Dagblaðið - 08.12.1978, Page 36

Dagblaðið - 08.12.1978, Page 36
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978. BONEY M SYNGUR JOLALAG ARSINS Eagles eru á sömu buxunum Hið árlega jólalag enska vinsælda- listans er komið í Ijós. Boney M fer rakleiðis í annað sætið úr 22ru með lagið Mary’s Boy Child. Sennilega er þetta fallegasta lagið sem Boney M hefur sungið inn á hljómplötu til þessa. Annað jólalag er komið út í Eng- V BONEY M — Eitt bezta lag hljómsveitarinnar til þessa er tvimælalaust Mary’s Boy Child. Vinsælustu litlu plöturnar ENGLAND — Melody Maker 1.11) DA' YA' THINK l'M SEXY.......... Rod Stewart 2. (22) MARY'S BOY CHILD................Boney M 3. (-) A TASTE OF AGGRO.............Baron Knights 4. (12) TOO MUCH HEAVEN.................Bee Gees 5. ( 2) RAT TRAP...................Boomtown Rats 6. ( 8) HANGING ON THE TELEPHONE.........Blondie 7. (18) I LOST MY HEARTTO A STARSHIP TROOPER... ............................Sarah Brightman 8. (20)YMCA....... .................VillagePeople 9. (13) LE FREAK...........................Chic 10. ( 5) PRETTY LITTLE ANGEL EYES.Showaddywaddy BANDARÍKIN - Cash Box 1. (1) YOU DONT BRING ME FLOWERS...Barbra og Neil 2. ( 3 ) I JUST WANNA STOP..........Gino Vannelli 3. (17) LE FREAK..........................Chic 4. ( 5 ) SHARING THE NIGHT TOGETHER....Dr. Hook 5. ( 4) MAC ARTHUR PARK...........Donna Summer 6. ( 7 ) I LOVE THE NIGHTLIFE (DISCO ROUND).. ..............................Alicia Bridges 7. (11ITOO MUCH HEAVEN.................BeeGees 8. (10) (OUR LOVE) DONT THROWIT AWAY..Andy Gibb 9. ( 9) TIME PASSAGES.................Al Stewart 10. (13) MY LIFE......................BillyJoel VESTUR-ÞÝZKALAND 1. (1) MEXICAN GIRL. .................Smokie 2. ( 2) SUBSTITUTE....................Clout 3. ( 4) SUMMER NIGHTS . Olivia Newton John og John Travolta 4. ( 5) SUMMER NIGHT CITY..............ABBA 5. ( 3 ) YOU'RE THE ONE THATIWANT.John Travolta og Olivia Newton-John 6. (10) SHEILA....................Rosetta Stone 7. ( 6) KISS YOU ALL OVER...............Exile 8. ( 8 ) RASPUTIN....................Boney M 9. (13) GIMME GIMME YOUR LOVE..........Teens 10. (12) AGAIN AND AGAIN............Status Quo HOLLAND 1. (2) TROJAN HORSE ...................Luv 2. ( 3 ) GET OFF........................Foxy 3. ( 1 ) DREADLOCK HOLIDAY..............10cc 4. ( 5) PARADISE BY THE DASHBOARD LIGHT.Meat Loaf 5. ( 4) GUUST FLATER AND DE MARSUPILAMI Danny Christian 6. (30) SANDY....................John Travolta 7. (10) DEAR JOHN....................Teach In 8. ( 9) KISS YOUALL OVER. ..............Exile 9. ( 6) BICYCLE RACE .................Queen 10. ( 8) MAC ARTHUR PARK.........Donna Summer HONG KONG 1. (3) RAININ' IN MY HEART. ..........Leo Sayer 2. (1) DREADLOCK HOLIDAY..................lOcc 3. ( 4 ) YOU NEEDED ME..............Anne Murray 4. (10) MAC ARTHUR PARK...........Donna Summer 5. (14) LIKE SUNDAYIN SALEM.........Gene Cotton 6. ( 2) SHE'S ALWAYS A WOMAN...........Billy Joel 7. (-) CHAMPAGNE JAM........Atlanta Rhythm Section 8. (-) PART-TIME LOVE.................Elton John 9. (-) (OUR LOVE) DONT THROWIT AWAY...Andy Gibb 10. ( 7) SO LONG UNTIL THE END.......Patricia Chan landi og Bandaríkjunum sem gæti auðveldlega komizt á topp tíu hvar sem er. Þar er á ferðinni gamalkunn- ug hljómsveit, Eagles að nafni. Jóla- lagið er á fyrri hlið plötunnar. Hinum megin er siðan áramótalag, sem Eagles nefna Funky New Year. Óvenju mörg ný lög eru nú á topp tíu í Englandi. Alls eru þau sex tals- ins. Slíkt hefur ekki komið fyrir frá því að Dagblaðið hóf að birta vin- sældalistana fyrir rúmum þremur árum. Af þessum nýju lögum er rétt að vekja athygli á Y M C A, sem er í áttunda sæti. Það er lag með diskó- takti en óvenjugott af sliku lagi að vera. Flytjendurnir, Village People, hafa á síðustu mánuðum unnið sér nafn í Bandaríkjunum sem eindæma hressileg hljómsveit. Allir liðsmenn hennar utan einn eru hýrir, eins og hommarnir kjósa að kalla það. Það virðist þó lítil áhrif hafa á vinsældir hljómsveitarinnar, sem á sér aðdá- endur hvarvetna um Bandarikin. Hinum megin við hafið eru Barbra Streisand og Neil Diamond enn í efsta sæti. Bee Gees eru komnir í sjöunda sætið með lagið Too Much Hcaven. Ef að líkum lætur eiga Gibba-Gibb bræður eftir að hækka sig. Þá er vert að