Dagblaðið - 08.12.1978, Page 34
38
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978.
íslenzk byggingarlist I.
Hvað er
byggingarlist?
Frá ómunatíð hafa menn í einhverj-
um mæli gert sér grein fyrir því að
Bygginga-
list
Gestur Ólafsson
arkitekt
menning hverrar þjóðar og einstakl-
inga endurspeglast að verulegu leyti i
þeim byggingum sem hver kynslóð
lætur eftir sig. Mörg fegurstu listaverk
mannkynssögunnar eru byggingar
sem enn i dag veita okkur ómetanlega
fræðslu um liðnar kynslóðir, menn-
ingu þeirra, lífshætti og listir. En hvað
er bygging? Hvað er byggingarlist og
hvernig ættu mannvirki á lslandi að
vera gerð? Er til nokkuð sem hægt er
að styðjast við í þessum efnum? Ætti
það aö skipta nokkru máli hvernig
menn fara að þvi að koma þaki yfir
þær athafnir sem þeir vilja eða geta
ekki framið utan dyra? Hvers vegna
hafa byggingar á íslandi á síðustu ára-
tugum verið byggðar eins og raun ber
vitni og hvers vegna höfum við skipu-
lagt umhverfi okkar eins og við höfum
gert? Er til á þessu nokkur skynsamleg
skýring? Höfum við notað alla tiltæka
þekkingu og reynslu í þessum efnum
til að skapa hentugt og manneskjulegt
umhverfi jafnt innan dyra sem utan
eða getum við hugsanlega gert eitt-
hvað betur á komandi árum? — Ef svo
er — þá hvernig?
Ýmis grundvallaratriði
við hönnun bygginga
Allir landsmenn þekkja það grund-
Til hvernig byggingariistar myndi það
leiða, ef fullt tillit væri tekið til hnatt-
stöðu íslands og veðurfars?
vMfutam
Hvaö vantarhana?..
... auðvitaö
náttkjól
ogslopp.
Glæsibæ — Sími 83210
vallarhlutverk bygginga að veita skjól
fyrir veðri og vindum, hvort heldur
um er að ræða gripahús eða þjóðar-
bókhlöðu. En við gerum einnig fleiri
og flóknari kröfur til bygginga. Ef vel
á að verða þurfa byggingar einnig að
vera mótaðar með tilliti til allra
hugsanlegra notenda og þeirra athafna
sem við ætlum að framkvæma innan
dyra, en við það vandast málið tölu-
vert. 1 byggingum þarf að vera nægi-
legt rými á ákveðnum stöðum fyrir
alla þá hluti, tæki og föt sem við vilj-
um hafa umhverfis okkur. Vinnufletir
og sæti þurfa að vera i skynsamlegri
hæð. Sólarljós og birta þurfa að koma
inn i bygginguna á ákveðnum stöðum
og raflýsing þarf að vera tiltæk þegar
birtu sleppir. Ef gott útsýni er frá
byggingunni í einhverja átt þurfa að
vera til gluggar sem gera okkur kleift
að njóta þess.
Umhverfi, innan byggingarinnar
þarf einnig að vera hæfilega heitt og
Austurborg
Búðargeröi 10 — Sími
Opid til
kl. 8
föstudag
og til
kl. 6
laugardag
rakt til þess að okkur líði vel, hávaði i
herbergjum má ekki vera of mikill og
auk þess þurfa byggingar oft að vera
hljóðeinangraðar bæði utanfrá og eins
milli herbergja.
Arkitektar hafa lengi haldið þvi fram að
byggingarlist eigi að vera grundvölluð á
hlutföllum mannslfkamans, en hvaða
kröfur aðrar gerum við til nútima j
byggingarUstar?
Að standast
öll veður
Sjálfsögð krafa til bygginga á
tslandi hlýtur að vera að þær -séu
nægilega traustar til þess að standast
verstu veður, snjókomu, öskufall og
jafnvel jarðskjálfta, þannig að ekki
verði manntjón af. Litir, ólík efni og
áferö þeirra hafa mjög mismunandi
áhrif á fólk og því þarf efnis-, lita- og
áferðaval að fara eftir þeim athöfnum
sem ákveðið er að framkvæma á
hverjum stað. Flestir kannast við áhrif
rauðra og grænna lita, en rétt notkun
lita er mjög mikilvæg, t.d. vegna
öryggis á vinnustöðum. Sönnur hafa
einnig verið færðar á bein áhrif lita á
andlega og likamlega heilsu fólks. Með
síhækkandi byggingar- og viðhalds-
kostnaði hefur skynsamlegt efnisval
við hönnun bygginga mjög mikið að