Dagblaðið - 08.12.1978, Page 21
20
I
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978.
1 25
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
SUNDFÉLAGIÐ
ÆGIR
m
Ég undirrit... heiti hér með á
SUNDFÉLAGIÐ ÆGIR að greiða krón-
ur 30.oo fyrir hvern syntan km í 24 klst.
maraþon sundi félagsins er haldið verður
í desember.......
Það ætlar grelnilega að vmða göð þátttaka styrkt-
arfélaga I maraþonsundi Ægis og DB, sem hefst 1
Sundhöll Reykjavlkur föstudaginn 15. desember kl.
22.00. Margir hafa þegar skrifaö sig á lista og heitið
þvi að greiða krónur 30.00 fyrir hvern kílómetra, sem
sundfólk Ægis leggur að baki i maraþonsundinu.
24 taka þátt i sundinu og syndir hver þátttakandi í
klukkustund — eins langt og hann kemst. Aðstaða
verður i Sundhöllinni fyrir áhorfendur meðan sundið
fer fram — og þar verður opið á venjulegum sundtima
fyrir þá, sem viija vera í lauginni og fylgjast þaðan með
sundfólkinu. Það leggur aðeins undir sig eina braut í
lauginni.
Að ofan er áheitaseðill. Þeir, sem vilja styrkja
sundfólk Ægis, geta skrifað nafn sitt og heimilisfang á
seðilinn og sent hann til Dagblaðsins, Sfðumúla 12.
íþróttir
HALLUR
SÍMONARSON
Staðan í 1. deild
Eftir sigur Hauka á FH i 1. deild Islandsmótsins
handknattleik er staðan nú þannig:
Valur
FH
Vikingur
Haukar
ÍR
Fram
Fylkir
HK
Markahæstu leikmenn:
Geir Hallsteinsson, FH
Hörður Harðarson, Haukum,
Gústaf Bjömsson, Fram
Páll Björgvinsson, Víking
5 4 1 0 99—84 9
6 4 0 2 120-102 8
5 3 1 1 109—101 7
6 2 0 4 123-126 4
5 2 0 3 84—93 4
5 2 0 3 99—108 4
5 1 1 3 88-93 3
5 1 1 3 87-102 3
Fékk ekki að
fara til Nott-
ingham Forest
Charlie George, innherjinn snjalii hjá Derby
County, samþykkti fyrir sitt leyti að taka tilboði
Brians Clough hjá Nottingham Forcst um að gerast
leikmaður hjá Forest. Söluverð ákveðið 400 þúsund
sterlingspund — en þá ákvað stjórn Derby að selja
George ekki til Forest. Örstutt bæjarleið er milli
Derby og Nottingham og stjórnarmenn Derby ótt-
uðust að ef George færi að leika með Forest mundu
margir af áhangendum Derby-liðsins hætta að sækja
leiki Derby en snúa sér þess í stað til Nottingham.
Brian Clough var tilkynnt þessi ákvörðun i gær og
jafnframt að ekki þýddi frekar að ræða þetta mál.
Þess má geta að Southampt. og West Bromwich
Albion hafa einnig verið á höttunum eftir Charlie
George — og kann að vera að hann verði seldur til
annars hvors félagsins. Þá gengu Chelsea og Aston
Villa i gær frá samningi um að Ken Swain, Chelsea,
færi til Villa. Söluverð 100 þúsund sterlingspund. Eng-
ar likur eru á að Úlfarnir taki risatilboði Brians
Coough i Steve Daley. Hinn nýi framkvæmdastjóri
Úlfanna, John Barnwcll, bað Daley að vera áfram hjá
Úlfunum og leikmaðurinn samþykkti það.
„Nú óttumst við
Valsmenn mest”
—sagði þjálfari Dynamo Bukarest við komuna til íslands í
gær—Evrópuleikur Vals og Dynamo í Laugardalshöll á
laugardag—Jón H. spáir f imm marka sigri Vals, 17-12
„Ég þekki talsvert til íslenzks hand-
knattleiks og veit að þið eigið góða ieik-
menn. En það háir fslenzkum handknatt-
leik að samskipti eru ekki nóg við aðrar
Fyrírliði Dankersen, Gerd Becker,
stekkur upp og skorar fyrír Dankersen
— en kom illa niður á olnboga í fallinu.