benda á að i tiunda sætið í Bandaríkjunum er kominn Billy Joel. Lagið hans, My Life, er tekið af nýjustu stóru plötunni sem nefnist 52nd Street. Þetta lag nýtur mikilla vinsælda hér á landi, bæði i útvarpi og á diskótekum. I Vestur-Þýzkalandi trónar Smokie enn á toppnum með Mexi- can Girl. Það eru engar ýkjur þegar sagt er að Smokie séu konungar þýzka listans. Hollenzkt kvennatríó, sem kallar sig Luv, leysti I0 cc af hólmi á toppi hollenzka vinsældalist- ans. Þær flytja að þessu sinni lagið Trojan Horse. í Hong Kong er Leo litli Sayer númer eitt. Hann flytur þar lagið Rainin’ In My Heart. - ÁT ÁSGEIR TÓMASSON SIDASTA SKEMMTUN ÞURSA- FLOKKSINSÁ ÞESSUÁRI Þursaflokkurinn leikur i síðasta skipti opinberlega á þessu ári á sunnudaginn kemur. Þá treður flokkur- inn upp á þriðju hæð Klúbbsins i einar tvær klukkustundir. Á laugar- dagskvöldið verður síðasta sýning Islenzka dans- flokksins og Þursaflokksins í Þjóðleikhúsinu. Það er næsta fátítt að Þursaflokkurinn skemmti opinberlega í Reykjavík. Síðast lék hann fyrir al- menning á Miklatúni síðastliðið sumar. Flokk- urinn hefur á undanföm- um vikum gert víðreist um landið og leikið í skólum. Fram til. áramóta verða stanzlausar æfingar hjá liðsmönnum flokksins, þar eð fyrirhuguð er Norður- landaferð um miðjan jan. Áður en af henni verð- ur kemur Þursaflokkurinn þó fram nokkrum sinnum til viðbótar, svona rétt til að hita sig upp. -ÁT- ft' / /1 ! «sa*L./- I \ ’ \ GIBBA GIBB — Hér eru allir Gibb bræðurnir sarnan komnir. Þeir eldri eru i fjórða sæti i Englandi og sjöunda sæti i Bandarikjunum með lagið Too Much Heaven. Andy (annar frá hægri) er sömuleiðis á vinsældalistanum vestan hafs, — í áttunda sæti. DR.HOOKI LUKKUPOTTINUM í þriðja skiptið gefur Dagblaðið lesendum sinum, í samvinnu við hljómplötudeild Fálkans, kost á að detta í lukkupottinn. Að þessu sinni eru þar staddar tuttugu plötur eins og endranær — tiu stórar og tiu litlar. Allar eru þær með sömu hljómsveitinni, þeirri umdeildu Dr. Hook. Stóru plöturnar eru allar sömu gerðar og nefnast Pleasure And Pain. Litlu plöturnar eru með einu af aðallögum þeirrar stóru. Lagið nefn- ist Sharing The Night Together. Það er fyrsta lagið af Pleasure And Pain, sem nær vinsældum á tveggja laga plötu, en þau eiga áreiðanlega eftir að verða fleiri. Fylgizt til dæmis með lagi, sem heitir When You’re In Love With A Beautiful Woman. Það á áreiðanlega eftir að heyrast á næsta ári. En eins og vanalega eignast eng- inn plötu úr lukkupottinum vinsæla án smáfyrirhafnar. Til að eiga möguleika á að bæta nýjustu Dr. Hookplötunni í safnið þurfa les- endur að svara 10 spurningum. Flestar eru þær laufléttar, en ein eða tvær eru dálítið varasamar. Þær hljóða svo: 1. Hvað heitir maðurinn, sem upp- götvaði Dr. Hook á sinum tima? 2. Hann réð hljómsveitina til að sjá um tónlistina i kvikmynd, sem nefnist Who Is Harry Kcllcrman And Why Is He Saying These Terrible Things About Me? Hver lék aðalhlutverkið í þeirri mynd? 3. Hvað heitir fyrsta lagið, sem Dr. Hook gerði frægt. 4. Dr. Hook á lag, sem nú er hátt á vinsældalistum i Bandarikjunum. Hvað heitir það lag? 5. Eitt sinn var nafn Dr. Hook mun lengra en það er i dag. Hvað hét hljómsveitin þá fullu nafni? 6. Hverjir eru tveir aðaimenn Dr. Hook? 7. Lag nokkúrt kom andlitum liðs- manna Dr. Hook á forsiðu Roll- ing Stone. Hvað nefnist það? 8. Fyrsta plata Dr. Hook hjá fyrir- tækinu Capitol er áreiðanlega þekktasta plata hljómsveitarinn- ar? Hvað heitir sú plata? 9 Hvert er nafn nýjustu breiðskifu Dr. Hook? 10. Hvað heitir sá liðsmaður Dr. Hook, sem hefur lepp fyrir vinstra auganu? Er lesendur hafa svarað þessum tiu spurningum eftir beztu getu slá1 þeir um það umslagi og merkja það eftirfarandi heimilisfangi: Dagblaðið „Dettiö í lukkupottinn” Síðumúla 12 105 Reykjavík. Dagblaðiö vill benda þátttakend- um á að vissast er að senda lausnirn- ar sem fyrst. Skilafresturinn er fjórtán dagar, en þrátt fyrir það berast alltaf nokkrar lausnir of seint. Að lokum eitt í viðbót: Auk lausn- anna er nauðsynlegt að þátttakendur láti nafn sitt og heimilisfang fylgja með. Alltaf eru nokkrir sem gleyma þvi. 1 lukkupottsgetrauninni getur enginn unnið, sem við vitum ekki hvað heitir, frekar en i öðrum get- raunum. . ÁT DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.