Dagblaðið - 20.12.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978.
finnur
Torfi Stefánsson
(Aþfl.):
„Ég get ómögulega gert mér grein
fyrir því, satt að segja. Mér finnst þó
frekar ólíklegt, að kosningar yrðu.
Viðhorfin frá því i 'sumar hafa að
ýrnsu leyti breytzt, það gæti raunar
allt gerzt. En ég hef hins vegar ekki trú
á þvi. að til stjórnarslita komi.”
Geir
Hallgrímsson (S):
„Ég skal ekkert segja um það, við
skulunt fyrst sjá fyrir endalok ríkis-
stjórnarinnar.”
Munuð þið taka við krötunum?
„Ég er búinn að segja það, sent ég
hef að segja i málinu. Koma tiniar,
konta ráð."
Gunnar
Thoroddsen (S):
„Hún fellur ekki. Mér finnst, að
hún niegi reyna að spreyta sig svolítið
enn og sýna, hvers hún er megnug.
Um það, hvað muni taka við, skul-
um við tala þegar hún er fallin. eða
horfur eru á, að hún falli.”
Jósep H.
Þorgeirsson (S):
„Kosningar. Ég hef trú á því, að ef
þessi stjórn fellur, þá verði að kjósa.
Og þá held ég, að bezt sé að gera það
sem fyrst."
15
Vilhjálmur
Hjálmarsson (F):
„Það hef ég ekki hugmynd um.
Maður veit nú minna um, hvaða ríkis-.
stjórn kæmi, ef þessi félli, því að hér er
mikil óvissa fr'á degi til dags.”
Strákar, látið
ekki á neinu bera
Dóri er að komaí
RIKISSJÓÐUR í PENINGALEIT
Rikisstjórnin biður Alþingi um
heimildir til lántöku og ábyrgðar á
lánum uppá níu milljarða.
1 lögum um heimild til lántöku
erlendis i ár var gert ráð fyrir lánum á
4866 milljónir, en þetta segir ríkis
stjórnin að þurfi að hækka um 4000
milljónir. Orsakirnar séu. að 2500
minna hafi komið inn í lánum
innanlands en áætlað var og svo færist
ríkið einnig meira i fang í ár en til stóð
upphaflega.
Þá þurfi að ábyrgjast 230 milljón
króna lán fyrir Lánasjóð islenzkra
námsmanna. Lýst hafi verið yfir við
afgreiðslu fjárlaga fyrir árið í ár. að
unnt yrði að veita námsmönnum lán,
sem svöruðu til 85% af umfram-
fjárþörf þeirra. Til að tryggja að þetta
markmið næðist hefði verið sett i fjár-
lög heimild til 270 milljóna kr.
lántöku. Breytingar á gengi og
verðbólgan valdi þvi, að nú vanti enn
230 milljónir.
Þá er beðið um heimild til að á-
byrgjast með sjálfskuldarábyrgð lán.
sem Akureyra'rbær tekur til hitaveitu-
framkvæmda upp á 4800 milljónir.
Framkvæmdir þar hafa verið meiri en
gert var ráð fyrir og fjármagnaðar með
erlendum lánum til skamms tima. sern
fyrirhugað er að breyta í lán til langs
tíma.
Fiskveiðasjóður hafði í ár vegna
aðgerða í sjávarútvegi yfirtekið frá
rikissjóði heimild til 1000 milljón
króna lántöku. Ætlunin var. að ríkis-
sjóði yrði bættur þessi missir með
inntekt af skuldabréfasölu Frant-
kvæmdasjóðs til lifeyrissjóðanna. Lif-
eyrissjóðirnir Itafa hins vcgar ekki
keypt svo sem áætlað var, og biður
ríkisstjórnin því um frekari lán-
tökuheimildir.
HH.
—
Partygrill
nefur bæði rafm.eiement og sprittlampa!
Bordpennasett í
„ONYX STEINI"
/ hvítu, brúnu
og grænu.
j, Allarnánarí k
r upp/ýsingar: |
PENNAVIÐGERÐIN
FYRSTA FLOKKS
GJÖF SEM GLEÐUR