Dagblaðið - 25.10.1978, Page 12
stund. Ekki má skipta um leikmenn og
þegar einhvern einn þeirra gefst upp er
keppninni lokið.
Keflvísku leikmennirnir eru ákveðnir
í þvi að hnekkja íslandsmeti Vest-
mannaeyinga frá í sumar en nokkrir
strákar í Eyjum léku þá samfleytt i 24
Sex leikmenn Iþróttabandalags Kefla-
vfkur koma tilmcð að standa I ströngu
um helgina. Maraþonknattspyrnukeppni
hefst kl. 14.00 á laugardag I Iþróttasal
barnaskólans — og kapparnir munu
leika og leika þar til einhver þeirra getur
ekki meir. '
Þessir sex knattspymumenn eru Gísli
Torfason, Ólafur Júlíusson, Friðrik
Ragnarsson, Guðjón Þórhallsson,
Þórður Karlsson og Ingiberg Óskarsson.
Þeir leika samkvæmt alþjóðareglum um
maraþonkeppni — þrír og þrír í liði.
Fimm mínútna hvíld á hverri klukku-
klukkustundir. Heimsmetið mun vera
þrír sólarhringar og níu klukkustundir til
viðbótar en ekki munu keflvísku leik-
mennirnir neitt hafa i huga að eiga við
það. Hérer umskemmtilegt framtak leik-
mannanna sex að ræða og eitt er vist, að
margir munu leggja leið sína i iþróttasal
barnaskólans um helgina.
í sambandi við keppnina verður efnt
til áheita — fjáröflunar fyrir keflviska
knattspyrnu. Ýmsir hafa heitið að leggja
fram 100 krónur fyrir hverja klukku-
stund, sem leikið verður —og er söfnun
í gangi í Keflavík og viðar. Meðal annars
gengið i hús í Keflavik til að safna undir-
skriftum. Það hefur komið í ljós, að
margir hafa hug á þvi að leggja góðu
málefni lið og skrifað sig á listana, sem i
gangi eru.
Þaö var greinilegt að þaö voru
örþreyttir Valsmenn, sem hófu vörn
íslandsmeistaratitils sins i handknatt-
leiknum i gær á fjölum Laugardals-
hallarinnar gegn nýliðunum í 1. deild,
Fylki úr Arbænum. Þrír mjög erflöir
leikir vikuna á undan — þar af tveir
Evrópuleikir — sátu i Valsmönnum. Það
kom þó ekki að sök. Valur sigraði i
leiknum en leikmenn liðsins áttu þó i
hinum mestu erfiðleikum með nýliðana
lengi vel. Þó þreyta væri I Valsmönnum
voru Fylkismenn orðnir enn þreyttari í
lokin. Siðustu sjö minúturnar breyttu
Valsmenn stöðunni úr 12—11 f 15—11.
Skoruðu þrjú sfðustu mörk leiksins.
Handknattleikurinn, sem liðin sýndu,
var ekki burðugur og heppni Valsmanna
að mæta að þessu sinni ekki sterkara
liði. Hraði sáralítill og skotfimin í
algjöru lágmarki. Eftir 22 mín. leik
höfðu aðeins verið skoruð fjögur mörk.
Staðan 2—2. Aðeins rofaði til loka-
mínútur hálfleiksins og þá talsvert
skorað. Valsmenn skoruðu á undan —
Fylkir jafnaði. Staðan í hálfleik 6—6 og
þá höfðu allar jafnteflistöflur sézt.
Jafnt var einnig framan af síðari hálf-
leiknum. Fylkir komst yfir 7—6, Valur
jafnaði og um miðjan hálfleikinn var
orðinn þriggja marka munur, 11—8
fyrir Val. En Fylkir gafst ekki upp.
Minnkaði muninn niður í eitt mark
tvívegis, 11—10 og 12—11 en loka-
kaflinn var svo Vals þrátt fyrir alla
þreytuna frá stórleikjunum.
Það var skiljanlegt, að Valsmenn
næðu sér ekki á strik í þessum leik eftir
það, sem á undan var gengið. En þeir
færðu sér vel I nyt mistök Fylkismanna.
Sendingar leikmanna Árbæjarliðsins
voru oft slæmar — og mjög þreytulegar
undir lokin. Það nýtti Bjarni
Guðmundsson, sá eldfljóti piltur, sér vel.
Komst hvað eftir annað inn í sendingar.
