Dagblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979. Bréf lögreglumanna til dómsmálaráðherra: „Léttið af okkur þessu óþarfa fargani” „Það verður að ætla að lögregluþjón- ar njóti þess réttar að vera ekki dæmdir á ákærunni einni og ekki fram á mikið farið að hún sé þá birt þeim ef borizt hefur. Ekki er okkur kunnugt um við- horf lögreglustjóra við önnur embætti, en eðlilegt að hver éti úr sinu í þessu máli og hið háa ráðuneyti ruglist ekki á bakaranum og smiðnum.” Félagsstofnun stúdenta: BOKHALDSOREIÐA EDA KOSNINGABOMBA? „Komið hefur i Ijós að mikil bók- haldsóreiða og óstjórn er á rekstri Félagsstofnunar stúdenta og er Ijóst að það hefur haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækisins.” Þannig segir i frétt í blaði Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, en blaðið kom út I gær. í fréttinni segir að ársreikningar 1976 hafi ekki verið lagðir fram fyrr en tæpum tveimur árum eftir að reikn- ingsári lauk og þá þannig að lítt hafi verið á þeim byggjandi. Þegar sótt hafi verið um aukafjárveitingu fyrir FS til fjárveitinganefndar þá hafi ekki verið hægt að verða við þeirri beiðni fjár- veitinganefndar að skila greinargerð um stöðu fyrirtækisins. Gefið er í skyn að það hafi svo átt sinn þátt i að aðeins fengust 29 milljónir i stað 64 milljóna sem beðið var um. DB bar þessa frétt undir Skúla Thoroddsen framkvæmdastjóra FS. Flann sagði vandann fólginn í þvi að tölvuvinnsla sem tekin var upp 1977 hafi gengið mjög brösótt, m.a. vegna þess að reiknistofnunin brann. Þá hafi tölvuprógrammið verið rangt en það ekki komið I ljós fyrr en seint á síðasta ári og vinnslan dregizt óeðlilega af þeim sökum. Þarna hafi sem sé verið um ýmsa byrjunarörðugleika að ræða vegna tölvuvinnslunnar en ekkert benti til þess að um bókhaldsóreiðu væri að ræða. Vökumenn segja hins vegar að drátturinn hafi stafað af því að fyrrum framkvæmdastjóra FS, Jóhanni Scheving, hafi láðst að skila inn til Reiknistofnunar Háskólans svonefnd- um villulista, sem sé leiðréttingarlisti eftir fyrstu keyrslu bókhaldsins, fyrir 1977. Það hafi valdið því að útkoman úr heildarútskriftinni varð tóm vit- leysa og það sé meginástæðan fyrir drættinum. Aðspurður sagðist Skúli álita að hér væri einungis um að ræða tilraun Félagsstofnun stúdenta. Vöku-manna til að búa til kosninga- bombu. Bókhaldið hefur nú verið afhent endurskoðunarskrifstofu Gunnars S. Magnússonar til skoðunar. -GAJ Málefni Kennaraháskólans: „Sannfærður um að hægt verður að finna lausn” — segir Ragnar Arnalds menntamálaráðherra Nemendur Kennaraháskólans hafa verið óþreytandi að vekja athygli á vandamálum skólans að undanförnu. Hér hafa nokkrir þeirra sóttmenntamálaráðherrannheim, m.a. vopnaðir hljóðfærum.' DB-mynd: Ragnar Th. Sig. Þetta er kafli úr bréfi er Lögreglufélag Reykjavikur hefur sent Steingrími Her- mannssyni dómsmálaráðherra vegna til- skipunar hans um að sjónvarpstæki skuli fjarlægð úr lögreglustöðvum fyrir 30. júní. Segir í bréfinu að tilskipun ráðuneytis- ins um skömmtun fjölmiðla til handa lögregluþjónum verði að teljast móðgun. Tilkynnt er að aðalfundur félagsins muni fjalla um tillögur um varnir í þessu mannréttindamáli, m.a. könnun á laga- hliðþess. 1 lok bréfsins segir „að stjórn LFR væntir þess að þér, hr. dómsmálaráð- herra, afturkallið þessa tilskipan svo af okkur verði létt óþarfa fargani.” - ASt. Atvinna Er ekki einhver ungur maður sem vill komast á 55 hekt. sveitabæ á Jótlandi? Kvikfjár- og svinarækt. Æskilegt að hefja störf sem fyrst. Anders Kristian Vind Nielsen, Birkogðrdsvej, Fðhrholdtvej 9 Alling, 6823 Anssger, Danmark. I\Z/ K'NLEIIU HÁSKÓMBÍÓI 1-2KL.22 Dizzy eilIESDIE KVINTETT SÖNGKONA Sheymnne Wright örfáir mióar tht________ seldir við innganginn „Ég tel að sá mikli og lifandi áhugi sem kennarar og nemendur hafi sýnt á hag skólans sé mjög lofsverður, og ég er sízt á móti því að þeir berjist fyrir hags- munum sínum,” sagði Ragnar Arnalds menntamálaráðherra á blaðamanna- fundi sem hann boðaði til í tilefni af þeirri miklu umræðu sem átt hefur sér' stað um málefni Kennaraháskólans að undanförnu. Ragnar sagði að það væri ljóst að þróazt hefði vandræðaástand i hús- næðismálum skólans. Hann sagði að augljóst væri að gera þyrfti bráðabirgða- ráðstafanir og hann botnaði ekkert í því hvers vegna ekki hefði verið útvegað nægilegt leiguhúsnæði fyrir skólann. „Það sem við getum fyrst og fremst gert nú er að undirbúa næsta vetur með góðum fyrirvara,” sagði