Slasaðist illa eins og sagt er frá i grein-
Ólafur H.
Jónsson
Handlsoltapunktar
frá V-Þýzkalandi
Axel ^
Axelsson
Gummersbach stöðvaði
sigurgöngu Hofweier!
Minden 3. desember 1978.
Um helgina bar það helzt til tfðinda að
Gummersbach sigraði Hofweier með
15—10. Það var fyrsti ósigur Hofweier í
deildinni á þessu leiktimabili. Við það
jókst spcnnan mjög og segja má að efstu
sex liðin eigi öll möguleika á þvi að verða
Þýzkalandsmeistarar.
Það var ekki fyrr én eftir fjörutiu mín-
útna leik, sem Gummersbach seig
framúr og gerði út um leikinn. Breytti
stöðunni úr 9—9 í 14—9. Gerd Rosen-
dahl tók bezta mann Hofweier, Arno
Ehret, úr umferð og heppnaðist það
mjög vel. Beztu menn Gummersbach
voru Deckarm 4/2 og Fey 3, en aðrir
sem skoruðu voru Westebbe 3, Rosen-
dahl 2, Pohl 2 og Wunderlich 1. Mörk
Hofweier: Ehret 3/2, Emrich 3, Meffle
1, Bechler 1, Scobel 1 og Liebiger 1.
Áhorfendur 2.300.
1 leik Grosswallstadt og Kiel leit lengi
vel út fyrir að meistararnir myndu tapa
sínum fyrsta heimaleik því í hálfleik var
staðan 9—6 fyrir Kiel! Leikmenn Gross-
wallstadt náðu þó að rífa sig upp úr lá-
deyðunni og sigra með 15—13. Hoff-
man var snjall I marki — fékk á sig
fjögur mörk í síðari hálfleiknum. Mörk
Grosswallstadt skoruðu Kltlhspies 4/3,
Hormel 4, Meisinger 3, Freisler 3 og
Fischer. Mörk Kiel: Krause 4, Knop 4,
Gráper 2, Tomko 1/1, Elwardt og
Willisch 1. Áhorfendur 1.400.
Göppingen vann sinn fimmta sigur í
röð og nú gegn Grambke. Lokatölur
Meistarar
í lyftingum
Meistaramót Reykjavfkur I kraft-
lyftingum var háð i anddyri Laugardals-
hallarinnar í gær. Sigurvegarar I ein-
stökum flokkum urðu þessir menn.
Flokkur 60 kg. Þorvaldur B. Rögn-
valdsson, KR, 320 kg. Flokkur 67,5 kg.
Kjartan Már Hjálmarsson, KR. 325 kg.
Flokkur 75 kg. Sverrir Hjaltason, KR,
525 kg. Flokkur 82.5 kg. Bragi Helga-
son, KR, 390 kg. Flokkur 90 kg. Hörður
Magnússon, KR, 610 kg. Flokkur 100
kg. Helgi Jónsson, KR, 610 og flokkur
110 kg. Gústaf Agnarsson KR 660 kg.
24—17. Grambke var ekki erfiður mót-
herji fyrir Göppingen eins og sjá má á
því að frá fimmtu til 25. mín. I fyrri hálf-
lejk skoruðu leikmenn Grambke ekki
markl! — Göppingen-liðið hefur náð sér
verulega á strik og færzt úr tiunda sæti í
það fjórða á þessum sigurkafla. Mörk
liðsins skoruðu Bressmer 5, Múller 4,
Dúmmel 4, Salzer 4/1, Weiss 3, Bucher
I, Gáckle 1, Þorbergur Aðalsteinsson 1
og Gunnar Einarsson 1. — Mörk
Grambke: Harjes 5/2, Pries 4/2,
Schwenker 3, Björgvin Björgvinsson 2,
Schmidtmann 2 og Ellmers 1/1. Áhorf-
endur 2.600.
