Dagblaðið - 02.12.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978.
7
Óöruggar gluggafestingar
Húsráðendur ættu að athuga sinn gang þvf ekki er
opinbert eftirlit með slíkum festingum
eru um allan bæ
Hörmulegt slys í Seljahverfi í Breið- drengur féll út um glugga á fjórðu hæð
holti á þriðjudaginn, er tveggja ára og beið bana af, vekur þá spurningu
........
385 dagaráári:
„Námsdvölin
alger
nauðsyn'’
— segir íathugasemd Flugmálastjómar
Frá þvi í byrjun desember 1976 til
ársloka 1977 dvöldust tveir verkfræð-
ingar Flugmálastjórnar við nám i
skóla bandarísku jlugmálastjórnarinn-
ar i Oklahoma í Bandarikjunum.
Þetta nám, sem tók samtals 385 daga,
fólst í sérmenntun varðandi flugleið-
sögutæki þau sem islenzk flugmála-
yfirvöld eru daglega ábyrg fyrir.
Kostnaður vegna námsdvalar verk-
fræðinganna felst í skólagjöldum og
dagpeningagreiðslum í samræmi við
gildandi kjarasamninga. Vegna þessa
háa námskostnaðar þótti eðlilegt að
verkfræðingarnir gerðu 5 ára starfs-
samning við Flugmálastjórn.
Þegar námsferð þessi var ákveðin
var flugmálayfirvöldum löngu orðin
Ijós brýn nauðsyn á uppbyggingu flug-
leiðsögutækjabúnaðar landsins, eins
og kemur fram í skýrslu flugvalla-
nefndar frá því i nóvember 1976.
Engir verkfræðingar með sérmenntun
varðandi þessi tæki voru í starfi hjá
Flugmálastjórn þá. Með tilvísun til
þess og að fyrir lá að stórauka tækja-
kost Flugmálastjórnar, sem þegar var
orðinn umfangsmikill, þótti fyrrnefnd
námsdvöl verkfræðinganna alger
nauðsyn til þess að fyllstu öryggis-
kröfum yrði fullnægt.
í þessu sambandi skal tekið fram að
hjá Flugmálastjórn Bandaríkjanna
hefur verkfræðingur ekki réttindi til
að sjá um flugleiðsögutæki fyrr en að
loknum tilskildum prófum varðandi
þau. Þessir umræddu verkfræðingar
luku báðir tilskildum prófum með lofs-
verðum árangri og vitnisburði. Að
námsdvöl lokinni hafa verkfræðing-
arnir haft með höndum kennslu fyrir
tæknimenn Flugmálastjórnar.
Þeir 385 dagar, sem hefur verið
vísað til, munu vera til komnir á þann
veg að í kostnaðaryfirlitinu var tekinn
með námskostnaður er svarar til 20
námsdaga í desember 1976 til viðbótar
við námsárið 1977. Heimild hafði
áður verið fengin fyrir námsferð þess-
ari hjá samgönguráðuneytinu. Hins
vegar hljóðaði fyrsta yfirfærsla til
námsmannanna á 56 daga en heimild-
in sjálf var fyrir eitt ár.
Flugmálastjórn vill að lokum it-
rekað benda á brýna nauðsyn þess að
ísland dragist ekki aftur úr öðrum
þjóðum í flugöryggismálum.
F.h. Flugmálastjórnar,
Pétur Einarsson
Karlakór Kef lavíkur 25 ára
Karlakór Keflavíkur átti 25 ára af-
mæli í gær. Kórinn hefur starfað sam-
fellt frá stofnun og ávallt sungið fyrir
styrktarfélaga, farið söngferðir vítt og
breitt um landið og utan fór kórinn
1967 á söngmót í Cork á írlandi. Þá
hefur kórinn tekið þátt í söngmótum
sem haldin hafa verið á vegum Sam-
bands íslenzkra karlakóra og Kötlu,
sambands sunnlenzkra karlakóra.
Fyrsti stjórnandi kórsins var Guð-
mundur Nordal og var hann jafnframt
einn aðalhvatamaðurinn að stofnun
hans.
Fyrir tveimur árum var hafizt
handa um byggingu félagsheimilis við
Vesturbraut í Keflavik og er húsið
u.þ.b. að verða fokhelt.
Kórinn mun minnast afmælisins
með tveim samsöngvum í Félagsbíói í
Keflavík. Kórinn söng í gær og aftur i
dag og heldur svo afmælisfagnað í
Stapa þar sem styrktarfélagar og aðrir
velunnarar kórsins geta fagnað þess-
um tímamótum með kórfélögum.
Núverandi stjórn kórsins skipa:
Haukur Þórðarson, Eiríkur Guð-
bjartsson, Þórólfur Sæmundsson,
Baldur Waage og Valgeir Helgason.
TIMEX
HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERÐIR
1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTIÐ í
SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA
Kr. 11.380 Kr. 11.850 Kr.11.380 Kr. 11.850
556122* $27201* 553215 52620i*
Kr. 12.300
527211*
Kr. 10.900 j *
503425
Kr. 12.750
573104*
Kr. 12.750
270751
iKr. 15.500!
279605
Kr. 12.7501
276791 !
Kr. 11.485
233712
PÓSTSENDUM
ID 11A I MAGNÚS GUÐLAUGSSON
W n- V HL STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI
hvað valdi slíkum slysum og hvort hætta
sé yfirvofandi víðareða víða.
Rannsóknarlögreglumaður rannsak-
aði aðstæður við gluggann sem barnið
féll út um. Festingar gluggans voru
„venjulegar öryggisfestingar”, eins og
hann orðaði þad. „Og ekkert kom i Ijós
sem reyndist vera bilað.”
Glugginn sem slysið varð við er svo-
kallaður veltigluggi og gluggar af þeirri
tegund eru í ótal húsum þarna i kring og
víðsvegar um bæinn. Festingarnar voru
í engu frábrugðnar þeim sem seldar eru
sem „öryggisfestingar” fyrir þessa
tegund glugga.
Festingarnar eru með þeim hætti að
þær eiga að hindra að glugginn opnist
nema í svo þrönga gátt að þar geti engin
mannvera fallið út um. En hins vegar á
að vera hægt að opna gluggann að fullu
og láta hann „velta” eins og veltiglugga-
nafnið bendir til.
En niðurstaða rannsóknarlögreglu-
mannsins er á þá leið að öryggisfestingin
sé ekki örugg. Við álag á gluggann halda
þær honum ekki eins og vera á, gefa eftir
og glugginn galopnast.
DB hafði samband við öryggiseftirlit
ríkisins. Tæknifræðingur þar gaf það
svar að um gluggafestingar væru engar
reglur hjá eftirlitinu og þær væru utan
við starfssvið þess. Af þeim sökum fara
engar kannanir á festingum fram hjá
eftirlitinu né heldur eru veittar viður-
kenningar til innflutnings þeirra. Starfs-
svið öryggiseftirlitsins nær aðeins til
húsa í byggingu auk annarra starfssviða.
- ASt.
Veltigluggarnir eru varasamir börnum. Komið er i Ijós að þó á þeim séu „öryggisfest-
ingar”, sem eiga að sporna við þvi að þeir opnist um of, er eigi að siður hægt að ýta
þeim upp. Þessir gluggar eru i skrifstofuhúsi og eiga ekkert skylt við slysstaðinn i
Breiðholti á dögunum en viða i Breiðholti eru veltigluggar i húsum.
KJÓLAR FRÁ BRASILÍU!
Póstsendum. Pími 11845
U)NAt)ARMANNAItllSINll VII) HAI.I.VEKÍARSTlt,