Dagblaðið - 25.10.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
3
Spurning
dagsins
Tveir páfar með
nafninu Jóhannes 23.
Hvað finnst þér um
tolla og söluskatt á
hiálpartæki fyrir fatl-
Hólmar hringdi:
Við athuganir mínar á páfum
kaþólsku kirkjunnar frá upphafi hef ég
rekið mig á nokkuð undarlegt. Af
gögnum þeim sem ég hef undir
höndum verður ekki annað ráðið en
tveir slikir hafi verið nefndir
Jóhannesar 23.
Þar sem sá ágæti hans heilagleiki
Jóhannes 23., sem ríkti frá 1958 til
1963, skildi eftir sig svo glögg spor í
kirkjusöguna finnst mér undarlegt að
hann beri sama nafn í embætti og for-
veri hans í starfi, sem kom til valda
árið 1410 og ríkti til 1417.
Heimildir minar eru The World
Almanac & Book Of Facts 1977, bls.
385.
Á þessu væri gott að fá skýringu frá
fróðum mönnum. Hér virðist ekki um
prentvillu að ræða þvi samhljóða
upplýsingar eru í útbáfu bókarinnar
árið 1978.
Þar sem einn af blaðamönnum DB,
Gunnlaugur A. Jónsson, er
guðfræðingur að mennt, leituðu
Raddir lesenda til hans og svaraði
hann bréfi Hilmars:
Jóhannes 23. (fyrri) settist á páfastól
á miklum sundrungartímum innan
kirkjunnar. Var þá sú staða upp
komin að páfar sátu bæði i Róm og
Avignon og vildi hvorugur
viðurkenna hinn.
Óttuðust menn jafnvel að kirkjan
klofnaði af þeim sökum. Tóku þá ýms-
ir kardinálar á sig rögg og boðuðu til
kirkjuþings í Písa árið 1409 og kaus
nýja þingið páfa i stað hinna tveggja.
Ekki bætti það þó úr skák því hinir
páfarnir neituðu að viðurkenna hinn
nýja páfa og voru páfarnir þvi
raunverulega orðnir þrír. Þessi nýi páfi
andaðist mjög snemma og var þegar
valinn nýr páfi i hans stað. Sá maður
hét Baldassare Cossa og tók hann sér
nafnið Jóhannes 23. Þykir með
ólíkindum að hann skyldi ná slíkri tign
þar sem hann hafði jafnvel verið
sjóræningi. Hann gerði sig einnig
sekan um alvarleg mistök á páfastóli
og var handtekinn áður en yfir lauk,
leiddur fyrir kirkjuþing, sakaður um
óteljandi glæpi og villutrú og settur af.
Hinir páfarnir urðu einnig að víkja.
Tókst þannig að koma í veg fyrir
klofning kirkjunnar.
í 540 ár eftir þetta kærði enginn
páfi sig um að nota Jóhannesarnafnið
eða þar til nýr Jóhannes 23. settist á
páfastól árið 1958. Var þá hinn fyrri
Jóhannes 23.tekinn út af skrá ef svo
má segja, og ekki talinn með. Var það
enda heppilegasta lausnin, m.a. með
tilliti til kenningarinnar um óskeikul-
leika páfa, þar sem sýnt þótti að
Jóhannesi 23. (hinum fyrri) hefði
skjátlazt í veigamiklum efnum.
að fólk?
Kristján Ottósson: Mér finnst þetta
alveg fáránlegt, eins og margt annað
sem þessir háu herrar hafa gert. En þeir
bæta það kannski upp ef þeir lifa svo
lengi að stofna lífeyrissjóð fyrir allá
landsmenn.
Forvígismenn landbúnaðarmála:
Látið ekki þessa
vitleysu hafa
áhrif á ykkur!
„Ég trúi því nú ekki fyrr en á reynir
að forráðamenn landbúnaðarmála hér
á landi ætli að hætta við frekari
tilraunir til þess að selja sauði úr
landi, aðeins vegna þess að nokkrar
móðursjúkar kerlingar og einhverjir
sýndarmenn í „mannúðarmálum" hafi
fengið þá flugu i hausinnað rollurnar
yrðu aflífaðar á kvalafullan hátt og
jafnvel notaðar sem fórnardýr í trúar-
iðkunum.
Þetta er í rauninni dæmigert fyrir
þann tvískinnungshátt sem hér rikir á
öllum sviðum. Landbúnaðurinn ásamt
flestum öðrum atvinnugreinum berst í
bökkum og þegar loksins hillir undir
að stórhagnað mætti hafa af
viðskiptum við önnur lönd á þessu
sviði, þá rísa menn upp á afturfæturna
og fara að sýna einhverjar
uppdiktaðar tilfinningar í garð
sauðkindarinnar! Ekki man ég til Jjess
að við höfum mótmælt því hvernig
þorskurinn er matreiddur i öðrum
löndum, enda kemur okkur það ekkert
við og skiptir engu máli.