Grún-Weiss Dankersen var mjög lélegt
gegn næstneðsta liðinu Rheinhausen
þrátt fyrir sigur 20—15. Dankersen lék
sinn lélegasta leik á keppnistímabilinu
og virðist sem allir leikmenn liðsins séu
undir sama hattinn settir. Skora ekki i
opnum tækifærum! — Eftir 15 mínútna
leik var staðan 6—6 og þá varð fyrirliði
Dankersen fyrir því óhappi að falla
niður á vinstri olnboga með þeim afleið-
ingum að kúlan (olgbogakúlan) fór úr
liðnum og stóð út eins og sjá má á mynd
hér I greininni ef hún prentast vel. Hann
verður frá leik að minnsta kosti í mánuð
ef liðböndin hafa ekki slitnað, sem enn
erekki fullvíst.
Þrátt fyrir fimm marka sigur var leik-
urinn jafn alveg þar til átta mínútur
voru til leiksloka. Þá virtust leikmenn
Rheinhausen ekki hafa meiri kraft og
Dankersen seig framúr. Á blaðamanna-
fundi eftir leikinn sagði þjálfari Danker-
sen að hann myndi nú breyta liðinu tals-
vert og byggja á yngri leikmönnum. Lið-
ið væri ekki það sama og fyrir tveimur
árum, þegar það varð Þýzkalandsmeist-
ari. Hann bað áhorfendur að sýna þolin-
mæði þvi nýtt lið yrði ekki myndað á
nokkrum vikum. Lið, sem æfði fjórum
sinnum í viku og byði upp á slíkan leik,
sem sást I þessum leik við Rheinhausen,
væri alveg ótækt. Hann (þjálfarinn) gæti
leikið betur með vinstri!! Má því búast
við einhverjum breytingum á liöinu og
yngri mönnum, gefinn kostur á að reyna
sig. Mörk Dankersen skoruðu Axel 8/6,
Waltke 4, Meyer 2, Grund, 2, Ólafur 2,
Becker og von öpen. Mörk Rheinhaus-
en: Baldus 5, Demirovic 4/1, Kleibrink
3/1, Laflör 1, Raue 1 og Thierauf 1.
Áhorfendur 1.800.
í mjög lélegum leik sigraði Hútten-
berg Bayer Leverkusen með 18—16 og í
Múnchen sigraði Milbertshofen Rint-
heim 22—16 og það var að margra áliti
lélegasti leikurinn i deildinni á þessu leik-
tímabili. Mörk Milbertshofen: Wein-
gárrner 6, Frank 5/2, Dobler 3, Sommer-
feld 2, Böbel 2/1, Anthuber, Bergmann
og Mayr eitt hver. Mörk Rintheim.
Molitor 6, Lavrnic 4/3, Wagner 3, Red-
linger 2 og Kröger.
Staðan er nú þannig:
Hofweier II 9 I 1 209:175 19
Gummersbach 11 8 2 1 177:138 18
Grosswallstadt 11 8 2 1 195:160 18
Göppingen 117 13 207:184 15
Dankersen 11 7 1 3 193:184 15
Nettelstedt 116 2 3 205:171 14
Milbertshofen 11 4 2 5 184:188 10
Grambke 114 2 5 175:209 10
Húttenberg 11 4 1 6 188:196 9
Kiel 113 2 6 164:173 8
Gensungen 113 17 171:216 7
Rintheim 11 1 2 8 163:190 4
Rheinhausen 11 2 0 8 159:199 4
Leverkusen 11 0 3 8 173:209 3
í 2. deild sigraði Spenge, liðið, sem
Ágúst Svavarsson leikur með 17—11
(8—7). Það var gegn Altenhage og um
derby-leik að ræða. Ágúst var mark-
hæstur hjá Spenge 5/3, Brinkmann 4,
Westmeier 3. Við sigurinn komst Spenge
úr tíunda sæti í það sjöunda.
Með kveðju
ÓlafurH. Jónsson,
Axel Axelsson.
Evrópuþjóðir — þið eigid erfiöara um vik
að þessu leyti vegna fjarlægðar. Ég er
bjartsýnn á að lið mitt, Dynamo Búkar-
est, nái að sýna góðan leik gegn Val á
laugardag. Það er sjálfsagt að vera bjart-
sýnn og ég reikna með tveggja marka
sigri — sá sigur gæti eins fallið Val I
skaut,” sagði Vlase Oprea, þjálfari
Dynamo, við komuna til íslands i gær.
Kunnur maður i handknattleik heimsins
— hefur verið landsliðsþjáifarí Rúmena
og var hér sem slikur i frægasta leik, sem
háður hefur verið f LaugardalshöU. Jafn-
tefli íslands og rúmensku hcimsmeistar-
anna 1971.14—14.
