Dagblaðið - 02.12.1978, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978.
----^
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
BJARNASON.
■Vfc
JLk
1
Fyrsta jólaljósið kveikt á morgun:
Sölusýning matreiðslu
meistara á morgun
— Síðast seldist allt upp á hálftíma
Klúbbur matreiðslumanna verður
með sölusýningu á tilbúnum réttum
kl. 11 á morgun, sunnudag, i Hótel- og
veitingaskólanum í Sjómannaskólan
um. Á boðstólum verða um hundrað
tegundir rétta sem framleiddar eru af á
þriðja tug færustu matreiðslumeistara
landsins.
Þarna verða á boðstólum bæði for-
réttir, léttir milliréttir, aðalréttir og
ábætisréttir. — Ekki reyndist unnt að
fá uppgefið nákvæmt verð, en fullyrt
var við neytendasíðuna að öllu verði
muni stillt I hóf. Þarna er því tækifæri
til þess að fá sér virkilega gott að
borða, — án þess að þurfa sjálfur að
standa við matseldina. — Svona sýn-
ingar hafa tvisvar verið haldnar áður
og var þá mikil aðsókn og seldust allir
réttirnir upp á rúmum hálftima. Þarna
verður hægt að fá þriggja, fimm og sex
manna föt með blönduðum fisk- og
kjötréttum.
A.Bj.
Hjálparkeöjurnar
vitlaust samsettar?
Smáhlutir sem gott er að eiga þegar jólaskreytingarnar eru búnar til. Leirinn kostar rétt innan við 400 kr., kertahlífarnar
kosta 145 kr. og virrúllan 200 kr. DB-myndir Jim Smart
Takið fram aðventu
kransinn f dag
Nú fer aöventan i hönd, fyrsti
sunnudagur i aðventu er á morgun og
þá er kveikt á fyrsta jólaljósinu. Það er
fyrir löngu orðinn fastur siður að
heilsa aðventunni með aðventukransi
til þess að leiða hugann að þvi sem í
vændum er. Fyrir löngu er farið að
skreyta búðarglugga til þess að freista
náungans.
Kertin fjögur í kransinum tákna
vikurnar fram að jólum. Fyrsta
sunnudaginn er kveikt á fyrsta kertinu
og síðan koll af kolli þar til á aðfanga-
dagskvöldi, þá er kveikt á öllum
fjórum kertunum.
Aðventukransar eru nú á boðstól-
um I öllum blómaverzlunum. Þeir
kosta frá tæplega 6 þúsund krónum,
með fæti. I erli dagsins hafa kannski
fáir tíma aflögu til þess að búa til
kransinn sjálfir. En það þarf ekki að
taka svo langan tíma að búa skreyting-
una til sjálfur.
Hún þarf heldur ekki endilega að
vera krans. Hún getur alveg eins veriö
t.d. birkikubbur skreyttur með greni,
könglum, kertum og jafnvel litríkum
borðum.
Undirlag eða botn, ásamt greni og
skreytingarefni er selt í flestum blóma-
verzlunum. Undirlagið kostar 700 kr.
(i Alaska), búntið af greni um 900 kr.
Sums staðar er einnig hægt að fá
kransa sem búið er að binda grenið á,
en óskreyttir að öðru leyti og kosta
slikir kransar um 3000 kr. Margir hafa
jafnframt sýnikennslu I því hvernig á
að búa til aðventuskreytingar.
Undirlagið er venjulega búið til úr
hálmi á virhring. Þeir sem hafa blóma-
garð geta jafnvel fundið efni þar, t.d.
randagras eða aðrar stórvaxnar gras-
tegundir. Efnisins verður auðvitað að
afla áður en vetur gengur I garð,
þurrka það vel og geyma á þurrum og
loftgóðum stað til þess að það mygli
ekki.
Þegar grenið er látið á undirlagið er
gott að klippa það niður í 5—10 cm
langa sprota. Með því að beita klipp-
unum á ská i sömu átt og barrið vísar
ber ekkert á sárinu. Þægilegast er að
nota þar til gerðan bindivír. Hann fæst
I blómaverzlunum og kostar rúllan um
200 kr. 1 fyrstu umferð skal vefja
löngum sprotum. Þá er auðveldara að
Ijúka við bindinguna án þess að það
sjáist.
Talið er að leikmaður fari með allt
að 1/2 kg af greni á krans (samsvar-
andi einu búnti). Þegar búið er að
þekja kransinn vel með greni eru
kertin látin á hann. Til eru sérstök að-
ventukransakerti, sem eru með vír úr
botninum.. Pakki með 4 kertum kostar
rúmlega 400 kr. Stingið kertunum í
kertahlifar úr áli, vírnum I gegnum
botn hlífarinnar og síðan í kransinn
sjálfan. Kertahlifar þessar fást i öllum
blómaverzlunum og kostar pakki með
12 stk. 145 kr.
