli
Guðriður, kona Halldors, hefur einkum séð um daglega hirðu Qárins I fjarveru manns sins og flykktust kindurnar að henni um leið og hún kallaði á þær i gær —
greinilega góðu vanar. DB-mynd: R.Th.
ARABAR KANNA HÉR ÓTAK-
MÖRKUÐ LAMBAKJÖTSKAUP
—vilja flytja út 50 þús. stykki á fæti í einu
í fyrradag barst hingað fyrirspum frá
íslenzka konsúlnum i íran hvort mögu-
leikar væru á að kaupa héðan geysilegt
magn lamba á fæti þar sem yfirvöld i
landinu hafa gefið leyfi til að flytja inn
2,4 milljónir lamba árlega. Hérá landi er
hins vegar slátrað um einni milljón fjár
árlega og mestur hluti þess fer til
innanlandsneyzlu.
Mál þetta er á algeru frumstigi og Ijóst
er að það verð, sem arabar greiða fyrir
lömb frá Nýja-Sjálandi er lægra en
íslendingar geta sætt sig við.
Hins vegar tjáði Sveinn Hallgrimsson,
nefndarmaður í markaðsnefnd land-
búnaðarins, DB i gær að íslenzku lömbin
væru 15 til 25 prósent þyngri en þau
nýsjálenzku og jafnframt væri íslenzka
kjötið fituminna. Væri því ekki
óhugsandi að fyrir það fengist talsvert
hærra verð.
Arabar vilja féð á fæti þar sem
Kóraninn. biblía múhameðstrúar-
manna, leyfir ekki aðra aðferð en háls-
stungu sem aflífunaraðferð, sömu
aðferð og íslendingar notuðu þar til þeir
fóru að nota byssur til sliks, löngu eftir
að byssur voru upp fundnar.
Með hálsstunguaðferðinni missir
skepnan þegar í stað meðvitund og
blæðir kvalalaust út. Varðandi sauðina
fjóra, sem senda á út til Kuwait næstu
daga, stendur til að slátra þeim i full-
komnu sláturhúsi með þessari aðferð, en
ekki „fórna” þeim við einhverja helgi-
athöfn, eins og ráða mátti af frétt DB
fyrirskömmu.
Um þann útflutning sagði Sveinn að
hann treysti sér ekki til að kalla
aflífunaraðferðir sem hundruð milljóna
múhameðstrúarmanna, nota skv.
siðalögmálum þeirra, rangar eða
ómannúðlegar og sem nefndarmanni i
nefnd, sem falið væri að kanna alla
hugsanlega útflutningsmöguleika, sæi
hann ekki ástæðu til að falla frá honum.
-G.S.
Eltu og ógnuðu
manni með „byssu”
— þrír piltar handteknir f miðbænum
Þrír piltar voru handteknir fyrir unnar sagði að rannsókn þessa máls
utan Hótel Borg í gærkvöldi. Höfðu væri á frumstigi og lítið væri enn um
þeir lagt ákveðinn mann i einelti og málið að segja. Piltunum var sleppt
ógnað honum með byssu. Kom í ljós eftir fyrstu yfirheyrslu en hald lagt á
eftir handtökuna að hér var um leik- leikfangið. Guðmundur kvað grun
fangabyssu að ræða sem var mjög leika á um að piltarnir hefðu reynt að
nákvæm eftirliking af raunverulegri þvinga eitthvað af þeim manni sem
skammbyssu. þeir lögðu i einelti og komst undan
Guðmundur Hermannsson yfír- piltunum inn á Hótel Borg.
maður rannsóknardeildar lögregl- _ASt
Kortsnoj gaf skákina
og Karpov heimsmeistari
— Jón L. Arnason skrifar um skákina á bls. 7
^ J
Einokun ís
lenzkra aðal-
verktaka
— sjá kjallaragrein
Vilmundar
Gylfasonarbls.il
Verðlag
íKeflavík
og nágrenni
misjafnt
-sjábls.4
—