Fyrri leikur Vals og Dynamo i 2. um-
ferð Evrópukeppni meistaraliða I hand-
knattleiknum verður á laugardag kl.
15.00 í Laugardalshöll — og það ætti að
geta orðið stórkostleg viðureign.
„Ég reikna með jöfnum leik og að fá
mörk verði skoruð. Tel öruggt, að Valur
sigri. Segjum 17—12,” sagði landsliðs-
kappinn kunni hjá Val, Jón H. Karlsson,
leikreyndasti leikmaður Valsliðsins með
316 leiki i meistaraflokki. „Við berum
enga sérstaka virðingu fyrir þessum
austantjaldsliðum. Þau eru vissulega
mjög sterk — en Valur hefur náð góðum
árangri I Evrópukeppni í Laugardalshöll
gegn sterkum liðum. Eins marks tap
gegn 1. maí Sovétríkjunum, þegar það
lið varð meistari — eins marks tap gegn
Gummersbach, því fræga liði, og
tveggja marka tap gegn Honved,” sagði
Stefán Gunnarsson, fyrirliði Valsliðsins.
Valsmenn hafa alltaf staðið sig vel í
Laugardalshöll jafnvel þó við sterkustu
lið heims væri aðetja.
„Það eru átta landsliðsmenn I liði
Dynamo nú — og fjórir þeirra urðu
heimsmeistarar 1974. Penu Cornel, Licu
Chita, Stef Mircea og Grabovschi
Mircea. Einnig fjórir, sem leikið hafa í
landsliði Rúmeniu að undanförnu —
Flangea Olimpiu, Duran Cornel,
Bedvian Mircea og Matei Paul.
Dynamo Búkarest er stofnað 1949 og
hefur 11 sinnum orðið Rúmeníu-meist-
ari í handknattleik. Er nú í efsta sæti í I.
deildinni í Rúmeníu — að hálfnuðu leik-
timabilinu. Það háir okkur litið að leika
á útivelli — við erum svo vanir þvi — en
nú óttumst við Valsmenn mest, þó sterk
lið séu í Evrópukeppninni eins og CSK
Moskvu, Grosswallstadt, V-Þýzkalandi,
og Júgóslavnesku meistararnir,” sögðu
þeir Oprea þjálfari og dr. Mircea
Crivtea, fararstjóri, í gær.
Það er ekki vafi á þvi, að Dynamo
Búkarest er eitt alsterkasta félagslið,
sem heimsótt hefur ísland. 1 fyrsta sinn,
sem félagslið frá Rúmeníu leikur hér —
og engin þjóð í heimi hefur náð jafngóð-
um árangri í handknattleiknum og
Rúmenar. Fjórum sinnum hafa þeir
orðið heimsmeistarar — einu sinni
hlotið bronz á HM. Það eru risar i liði
Dynamo — maður fékk næstum ríg í
hálsinn, þegar gengið var milli leik-
mannanna og litið framan í þá að Hótel
Esju i gær. Ákaflega sterklegir menn að
sjá — og hendurnar.... úff. En Vals-
menn eru líka stórir og sterkir með níu
landsliðskappa í sinum röðum. Það
verða þvi átök í Laugardalshöll á
morgun — leikur fyrir sterka menn.
Rúmenar eru frægir fyrir sterkan leik —
jafnvel grófan — og fá oft að kæla sig í
þýðingarmiklum leikjum. Hika ekki við
brot — og það verða engir smákallar,
sem dæma Evrópuleik Vals og Dynamo.
Danirnir Kristiansen og Svensen, sem
dæmdu úrslitaleikinn í síðustu heims-
meistarakeppni. Þeir munu ekki taka
neinum vettlingatökum á brotum leik-
manna á morgun — ef að líkum lætur.
1 fyrstu umferð Evrópukeppninnar
vann Dynamo CZKA frá Búlgariu.
23—12. í Búkarest — 22-17 í Sofiu. For-
sala á aðgöngumiðum hefst kl. 13.00 i
Laugardalshöll á laugardag og í leikhléi
verður ýmislegt til skemmtunar fyrir
áhorfendur. -hslm.
