Dagblaðið - 20.12.1978, Side 17

Dagblaðið - 20.12.1978, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978. 17 Fyrir fjölskyldur: !4 gjald fyrir börn 6 - 12 ára, ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára. Fyrir a. m. k. 15 manna hópa t. d. starfs- hópa: 10% afsláttur. Á kalda borðinu er úrval kaldra rétta: Roast beef, skinka, svínasteik, iambasteik og kjúkiingar. íslenskur matur; hangikjöt, hákarí og annað súrmeti. Einnig síldar- réttir og tjölbreytt úrval fiskrétta. Auk þess margt fleira gómsætra rétta. Tilboðið gildir í hádeginu alia daga fram yfir þrettándann. Gleðilega hátíð - Verið velkomin. HÓTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 Bókmenntaverðlaun í eðli sínu ómórölsk Ingimar Erlendur Sigurðsson ræða aðra höfunda sem ekki eru metn- ir. Rithöf undar eru börn síns tíma Guðmundur Daníelsson Bókmenntaverðlaun eru álíka tilviljun og happdrættisvinningur. Ég álít að allir mikilhæfir höfundar eigi erindi til fólks allra tíma. Samtiminn i heild hefur ekki þörf fyrir sérstaka tegund af mikilhæfum höfundum, vegna þess að maðurinn Guðmundur Danielsson. — jarðarbúinn — er sjálfum sér líkur frá upphafi og mun halda áfram að verða það. Aftur á móti breytist heimur mannsins og tímarnir — á ytra borði. Allir rithöfundar eru börn sins tíma og spegla hann í verkum sinum. Mannkynið hefur alltaf átt við ótal vandamál að striða. Enginn hefur get- að leyst þau, hversu mikilhæfur sem hann er, rithöfundurinn ekki fremur en aðrir. Góð bók getur aftur á móti hjálpað góðúm lesanda til að sigrast á eigin vanda. En þar sem vandi einstaklinganna er mismunandi, hæfir sami höfundurinn aðeins tak- mörkuðum hópi lesenda. Hvaða höfundar séu mikilhæfastir? — Því get ég ekki svarað nema fyrir sjálfan mig. Og um hrós og athygli er það að segja. að hvort tveggja er háð sveiflum tíðarandans: Þeir sem i gær veifuðu Rauða kverinu og lofsungu nafn höfundar þess. leggja það á hilluna í dag — þegjandi. Forlátið gagnslitið svar mitt við spurningu blaðsins. Bókmenntaverðlaun og verðlaunahafar. Nokkrir höfundar I uppáhaldi hjá islenskum starfsbræðrum sinum: Jorge Luis Borges, Allen Ginsberg, George Simenon og Graham Greene. Ingimar Erlendur Sigurðsson. Afstaða mín til bókmenntaverð-1 launa hverskonar er tvibent. Ég lit svo á að þau séu lyftistöngl bókmenntum í heild, veki á þeim at ' hygli i auglýsingaheimi nútimans, geri j þær um stund samkeppnishæfar gagn- vart eftirsóttum auðvirðileika; færrij fari á mis við þær. Hinsvegar er það bjargföst skoðun min, byggð á sögulegum bókmennta- dæmum, að skapandi einstaklingar sem þau hreppa bíði af þeim tjón, sköpunarmætti þeirra hraki, þau leiði þá jafnvel til sjálfstortímingar. • Kúluvarpari sem kastar á alþjóða- móti kúlu sentímetrum lengra en aðrir getur þegið verðlaun með góðri sam- vizku. Bókmenntaverðlaun eru i eðli sínu ómórölsk. Enginn hlutlægur mælikvarði er til — a.m.k. i nútima — á gæði og gildi eins bókmenntaverks framyfir önnur, verðleika eins skapandi höfundar framyfir aðra. Að varðveita manneskjuna Hversu margir höfundar sem enginn les i dag hlutu Nóbelsverðlaun í gær. Og hversu margir höfundar hrepptu þau ekki — sem voru og verða lesnir um ókominn tima. Aðeins framtími veitir nokkurn mælikvarða á stöðu verka i bókmenntalegu sam- hengi. Spurt er hvort einhverjir höfundar séu ofmetnir. Eru höfundar nokkurn tíma ofmetnir; jafnvel þeir sem hljóta Nóbelsverðlaun? Þaö er aðeins um að Þótt ég láti undir höfuð leggjast að skreyta svar mitt höfundanöfnum tel ég þá eina verðuga til meiriháttar verðlaunaveitinga sem í verkum sinum varðveita manneskjuna — ófirrta; og þeir eru þekkjanlegir. Þeim óska ég verðlaunaleysistil efl- ingarinnri verðleikum. /" " Hótel Loftleiðir býður sérstök hátíðakjör við Kalda borðið í Blómasalnum. ROCKWOOL Sparnaöttr á komandi árum. HITAKOSTNAÐINN EINANGRUN GEGN HITA, ELDI, KULDA OG HLJÓÐI. ..AUÐVELT í UPPSETNINGU ALGENGUSTU STÆRÐIR ÁVALLT Lækjargötu 34, Hafnarfirði Sími 50975

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.