Ragnar og bætti því við að hann væri sannfærður um að hægt væri að finna lausn á vanda- málinu. Nefndi hann sérstaklega þá möguleika að taka húsnæði á leigu eða að setja upp færanlegar kennslustofur sem væri mjög hagkvæm bráðabirgða- •lausn. Þá nefndi hann einnig hugmy'ndir sem áður hefðu komið fram um breytingar á tilhögun æfinga- kennslunnar, sem fælu i sér að henni væri komið fyrir í starfandi grunn- skólum. Það kæmi vel til álita þar sem „Við hljótum að verða að treysta verktakanum og því að hann sjái um sín mál — annars þyrftum við engan verktaka,” sagði Pétur Sigurðsson, for- maður Alþýðusambands Vestfjarða, er DB leitaði til hans vegna milljónakrafna, sem gerðar hafa verið vegna smíði or- lofsheimila sambandsins og fleiri verka- lýðsfélaga í Vatnsfirði. Krafa hefur verið gerð á hendur verktaka, sem ASV réð til að annast byggingu tólf orlofsheimila í Vatnsfirði. Hefur framkvæmdin gengið all- börnum í Hlíðunum og austurbænum hefði fækkað mjög en börnin I æfinga- skólanum kæmu einmitt af því svæði. Um bókavarðarmálið sagði Ragnar að það væri ekkert nýtt vandamál. Ekki hefði fengizt fjárveiting til þessa em- bættis undanfarin ár, en menntamála- ráðuneytið hefði jafnan gripið inn I og leyst málið og sagðist hann ætla að svo yrði enn. Hann sagði að heimild væri í fjárlögum til að ráða tvo kennara og yrði væntanlega önnur af þessum stöðum notuð fyrir bókavörðinn. Um kennaraskortinn sagði Ragnar að hann efaðist um að hlutfallið væri þar óhagstæðara en í HÍ og það væri staðið ákaflega fast gegn því að fjölga fastráðnum mönnum í „kerfinu” yfir- leitt. Um málefni réttindalausra kennara sagði Ragnar m.a. að vissir praktískir annmarkar væru á þvi að ætlast til þess að fólk sem búið væri að stunda kennslu árum saman færi að setjast á skólabekk í tvö ár, þó það væri e.t.v. rökrétt frá menntunarlegu sjónarmiði. Ragnar sagðist aðeins hafa sett fram lauslegar hugmyndir um þessi mál og því hefði það komið sér mjög á óvart að heyra kennaraskólanema upplýsa fjölmiðla um ákvarðanatöku hans í þessu máli og brösulega. Þrettán manna hópur iðnaðar- og verkamanna vann við smiðina í sumar og fram á haust. Undir lokin varð verktakinn fjárvana og gat ekki borgað vinnulaun. Nemur sjálf launakrafan um 6.5 milljónum en með öllum tengdum gjöldum nálgast heildar- upphæðin tiu milljónir. „Við vorum með verksamning við þennan verktaka um skil á húsunum sl. haust. Framkvæmdunum lauk hins veg- ar ekki, því hann varð peningalaus og skuldaði vinnulaunin,” sagði Pétur kynni það að torvelda að náð yrði sam- stöðu. Stefna ráðuneytisins væri tvimælalaust sú að sem flestir gætu aflað sér þessara réttinda og langa starfsreynslu yrði að meta mikils. „Það yrðu mér mikil vonbrigði ef Sigurðsson. „Þá vorum við búnir að borga honum samkvæmt samningum nálægt hundrað milljónum. Hann vísaði kröfunni fyrst í stað á okkur og taldi sig eiga meiri peninga hjá okkur en við teljum það frekar vera öfugt.” Pétur sagði enn fremur að verktakinn hafi visað kröfunni til fyrirtækis sem hann á sjálfur a.m.k. helming í ásamt konu sinni og þriðja manni, en það muni vera einhvers konar undirverktaki hjá honum. „Hann skuldar víðar úttektir í efni og vinnu,” sagði Pétur, „en við teljum þann vera kominn út úr dæminu og erum að ganga frá endanlegu uppgjöri við hann — hvernig sem það fer nú á endanum.” Grétar Þorsteinsson hjá Trésmíða- félagi Reykjavíkur — sem á eitt hús- anna í Vatnsfirði og hefur nokkra kennaranemar færu að hindra það að þessi fjölmenni hópur réttindalausra kennara ætti möguleika á að afla sér þeirra réttinda,” sagði menntamála- ráðherra að lokum. inaðarmannanna innan sinna vébanda — sagði í samtali við fréttamann blaðsins að launakröfunni hefði verið vísað til lögfræðings verkalýðshreyfing- arinnar til innheimtu. „Verktakinn hefur viðurkennt skuldina,” sagði Grétar, „en innheimtuaðgerðir til þessa hafa engan árangur borið.” Grétar staðfesti að Tré- smiðafélagið hefði haft milligöngu um að útvega mönnunum bankalán fyrir jólin til að reyna að greiða úr brýnustu vandræðum þeirra. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir hefur DB ekki tekizt að ná tali af verktakanum. Orlofsnefnd Alþýðusam- bands Vestfjarða hyggst nú sjálf annast endanlegan frágang húsanna, sem eru mjög vel á veg komin, og hefja notkun þeirra íjúníísumar. -GAJ- Orlofsheimili ASV íVatnsfirði: " Milljóna launa- kröfur í lögfræðiinnheimtu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.