Dagblaðið - 10.02.1979, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979.
13
Lifnar á ný yfir
sólarlandaferðum
Félagsheimilishugmyndin í ðlafsvík:
Á vergangi um
plássið í rúm 14 ár
— hefur nú fengið fimmtu lóðina
— eftir mikla lægð undanfarið
Heldur virðist vera að lifna yfir ferða-
lögum íslendinga til útlanda aftur eftir
mikla deyfð undanfarið. Mikið dró úr
Kanaríeyjaferðum í desember og framan
af janúar, en nú síðustu dagana má
merkja talsverða breytingu.
Dagblaðið hafði samband við tvær
ferðaskrifstofur, Sunnu og Útsýn, og
grennslaðist fyrir um stöðuna í ferða-
málunum. Guðni Þórðarson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Sunnu, sagði að
framan af vetri hefði verið um 30%
fækkun að ræða í sólarlandaferðum og
hefði samdrátturinn aðallega verið i
Kanaríeyjaferðum.
Ástæður þessa samdráttar væru aðal-
lega hratt gengissig islenzku krónunnar
og gengisfelling í haust sem hefði valdið
þvi að pesetinn hefði tvöfaldazt frá því á
sama tíma i fyrra. 1 ofanálag hefðu orðið
hækkanir á Kanaríeyjum.
Nokkuð var einnig um að farið væri
Mjólkurlaust
á Seyðisfirði
Samgöngur hafa verið heldur skrykkj-
óttar til og frá Seyðisfirði að undanförnu
og hefur m.a. komið til mjólkurleysis í
kaupstaðnum af þeim sökum.
Mikill snjór hefur verið á Fjarðarheiði
og sjaldan rutt upp á Hérað. Lengst hafa
liðið tíu dagar á milli þess sem rutt var
og var því ekki hægt að koma mjólk til
Seyðisfjarðar á meðan. Fólksflutningar
hafa gengið ágætlega með tilkomu nýja
snjóbílsins sem fer jafnan eftir áætlun,
en með honum eru engar vörur fluttar.
Snjóbíllinn getur tekið sextán farþega.
Seyðfirðingum þykir farið nokkuð dýrt
— ferðin upp á Egilsstaði kostar fjögur
þúsund krónur. Snjóbíllinn er i eigu
bæjarins.
-ÓV/JG.Seyðisfirði
Ahugamenn
með kvik-
myndahátíð
Samtök áhugamanna um kvikmynda-
gerð standa fyrir kvikmyndahátið 24. og
25. febrúar nk. i Tjarnarbíói. Þar verða
sýndar kvikmyndir sem gerðar eru af
áhugamönnum, en það er skilyrði að
framleiðandi myndarinnar geri hana af
áhuga einum saman, fjárhagsstuðningur
frá opinberum aðilum eða fyrirtækjum í
auglýsingaskyni má ekki hafa komið til.
Allir sem áhuga hafa á að sýna kvik-
myndir sínar eru hvattir til að taka þátt
í hátíðinni. Dómnefnd verður skipuð og
velur hún beztu myndirnar og verður
framleiðendum þeirra veitt viður-
kenning.
Þetta er fyrsta kvikmyndahátíð SAK
og er hátiðin öllum opin og ókeypis
aðgangur en bömum þó aðeins í fylgd
meðfullorðnum.
Þeir sem ætla að sýna kvikmynd eða
kvikmyndir á hátiðinni eru beðnir að
hafa samband við stjóm samtakanna, en
þá stjórn skipa Karl Jeppesen, s. 10663
Marteinn Sigurgeirsson, s. 40056 og
Kristberg Óskarsson, s. 33970.
-JH.
Atvinna
Dönsk stúlka, 17 1/2 árs, vill kom-
ast i vist á íslandi, nálægt Reykja-
vík, • Selfossi cða Hverageröi.
Getur hafiö störf 1. júlí eöa fyrr.
Vill gjarnan vera á heimili þar sem
börn eru.
Anna Vind Nielsen,
Strögat 27, herb. 12
7430 Ikast, Danmark.
með hópa til Miami, en þær ferðir eru
talsvert dýrari en Kanaríeyjaferðir.
Þriggja vikna ferð til Kanaríeyja kostar
um 250 þúsund en samsvarandi ferð til
Miami kostar um 400 þúsund.
