Dagblaðið - 10.02.1979, Qupperneq 1
5. ÁRG. - LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 - 35. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Sveitarstjórnin í Þorlákshöfn leggur hitaveitu með öllum tiltækum ráðum:
„Smyglaði” hráefni fram hjá
söluskatti, tolli og vörugjaldi
— skuldar líka 40 milljónir af innkaupsverði en búin að leggja 11 km aðveituleiðslu sem vart
verðurgerðupptæk
Svo virðist sem sveitarstjórn Þor-
lákshafnar hafi framið alvarleg lög-
brot síðla árs í fyrra til að flýta fyrir
lagningu hitaveitu til kauptúnsins.
Lagarfoss kom þangað 15. okt. sl.
með aðveiturör frá Amsterdam er
vógu 300 tonn. Af augljósum hag-
kvæmnisástæðum veittu tollayfirvöld
undanþágu til að rörunum yrði landað
beint í Þorlákshöfn. Þar átti svo að
geyma þau óhreyfð unz tollar, sölu-
skattur og önnur gjöld yrðu greidd
áður en þau færu í notkun, enda er
slíkur háttur hafður á þegar innflutn-
ingur er beint til notanda.
Mánuði síðar hóf svo verktakinn,
Suða sf. úr Hafnarfirði, framkvæmdir
við lagningu 11 km langrar aðveitu-
leiðslu úr rörunum frá borholunni að'
kauptúninu. Var verktakanum visað á
hráefnið og gekk hann eftir þörfum í
staflann sem nú er upp urinn án vit-
undar tollyfirvalda.
Þegar umræddur innflutningur
kom til umræðu óskaði sýslumaðurinn
í Árnessýslu, sem jafnframt er yfir-
maður tollamála i sýslunni, eftir því að
tollstjóraembættið i Reykjavík sæi um
málið og á það skv. því að heyra undir
það enda visar sýslumannsembættið á
hið síðarnefnda þegar spurt er um
málið.
Hjá tollstjóraembættinu fengust
þær upplýsingar i gær að ekki lægju
einu sinni þar fyrir tilskilin tollskjöl
varðandi þennan innflutning og liti
embættið svo á að rörin ættu enn að
vera óafgreidd á hafnarbakkanum.
Fyrir kemur að fyrir tilstilli ráðu-
neyta eru gerðir sérsamningar eða sér-
stök fyrirgreiðsla er veitt varðandi inn-
flutning á brýnum hlutum til sveitar-
félaga en það breytir ekki því að jafn-
framt á að ganga formlega frá slíku
gagnvart viðkomandi embættum.
Þá er blaðinu einnig kunnugt um að
hjá Landsbankanum á Selfossi liggur
fyrir krafa upp á a.m.k. 40 milljónir
króna á hendur sveitarstjórn Þorláks-
hafnar frá seljanda röranna. Ekki er
blaðinu kunnugt um hvort sú upphæð
er gjaldfallin í heild eða að hluta.
Skv. upplýsingum tollstjóraembætt-
isins er yfirleitt ekki farið að rekast í
því að menn leysi vörur úr tolli fyrr en
eftir að þær hafa legið óafgreiddar í 6
til 8 mánuði svo hreyfing hefði ef til
vill ekki komizt á málið fyrr en í sum-
ar.
- GS
ALLIR SJUKRALIÐAR HÆTTA A
KÓPAVOGSHÆLI UM MÁNAÐAMÓT
- Sjá bls. 5.
Orlofsheimili í Vatnsfirði:
MILLJÓNA LAUNAKRÖFUR
í LÖGFRÆÐIINNHEIMTU - Sjá bls. 6.
BÓKHALDSÓREIÐA
EÐA KOSNINGABOMBA? - Sjá bls. 6.
„ÞRÝSTIHÓPAAÐGERÐIR GEÐLÆKNA"
OG HÚSNÆÐISVANDI LANDSPÍTALANS
- Sjá bls. 7.
HRINGORMURINN „REFSIVÖNDUR"
FISKVINNSLUKVENNA - Sjá bls. 7.
BÓKASAFN KENNARAHÁSKÓLANS
— lesið grein Kristínar Indriðadóttur
bókavarðar á bls. 11.
FÉLAGSHEIMILIÐ í ÓLAFSVÍK
FÆR FIMMTU LÓÐINA - Sjá bls. 13.
Ný olíukreppa
er skollin á!
— Bensín hefur hækkað erlendis um 30%
á einni viku
„Það vill til að það eru svolitlar
birgðir til í landinu,” sagði Svavar
Gestsson viðskiptaráðherra i viðtali
við Dagblaðið. Gífurlegar hækkanir
hafa orðið á oliu á mörkuðum
erlendis að undanförnu og er talið víst
að yfir dynji önnur olíukreppa en í
hinni fyrri, á árunum 74-’75
þrefaldaðist olíuverð.
„Allt tal um það hvort
kauphækkun eigi að verða einu eða
tveimur prósentum meiri eða minni l.
marz er bara hjal i samanburði við það
gífurlega vandamál sem við stöndum
frammi fyrir,” sagði Svavar
ennfremur. „Þetta er ekkert verðlags-
mál heldur stórkostlegt efnahagslegt
vandamál sem ég held að fólk almennt
hafi alls ekki gert sér grein fyrir.”
Birgðir olíu í landinu eru taldar
duga eitthvað fram á vetrarvertíð, eða
fram í apríl.
„Við keyptum olíu fyrir rúma
tuttugu milljarða í fyrra,” sagði
Svavar. „Sú upphæð hefur þegar
tvöfaldazt og samkvæmt nýjustu
skráningu í Rotterdam, sem ég hef
pr.7. febrúar, hefur bensínið hækkað
um 30% á einni viku. Tonnið af
bensíni er komið upp í 297.50$, tonnið
af olíu í 247$ og svartolían i 98.50$.
Þegar ég byrjaði hér í haust var verðið
ábensíninu 140—50$.”
Forráðamenn olíumála voru á fundi
með Svavari í gær til þess að ræða
hvernig bregðast á við þessum vanda
en- Ijóst er að miklar hækkanir á
bensíni og olium eru framundan.
-HP.
Fólksfjölgun hefur veriö ör 1 Garðabæ undanfarið og uppbygging mikil. Ungur Garðbæingur er sér þess vel meðvitandi og
reisti þvi frjósemistákn á gangbraut við Lindarflöt i Garðabæ.
Frjósemistáknið er að vísu gert úr snjó og þvi forgengilegt og missir fullfljótt rcisn. En minning þess lifir.
Ungu stúlkurnar kunnu vel að meta goðið og tylltu sér á mikilvægt framtiðarliffæri sem að sjálfsögðu var áfast frjósemis-
tákninu. Konur komnar á miðjan aldur sáust gefa þessu gangstéttarundri hýrt auga en voru ekki svo hispurslausar sem yngri
kynsystur þeirra er myndavélin nálgaöist.
Ef að líkum lætur er von um áframhaldandi mannfjölgun i Garðabæ og fagurt mannbf. - J H / DB-mynd Ragnar Th.