Þar næst eru látnir könglar eða mis-
litar kúlur á kransinn, — öllu fest
rækilega með blómavírnum. Loks er
kransinn hengdur upp með mislitum
silkiborða. Oftast eru hafðar slaufur á
milli kertanna þar sem borðinn kemur
á kransinn. Efst á festinguna er gjarn-
an höfð slaufa með ofurlitlu greni. Á
síðari árum er orðið æ algengara að
nota sömu litina á borða og skreyt-
ingarkúlum. Litur aðventunnar er
fjólublár, sem fer mjög vel við skær-
grænt grenið. — En auðvitað má nota
hvaða lit sem er, hvítt, rautt, gyllt eða
silfur, allt eftir smekk hvers og eins.
Svona kransa má einnig nota sem
hurðaskraut, en þá er kertunum að
sjálfsögðu sleppt og könglar og kúlur
notaðar i staðinn. Með dálitlu hug-
myndaflugi má finna önnur form en
hringi, t.d. hjarta eða skeifu.
H.L. / A.Bj.
Þarna er aðventukransinn fullgcrður og búið að kveikja á öllum kertunum. Þessi
krans var með fjólubláum kertum, fjólubláum silkiboröa og fjólubláum kúlum og
fór liturinn sérlega vel við skærgrænan grenilitinn.
— Shellsvarar
Hörður Árnason hjá oliufélaginu
Skeljungi hringdi vegna fréttar af
„ónýtum skaflajárnum” á neytenda-
síðu DB 28. nóvember si.:
„Það er i fyrsta lagi ekki rétt] að
þessi tæki séu kölluð skaflajárn. Við
seljum hjálpartæki af þessu tagi sem
hjálparkeðjur og köllum þau ekki ann-
að.
Mér er að sjálfsögðu ekki fullkunn-
ugt um hvernig það vildi til að hjálpar-
keðjur viðmælanda blaðsins eyði-
lögðust, en þessum tækjum eru náttúr-
lega takmörk sett eins og öðru. Það
þarf í fyrsta lagi að setja þessi járn rétt
undir, en á myndinni, sem birtist með
fréttinni i DB, er augljóst að það hefur
ekki verið gert. Ég tel því að viðkom-
andi hafi gert sér of stórar hugmyndir
um getu hjálparkeðjanna. Við höfum
margsinnis reynt þær við slæmar að-
stæður og þær hafa alltaf komið að
góðum notum.”
Búðir opnar til kl.4
Verzlanir verða opnar til kl. 4 i dag.
Næstkomandi laugardag 9. des. verða
verzlanir opnar til kl. 18,16. desember
til kl. 22 og á Þorláksmessu til kl. 23.
Á aðfangadag, sem ber upp á sunnu-
dag, mega söluturnar vera opnir til kl.
13. Á gamlársdag, sem einnig er
sunnudagur, mega söluturnar einnig
vera opnir til kl. 13.
Fyrsta vinnudag eftir jól hefst af-
greiðsla I verzlunum kl. 10 f.h.
Þurrkuð egg ágæt í baksturinn
Eitthvað hefur borið á eggjaskorti i
höfuðborginni og er húsmæðrum
kennt um vegna þess að þær hafa
hamstað egg til jólanna. — Það
er Ijótur ósiður að hamstra, ef enginn
gerði það kemur vanalega á daginn að
nóg er til handa öllum, innan skyn-
samlegra marka.
Við rákumst á þurrkuð egg í
Hagkaup. Með duftinu fylgir leiðar-
visir á islenzku og segir að 3 mat-
skeiðar af dufti + 4 matskeiðar af
vatni samsvari einu eggi.
Verzlunarstjórinn í Hagkaup,
Grétar Hjaltason, sagði blm. Neyt-
endasíðunnar að/ þessi þurrkuðu egg
þættu prýðisgóð I bakstur. Duftið
kostar 5.195 kr. kg. Þurrkuðu eggin
fást einnig I verzl. Dalntúla I Siðumúla
og kosta 100 g 572 kr. 13 g af dufti eru
talin samsvara einu eggi. Þannig eru
rétt rúmlega 7 egg í 100 g. - A.Bj.
Pokarnir kosta 1 kringum 12—1700 kr. stykkið. Reiknað er með að 13 g af dufti
samsvari einu eggi.
DB-mynd Jim Sm’art