Dagblaðið - 10.02.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979.
5
Á öllum sinum ferðum úti i hinum störa heimi hafa leikararnir ævinlega talað
islenzku. En einu sinni hafa þeir leikið á esperanto og það var i Reykjavfk. Hér sjást
þeir eftir þá sjningu. Frá vinstri: Þórhallur Sigurðsson, Kristbjörg Kjeld, Ketill Lar-
sen, Baldur Ragnarsson, sem þýddi leikritið á esperanto, kona hans og Helga Jóns-
dóttir. Fremst er leikstjórinn Brynja Benediktsdóttir.
Sykurverksmiðja íHveragérði?
„Sýnist
vera raun-
hæft”
— segir sveitarstjórinn
„Jú. Þetta mál er í fullum gangi og úr Norræna iðnþróunarsjóðnum en
félagið er búið að fá lóð hérna uppi í ekki er enn búið að taka endanlega á-
dalnum. Línurnar í þessu máli eru kvörðun um hvort af þessu verður.
farnar að skýrast verulega og það Endanleg ákvörðun verður ekki tekin
sýnist vera að koma i Ijós að þetta sé fyrr en í sumar þegar Áhugafélagið
raunhæft,” sagði Sigurður Pálsson, um sykuriðnað skilar tillögum sinum.
sveitarstjóri í Hveragerði, er DB Það eru mjög margar athuganir sem
spurði hann hvað liði áformum um þarf að gera í þessu sambandi og ekki
að reisa sykurverksmiðju þarna á verður farið af stað fyrr en niður-
staðnum. stöðurnar liggja á borðinu.”
„Við fengum 20 milljón króna styrk -GAJ-
INUKIAUST-
UR-BERLÍN
— gerir alls staðar jafnmikla lukku
Ekkert íslenzkt leikverk hefur orðið
jafnvíðförult og Inuk-leikurinn, sem
segir frá því, þegar iðnmenning
nútímans heldur innreið sína i
Eskimóabyggðir. Það hefur verið sýnt
mjög víða í Evrópu, bæði i nágranna-
löndunum og suður í París og í Madríd á
Spáni og austur í Varsjá og í borgum í
Svartfjallalandi, sem við hér á DB
kunnum ekki að nefna. Og það hefur
farið vestur um haf og alla leið til
Brasilíu þar sem það var sýnt í Sao
Paulo.
Og þeim hefur verið boðið á enn fleiri
staði, þar á meðal trak og íran og landa í
Afríku, og engin leið að vita hvar þetta
endaralltsaman.
Síðastliðið haust var þeim boðið á
fræga leiklistarhátíð í Austur-Berlín,
„XXII. Berliner Festtage”. Þar sýndu
þau Inuk í þjóðleikhúsi þeirra austur
þar nokkrum sinnum, og var hrifning
áhorfenda svo mikil að þau voru
klöppuð tuttugu til þrjátíu sinnum eftir
hverja sýningu.
Um leikritið var skrifað í mörg blöð af
mikilli hrifningu. „Með aðeins fimmtiu
mínútna sýningu tókst tslendingunum
að miðla okkur margvíslegri vitneskju
um manninn, fegurð hans og mátt sem
og þá vá, sem að honum sækir,” sagði
einn. „Það var ekki venjuleg Ieiklist,
heldur sérstök og hrífandi tegund leik-
rænnar tjáningar, sem listamennirnir frá
þjóðleikhúsi íslands sýndu. Tveir
karlmenn og þrjár konur... líkja eftir
ísköldum næðingnum með röddum
sínum og nota líkami sína til að tákna
snjóhúsið, bústað Eskimóanna.”
Gagnrýnendurnir dáðust mjög að
því, hvað leikritið (en leikararnir bjuggu
það til sjálfir ásamt Haraldi Ólafssyni
mannfræðingi og fóru í sérstakan
leiðangur til Grænlands að afla sér
heimilda) sýndi hvernig Eskimóarnir
týna sjálfsímynd sinni og menningu,
þegar neyzluþjóðfélagið gleypir þá með
öllu sínu „nauðsynlega” skrani, niður-
suðudósum og kók-flöskum. Þeir verða
firrtir og loks hálfgerð skrípi til að sýna
ferðamönnum. Fórnarlömb nýrrar
tegundar af nýlendustefnu.
Einn þeirra óskaði þess, að hópurinn
hefði bætt við sýninguna lýsingu af
Íslandi nútímans í sama stíl. Hann lauk
máli sinu svo: „En þó að sumir kunni að
hafa harmað, hve stutt sýningin var,
fóru töfrar þessa framandlega og til-
finningaríka leiks undir heitinu „Inuk-
Maðurinn” ekki fram hjá þeim.”
Húrrafyrirlnuk!
-IHH.
