Dagblaðið - 12.02.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 12. FEBRUAR 1979.
Lenti íarekstri:
Daggjald bílaleigubíls
greitt
ekki
kílómetragjald
Bileigandi spyr:
Nýlega var ekið aftan á bifreið mína
og hún stórskemmd. Hún stóð kyrr,
þegar óhappið gerðist, og átti ég enga
sök á þvi.
Ég bý hér i Reykjavík en stunda
vinnu á Suðurnesjum, ek til og frá, allt
að 140 km á dag. Það var því mjög
bagalegt fyrir mig að missa bilinn, sér-
staklega þar sem umboðið, sem seldi
mér bílinn, er frægt fyrir seinagang í
útvegun varahluta. Hafa menn þurft
að bíða allt upp í heilt ár eftir varahlut-
um þaðan. Er þó flogið tvisvar á dag
milli íslands og landsins þar sem vara-
hlutirnir eru framleiddir.
Nú greiðir tryggingafélag bílaleigu-
bil fyrir mig þangað til ég fæ minn
eigin bíl í lag. En það er ófáanlegt til
að greiða meira en daggjaldið og vill
að ég borgi kílómetragjaldið sjálfur.
Segir það að til sé hæstaréttardómur
fyrir þessari skiptingu.
Getur þátturinn komizt að því fyrir
mig og sjálfsagt aðra hvort þetta sé
rétt?
Svar:
Lögfræðingur, sem DB hafði sam-
band við, tjáði blaðinu að hann vissi
ekki um hæstaréttardóm þar sem bein-
línis væri tekið fram að kílómetragjald
skyldi tjónþoli sjálfur greiða. Hins
vegar væri til réttarvenja, sem sjá
mætti í mörgum dómum, að bætur í
tilvikum sem þessum væru miðaðar
við daggjöld bílaleigubifreiða á hverj-
um tíma. Væri ljóst að löggjafinn liti
svo á að kilómetragjaldið ætti að
mæta rekstrar- og viðhaldskostnaði
bifreiðarinnar.
- GHP
Hvemig kemst
ég í Tónabæ?
Allt í klessu. Billaus? Nei, það er ekki hægt. Bflaleigubil? Já, en á ég að borga
hann? Er það réttlátt að tjónþoli eigi að greiða kflómetragjaldið? Hann er f rétti!!!
DB-mynd Sv. Þorm.
Hvað
viltu
vita?
Guðjón H. Pálsson.
A.Þ. skrifan
Undanfarna föstudaga hafa verið
haldin böll í Tónabæ fyrir unglinga
fædda 1963 og eldri. Hvernig get ég
komizt inn í Tónabæ? Ég er fædd
1964 og er með unglingum fæddum
1963 í bekk en er eins og fyrr segir
einu ári yngri. Ég kemst ekki inn á
böll. Nafnskírteinið mitt sýnir fædd
1964. Og ekkert þýðir að segja dyra-
vörðum frá að ég sé einu ári á undan í
skóla. Það er óskaplega leiðinlegt að
komast ekki inn á ball með sinum
skólafélögum.
Svar:
Æskulýðsráð Reykjavikur sér ekki
um rekstur á skemmtunum unglinga i
Tónabæ. Þá fimmta og tuttugasta og
'sjötta janúar sl. voru haldnar skemmt-
anir. Annan föstudaginn var aldurs-
takmarkið ’63 en hinn ’64. En að sjálf-
sögðu gilda nafnskirteinin á böll ef
þeirra er krafizt. En á meðan Æsku-
lýðsráð sá um rekstur skemmtananna
var hægt að fá sérstakt skírteini sem
gilti á skemmtanir þeirra, þá uppá-
skrifað af kennara eða foreldri, ef
unglingar voru á undan sinum jafn-
öldrum í skóla.
Exorcist I
endur-
sýnd?
H.G. hringdi:
Verður kvikmyndin Exorcist I
endursýnd í Austurbæjarbiói?
Svar:
Nei. Leigutiminn er útrunninn og
búið að eyðileggja filmuna.
Hér er Linda Blair (Regan) og Ellen
Burstyn (Chris MacNcil) f einu atrió-
anna úr Exorcist, myndinni sem er bú-
ið að fleygja á haugana.
Nýja saumavélin, semgerir alla saumavirmu auðveldari en áður:
NECCHI
sitoia
* | i§
NECCHl SILTJIQ saumavélar eru búnar öllum kostum eldri véla auk ýmissa nýjunga.
Með NECCHI SlLUia saumavél er unnt að sauma nánast hvaða efni sem er - allt frá þunnum
teygjuefnum til þykkra gallabuxnaefna.
NECCHI SILUia saumavélar eru búnar mynsturveljara með liteinkenni. Þetta einfalda fyrir-
komulag gerir allar stillingar við val á saumgerð fljótlegri og öruggari en áður hefur tíðkast.
NECCHI SlLOia saumavélar eru með sérstökum búnaði, þannig að nálin hreyfist með því sem
ncest fullum krafti á hvaða hraða sem er.Þannig er unnt að sauma jafrrvel mjög þykk efni á
litlum hraða.
NECCHI SlLOia saumavél vegur aðeins um 12 kg með tösku og öllum fylgihlutum. Hún er því
sérlega létt í meðferð og flutningi.
Nákvcemt eftirlit við framleiðslu og sölu ásamt traustri þjónustu tryggja hámarksnotagildi
NECCHI saumavéla.
NECCHI SILOia saumavélum fylgir nákvcemur leiðarvísir á íslensku um notkun og viðhald.
Útsölustaðir víða um land.
gKs
Einkaumboð á íslandi:
FALKIN N
Suðurlandsbraut 8 - sími 84670
Pekking
fÞíónust
Sendum
bæklinga,
ef óskað er
Spurníng
dagsins
Ferðu oft í kirkju?
Reynir Magnússon blikksmiður: Nei,
það geri ég aldrei nema kannski við
fermingar og þess háttar.
Guðmundur Ingason, vinnur hjá Pósti
og sfma: Já, ég geri talsvert að þvi. Fer
svona einu sinni í mánuði.
Jóhannes Gunnarsson, mjólkurfrxðing-
ur: Nei, allsekki.
Gestur Pálsson, byggingameistari: Já, ég
fer svona sex sinnum á ári vegna trúará-
stæðna og svo er jú alltaf gaman að
hlusta á sönginn og syngja með.
Einar Guðmundsson slökkviliðsmaðun
Nei, ég get nú ekki sagt það. Ég fer
nokkrum sinnum á ári og geri það aðal-
lega af trúarástæðum.
/
Davið Daviðsson sölumaður: Nei, það
geri ég ekki. Kannski svona tvisvar á ári.