Brunaði einn Upp og skoraði. Það eru
margir stórir, sterkir piltar i Fylki og
varnarleikur liðsins þokkalegur.
Markvarzla Jóns Gunnarssonar góð.
Hins vegar skortir liðið hraða — og
betra úthald. Ef Pétri Bjarnasyni þjálf-
ara tekst að kippa því i liðinn hefur
Ragnar Árnason 1, Stefán Hafsteinsson
1 ogGunnar Baldursson 1/1.
Brottvísanir af leikvelli. Einar Einars-
son, Fylki, 4 mín. (tvívegis), Stefán
Hafsteinsson og örn Hafsteinsson,
Fylki, tvær mín. hvor. Þorbjörn Jens-
son, Val, tvær mín. Dómarar Björn
Kristjánsson og Gunnlaugur Hjálmars-
son. -hsfm.
Fylkir möguleika á að halda sæti sinu I
deildinni. Fylkir leikur nú I fyrsta sinn í
1. deild.
Mörk Vals skoruðu: Bjarni 5, Jón
Karlsson 5/3, Þorbjörn Jensson 2, Jón
Pétur Jónsson 2 og Þorbjörn
Guðmundsson 1. Mörk Fylkis: Sigurður
Símonarson 2, Einar Ágústsson 2, Einar
Einarsson 2, Halldór Sigurðsson 2/1,
valdur tra, getir tvær breytingar á liði
sinu frá jafnteflisleiknum 0—0 við trland
f sömu keppni. Sammy Morgan, Sparta
Rotterdam, verður miðherji og Terry
Cochrane, Middlesbro, kantmaður.
trska liðið er þannig skipað. Pat
Jennings, Pat Rice og Sammy Nelson,
Danir verða án sjö fastamanna —
flestra beztu knattspyrnumanna sinna —
I Evrópuleiknum gegn Norður-trum f
Belfast I dag m.a. Alan Simonsen. Hins
vegar verður Henning Jensen, Real
Madrid, f danska liðinu.
Danny Blanchflowcr, landsliðsein-
Arsenal, Allan Hunter, Ipswich, Jimmy
Nicholl, David McCreery og Sammy
Mcllroy, Man. Utd. Martin O’Neil.
Nottm. Forest, Gerry Armstrong,
Toftenham, Morgan og Cochrane.
Aðeins einn atvinnumaður verður I
norska landsliðinu I knattspyrnu, sem
leikur I Evrópuleiknum við Skota á
Hampden Park I kvöld — Hallvar
Thoresen hjá Twente f Hollandi. Aðra
fengu norskir ekki lausa m.a. Roger
Albertsen hjá Haag. Tom Jacobsen og
Jan Birkelund leika f kvöld en voru ekki
með f jafnteflisleiknum 1—1 við Belgfu.
Norska liðið verður þannig skipað.
T.R. Jacobsen, Pedersen, Birkelund,
Kordahl, Gröndalen, Aas, Johansen,
Tom Jacobsen, Thoresen, Marthisen og
Okland.
Skozki landsliðseinvaldurinn Jock
Stein hefur valið sitt fyrsta landslið. Það
er þannig skipað. Markvörður Stewart
Middlesbrough, bakverðir Donachie,
Man. City og Frank Gray, Leeds.
Miðverðir Martin Buchan og Gordon
McQueen, Man. Utd. Framverðir.
Archie Gemmill, Nottm. Forest, fyrir-
liði, Asa Hartford, Man. City og
Graeme Souness, Liverpool.
Framherjar, Kenny Dalglish, Liverpool,
Andy Gray, Aston Villa og Arthur
Graham, Leeds.
Þorbjörn Jensson skorar fyrsta mark
Islandsmeistara Vals. Ragnar Árnason,
14, og Halldór Sigurðsson koma engum
vörnum við. DB-mynd Bjarnleifur
Skotland sigraði Noreg 5—1 f
Evrópukeppni landsliða, leikmenn 21 árs
eða yngri, f Edinborg f gær.
á heimsmeistaramótinu ífimleikum
Marfa litla Filatova frá Sovétrfkjunum, sem hreif íslenzka
áhorfendur I Laugardalshöll f ágúst 1976 ásamt nokkrum
öðrum ólympfukeppendum sovézkum, sem komu hér við á
heimleið frá Montreal, skyggði á drottningu fimleikanna,
Nadiu Comaneci, Rúmenfu, á heimsmeistarakeppninni f
Strassborg f Frakklandi f gær. Það var f sveitakeppninni f fim-
leikum kvenna — og önnur sovézk stúlka, nær óþekkt utan
Sovétrfkjanna, Natalia Shaposhnikova, fékk einnig hærri ein-
kunnir en sú rúmenska.
