Dagblaðið - 25.10.1978, Síða 2
DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
2
r
Ofyrirgefanleg
hegðun vagnstjóra
Unnar M. Andrésson skrifan
Að gefnu tilefni vil ég gera smá-
athugasemd við framkomu vagnstjóra
hjá SVR. Ég vil taka það fram að ég á
hér við einn ákveðinn mann, þótt ég
láti ei nafns hans getið. Mig furðar
mjög að sá maður skuli gegna jafn
ábyrgðarmiklu starfi og raun ber vitni.
Dag einn fyrir skömmu, kl. 17.30,
kom kona mín til mín á vinnustað og
var henni mjög brugðið enda sagði
hún farir sinar ekki sléttar. Hún hafði
sem sé skömmu áður tekið leið nr. 11
við Grímsbæ og inn í Blesugróf, þar
sem við búum, og þar byrjuðu
erfiðleikarnir.
Hún var með litla dóttur okkar i
kerru með sér. Þegar vagninn kom
opnaðist fremri framhurð hans og
farþegamir stigu inn, allir nema konan
mín af því að hún beið eftir því að
bílstjórinn opnaði aftari framhurðina
til þess að hún kæmist inn með
kerruna.
En bílstjóri lokaði hurðinni áður en
af því gæti orðið og ók af stað. Konu
minni tókst þó að stöðva hann með
því að berja alla hlið vagnsins aftur að
afturhurðinni. Þá loksins kviknaði á
perunni hjá mannkerti þessu og
honum varð Ijóst að bað eru tvær
Raddir
lesenda
hurðir að framan. Aftari hurðin
gegnir m.a. því hlutverki að hleypa inn
fólki sem er með fyrirferðarmikla hluti
með sér, eins og t.d. barnakerrur. En
nú kemur kjarni sögunnar. Þegar
kona mín steig af „lestinni” inni i
Blesugróf varð alvarlegt og ófyrirgef-
anlegt atvik. Konan min fer sem sagt
út úr vagninum og er að koma
kerrunni með barninu út þegar
afturhurðin skellur aftur og klemmir
kerruna fasta. Vagninn ekur af stað og
þarna upphefst kapphlaup upp á líf og
dauða. Móðrin hékk 1 kerrunni til að
verja barnið falli (barnið er 16 mánaða
gamalt) þar til ferðin var orðin svo
mikil að hún varð að sleppa. Til allrar
„guðs lukku” tókst farþegum sem í
vagninum voru að vekja blessaða
mannugluna sem sat undir stýri og allt
fór vel, þótt ótrúlegt sé. Manngreyið
meira að segja reis upp úr sæti sínu og
spurði hvort einhver væri slasaður og
hvort kerran væri eitthvað skemmd.
Konan mín, sem er þýzk og hefur
aðeins verið hér á Fróni i tvö ár,
gleymdi í skelfingu augnabliksins
íslenzkunni, sem hún hefur þó lært
mjög vel, og gat því engu svarað. Það
má geta þess í lokin að hún er komin 6
mánuði á leið og er alveg ófyrirséð
hvaða áhrif svona áföll geta haft á
þungaðar konur. Ég vil að lokum
ítreka það, að þetta á ekki við um
strætisvagnabilstjóra yfirleitt.
Mikil ábyrgð er lögð á herðar þeim sem aka fólksflutningabifreiðum.
Bakkabræðurnir
Van der Merwe
Viggó Oddsson skrifar:
Allar þjóðir eiga sína Bakkabræður
og tilheyrandi kímnisögur. I suður-
hluta Afriku er Van der Merwe,
óþrjótandi lind af gamansögum. Um
20 þúsund manns með þessu nafni búa
i S-Afríku, enda er ættin frá fyrsta
landnámi í Cape Town. Merwarnir
eru taldir fremur grunnhyggnir, sumir
meinslungnir i ofanálag. Nýjasta
sagan er svona:
Kvöldskólinn
Maður spurði Van der Merwe:
„Veiztu hver er forseti Bandaríkj-
anna?” „Nei” sagði V.dM. „Það er
Carter. En hver er forsætisráðherra í
Englandi?” V.d.M. vissi það ekki
heldur. Maðurinn sagði: „Það er
leiðinlegt að vera svona fáfróður, hvi
ferðu ekki í kvöldskóla og lærir eitt-
hvað?” Van der Merwe svaraði þá:
„Af því þú ert nú svo fróður, hver er
Jan Westhuisen?” Það vissi kunning-
inn ekki svo V.d.M. sagði: „Hann fer í
kvöldskóla og dansar við konuna þína
þar á hverju kvöldi.”
