Dagblaðið - 08.12.1978, Síða 11

Dagblaðið - 08.12.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978. 11 SVIKAMÁL ENN KOMIN UPP VEGNA VIRÐIS- AUKASKATTSINS —milljóna svik komu fljós við handahófskönnun skattyfirvalda Erlendar fréttir REUTER Osló: Begin mætturtil aðtakavið nóbelnum Sadat kemurekki Menachem Begin forsætisráðherra ísrael kemur í dag til Osló til að taka á móti friðarverðlaunum Nóbels, sem honum var úthlutað ásamt Anwar Sadat forseta Egyptalands. Sá síðar- nefndi hefur tilkynnt að hann muni ekki mæta við athöfnina i Noregi. Telur hann það ekki hæfa fyrr en friður sé tryggður fyrir botni Miðjarðarhafs. Skattyfirvöld i Danmörku hafa að undanförnu gert kannanir á því hvort mikið sé um að virðisaukaskattur — moms — sé ekki greiddur. Samkvæmt rannsókn, sem gerð var í nokkrum fyrirtækjum dönskum kom í Ijós að töluvert var um slikt. Algengast virðist að undandráttur virðisaukaskattsins fari þannig fram, að ýmsar vörur séu taldar keyptar til notkunar í fyrirtæki, sem annaðhvort þarf ekki að greiða skattinn eða getur fengið hann endur- greiddan. í raun munu siðan þessar vörur vera notaðar af einstaklingum I einkaþágu. Er hér hvort tveggja um að ræða eigendur viðkomandi fyrirtækja og starfsmenn þeirra. Rannsóknin er á byrjunarstigi þar sem aðeins voru gerðar kannanir i nokkrum fyrirtækjum í ýmsum at- vinnugreinum. Kemur hún i kjölfar mikilla svika á framtali virðisauka- skatts ýmissa útgerðarfyrirtækja i bæj- unum Hirtshals, Fredrikshavn og Es- bjerg. Þar er komið i Ijós að keyptar höfðu verið í nafni ýmissa skipa — en til einkanota — vörur eins og sjón- vörp, áfengi og matvörur. Þar sem rekstrarvörur til skipanna eru ekki virðisaukaskattskyldar, hafði verið hægt að komast hjá greiðslu skattsins. Að sögn skattyfirvalda i Danmörku þá mun auk áðurgreindrar aðferðar við skattsvikin vera notaðar aðrar aðferðir. Er þá talað um beinlínis falska vörureikninga, vöruskipti án þess að þau viðskipti komi fram í bók- haldi fyrirtækjanna. Einnig munu þess vera nokkur dæmi, að óraunveruleg nöfn séu notuð. Austurríki: Lengstu jarð- göng í heimi Á myndinni sést þegar Bruno Kreisky kanslari Austurrikis er að flytja vigsluræðuna vegna opnunar nýrra jarðgangna, sem liggja I gegnum fjall eitt. Ástæða var fyrir Austurrikismenn að fagna þessu þvi þarna munu vera lengstu jarð- göng í heimi, i það minnsta sem ætluð eru almennri umferð. Lengd- in er fjórtán kilómetrar. Gert er ráð fyrir að þar geti farið um fjögur þúsund bifrciðir á hverjum degi. Göngin leysa af hólmi þjóð- veg um fjalllendi. Þar lokaðist að meðaltali fyrir alla untferð þrjátiu daga á ári. New York: 100 milljóna virði af marijuana horf ið f rá lögreglunni Tuttugu og fimm pakkar af marijuana eru horfnir úr sérstökum öryggisgeymslum bandarísku lög- reglunnar í New York. Er heildarvirði efnisins miðað við markaðsverð á götum í borginni talið nema um 350.000 dollurum eða jafnvirði rúmlega eitt hundrað milljóna íslenzkra króna. Ráðamönnum lögreglu og dóms- mála þar vestra þykir þetta að sjálf- sögðu hið versta mál. Einkum þar sem þetta átti að verða eitt helzta sönnunargagnið í ákærumáli gegn smyglurum, sem gripnir voru með efnið þegar þeir voru að smygla því til Bandaríkjanna frá Colombíu.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.