Ólympíumeistarinn Nadia Comaneci, sem er 14 ára gömul,
fékk sjö sinnum hámarkseinkum á ólympíuleikunum í
Montreal, fékk hæst 9.75 af 10 mögulegum í gær. Nadia
hefur breytzt mjög á þessum tveimur árum — úr stúlkubami í
undurfagra konu. Varla þekkjanleg lengur frá því hún lék
listir sínar í Montreal. Hækkað um 10 sentimetra, þyngst og
þroskazt á allan hátt. Snilld hennar er enn stórkostleg. Ekki
sömu fífldjörfu brögðin en þokkafyllri — oft rafmögnuð.
En Filatova og Gertrude Eberle, Rúmeniu, hlutu hærri ein-
kunnir í æfingunum i gær. Þær hlutu 9.9 af 10 mögulegum í
gólfæfingum og á slá. Þá fékk Shaposhnikova 9.9 fyrir
æfingar á tvislá.
1 sveitakeppni var staðan þannig eftir æfingarnar í gær:
l.Sovétríkin 194 stig
2. Rúmenía 192.25
3. Austur-Þýzkaland 191.10
4. Ungverjaland 189.05
5. Tékkóslóvakia 188.30
6. Bandaríkin 187.05
7. Japan 185.20
Talsvert var um mótmæli i gær. Rúmensku fararstjórarnir
voru óánægðir með einkunnir, sem Comaneci hlaut. Rúm-
ensku keppendurnir á Evrópumeistaramótinu í Prag í fyrra
hættu keppni og héldu heim, þar sem forráðamenn rúmensku
keppendanna töldu að hlutdrægni gætti. Mótmæli þeirra í
gær í Strassborg voru tekin til greina í sambandi við einkunnir
tveggja stúlkna frá Rúmeníu — Maririelu Neascu og
Theodoru Ungureanu. Það var i gólfæfingum. Þeim var slegiö
á frest í 15 mínútur meðan dómaramir fóru yfir sjónvarps-
myndir af æfingum þessara stúlkna. Eftir það voru einkunnir
þeirra hækkaðar um 0.5 stig.
Maria Filatova lagði áhorfendur að fótum sér. Sýndi frá-
bæra snilld. Hún hlaut gullverðlaun í sveitakeppninni á
ólympíuleikunum í Montreal en var ekki framarlega þar i ein-
staklingskeppninni. Hins vegar hefur henni farið mikið fram
síðan og í fyrra sigraði hún í heimsbikarkeppninni. Virðist
stefna í stórafrek á mótinu í Strassborg.
Óskaflíkur úr mokkaskinni sem njóta
vinsœlda víða um heim bjóðast nú í nýju
glœsilegu úrvali lita og sniða á heimamark■
aði. Því ekki að slá til núna? Hvort sem
hugurinn girnist sportlegan loðbryddaðan
stuttjakka eða íburðarmikla kápu með
loðkraga úr refa- eða þvottabjarnarskinni
að eigin ósk.
Við bjóðum viðgerðarþjónustu og leið-
beiningar um meðferð.
Hagstœtt verð og greiðsluskilmálar.
Sjón er sögu rikari á útsölustöðum okkar
í Reykjavík: Torginu, Kápunni, Herra-
ríki og Rammagerðinni.
Plakat
Skinnastofur Sambandsins
Bongames - Akureyri
Þróttur vann
Mánudagskvöldið 23. okt. voru leiknir úrslitaleikir I
karla- og kvennaflokki. Kepptu þar Uð Þróttar og íþróttafélag
Stúdenta I báðum flokkum.
ÚrsUt:
Mf. kvenna Þróttur—ÍS 3—0
Hrinun 15-8,15-12,15—11.
Mf. karla Þróttur — ÍS 3—1.
Hrinur. 13-15,15-3,18-16,17-15.
Þróttur varð þvi Reykjavfkurmeistari 1978 bæði i karla- og
kvennaflokki.
Hundalíf
stúlkan
við
endann
trja-
göngunum
Ný framhaldssaga,
sem hefur verið
kvikniynduð
með Jodie Foster
í aðalhlutverki
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
13
i