Dagblaðið - 25.10.1978, Side 4

Dagblaðið - 25.10.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978 DB á neytendamarkaði NOTKUN GEÐLYFJA MINNK- AÐIUM 20% ÁRID1977 — Gagnmerk grein í Fréttabréfi um heilbrigðismál eftir Almar Grímsson „1 þjóðfélagi nútímans eru lyf orðin jafn sjálfsagður hlutur innan hinna fjögurra veggja heimilisins og á vinnu- stöðum eins og bækur og blöð, jafnvel fæðan sem á borð er borin. Þetta er staðreynd sem er i senn ánægjuleg, en um leið nokkuð uggvænleg. Mótsögn- in I þessari fullyrðingu er að sjálfsögðu eins mikil og hugsazt getur en reynt verður að færa nokkur rök fyrir henni.” Á þessa leið hefst grein er Almar Grímsson lyfjafræðingur, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, skrifar i Fréttabréfi um heil- brigðismál og nefnist Framleiðsla, dreifing og notkun lyfja. f greininni er getið um merkar upp- götvanir síðustu áratuga, getið er um lyfjaskráningu og eftirlit, dreifingu lyfja og notkun og misnotkun þeirra. í kafla er heitir „Bjargvættur og böl- valdur” segir m.a.: „Það er líka vel þekkt staðreynd að almenningur I hinum þróuðu löndum, eins og t.d. á tslandi, hefur alls ekki næga þekkingu á notkun og meðferð lyfja, sem einkum leiðir til ofnotkunar á lyfjum en þó einnig að verulegu leyti til rangrar notkunar. Má sem dæmi nefna rika tilhneigingu til ótímabærr- ar notkunar á sýklalyfjum, sem veldur að sjálfsögðu miklum skaða þegar frá liður vegna ónæmismyndunar. Sama lyfið getur einnig verið einum til blessunar og öðrum til bölvunar og má þar taka sem dæmi ýms geðlyf sem linað hafa þjáningar margra en flýtt fyrir glötun annarra. Lyf eru því rétt- nefnd i sömu andrá bjargvættur og bölvaldur og er þvi i raun og veru fjar- stæða að fjaila þannig um þau undir samheiti.” í kaflanum Notkun og misnotkun segir m.a.: „Með lyfsölulögunum var tekin upp mjög ákveðin stefna í sambandi við lyfjaskráningu og lyfjaskrárnefnd sem tók til starfa samkvæmt þeim lögum beitti allstrangri túlkun á lögunum, sem orðið hefur til þess að fjöldi skráðra sérlyfja hér á landi er lægstur í allri Vestur-Evrópu. Enginn sérfróður aðjli hefur samt haldið því fram i al- vöru að hér á landi sé lyfjaskortur. Verður því ekki annað sagt en að vel hafi tekizt til I framkvæmd lyfjaskrán- ingar hér á landi, enda er það öllum aðilum í hag, basði læknum, lyfjafræð- ingum og öðrum heilbrigðisstéttum ásamt almenningi að sem fæst lyf séu skráð þannig að komizt verði hjá öll- um misskilningi og glundroða í dag- legu starfi og daglegri notkun lyfja. Hins vegar þarf alls ekki að fara saman að ströng lyfjaskráning og þar af leiðandi fá skráð lyf hafi í för með sér eðlilegri lyfjanotkun. Sem dæmi um þetta má nefna rannsókn sem gerð var á notkun geðlyfja í fjórum Norðurlandanna árin 1972—1976, en við það kom I ljós verulega meiri notkun á þessum lyfjum hér á landi en j samanburðarlöndunum. Við nánari rannsókn hér á landi kom fram að um nokkra misnotkun var að ræða og voru hafnar aðgerðir árið 1977, sem leiddu til þess að notkun þessara lyfja árið 1977 miðað við árið áður minnkaði um 20%.” t lok greinarinnar segir: „Hér liggur fyrir geysimikið verk- efni sem er að veita almenningi að- gengilegar upplýsingar um meðferð lyfja og svo aftur hitt sem ekki er minna um vert, að almenningur hafi á hverjum tima og hvenær sem er aðgang að upplýsingum um þau lyf, sem hann er að nota. Að sjálfsögðu er það fyrst og fremst viðkomandi læknir sem veita þyrfti slíka þjónustu en lyfjabúðirnar hafa hér einnig mjög mikilvægu hlutverki að gegna.” Reglur og hefð stangast á Fyrir nokkru var birt hér á Neyt- endasiðunni bréf frá „neytanda” þar sem kvartað var yfir því að upplýs- ingar um lyf sem framleidd eru er- lendis væru fjarlægðar úr umbúðum lyfjanna áður en viðskiptavinurinn fær lyfið I hendur. Rætt var við Sigur- jón Jónsson, sem er eftirlitsmaður lyfjaverzlana, og sagði hann það rétt vera að umræddar upplýsingar væru fjarlægðar úr umbúðunum, enda væru það aðallega upplýsingar sem ætlaðar væru fyrir lækna og neytendum til lltils gagns þvi upplýsingamar væru á framandi tungum, sem almenningur hefði litinn