Dagblaðið - 10.02.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979.
r " 1
Rífum Berlínarmúrinn
Leyfum fólki að hafa eigur
sfnar með sér til útlanda
ísland er eyja norðarlega í Atlants-
hafinu, langt frá öðrum löndum.
Eitthvað þessu líkt stóð í landafræði
Karls Finnbogasonar, sem nú er víst
fyrir löngu hætt að nota.
Enda þótt nýjar kennslubækur í
landafræði séu nú notaðar er eitt sem
ekki hefur breytzt, en það er lega lands
okkar. Frá lslandi til annarra landa er
yfir haf að sækja og þess vegna erum
við allverulega einangraðir frá öðrum
löndum.
Það er oft rætt um hina og þessa
eyjarskeggja að þeir séu skrítið fólk, og
á það einkar vel við um Islendinga,
sem að mínu mati eru stórskritið fólk.
Margir eyjarskeggjar, og þeir er ein-
angrað búa, eru oft haldnir sjúkdómi
sem nefnist claustrophobia, sem orða-
bók Websters skýrir „a fear of being in
enclosed places”. Innilokunarkennd
myndum við kalla þetta á íslenzku.
Það hefur mörgum þótt bifreiðaeign
íslendinga langt úr hófi fram, en þetta
hefur sína skýringu. Bíllinn skapar
nokkurs konar mótvægi gegn þessari
innilokunarkennd. Bíllinn stendur
reiðubúinn fyrir framan ibúðina og
með honum má skjótast hvert sem er
(ef ekki er ófærð), reyndar bara innan-
lands, en eins og allir vita eigum við
ekki landamæri á þurrlendi að öðru
ríki. Þetta er þvi miður misnotað af
stjórnvöldum okkar og margt er
„praktiserað” hér sem ekki væri hægt
ef við ættum landamæri á þurrlendi að
öðru riki.
Hér hafa ríkt i nær 50 ár alls kyns
höft og takmarkanir, sem sumir nú á
miðjum aldri eru orðnir samdauna og
gera því ekki kröfur til þess frelsis sem
nú ríkir með öðrum þjóðum.
Ríkisafskipti eru orðin svo mikil að
næsta er óeðlilegt i ríki sem kennir sig
við lýðræði. Ferðalög eru takmörkuð
til annarra landa með því að skammta
naumt erlendan gjaldeyri, en með þvi
er haldið við alls konar svartamarkaðs-
braski með erl. gjaldeyri. Sést það t.d.
bezt við heimkomu sólarlandaferða-
langa, hve mikið þeir koma með í far-
angri sínum af alls kyns erlendu drasli,
langt fram yfir þann gjaldeyri sem þeir
fengu til ferðarinnar.
Við hömpum gjarna hinum svo-
nefnda Hclsinkisáttniála þegar um er
að ræða einhvern rithöfundinn eða
vísindamanninn sem vill flytja t.d. frá
Rússlandi eða þegar einhverjum hefur
tekizt að flýja frá austantjaldslöndun-
um.
Á hverju ári flytja nokkrir íslend-
ingar til annarra landa. Flutningur
sem eflaust hefur átt sér langan að-
draganda. Sumir þessara aðila hafa átt
eignir hér á landi en hafa kosið að
spreyta sig i öðru landi, eftir að hafa
verið búnir að gefast upp á því að búa
á íslandi. Þessir aðilar hafa ekki fengið
nema litlar fjárhæðir í erlendri mynt
fluttar til hinna nýju heimkynna og
hlýtur því að vera að þeir hafi notfært
sér það ólöglega ástand í gjaldeyris-
málunum sem ríkir hér á landi. Sem sé
keypt hinn erlenda gjaldeyri á svarta-
markaðs-markaðinum.
Mér hefur verið sagt að hægt muni
að fá yfirfærðan ellilifeyri manna sem
hyggjast setjast að í öðru landi. Þessi
ellilifeyrir nemur islenzkum krónum
50.887 á mánuði (jan. 1979). Sjá allir
að ekki nægir þetta langt til þess að
framfleyta einum manni erlendis, jafn-
velekkiáSpáni.
Margir hér á landi þjást af þung-
lyndi, sem m.a. á rót sina að rekja til
einangrunar landsins. Þessu fólki er
nauðsynlegt að lyfta sér upp og
komast til sólrikari landa. ferðast um á
milli landa (á þurrlendi) og finna fyrir
hreyfanleikanum ef svo mætti að orði
komast.
Sumir þyrftu beinlínis að flytja til
annarra landa til þess að ná sér á strik.
Sjúkrahúsvist nemur nú nálægt
50.000 kr. á dag, jafnt hvort um er að
ræða taugasjúkling eða einhvern sem
þjáist af erfiðum langvinnum sjúk-
dómi. Læknishjálp mun eitthvað vera
misjöfn eftir sjúkdómum og aðgerð-
um.
Að öllu þessu athuguðu finnst mér
tími til kominn að endurskoða frá
grunni, og nú þegar, öll lög og reglur
sem varða gjaldeyrismál okkar.
Ef t.d. einhver vill endilega flytja úr
landi og flytja eignir sínar til annars
lands ætti að vera hægt að veita leyfi til
yfirfærslu eigna, t.d. ákveðna upphæð
áári (ekki 101 ári), og stuðla þannigað
heilbrigðri skipan þessara mála.