Jarðarförin
Fyrir nokkru var boltaleikur á milli
Frakka og S-Afríkumanna, en hér
suður frá eru menn með ólæknandi
sportdellu. Leikvangurinn var þéttset-
inn en það var autt sæti við hlið eins
Van der Merwe. Maður sem varð að
standa spurði hvort hann mætti sitja
þarna. „Nei,” sagði V.d.M., „þetta er
frátekið handa konu minni.” „En hún
er ekki hérna,” sagði maðurinn.
„Auðvitað ekki, hún er dáin,” sagði
V.d.M. „Af hverju gefurðu þá ekki
kunningjum þínum aðgöngumiðann?”
spurði manni. „Ég get það ekki, þeir
eru allir við jarðarförina,” sagði Van
der Merwe.
Flugvól
uppi á þaki
Rétt fyrir utan Jóhannesarborg er
bilaverkstæði og bensínsala. Eig-
andinn er Van der Merwe. Á þaki
verkstæðisins heftír hann komið fyrir
heilli Skymaster eða þess konar flug-
vél, sennilega keypt hana á uppboði
sem brotajárn en hvorki borgað sig að
gera flugvélina upp né bræða málminn
svo flugvélin er notuð sem auglýsing
við veginn. Ég leit þar inn og sá
Merwe, stóran og feitan Búa með
„tunnubrjóst”, eða „hyperman”
stærð, en léleg var þjónustan.
Járnbrautar-
klósettið
Einn Van der Merwe hafði unnið
50 ár við járnbrautirnar. Þegar hann
fór á eftirlaun var honum boðin ein-
hver gjöf. Hann sagðist helzt vilja fá
gamlan farþegavagn með eldhúsi og
klósetti settan á teina rétt hjá járn-
brautarlínu þar sem hann gæti horft á
lestirnar streyma framhjá. Þetta fékk
hann. Næst þegar stöðvarstjórinn átti
leið framhjá vagnhýsi V.d.M., sá hann
að hann var að ýta vagninum. í baka-
leiðinni var kona V.d.M. að ýta vagn-
inum til baka. Stöðvarstjóranum þótti
þetta svo skrýtið að hann fór af lest-
inni á næstu stöð, tók leigubíl og heim-
sótti gamla manninn og spurði hvers
vegna þau hjónin væru alltaf aö ýta
vagninum afturábak og áfram. „Nú,”
sagði Van der Merwe, „það er allt út
af þessum bannsettu reglugerðum, það
er bannað að sturta úr klósettinu
þegar vagninn er kyrrstæður.”
Það hafa verið gefnar út bækur
fullar af Van der Merwe sögum og
nýjar skrýtlur verða til hér fyrir
sunnan á hverjum degi um þetta
undarlega fólk.
Gæta veröur sérstakrar varúðar i umferðinni þar sem börn eru að leik
eða á leið 1 skóla. DB-mynd Hörður.
Munið Ijósin og
endurskinsmerkin
Kona sem er á ferð árla morguns
hringdi:
Er ég var á leið til vinnu i morgun
tók ég eftir því að a.m.k. þrír til fjórir
hjólandi vegfarendur voru hvorki
með Ijós né glitauga á hjólum sínum.
Getur þetta skapað mikla hættu í
umferðinni í mesta skammdeginu.
Einnig mætti minna gangandi veg-
farendur á að hafa endurskinsmerki á
sér. Það er stórhættulegt að keyra þar
sem börn eru á leið tii skóla, því þau
nánast hlaupa yfir götuna og á milli
bíla þar sem engin götuljós eru.
Heimilis-
iæknir
svarar
fladdir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislœknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.