Dagblaðið - 10.02.1979, Síða 24
Sædýrasafnið:
Tveir hahyrningar
drepast úr kulda
—50 milljóna tjónið lendir sennilega á japönskum kaupendum
„Við aðvörðum kaupendurna strax
og sjór fór að kólna i janúar, en
upphaflega stóð til að háhyrningarnir
yrðu allir sóttir hingað snemma í
desember,” sagði Jón Kr. Gunnarsson,
forstöðumaður Sædýrasafnsins, er DB
innti hann eftir láti tveggja af fimm
háhyrningum sem þar eru í geymslu
fyrir japanskt fyrirtæki, sem keypt
hefurdýrin.
1 kuldakaflanum í janúar kólnaði
sjór einnig óvenju mikið og skv.
krufningsskýrslu brezks dýralæknis,
fulltrúa kaupenda, létust dýrin úr
lungnabólgu.
Að sögn Jóns hafði læknirinn ekk-
ert út á aðbúnað né hirðu dýranna að
setja, enda sagði Jón að þar sem starfs-
menn safnsins væru óvanir slíkum
dýrum væri farið eftir nákvæmum
fyrirmælum sérfræðinga bæði austan-
og vestanhafs. Þá fullnægja þrærnar
öllum kröfum, að sögn Jóns.
Sagðist hann ekki búast við að
tjónið lenti á safninu, en andvirði há-
hyrninganna tveggja er um 50
milljónir króna. Japönsku eigendurnir
hafa verið að leita fyrir sér með leigu-
flugvél til flutninganna að undanförnu
og sagði Jón að þeir hefðu tjáð sér að
vegna örðugleika með lendingarleyfi í
Japan, fyrir vélina, hefðu þeir ekki enn
getaðsótt dýrin.
Hinir þrír virðast við allgóða heilsu
nú. Ekki er hægt að hita sjóinn sem
dælt er í búrið, enda er 150 tonnum af
sjó dælt um það á klukkustund.
Er Jón var spurður, hverju það
sætti að sjávardýr dræpust úr kulda í
sjó, sagði hann að við náttúrulegar
aðstæður flyttu háhyrningarnir sig
mjög til í sjónum eftir hitastigi. Hafi
þeir að sjálfsögðu ekki getað það við
þessi skilyrði og auk þess hafi ekki
verið Ijóst hvers kyns væri fyrr en
eftirkrufningu.
-G.S.
Annar háhyrninganna sem krufinn var til að ta úr þvi skorið hvers vegna þeir hafa drepizt I laug Sædýrasafnsins.
DB-mynd Ragnar Th.
Nýtt f rumvarp um langtímaaðgerðir f ef nahagsmálum:
ÞRtÐJI OG ÞÝÐINGAR-
MESTIÁFANGINN...
— sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra
á miðstjórnarfundi Framsóknar
Af hassmálum:
Allt róíegt
ífíkniefna-
deild lög-
reglunnar
„Hér er allt rólegt og hefur
verið að mestu siðan í haust. Það
datt einn maður inn I
gæzluvarðhald í-nokkra daga eftir
áramótin en það var smámál,”
sagði Guðmundur Gigja, lögreglu-
fulltrúi í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík, I samtali
við DB.
Eftir alllangan tíma, þar sem
hvert stóra fikniefnamálið á fætur
öðru kom upp á yfirborðið og
fjöldi manna voru samtima í
gæzluvarðhaldi vegna aðildar
sinnar að þeim málum, hefur nú
allt verið rólegt á þeim vettvangi
um nokkurt skeið. Hefur af þeim
sökum verið nokkuð fækkað i
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Eru þar nú starfandi
fimm lögreglumenn í allt.
Má af þessu draga þá ályktun að
litið eða ekkert sé af fíkniefnum
eins og hassi í borginni — enda
hefur yfirleitt ekki liðið langur
tími frá þvi að framboð hefur verið
þangað til lögreglan hefur látið til
skarar skríða. -ÓV.
„Ég vil skipta efnahags-
ráðstöfunum þessarar rikisstjórnar í
þrjá áfanga,” sagði Ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra og formaður
Framsóknarfíokksins á miðstjórnar-
fundi flokksins, en þar voru kynntar
tillögur ráðherranefndar rikis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum.
„Fyrst vil ég nefna bráðabirgðalögin
um kjaramál sem sett voru 8. sept. sl.
og svo lögin um viðnám gegn
verðbólgu frá mánaðamótunum
nóv /des. Þriðji áfanginn og jafnframt
sá þýðingarmesti er svo þessi laga-
setning, sem er gerð með það fyrir
augum fyrst og fremst að tryggja
næga atvinnu um leið og hamlað
verður gegn verðbólgu, eins og fram-
ast erunnt.”