Víkingur-ÍR íkvöld
Finn leikur verður i 1. deild íslands-
mótsins I Laugardalshöll i kvöld. Þá
leika Vikingur og ÍR og hefst leikurinn
ki. 21.00. IR-ingar náðu sér vel á strik
gegn Haukum fyrr i vikunni og liklegt er
að þeir geti orðið Vikingum erfiðir i
kvöld.
Á undan — eða kl. 20.00 — leika
Vikingur og Þór, Akureyri, í 1. deild
kvenna — tvö af neðstu liðum deild-
arinnar.
Á sunnudag verða tveir leikir i 1. deild
karla. HK og Fram leika að Varmá kl.
17.00 — og Fylkir-Haukar í Laugardals-
höll kl. 19.00.
OliJó
þá voru Haukar
ekki rassskelltir lengur
Haukar sigruðu FH í innbyrðisviðureign Hafnarfjarðarliðanna f 1. deild fgærkvSld
20-17 þar sem Ólafur Jóhannesson lék þýðingarmikið hlutverk í Haukaliðinu
„Nú er ég mjög ánægður með mína
menn þó það verði að viðurkennast að
við fengum á okkur fjóra rassskelli áður
en liðið sýndi hvað i því býr. Það hafði
mikið að segja, að Ólafur Jóhannesson
lék með á ný. Hann átti góðan leik —
leikmaður, sem hugsar,” sagði Þorgeir
Haralsson, þjálfari Hauka, eftir að lið
hans hafði sigrað FH i 1. deild í hand-
knattleiknum á fjölum iþróttahússins
við Strandgötu í gærkvöld. Það var
stemmingsleikur — fullt hús áhorfenda
og hávaðinn svo mikill á köflum að skar í
eyrum. Gifurlegur fögnuður, þegar
Haukasigurinn var i höfn — og mikif
hvatning áhorfenda allan leikinn. Loka-
tölur 20—17.
Sigur Hauka var veröskuldaöur — og
hefði getað orðið stærri ef fjögur víta-
köst hefðu ekki verið misnotuð snemma
leiks. Þrir menn áttu mestan þátt í sigri
Hauka — markvörðurinn Gunnlaugur
Gunnlaugsson, sem varði mjög vel,
einkum framan af, Ólafur Jóhannesson,
sem dreif Hauka-liðið áfram' um miðbik
leiksins og var snjall þar til hann
meiddist. Lokakaflann var Hörður
Harðarson óstöðvandi — skoraði fimm'
siðustu mörk Hauka, flest glæsimörk.
FH-liðið var ekki sannfærandi í leikn-
um og gróf — oft klaufaleg varnarbrot
— áttu sinn þátt i ósigrinum. Geir
Hallsteinsson bar af. Án hans hefðu
FH-ingar fengið rassskell í gær — þó
vissulega te|ji þeir það alltaf rassskell að
tapa fyrir Haukum. En betra liðið í gær-
kvöldi sigraði og Haukar lyftu sér af'
botni deildarinnar og upp í fjórða sætiö.
Leikurinn var jafn framan af, upp í
2—2, en þá komust Haukar I 5—2.
Höfðu oftast tveggja marka forustu í
fyrri hálfleiknum og það þó þeir misnot-
uðu fjögur vítaköst. Tvö þeirra varin af
Magnúsi Ólafssyni og Birgi Finnboga-
syni.
1 byrjun s.h. komust Haukar í 11—7
en með harðfylgi tókst FH að minnka
muninn í 12—11. Eins marks munur og
Ólafur Jóhannesson meiddist. Mikil
spenna og um miðjan hálfleikinn hafði
FH jafnað í 15—15. Hörður Harðarson
kom Haukum aftur yfir — Viðar Símon-
arson jafnaði, en Hörður var erfiður
FH-ingum. Skoraði þrjú mörk næstu
min. og Haukar komust i 19—16.
Sigurinn i höfn en FH-ingar voru heldur
óheppnir. Viðar misnotaði vítakast.
Skaut i stöng og Gunnlaugur varði
glæsilega frá Sæmundi Stefánssyni. Val-
garður Valgarðsson minnkaði muninn I
19—17 en Hörður átti siðasta orðið fyrir
Hauka. Lokin hrein leikleysa.