BJÖRNINN
Smurbrauðstofan
Njilsgötu 49 - Simi 15105
Kópavogshælið:
Állir sjúkraliðar hætta
um mánaðamótin
— ef ekki fæst dagheimili fyrir börn þeirra eins og við flesta
aðra spítala — hefur ekki verið svarað f hálft ár
„Það er hálft ár siðan við létum alvar-
lega til skarar skríða og munum við
leggja niður vinnu um næstu mánaða-
mót ef ekki verður gengið að kröfu
okkar um dagheimili fyrir börn starfs-
fólks hælisins, sem við teljum réttlætis-
kröfu, þar sem húsnæði undir það er
þegar fyrir hendi. Einnig má benda á að
slík heimili eru rekin fyrir starfsfólk t.d.
Borgarspitalans, Vífilsstaða, Klepps,
Landspitalans og Landakotsspítalans,”
sögðu tveir sjúkraliðar þeirra 20, eða
allra sjúkraliða við Kópavogshælið, er
ræddu við DB í gær.
Hús i eigu hælisins (Kópavogsbraut
12) hefur staðið autt í heilt ár og hafa
forráðamenn hælisins fallizt fúslega á að
það verði notað til fyrrnefnds reksturs.
Stjórnarnefnd Ríkisspítalanna hefur
hins vegar ekki fallizt á að leggja til
rekstrarfé.
Allir sjúkraliðarnir, sem sjá um þjálf-
un, lyfjagjöf og hjúkrunarmeðferð 180
vistmanna, sögðu upp störfum 1. sept.
sl. og hefðu skv. því átt að hætta 1. des.
Þar sem um hópuppsögn var að ræða
var stjórnarnefnd Ríkisspítalanna stætt
á að fresta uppsögninni um þrjá mánuði,
eða til I. marz, og gerði hún það með
bréfi undirrituðu af Georg Lúðvíkssyni.
Síðan hefur ekkert heyrzt frá stjórnar-
nefndinni að sögn sjúkraliðanna og sjá
jieir ekki fram á annað en að hætta um
næstu mánaðamót. Þá verða þar aðeins
starfandi vaktmenn, matreiðslufólk og
ræstingarfólk. - GS
Djúpivogur:
Heimamenn líta áströlsku
stulkurnar hýru auga
Fyrsta loðnan barst að landi á Djúpa-
vogi sl. sunnudag og voru það 400
tunnur. Vertíðin hefur gengið sæmilega.
Hún byrjaði mjög seint og verður sjálf-
sagt lokið snemma. Línuvertíðinni lýkur
sennilega núna upp úr byrjun
mánaðarins.
Það hefur verið eindæma ótíð á
Djúpavogi, kuldi og snjór. Álfta-
fjörðurinn hefur reynzt erfiður farar-
tálmi eins og oft áður og það hefur háð
bílum nokkuð sem lent hafa í einhverj-
um erfiðleikum að gætt hefur
óskiljanlegrar tregðu hjá Hornafjarðar-
radíói. Þannig sat bíll fastur við
Hvalnes og kallaði í margar klst. á
Hornafjarðarradíó án þess að fá svar.
Töluvert er af aðkomufólki á Djúpa-
vogi og þar á meðal sex ástralskar
stúlkur sem vinna i frystihúsinu.
Djúpvægingar gera sér jafnvel vonir um
að þær muni blanda blóði við heima-
menn og ílengjast á staðnum, þó að enn
sem komið er sé ekkert sem bendir til
þess.
Læknamál Djúpavogsmanna hafa
verið leyst til bráðabirgða með því að
Gylfi Haraldsson læknir dvelst þar
meðan hann er i frii frá störfum sínum i
Svíþjóð. Þetta er ungur maður sem
kemur vel fyrir og er ekki með nein
gestalæti á staðnum eins og Regina á
Eskifirði mundi segja. Er dvöl hans á
Djúpavogi þakksamlega þegin en ibúar
byggðarlagsins hafa áhvggjur af þvi
hvað framundan er. -GAJ/HT, Djúpav.
STIL-HUSGOGN
AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 4460C
„Mattý” út um
hvippinn og hvappinn
„Mattý" heitir danshljómsveit sem
leikur nú á þorrablótum, árshátíðum og
öðrum dansskemmtunum í Reykjavik
og nágrenni.
Dregur hljómsveitin nafn sitt af söng-
konunni Mattý, Matthildi Jóhannsdótt-
ur, sem lengi hefur sungið á dansstöðum
í Reykjavík — lengst af í Alþýðuhúss-
kjallaranum.
„Mattý" leikur i Templarahöllinni
alla föstudaga en er síðan út um hvipp-
inn og hvappinn þess á milli — og leikur
bæði nýju og gömlu dansana.
Auk Mattý sjálfrar eru i hljómsveit-
inni Ragnar Páll Einarsson gítarleikari,
Sigurgeir Björgvinsson harmóniku- og
orgelleikari og Arthur Ragnarsson
trommu- og bassaleikari.
ÓV
Hljómsveitin „Mattý”. Frá vinstri: Sigurgeir, Arthur, Mattý og Ragnar
Páll.
Vinsælu
Barnaog
unglingaskriíboróin
Odýr, hentug og falleg.
Gott litaurval.
Sendum hvert a land sem er