Dagblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978. 3 Leiga á ástarkúlunni Röng þýðing Hlustandi skrifar: í sjónvarpsþætti, viðtali Frosts við. Opnuðumí morgun nýja verzlun á jarðhæð í húsnæði okkar Laugavegi 54 —til nýgiftra hjóna Hvernig er hægt að láta ástarkúl- una gefa góðar rentur og láta hana verða mesta tekjulind og jafnvel um leið heimsfræga uppfinningu? Það má sennilega með mörgu móti en ég hefi hér aðeins eina tillögu. Til þess að svo megi verða þarf að bæta nokkru við búnað ástarkúlunnar svo hún komi að tilætluðum notum og hljóti verðskuldaða viðurkenningu. Auk allra þægindanna sem fyrir eru verður að koma fyrir kvikmyndavél yfir rúminu með hljóðupptöku. Vélin verður að vera alveg sjálfvirk, og hafa ósýnilega geisla við myndatökuna, svo engin truflun verði, og dauft rautt Ijós eða myrkur. Svo verður auglýst leiga á ástarkúlunni .allar laugardags- og sunnudagsnætur, þvi flestir láta gifta sig á þeim dögum. Hverjum hjónum ,má aðeins leigja eina nótt svo fleiri komist að. Leigan má ekkert kosta og góður morgunverður að fylgja. En hverjar verða þá tekjurnar? Jú, skil- yrði fyrir leigunni eru þessi: Þegar hjónin eru komin inn að hjónasænginni eiga þau að kynna sig fyrir kvikmyndavélinni, hátta svo í skyndi, slökkva Ijósið og hefja síðan sínar ástríku athafnir. Þær mega ekki vara lengur en 20 mínútur og mynda- vélin á að sjá um að missa ekki af neinu. Þegar eitt hundrað hjón eru búin að hafa viðkomu í sænginni, skal framkalla filmuna og verður að klippa og stytta eitthvað. Það er ekki allt búið enn. Auðvitað verður að veita verð- laun þeim hjónum sem hafa haft beztu og tæknilegustu aðferðina. Ástarkúlu- eigandinn verður að veita þau, t.d. fyrstu verðlaun 500.000 kr. hjónarúm og eitthvað minna fyrir önnur og þriðju. Þetta myndi borga sig vel fyrir ástarkúlueigandann, því nú lætur hann framkalla filmuna í mörgum ein- tökum og leigir síðan myndina til kvik- myndahúsanna, sem myndu án efa bjóða margfalda upphæð til að fá að sýna þessa einstöku framhaldsmynd í fimm þáttum, sem myndi fylla húsin á hverju kveldi í heilt ár. Því að þetta væri jafnframt kennslumynd, er sýndi beztu tæknilegu aðferðina í síðasta þætti, verðlaunaaðferðina, sem sumir vildu gjarnan læra, og allir sjá? Og svo þegar þetta fréttist erlendis, þá kæmu pantanir i slíka „ástarkúlu” alls staðar að, s'vo framleiðendur hefðu vart undan að afgreiða pant- anir. Og verðið stígur hærra og hærra, i tiu—tuttugu milljónir (einkaleyfi auðvitað), allir græða og ríkið líka. PS — Ég get þvi miður ekki notfært mér að taka þátt í að ná í verðlaunin, þó ég hefði skilyrði til þess áður fyrr. Nú er ég orðinn áttræður öldungur. Margt er sér til gamans gert geði þungu að kasta -G.Hofi Ástarkúlan margfræga. DB-mynd Ragnar Th. Harold Wilson, fyrrum forsætis- ráðherra Breta, kom það nokkrum sinnum fyrir að Board of Trade var þýtt með orðinu verzlunarráð. Þetta er algjörlega röng þýðing. Board of Trade þýðir á máli Englendinga að sjálfsögðu viðskipta- (eða verzlunar ) ráðuneyti. Verzlunarráð heitir hins vegar á ensku Chamber of Commerce. Heimilis- læknir Haddir lesenda taka viö skilaboðum ti{ umsjónar- manns þðttaríns „Heim ilislœknir svarar" I sfma 27022, kl. 13-15 alla virkadaga. NÚ ERU ÞAÐ TVÆR BÚÐIR FULLAR AFNÝJUM VÖRUM. LAUGAVEGI54 - SIM118046 - POSTSENDUM Raddir lesenda Gætir þú hugsað þér að hafa svínbú við hliðina á húsinu þínu? Ástþór Öskarsson: Já, meira að segja i kjallaranum. Hjörtur Erlendsson: Það færi nú eftir þvi hvernig svin það væru. Ég gæti e.t.v. hugsað mér að hafa það i næsta húsi. Jón Helgason: Nei, ég gæti ekki hugsað mér það vegna þess að það er svo vond lyktaf svínum. Magnús Sigurbjörnsson: Nei, alls ekki. Ég er ekkert gefinn fyrir svin. Gunnlaugur Hansen: Já, já. Ég gæti vel hugsað mér það svo framarlega sem lykt og óþrifnaður truflaði mig ekki. Svín eiga sinn tilverurétt eins og maðurinn. Svo finnst mér svinakjöt mjög gott og hef það yfirleitt á jólunum. Eyþór Björnsson: Nei, það held ég að ég gæti ómögulega hugsað mér vegna lykt- arinnar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.