Ólafur sagði, að liklega yrði hann
ekki búinn að ganga frá frumvarpi til
laga með hliðsjón af þessum tillögum
ráðherranefndarinnar fyrr en á
mánudaginn kemur, „en í allra síðasta
lagi legg ég það fyrir ríkisstjórnarfund
á þriðjudaginn kemur.”
Eitt meginmarkmið þeirrar laga-
setningar verður eins og fram hefur
komið að tryggja næga atvinnu og að
ná verðbólgunni niður. Segir I til-
lögum ráðherranna að stefnt skuli að
því að verðbólgan verði komin niður
fyrir 30% á þessu ári og niður I 15—
20% fyrirárslok 1980.
Kom fram i máli Steingríms
Hermannssonar dómsmálaráðherra,
sem var formaður ráðherranefnd-
arinnar, að Þjóðhagsstofnun hefði lát-
ið það boð út ganga að yrði farið eftir
þeim tillögum sem gerðar hefðu verið
ætti þaðað vera hægt.
Frumvarpið verður I tiu köflum og
lagði Ólafur á það mikla áherzlu að
þar væri gert ráð fyrir lang-
tímaaðgerðum i efnahagsmálum. Sér-
stakur kafli verður um ríkisfjármál,
um samráð við launþega um fjár-
festingar- og lánsfjáráætlun, um
peninga- og launamál, um verð-
tryggingu sparifjár, um verðtryggingu
launa, um vinnumarkaðsmál, um
verðlagsmál og um jöfnuparsjóði
sjávarútvegsins, auk almenns kafla,
þar sem lögð verður áherzla á
samþykktir varðandi atvinnumálin.
„Ég er vongóður um að sam-
komulag verði um frumvarpið í ríkis-
stjórninni,” sagði Ólafur. „Það eru
mörg sker á leið þessarar ríkisstjórnar,
en ég á von á því að það takist að sigla
framhjá þeim öllum.”
-HP.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 10. FEB, 1979.
Finansbankamálið:
Einfalt
málog
augljóst
— segir lögmaður
Konráðs
DB náði í gær sambandi við Jón Odds-
son hrl. vegna fréttar í blaðinu í gær
varðandi viðskipti Konráðs Ó. Sævalds-
sonar og Finansbanken og banka i
Luxemburg.
„Frá mínum bæjardyrum séð er hér
um einfalt mál og augljóst að ræða. Um-
bjóðandi minn, sem rekur bókhalds- og
endurskoðunarskrifstofu ásamt skipa-
sölu, er skráður í „International Ship-
brokers Register” og hefur sem slíkur
sambönd viða erlendis.
1 slikum viðskiptum er oft um að
ræða stórar fjárhæðir og oft stofnaðir
svonefndir geymslureikningar eða svo-
nefnd „trust”,” sagði Jón.
„Fjárhæðin á þessum reikningum er
eign þess aðila er að væntanlegum kaup-
um sfendur en oft lagt inn á reiknings-
nafn viðkomandi skipasala meðan við-
skiptin eru í athugun.
Ef skattleggja á síðar þann aðila sem
aldrei hefur orðið eigandi fjármagnsins
og aðeins hefur verið vörzluhafi fjárins I
umboði eigenda, vegna viðkomandi
verkefnis, hlýtur slíkt að vera hrein eign-
arupptaka að ósekju. Hvað þá ef gjald-
eyrisyfirvöld ætla sér þannig að ráðstafa
erlendu fjármagni.
Hins vegar er þetta viðkvæmt mál
fyrir aðila sem er í samkeppni á alþjóð-
legum markaði og fallið til þess að veikja
stöðu hans gagnvart erlendum keppi-
nautum.
Slíkt getur ekki þjónað íslenzkum
hagsmunum,” sagði Jón Oddsson hrl. að
lokum.
- BS
Setudómari
íSkjaldfannarmáli
Halldór Kristinsson lögreglustjóri í
Bolungarvík var hinn 5. febrúar skip-
aður setudómari í máli sem stefnt var út
af við sýslumannsembættið á ísafirði
fyrir um það bil 8 mánuðum.
Málið sem stefnt er um varðar meðal
annars meinta óheimila þinglýsingu i
lögskiptum eigenda og erfingja jarðar-
innar Skjaldfannar i Nauteyrarhreppi í
Norður- ísafjarðarsýslu.
Ekki hefur verið unnt að fá málið
rekið fyrir héraðsdómi fyrir vestan.
Hefur stefnandi talið að úrslit málsins
kunni að velta á því hvernig metinn sé
úrskurður sýslumannsins I atviki sem
málið varðar. Hefur lengi legið fyrir
krafa hans um að sýslumaður sé van-
hæfur sem dómari málsins og um að
setudómari verði skipaður.
Hefur sú krafa nú loks verið tekin til
greina, eins og að ofan greinir, eftir að
sýslumaður vék sæti og óskaði eftir því
að setudómari yrði skipaður, samkvæmt
upplýsingum Þorleifs Pálssonar, deildar-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu.
ÓV / BS