Mörk Hauka skoruðu Hörður H. 8/2,
Ólafur 4/1, Stefán Jónsson 3/2, Andrés
Kristjánsson 2, Ámi Sverrisson 2, Þórir
Gíslason 1. Mörk FH. Geir 8/3, Viðar
4/3, Valgarður 2, Guðmundur Magnús-
son 2 ogGuðmundur Árni Stefánsson.
Dómarar Gunnar Kjartansson og Óli
Olsen. Haukar fengu 9 vítaköst. — FH
átta, tvö misnotuö. Einum leikmanna
Hauka vísað af leikvelli — fjórum hjá
FH, og Gils Stefánssyni tvívegis.
Hörður Sigmarsson lék ekki með
Haukum — Janus Guðlaugsson ekki
meðFH. -hsim.
Magnea Vilhjálmsdóttir,
nemandi f Álftamýrarskóla.
Unnur Brown 13
Austurbæjarskóla.
nemandi
Karolfna Walderhaug 14 ára nemandi
f Langholtsskóla.
Eftir viku hefst maraþonsund Ægis og DB f Sundhöll Reykjavfkur og stendur f rúma viku. Ungu stúlkurnar hér að ofan
verða meðal 24 félaga úr Ægi, sem taka þátt f sundinu. DB-myndir Hörður.
TAUGAR LEIKMANNA ÞÓRS
BRUGÐUST OG ÍS SIGRAÐI
Þórsarar frá Akureyrí glopruðu niður
sigurmöguleikunum á síðustu sekúndum
leiksins gegn stúdentum í úrvalsdeild
körfuboltans f gærkvöldi. Þegar minna
en ein mínúta var til leiksloka þá var
staðan 81 stig gegn 80 Þór f vil. Þeir
voru með knöttinn. I stað þess að fara
sér að engu óðslega misstu þeir boltann.
til stúdenta og enn fengu Þórsarar knött-
inn og enn misstu þeir af tækifærinu.
Stúdentar náðu knettinum og brotið var
á Dirk Dunbar, sem skoraði örugglega
úr tveim vftaskotum. Leiknum lauk því
með tveim stigum til stúdenta, er greini-
lega sýndu meiri leikreynslu á úrslita-
stundu.
Ljóst var af leiknum i gær að veru-
legar framfarir hafa orðið hjá Þórslið-
inu. Meiri festa er komin í leik liðsins og
oft sést til þeirra laglegur leikur. Að vísu
ber Mark Christiansen af öðrum leik-
mönnum, sem gull af eiri en aðrir leik-
menn sýna oft góða takta. Má þar til
dæmis nefna Birgi Rafnsson og Eirik
Sigurðsson.
Lið stúdenta — ÍS — mátti eðlilega
illa við meiðslum Dirk Dunbar og í gær,
þegar Jón Héðinsson var ekki til staðar.
áttu þeir í verulegum erfiðeikum, til
dæmis í fráköstunum. Áttu Þórsarar
meginhluta þeirra í fyrri hálfleik en
ástandið hjá stúdentum batnaði nokkuð
i hinum síðari, þegar meiri kraftur
færðist yfir Bjarna Gunnar, sem var
slakur fram að leikhléi, en skoraði sam-
tals 29 stig. Hraði og kraftur Jóns Odds-
sonar nýttist vel að þessu sinni. Hann
gerði tólf stig og flest þeirra úr hraða-
upphlaupum.
Leikurinn í gærkvöldi var allan tím-
ann mjög-jafn en ekki fór á milli mála að
þarna voru á ferðinni tvö neðstu liðin i
úrvalsdeildinni. í hálfleik hafði Þór einu
stigi betur, 38 stig gegn 37.
Bjarni Gunnar var stigahæstur stúd-
enta með 29, Dirk Dunbar með 28 og
Jón Oddsson með 12.
Mark Christiansen var langstiga-
hæstur Þórsmanna með 39 stig, Eiríkur
Sigurðsson gerði 24 og Birgir Rafnsson
varmeðtíustig.
Að loknum þessum leik er ÍS með
fjögur stig en Þór er á botninum með tvö
stig.
-ÓG
SKÍÐAVÖRUR
Í MIKLU ÚRVALI
NÝK0MNAR
Rikofinn /í.
SPORTVÖRUVERZLUN
HAFNARSTRÆT116
SÍMI 24520