Dagblaðið - 02.12.1978, Page 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978.
13
m i ar
Verö aöeins
kr. 5000.-
BORGARFELL
Skólavörðustíg 23 — Sími 11372
Skriðdrekavélar í dráttar-
vélunum
Keppnisreglur:
í dráttarvélakeppni er notaður sér-
stakur vagn sem vélarnar eiga að draga
brautina endilanga. Það tekst þófæstum
vegna þess að vagninn þyngist stöðugt i
drætti meðan hann er á ferð. Vagninn er
þannig útbúinn að hjól eru undir
honum að aftan en sleði að framan. Á
vagninum er farg sem getur verið allt að
20 tonn að þyngd. Fargið er I upphafi
haft aftast á vagninum. Það er tengt við
hjólin undir honum þannig að þegar þau
byrja að snúast færist fargið fram eftir
vagninum og drátturinn þyngist stöðugt.
Fargið leggst alltaf þyngra og þyngra á
sleðann og svo kemur að lokum að það
verður dráttarvélinni ofviða.
Dráttarvélarnar:
Farartækin sem keppt er á eru margs
konar. Þau helztu eru jeppar, fjórhjóla-
drifs pick-up bílar, venjulegar dráttar-
vélar og sérsmiðaðar dráttavélar sem
minna einna helst á grindarbila. í kvart-
milukeppni er leitast við að hafa farar-
tækið sem léttast en í dráttarkeppni er
þessu öðruvisi farið. Þar er best að hafa
farartækið sem þyngst til að skriðþungi
þess verði sem mestur. Er algengt að
sama farartækið keppi I tveimur eða
þremur flokkum og er þá bætt á það
ballest til að þyngja það. Vagninn sem
dreginn er er mjög þungur og reyna
keppendur að gera dráttarvélar sínar
sem kraftmestar. Eru sumir með þrjár
eða fjórar stórar V-8 vélar. Aðrir eru
með disilvélar úr skriðdrekum og þá oft
með tveimur forþjöppum. Enn aðrir
nota gastúrbínur og þotuhreyfla. Keppt
er á venjulegum dráttarvéladekkjum eða
hjólaskófludekkjum og eru þau skorin til
þannig að þau gripi betur í mjúkan jarð-
veginn.
Flestar dráttarvélarnar sem keppa í
stærri keppnunum eru ekki notaðar I
annað og eru fluttar á milli keppnis-
svæða á sérstökum vögnum. Þá eru
einnig margir sem hafa gert það að
atvinnu sinni að keppa i dráLarkeppni,
en hún nýtur, sem fyrr sagði, mikilla
vinsælda. Jóhann Kristjánsson
/ Wúlitin okkar. Hann s
■4 U
í ddhúsinu, srofunm,
-r eða garðmum.
í i i- i I I i .:MS_íLÍ
Fyrir um það bil 10 árum kom ný
íþrótt fram á sjónarsviðið i Bandarikjun-
um og naut hún strax mikilla vinsælda.
Er það dráttarkeppni. Uppruna
þessarar keppni má rekja til miðrikja
Bandarikjanna en þar eru mestu hveiti-
ræktar- og landbúnaðarsvæði veraldar.
Þrátt fyrir mikið framleiðslumagn starfa
hlutfallslega fáir við landbúnað á
þessum svæðum og riður því á miklu að
hafa afkastamikil tæki til að vinna með.
Uppskeruvélar og þreskivélar eru stórar
og þungarog þurfadráttarvélarnar sem
þær draga að vera kraftmiklar.
Liklega hefur upphaf iþróttarinnar
verið það að tveir bændur hafi farið að
metast um það hvor ætti kraftmeiri
dráttarvélina. Hafa þeir síðan reynt með
sér og nú er svo komið að dráttarkeppni
er haldin um flest öll riki Bandaríkjanna
og búið er að stofna heildarsamtök sem
sjá um skipulagningu á þeim. Nefnast
samtökin The National Tractor Pullers
Association. Keppt er á braut sem er um
100 metra löng og eftir ákveðnum
reglum. Þá eru farartækin flokkuð niður
eftir gerðogþyngd.
Kimber Wilson frá Smithfield • Illinois keppir á „óbreyttrif’ . International
Harvester dráttarvél og hefur hann veriö mjög sigursæll. liér hampar hann
verðlaunastyttunni er hann hlaut i Indy Super Pull keppninni 1975.
Art Arfons hélt áður fyrr til á Bonne-
ville-saltsléttunum, þar sem hann
kepptist við að setja hraðamet, en eftir
að hann komst I kynni við dráttarvélar
hefur hann snúið sér að þeim. „Græna
skrímslið” hans er orðið viðfrægt um öll
Bandaríkin en í því er risastór
gastúrbina og krafturinn eftir því.
Jólagjöfin
íár fyrir
fjölskylduna
-- .Ctf.■A-
>
SM
y.'A ;l
! Nr. 60 - 89.5 ferm. Verð frá kr. 6.5 myij. til 8.3 mHlj.
Sumarhús, íbúðarhús,
veiðihús, garðhús. Einnig
mjög hentugt fyrir björg-
unarskýii og sæiuhús.
Greiðsiuskiimáiar
Undirritaður óskar nðnari upplýsinga um Fmnen-hús
NAFN____________________________________________
HEIMILI_________________________________________
SÍMI
HÚS H. GUDMUNDSSON
l 13 Templarasundi 3. Símar 25620,40843,17374