Við skulum hætta þessu bannsetta
eftirliti með öllum sköpuðum hlutum
sem aðeins gerir menn ólöghlýðna.
Við skulum rífa niður þcnnan Bcrlínar-
múr okkar scm við illu heilli erum
búnir að byggja um litla landið okkar,
því annars cigunt við það á hættu að
hér verði áöur cn varir lögregluríki.
Hvernig stcndur Helsinkisáttmálinn
þá?
Mér datt þetta (svona) í hug.
Siggi flug, 7877-8083.
Boðið upp á baklausa eld-
húskolla í Regnboganum!
Reiður regnbogasilungur skrifar:
Ég brá mér ásamt nokkrum kunn-
ingjum minum í kvikmyndahúsið
Regnbogann sl. mánudagskvöld til að
sjá þar myndina Driver. Það gekk
átakalaust að fá miða en stúlkan í
miðasölunni kvaðst ekki geta ábyrgzt
að við fengjum öll sæti saman. Við
létum það gott heita — en þegar við
komum inn I salinn var staðan einfald-
lega sú að það voru ekki næg sæti fyrir
alla. Þá virðist kvikmyndahúsið hafa
meiri áhuga á að selja sem flesta miða
— og skítt veri með hvort allir gest-
irnir fá sæti.
Sætavísir, sem þarna var, sýndi mál-
inu mikið áhugaleysi — en lét þó til-
leiðast að lána okkur tvo eldhúskolla
fyrir þá sem ekki fengu sæti. Geta
menn rétt ímyndað sér hvort það er
ekki þægilegt, að sitja á baklausum
„töppum" í nær tvo tíma.
Við létum eiga sig að krefjast endur-
greiöslu á aðgöngumiðunum, sem við
heföum þó átt fulla heimtingu á, enda
hefði kvikmyndahúsið átt aðsjá sóma
sinn í að bjóða það að fyrra bragði.
Vonandi gengur betur næst — ef það
verður þá nokkuð næst eftir svona
„trakteringar”.
MARKAÐUR1979
/
Úrval
af nfa®
&
qODGE'
árg-
1979-
LAUGARDAGS
D0DGE:
Aspen 2 dr..............1978
Aspen4dr................1977
Swinger.................1974
Swinger.................1971
Chailenger..............1970
Ramcharger..............1974
PLYM0UTH:
Volaré Premier 4 dr......1978
Volaré Custom 4 dr.......1978
Volaré Premier 2 dr......1976
Valiant...................1974
Duster....................1974
D0DGE ASPEN Custom 4
dyra, sjálfskiptur, vökvastýri
og fl. Góður einkabíll.
Concours2dr................1977
Concours LN 4 dr...........1976
Concours LN 4 dr...........1975
Pontiac Ventura............1973
Ford Fairmont 8 cyl......1978
Ford Fairmont 4 cyl......1978
Merc. Benz 240D............1975
Datsun dísil...............1973
Hjá okkur færdu bíHnn
sem þú /ertar aá
Eigum enn til fáeina SIMCA
1508 S og GT árg. 1978 á hag-
stæðu verði fyrir vandláta.
Volvo 145 sjálfsk........1974
Volvo 142 sjálfsk........1974
Volvo 144 ................ 1973
Saab 99 2 dr...............1974
Saab 96................... 1973
ToyotaCarina...............1974
Toyota Corolla.............1977
Datsun 260 sjálfsk.......1978
Pláss fyrir góða bíia í
Chrysler-salnum.
SIMCA:
Hor’izon LS nýr...........1979
1508 GT nýr.................1978
1307 GLS....................1977
1508 GT.....................1977
1100 Special.......... 1977
1100 LE.....................1977
Simca sendibíll............1979
ALFA ROMEO Alfasud
SUPER, árg. 1978, óekinn
glæsivagn, fínn bfll fyrir frúna.
Bronco.....................1973
Range Rover. ..............1974
INagoneer..................1974
Blazer.....................1974
Land Rover disil...........1971
Fyrir skattpínda:
Toyota M II...........1971
Cortina4dr............1970
11 VILTU SEUA? VILTU SKIPTA? VILTU KAUPA?
OPIÐ KL10-171DAG. LAUGARDAG
CHRYSLER
mm
£
SUÐURLANDSBRAUT 10 - SÍMAR 83330 - 83454
(--------á
Spurning
Drekkurðu kaffi
og þó hvað mikið?
Óli Björnsson lögreglumaðun Já. ótelj-
andi bolla á dag með mjólk út í.
Júlíus Ármann lögreglumaður Já, svona
3—4 bolla á dag.
Ólafur Thoroddsen nemi: Nei, ég hef
aldrei komizt á bragðið og finnst það
vont.
Lollý Ásbjarnardöttir húsmöðir: Já. ég
drekk svona 2—3 bolla á dag með mjólk
úti.
Jakob R. Möller lögfræðingur: Já, ég
mundi nú segja það, svona 6—10 bolla á
dag með sykri.
Guðrún Sigurðardöttir ritari: Já,
svona 6 bol'a á dag.