Að kindur hafi verið aflífaðar á
þennan hátt er engin ný bóla hér-
lendis. Og að láta þeim blæða út er
einfaldlega gert til þess að fá
bragðbetra kjöt, því enginn lýgur því
að mér, að arabar séu að stinga kindur
,Öne way ticket” til Kuwait.
til bana úti I löndum til þess eins að
skemmta sér við það eða þóknast
Allah.
Nei, ég skora á forvigismenn land-
búnaðarmála að láta ekki svona
vitleysu tefja fyrir sér, heldur reyna að
standa í þessum viðskiptum eins og
menn. -Pétursson.
Eftir hverju er beóiö, því skráir þú þig ekki f Hundavinafélagið?
Skráið ykkur í Hundavinafélagið
Liprir
bifreiða-
eftirlits-
menn
í Haf nar-
firði
Bíleigandi skrifan
Okkur íslendingum er alltof gjarnt
að rjúka upp og gagnrýna það sem
miður fer í þjóðfélaginu en siður að
standa upp og þakka það sem vel er
gert. Ég átti leið suður i Hafnarfjörð
nýlega með bílinn minn i skoð-
un, og var af ýmsum ástæðum
komið langt fram yfir þann tíma sem
hefði átt að vera búið að koma með
hann til skoðunar.
Bifreiðaeftirlitið i Hafnarfirði býr
við þröngan húsakost og slæmar
aðstæður til skoðunar, en með
einstakri lipurð og þægilegheitum í
framkomu verða bifreiðaeftirlits-
mennirnir til þess að afgreiðsla og
skoðun gengur vel og ekki kemur til
neinna árekstra.
Ég varö var við að nokkrir bílanna
sem komið var með til skoðunar
stóðust ekki þær kröfur sem gerðar
eru, en aðfinnslur og ábendingar af
hendi bifreiðaeftirlitsmannanna voru
fram bornar að hætti þeirra er vilja
vel, en ekki eins og frá þeim er valdið
hefur, en oft hefur verið deilt á bif-
reiðaeftirlitið fyrir slik vinnubrögð. Ef
allir þeir sem sækja þurfa þjónustu til
hins opinbera fengju svipaðar mót-
tökur og hjá bifreiðaeftirlitinu í
Hafnarfirði þá mættu allir vel við una.
Guðjón V. Guðjónsson, varaformaður
Hundavinafélagsins, skrifar:
Eins og flestum ykkur að minnsta
kosti ætti að vera kunnugt er starfandi
félagsskapur sem heitir Hundavina-
félag íslands. Þessi félagsskapur er því
miður allt of fámennur, enda stendur
mikill fjöldi ykkar ennþá utan við
hann. Þessa sorglegu staðreynd er
erfitt að skilja eða sætta sig við.
Maður hafði haldið að enginn myndi
skerast úr leik, sem i reynd vill hafa
þessi dýr hjá sér, án þess að eiga
stöðugt yfir höfði sér útistöður við
skilningssljó yfirvöld og aðra sem
naldnir eru hysteríu gagnvart þessum
dýrum.
Því aðeins er einhver von til þess að
lát verði á þeim linnulausu ofsóknum
sem stöðugt dynja á hundum og eig-
endum þeirra að við sem stöndum í
þessum „ósköpum” að hafa hjá okkur
hund, höfum með okkur öflug og vel
virk samtök. Við getum a.m.k. komið
í veg fyrir að þessir ofstopamenn náði
neinum umtalsverðum árangri. Sú for-
heimskun að banna manni að hafa hjá
sér hund þekkist hvergi annars staðar í
víðri veröld. Sjálfur Ugandaforseti
myndi aldrei láta sér detta það í hug
hvað þá að framkvæma.
Þið sem nú búið í bæjarfélögum,
þar sem hundahald er enn leyft ættuð
að hugleiða að þið gætuð vaknað upp
við það einn morguninn, og það fyrr
en ykkur grunar, að búið væri banna
slikt. Það er ekki lengi að skipast veður
í lofti hjá þessari bannglöðu þjóð. Nú
skora ég á ykkur er hafið ekki ennþá
látið skrá ykkur í félagið að gera það
strax. Vinnum saman að því að menn
geti um ókomin ár notið samvista við
þetta sérstæða dýr.
Upplýsingasími Hundavinafélags-
inser 33431.
Brynjólfur Karlsson: Fráleitt.
Birna Júlfusdóttir: Fráleitt, það er eng-
inn lúxus að þurfa að hafa hjálpartæki
sér til aðstoðar.
Guðrún Pétursdóttir: Mér finnst það
ætti að afnema alla tolla af hjálpartækj-
um og hlutum sem fatlað fólk og öryrkj-
ar nota.
Guðmundur Guðmundsson: Ég veit það
ekki, ég hef ekkert spekúlerað i þvi, en
það væri réttast aö fella þá niður.
Bryndls Richter Fella þá niður, auð-
vitað.