skilning á! Sigurjón sagði þó að ef viðkomandi viðskiptavinur apóteksins færi fram á að fá umrædd- an upplýsingaseðil afhentan fengi hann það. Vel má vera að þessi upplýsingaseð- ill sé svo flókinn að aðeins læknar einir geti haft af honum gagn. Hins vegar sýnist óþarfi að býsnast í öðru orðinu yfir fáfræði almennings um lyf, en í hinu kveða upp þann úrskurð að al- menningur sé svo einfaldur að hann geti ekki lesið erlenda leiðarvísa um lyf! En hver á að upplýsa almenning um lyf, gagnsemi þeirra og skaðsemi? Ánnaðhvort hljóta það að verða að vera læknar, sem eru víst allir of störf- um hlaðnir nú þegar, eða þá að það kemur i hlut lyfjabúðanna. Þetta er mjög brýnt mál og talsvert hagsmunamál fyrir neytendur að ein- hver botn fáist í það, annar en sá að „fárast sé yfir fákunnáttu fólks”. Einnig má benda á að ofnotkun lyfja hlýtur fyrst og fremst að verða á á- byrgð lækna, en ekki sjúklinganna, því það eru þó altént læknar sem skrifa lyfseðlana fyrir sjúklingana. • A.Bj. Rauðsprettuvefjur með kryddsmjöri Ef viðkomandi er ekki þvf lagnari við að flaka fisk borgar sig áreiðaniega oetur aó kaupa rauðsprettuflök sem kosta 650 kr. heldur en að kaupa heila rauðsprettu sem kostar 400 kr. kg. DB-mynd Ari. Rauðspretta þykir herramannsmat- ur og er hún oftast á matseðlum fin- ustu veitingahúsanna. Rauðspretta og smálúða eru lika tilvalið hráefni ef búa á til fiskrönd á veizluborð. 1 dag skul- um við borða rauðsprettuvefjur með kryddsmjöri. 11/2—2 kg rauðspretta eða 1 kg rauðsprettuflök salt, sitrónusafi KRYDDSMJÖR: lOOgsmjör 1/4 dl vatn 1 súputeningur 1—2 harðsoðin, söxuð egg 2 msk söxuð paprika, ný eða niðursoðin 2 tómatar (saxaðir smátt) 2 msk söxuð steinselja sitrónusafi, salt, pipar Fiskurinn er hreinsaður og flakaður. Salti er stráð á flökin og nokkrir diopar af sítrónusafa eru látnir drjúpa á þau. Vefjið þeim saman frá breiðari endanum og raðið þeim þétt saman á smurða pönnu I eldfast mót eða á gufurist. Lokið ílátinu og sjóðið við mjög vægan hita í 15—30 min. (hægt er að halda flökunum saman með tré-tannstöngli). Smjörið er hitað með vatninu og kryddinu að suðu. 1 stað þess sem talið er upp hér að framan má einnig nota sýrðar gúrkur eða pikkles (Dalgarðs- relisið okkar góða). Einnig má breyta til og bragðbæta kryddsmjörið með sinnepi, tómatkrafti, karrýi eða einhverju öðru kryddi. Það er gott með öllum tegundum af fiski. Vefjurnar eru bornar fram með soðnum kartöflum. Verð: Heil rauðspretta kostar 400 kr. kg, en flökin kosta 650 kr. Ef viðkomandi er ekki því vanari að flaka borgar sig sennilega að kaupa flökin og viö reiknum með því I okkar útreikningi, eða 650 kr., kryddsmjörið kostar um 500 kr. með því sem talið er upp í uppskriftinni. Þannig kostar allur rétturinn um 1150 kr. eða tæpar 300 kr. á mann. -A.Bj. 415 grömm af sfld í 210 gramma pakka? Virðulegi neytendaþáttur: Hjálagðar eru umbúðir af ágætri tómatsild frá íslenzkum matvælum hf. í Hafnarfirði. Þetta fyrirtæki virðist merkja sínar vörur samkvæmt kúnstarinnar reglum — en greinilega hefur ein reglan eitthvað bögglazt fyrir brjóstinu á þeim. Á miðanum stendur nefnilega að nettóinnihald sé 210 grömm og þar af síld415grömm. Hvernig má þetta vera? Ég er þó ekki svona vondur I reikningi! -ÓV Svar: Að sjálfsögðu er ÓV ekki svona vondur I reikningi — þarna er um að ræða mannleg mistök. Hjá íslenzkum matvælum fengum við þær upplýsing- ar að stimplazt heföi vitlaust magn utan á umbúðirnar af sildinni. Mistök- in uppgötvuðust ekki fyrr en allir bakkarnir úr löguninni voru farnir á markaðinn og of seint að gera nokkuð í málinu. Hárþurrkan enn betri en ryksugan við afþíðingu Húsmóðir - il handhárþurrka á heimilinu er enn gert það með góðum árangri í fjölda- hringdi: betra að gera þetta með henni. Ég hef mörg ár. Á þriðjudaginn í síðustu viku var sagt frá góðu ráði frá Ebenezer í Vöru- markaöinum við að afþiða frystjnn með ryksugu. Það er út af fyrir sig prýðilega gott ráð en ef til er kraftmik- ---------------------------------------------------------------------- ^ k Raddir neytenda

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.