Dagblaðið - 20.12.1978, Page 16

Dagblaðið - 20.12.1978, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978. Um bókmenntaverólaun og verölaunahöfunda í nóvember sendi DB eftirfarandi bréf til 40 islenskra rithöfunda: „í hvert sinn sem bókmenntaverðlaun. t.a.m. nóbelsverðlaun eru veitt úti í heimi, upphefjast venjulega nokkrar umræður um réttmæti þeirra það sinnið eða yfirléitt, verðleika verð- launahafanna o.s.frv. í því sambandi vill DB gera könnun á þvi meðal nokkurra rithöfunda íslenskra, hvaða höfundar erlendir þeir telji að séu mikilhæfastir og skipti mestu máli fyrir samtímann. Hér er bæði átt við höfunda lifs og liðna. Einnig vill blaðið heyra skoðun islenskra rit- höfunda á þvi hvort einhverjir rit- höfundar erlendir hafi hlotið meira lof og athygli en þeir verðskulda.” Bað DB höfunda að svara þessari umleitan í sem stystu máli. Heldur var uppskeran rýr. Þrettán höfundar af fjörutíu sendu inn bréf, aðrir hringdu og báðust undan þessari kvöð og enn aðrir sögðust ekki vilja skrifa fyrir blaðið, af persónu legum og pólitiskum ástæðum. Margir þeirra sem svöruðu ræddu al- mennt um verðlaunaveitingar fremur en að tilnefna einhverja upp áhaldshöfunda erlenda og nær allir forðuðust þeir eins og heitan eldinn að lasta „ofmetna” höfunda. Aðrir, t.a.m. Matthías Johannessen, voru óhræddir við að tala máli uppá haldshöfunda sinna. Af þessari könnun verður hreint engin ályktun dregin, nema sú að íslenzkir höfund- ar séu heldur pennalatir hvunndags- og þeir eigi sér mörg viðhöld i bók- AÐALSTEINN INGÖLFSSON menntaheiminum. Hér á eftir fara svörhinnaýmsuhöfunda. A.I. BILAPARTASALAN Höfum úrval notadra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Franskur Chrysler '71 Fiat 128 '73 Toyota Crown '67 Rambler '67 Volvo Amazon '65 Fiat 125 '73 Einnig höfum viö urval af kerruefni, til dæmis undir vélsleöa. Sendum um alltland. BÍLAPARTASALAN Höföatúni 10 — Sími 11397 SAYOKm Dauðir menn og Irfandi Þorgeir Þorgeirsson Kæri Aðalsteinn: Þú ert að spyrja um nóbelsverð- laun og verðskuldað leða óverðskuld- að) lof sem hleðst á skáldin. Mér kemur í hug írska þjóðskáldið Owen Roe O’SuIlivan sem var mikill kartöfluræktarmaður og lenti aldrei í littererum selskap. Meðan kartöflurnar gréru á jörðinni orti hann kvæði, drakk, stundaði kennslu og flekaði mæður nemenda sinna engu síður en nemendurna sjálfa. Fólk á vestanverðu írlandi segir að kvæðin hans þekkist á því hversu auðvelt sé að læra þau. Ekkert þeirra birtist á prenti meðan hann lifði. Hundrað árum eftir dauða hans fóru bókmenntaspekingar að safna ljóðunum og gáfu þau út á bók. Þá rigndi skammabréfum inná forlagið. Sumir bréfritara uppástóðu að kvæðin væru eftir þá sjálfa, aðrir nefndu til einhvern fylliraft úr ná- grenninu. Þessi ljóð voru semsé runnin samanvið aðdáendur skáldsins fyrir löngu. Enda þótti þeim flestum ganga guðlasti næst að spilla ólíkum kvæðum með prentsvertu. Margar helgisögur Um Owen Roe eru margar helgisögur. Gamlir sagnaþulir á kránum í írlandi segja gjarna: „Það tæki mig æfina að segja bara sögurnar, sem ég kann af dauða hans!” Hér er ein af mörgum: Kona nokkur vildi ekki trúa því að Owen Roe væri dauður. „Ég skal sýna ykkur hvort hann er mjög dauður," sagði hún, gekk að líkbörunum og fletti uppum sig. En hann bærðist ekki. Þá brá hún honum I sig um stund. „Þú ert víst dauður!” sagði hún svo. Enda lá hjá líkinu bréfsnifsi með svanasöngnum hans: Weak indeed is the poet When the pen drops from his hand... Þorgeir Þorgeirsson. Svona eftirmæli eru andvirði margra