Dagblaðið - 20.12.1978, Side 1
f
4
4
4
rlanhlait
4. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978- 285.TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
C
Deilurnar lægir í ríkisstjórninni:
D
„ALLR RAÐHERRARNIR HAFA
TEKH) TULÖGUM ÓLAFS VEL”
—en koma ráðherrar Alþýðuf lokks málinu í gegn heima fyrir?
„Tillögur þær sem Ólafur lagöi frant
i ríkisstjórn i gær hafa hlotið prýöileg-
ar undirtektir ráðherranna allra,”
sagði Steingrimur Hermannsson
dómsmálaráðherra I viðtali við Dag-
blaðið í morgun. „En er ekki flokks-
ráðsfundur hjá krötunum í kvöld?
Ráðherrar Alþýðuflokksins hafa sýnt
mikinn vilja til þess að taka upp skyn-
samleg vinnubrögð en það virðist erf-
itt fyrir þá að koma því í gegn heima
fyrir. Það er hins vegar Ijóst, að ef
flokkurinn vill alls ekki reyna að ieysa
þessi mál á grundvelli þeirra tillagna
sem fram hafa komið að undanförnu.
þá er þeirra takmark eitt að fella ríkis-
stjórnina.
„Flokksráðsmenn Alþýðuflokksins
munu i dag velta fyrir sér þessum til-
boðum,” sagði Vilmundur Gylfason
|A) í morgun. „Þetta verður skoðað
rækilega og leitað álits sérfræðinga.
Við hefðum helzt viljað að rikisfjár-
málunum hefði verið beitt í baráttu
gegn verðbólgunni fremur en launa-
málunum. Við verðum að sjá hvort
tryggingar séu nægilegar i verðbólgu-
málunum, ella verður bara frestur á
illum hlut og hiðsama endurtekursig í
launamálum og gerðist 1. september
og l.desember.”
„Allt hefur sinn
eðlilega gang"
„Ég geri ráð fyrir að allt hafi sinn
eðlilega gang eftir þetta ” sagði Ólafur
Ragnar Grímsson (AB) í morgun.
Ríkisstjórnin ntundi standa af sér
þessa kreppu. fjárlög afgreidd fyrir jól.
og þingi frestað fram yfir miðjan janú-
ar. Hugsanlegt væri að flokksstjórnar-
fundur Alþýðuflokksins setti strik i
þann reikning, en. það kænti þá á
óvart.
í tillögum forsætisráðherra i gær er
gert ráð fyrir skipun nefndar eins ráð
herra frá hverjum stjórnarflokki til að
skoða frumvarp alþýðuflokksmanna
og semja frumvarp um efnahagsráð-
stafanir til 2ja ára fyrir janúarlok.
Lánsfjáráætlun bíður á nteðan. Þá
Itefur fjárveitinganefnd ákveðið 500
milljóna niðurskurð á rikisútgjöldunt
til viðbótar 500 milljónum sent áður
hafði verið ákveðið. Reym verður að
skera niður útgjöld einstakra ráðu
neyta um 100 milljónir hvers. Þá á að
koma í fjárlög hcintildarákvæði um
eins milljarðs niðurskurð til viðbótar.
einkum á rekstrarútgjöldum. Þing
ntenn segja að hlutur rtkisins sé þá að
verða nálægt 30% af framleiðslu þjóö
arinnar. eins og alþýðuflokksmenn
hafa krafizt. -HH/HP
Hvað gerist
ef stjornin
fellur?
— fjórtán þingmenn
svara spumingu
DBábls. 14-15
Endurbætur
loks hafnar á
Víðishúsinu
— sjá bls. 5
Ríkissjóður
í peningaleit
— sjábls. 15
Litlu jólin í
Æfingadeild KHÍ:
Trölladansá
litlu jólunum
— sjá bls. 6
Geðdeildin
loks af hent
— sjá baksíðu
Hann var á fleygiferð um Breiðholtið í gær — með skreytt jólatréð með sér.
DB-mynd Sv. Þorm.
Hafskipsmálið:
Framkvæmdastjórarnir
sögðu upp um tíma
„Afstaða stjórnarinnar er alveg
skýr. Málið er í höndum rannsóknar-
lögreglunnar og hefur þar sinn gang
fyrst ekki varð hjá því komizt að fara
þcssa leið,” sagði Ólafur B. Ólafsson,
varaformaður í stjórn Hafskips i
viðtali við DB.
Hann sagðist ekki vera i vafa um að
það kæmi fram sem rétt væri í þessu
máli. Það væri augljóst að Magnús
Magnússon, stjórnarformaður Haf-
skips hf„ liti öðrum augum á sina
stöðu en aðrir stjórnarmenn gerðu.
DB hefur áreiðanlegar heimildir
fyrir því, að mikill vilji var fyrir þvi í
stjórn Hafskips hf. að halda meðferð
þessa máls innan fyrirtækisins. Það
tókst hins vegar ekki eins og Ijóst er
orðið.
Þá hefur DB heimildir fyrir þvi að
framkvæmdastjórar Hafskips hf.
höfðu um tíma sagt upp störfum þar
eð þeim þótti frágangssök aö vinna
áfram i fyrirtækinu nema mál
Magnúsar Magnússonar kæmist á
hreint. Munu uppsagnir þeirra hafa
hert á stjóminni að taka þá stefnu sem
ofan á varð. „Framkvæmdastjórarnir
verða báðir áfram,” sagði Ólafur B.
Ólafsson. -BS.
Krosstré og önnur tré
— Aðalsteinn skrifar
um myndlistábls.7
Feðgin
saman í
Reykjavíkur-
lögreglunni
— sjábls.21
Skoðanakönnun
Dagblaðsins:
Meirihlutinn
vill lækka
kosningaald-
urinníl8ár
Mcirihluii landsmanna vill aö kosn
ingaaldurinn vcröi lækkaður niöur í
18 ár. Þetta sýnir skoðanakönnun scm
DB hefur gert. Rúmlega firomliu og
einn af hvcrjum hundrað kvaðst t'ylgj
andi þessari breytingu. Þrjáliu og niu
af hundraði voru andvigir. en tæplcga
tíu af hundraði óákveðnir.
Þegar þeir óákvcðnu eru teknir úi
úr reynast 56.8 af hundraði fylgjandi
Iækkuninni en 43.2 af hundraði and
vigir.
Sjá fréttir á bls. 12.
Lögreglu-
skýrslan ekki
komin fram
Eins og DB greindi frá í gær varð
piltur i Breiðholti fyrir þeirri ótrúlegu
lifsreynslu að ráðizt var að honum og
hellt yfir hann kveikjarabénsini og
siðan kveikt í honum. DB hefur itrek-
að reynt að afla nánari upplýsinga um
þetta mál en skýrslan hafði ekki cnn
borizt til Guðmundar Herrnannssonar
yfirlögregluþjóns i morgun og kunni
hann engar skýringar á þvi.
-GAJ-