Guðni sagði að nú síðustu daga væri
hreyfingin aftur upp á við og mun meiri
áhugi á ferðum. Hann sagði að það hefði
haldizt i gegnum árin að þriggja vikna
sólarlandaferð kostaði eins og góð mán-
aðarlaun og svo væri einnig nú, þ.e. 250
þúsund króna Kanaríeyjaferðir.
„Íslendingar eyða miklu aukalega
þegar þeir ferðast erlendis og blanda
þeirri eyðslu gjarnan saman við ferða-
kostnað. Það er þó fráleitt að gera það,”
sagði Guðni, „þótt skiljanlegt sé að
menn freistist til þess að kaupa ýmsa
hluti á tollfrjálsum svæðum.”
Örn Steinsen skrifstofustjóri hjá
ferðaskrifstofunni Útsýn sagði að nú
síðustu daga væri ástandið allt annað en
það var í desember og fram í miðjan
janúar. Þá var áberandi fækkun í
Kanaríeyjaferðum, þar sem verð var
hlutfallslega mun hærra en áður.
„1 fyrra biðu menn svo lengi eftir
gengisfellingunni að þeir flýttu sér að
nota peningana, m.a. í ferðalög. Eftir
gengisfellingu og efnahagsaðgerðir í
haust dró síðan úr ferðalögum almenn-
ings. En síðustu dagana hefur aftur lifn-
að yfir.”
Örn sagði að Kanaríeyjaferð í íbúð í
þrjár vikur kostaði 256.400 kr. en tiltölu-
lega dýrara væri að fara til Miami, sam-
svarandi ferð kostaði 389.900 kr.
- JH
Það stendur félagslífi Ólafsfirðinga
nokkuð fyrir þrifum að þar er félags-
heimilið alltof lítið og auk þess komið
til ára sinna sem slíkt.
Siðan 1965 hefur félagsheimilis-
bygging verið á döfinni þar en hug-
myndir þar að lútandi gjarnan
strandað á því að fyrirhuguð lóð undir
það hverju sinni hefur ekki þótt
henta þegar til hefurátt aðtaka.
Komið bet-
ur klædd
í Sjallann I yfir
Hefur þá jafnan verið gripið til þess
ráðs að leita að hentugri lóð og hafa
nokkrar slíkar fundizt en jafnharðan
brugðizt vonum manna.
Eru nú uppi hugmyndir um að reisa
heimilið á fimmtu lóðinni og binda
heimamenn vonir við aðá henni verði
staðnæmzt og tekið til við raunhæfar
framkvæmdir.
-GS/BJ. Ólafsvík.
Lumenition
Framvegis verða gerðar strangari
kröfur um klæðaburð gesta í Sjallanum
á Akureyri, þeim fræga skemmtistað.
Sjallinn heitir reyndar Sjálfstæðishúsið í
hátiðlegu máli.
Nýr framkvæmdastjóri tók við starfi
við Sjallann 1. febrúar sl. og er það
Svanur Ágústsson sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Þjóðleikhúskjallarans frá
árinu 1969. Svanur sagði í viðtali við
Akureyrarblaðið Dag, að ekki væru
ákveðnar neinar sérstakar breytingar á
húsinu aðrar en þær að gera staðinn að
vistlegum skemmtistað, þar sem vel
klætt fólk gæti gert sér dagamun í góðu
andrúmslofti.
-JH.
5000 BILAR
Á 3 árum hafa selzt yfir 5000
LUMENITION kveikjur á íslandi.
Þetta væri óhugsandi, nema ánægðir
kaupendur hefðu mælt með ágæti
búnaðarins.
Hefur þú kynnt þér kosti LUMENITION platinulausu
kveikjunnar?
ái» HABERG h£
ISkeifunni 3e*Simí 3*33*45
þróaðir á islandi
Blýteinarnir frá Hampiöjunni eru Viö bjóöum blýtóg í eftirtöldum
þróaöir í samstarfi við íslenska
sjómenn.
sverleikum: 8—10—11 —12
— 14— 16 — og 18 mm.
Því samstarfi veröur fram haldið Hráefni eru þrenns konar: PPF
enda kappkostar
Hampiöjan aö framleióa þann
besta blýtein, sem völ er á.
filma PPS — staple fibre PEP
30 faöma teinn vegur frá 4.6
kg. upp í 37.5 kg.
HAMPIÐJAN HF