nóbelsverðlauna. En að öllu gamni slepptu: William Shakespeare og Ingólfur frá Prestbakka eru báðir staðreynd, þó hvorugur hafi fengið Nóbelsverðlaun. Þorgeir BREYTUM KERFINU Sayonara er japanska orðið yfir „vertu sæl”. James A. Michener hefur með hinni hugþekku ástarsögu sinni gert það að tákni þeirrar ástar sem nær út yfir gröf og dauða. Sayonara er vafalaust ein hugþekkasta ástarsaga sem skrifuð hefur verið á síðari árum. Hún lýsir ástum bandarísks hermanns og japanskrar stúlku. Sögusviðið er vafið austurlenzkum ævin- týraljóma og töfrum japanskrar menningar. Því að enginn þekkir konur til hlítar sem ekki hefur kynnzt ástartöfrum japanskra kvenna. Japanska konan er tryggur förunautur, blíður félagi, gjöful og þiggjandi í ástum, yndislegasta kona jarðríkis. Metsölubók um Kr. 3.840 Þráinn Bertelsson Kæri Aðalsteinn. Þú spyrð um álit mitt á bókmennta- verðlaunum, sennilega vegna þess að oft er hnakkrifist út af þvi þegar vond- ir höfundar fá einhverja viðurkenn- ingu; mér finnst reyndar að vondir höfundar þurfi miklu fremur á verð- launum og viðurkenningu að halda en góðir höfundar. Nú, og svo kemur það líka stundum fyrir, að góðir höfundar fái verðlaun. Er það ekki Ijómandi skemmtilegt? Eins og aðrir kaupsýslumenn hafa útgefendur tilhneigingu til að nota bókmenntaverðlaun í auglýsinga- skrumi sinu. Þá taka fjárhagsleg sjón- armið við af þeim bókmenntalegu. Það er náttúrlega ekki gott, en þá fara böndin að berast að því hagkerfi sem við búum við. Og þvi kerfi held ég við ættum að reyna að breyta áður en allt fer til fjandans. Þ.B. I Þráinn Bertelsson. GAMUR MENN FÁ VERDLAUN Jenna Jensdóttir Allir þeir rithöfundar sem lagt hafa ótvíræðan skerf til heimsbókmennt Jenna Jónsdóttir. anna og þannig haft mikil áhrif á sam- tíð sína — og framtíð hljóta að teljast mikilvægir. Hvernig skerf? Til umhugsunar eru hér rifjaðir upp fáeinir nóbelsverð- launahafar fyrr á öldinni. Þjóðverjinn Gerhart Kauptmann sem með leikrit- um sínum um bændafjölskylduna I Slésiu og Vefurunum, tókst að túlka átakanlegan veruleika samtímans svo að hann varð stærsta skáld Þjóðverja á þeim tímum. Pólverjar, sem eiga’ hvað fjölskrúðugastar bókmenntir slavneskra þjóða ’áttu verðlaunahaf- ann Ladislás Reymond, sem með sögu sinni Bændurnir (Chtopa) markaði sveitamenningunni nýtt svið i heims- bókmenntunum. Belgíski höfundurinn M. Maeterlinck sem hafði víðtæk áhrif á bókmenntir sinnar samtiðar. Verðlaunaverkin nær umheiminum Fyrsti bandariski verðlaunahafinn Sinclair Lewis sem vakti mesta athygli með harðsnúinni og egghvassri sögu sinni „Main Street”, sem er árás á smáborgaralif, þótt hann síðar fengi verðlaunin fyrir sögu sína „Babbitt”. W.B. Yeats, írlendingurinn, sem varð frumkvöðull að hinum mikla gróðri irskra bókmennta á öldinni, Hamsun. Shaw og Rolland, sem allir bókaunn endur þekkja. Með öðrum voru þessir höfundar mikilvægir sinni samtíð — ogeru enn. í erfðaskrá Nobels mun segja svo, að bókmenntaverðlaunin skuli hljóta sá höfundur er samið hefur „ágætustu bókiria i hugsæisáttina”. Þessi verð- laun hafa fært verðlaunaverkin nær umheiminum, gert þau fræg — og höf- undana með. En dæmi virðast um það að þau hafi fært höfundunum litla hamingju með frægðinni — ef til vill því minni, sem höfundurinn er yngri að árum. Það er athyglisvert að síð- ustu árin hafa verðlaunahafarnir verið komnir yfir sjötugt. Hafa erlendir rit- höfundar hlotið meira lof eða athygli en þeir verðskulda? Hver treystir sér til aðsvara þvi. J.J. V

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.