Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 6

Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979. Frá Taflfélagi Seltjarnarness Meistaramótiö hefst þriðju- daginn 13. febrúar k1. 8. Inn- ritun í kvöld í félagsheimilinu eða í síma 22678 milli kl. 7 og 10. * Unglingamótið hefst í kvöld kl. 8. Innritun milli kl. 7 og 8. STJÓRNIN Keflavík Til sölu bílaverkstæöi í fullum gangi ásamt til- heyrandi verkfærum. Góö kjör. Iðnaðarhúsnæði, ca 260 ferm, selst hvort sem er í einu eða tvennu lagi. EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA Hafnargötu 57, Keflavík, sími 3868. Hannes Ragnarsson, sími 3383. ölfushreppur Selvogsbraut 2 Þorlákshöfn óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa og umsjónarmann verklegra framkvæmda hreppsins til starfa frá 1. apríl 1979. Tæknimenntun áskilin. Nánari uppl. veitir undirritaður. Skriflegum umsóknum, er greina frá menntun og fyrri störfum, skal skila á skrifstofu Ölfushrepps. Selvogsbraut 2 Þorlákshöfn fyrir 1. marz 1979. Sveitarstjóri ölfushrepps. A HOTEL LOFTLEIOUM ICEFOOD ÍSLENSK MATVÆLI H kynnir framleiðslu sína í samvinnu við Hótel Loftleiði. /F Nú er það síldarævintýri í Blómasalnum á Hótel Loftleiðum. Þar bjóðum við hverskyns lostæti úr „Silfri hafsins" feitri Suðurlandssíld, um 25 rétti: Marineraða síld, kryddsíld á marga vegu og reykta síld, salöt og ídýfur, ásamt reyktum laxi, graflaxi, reyksoðnum laxi og smálúðu. Sannkallaður ævintýramálsverður á tækifærisverði. Notið tækifærið og snæðið kvöldverð í vistlegum salarkynnum, sem skreytt er í þessu sérstaka tilefni. ar ‘ "9 1 , : HOTEL LOFTLEIÐIR ■E Dagana 9.-18. febrúar Verið velkomin á síld Borðpantanir í síma 22322 Radartækjunum beint gegn hröðum akstri: Milljón krónur í sektir a einum degi „Á hvaða hraða var hann þessi?” spyr löggan áður en kæruseðillinn var skrifaður. „Já, þetta var líflegur dagur hjá radarmælingamönnum,” sagði Hilmar Þorbjörnsson varðstjóri í umferðar- deildinni. -,,En svona taka menn batn- andi færi þó enn séu klakahryggir stór- hættulegir við flestar götur og því víta- vert kæruleysi sýnt.” 1 gær var hraðamælingum haldið áfram og verður svo meðan ástæða þykirtil. -ASt. Radartækið stillt á Kleppsveginum. DB-mynd Sveinn Þormóðsson. Hinum megin hæðarinnar, sem á myndinni sést, var ökuhrað- „Komdu hérna i biðröðina. Þeir hafa varla við að skrifa inn mældur og reyndist allt of mikill. Þetta var á Kleppsvegin- kærurnar.” um og meirihluti bila var stöðvaður vegna ökuhraðabrota. DB-myndir Sveinn Þorm. Sá sem hraðast ók mældist á 101 km hraða Nærri lætur að umferðarlögreglan í Reykjavík hafi á fimmtudaginn sektað ökumenn um milljón krónur fyrir of hraðan akstur. Á fimmtudaginn hóf lögreglan hraðakstursmælingar með radar þvi mönnum var tekið að of- bjóða hve hastarlega ökumenn spýttu í er hraðaksturstækifæri skapaðist á götum vegna hlákunnar. Lögreglumenn fóru víðs vegar um bæinn með radartækið og nálega 60 ökumenn fengu kærur. Lágmarkssekt við of hröðum akstri er 12000 krónur og fer stighækkandi eftir hraða. Fari menn yfir 100 km hraða á klukkustund liggur ökuleyfissvipting við, og getur orðið við minni hraða ef hraðaksturinn er framinn við slæm skilyrði eða ekið er innan um gangandi fólk og yfir göngubrautir farið. Sá sem mældist á mestum hraða á fimmtudaginn reyndist vera á 101 km hraða. Sex aðrir mældust á 90—98 km hraða og fjölmargir óku á 80—90 km hraða.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.