Dagblaðið - 12.02.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
Enginn venjulegur jassgaur
7
í einu orði sagt varð allt vitlaust.
Það var ekki aðeins að Dizzy brilleraði
einsog við bjuggumst auðvitað við,
eða gerðum kröfu til af okkar nor-
rænu, heimskulegu, og þó aðallega
nauðaómerkilegi heimtufrekju, heldur
var hann kallinn með eintóma snill-
inga með sér, sem er eiginlega svoldið
skrítilegt og sér á parti. Það er nefni-
lega alls ekki algengt að svona gamlir
gaurar þori að gefa ungum mönnum
sjans, hvað þá að þeir beiti sér beinlín-
is fyrir að þeir njóti sín. En þetta gerði
klassiski jassinn var loksins að komast
á blöð vestrænnar músíksögu og
svingið var í algleymingi undir forustu
Benny Goodmans og þeirra frænda,
og þótti helviti gott.
En þessir strákar, sem allir voru af-
burðamenn sem hljóðfæraleikarar, og
unnu einmitt í þessum nýviðurkennda
bisniss sem „dansmúsíkantar”, fóru
sumsé að hittast eftir'lokun á stað, sem
hét að mig minnir Mintons Playhouse,
til að ræða og athuga málin.
Þarna varð til bebopið, sem setti
Tónlist
/
semsé Mr. Gillespie, og fyrir bragðið
fóru fram i Háskólabiói 11.2. 1979
yndislegustu hljómleikar sem ég hef
heyrt hér á landi. Og hef ég þó heyrt
þá marga góða.
Það var víst 1942, svona um það bil
sem Bandarikin þvældu sér inn í
heimsstyrjöldina og hófu að því að
virðist endalaus afskipti af gangi mála
hérna í götunni, að nokkrir strákar
uppi í Harlem í New York fengu eitt-
hvað sem nú á dögum er kallað brjál
eða imbi, en var stundum nefnt köllun
þegar ég var yngri. Þeir hétu Charlie
Parker, Thelonius Monk, Kenny
Clarke og Charlie Christian, og svo
bættist í hópinn gaur, sem lengst hefur
gengið undir nafninu Dizzy Gillespie.
Þetta var einmitt á þeim árum sem
satt að segja allt á annan endann hjá
jassgúbbonum hér í bænum um það
leyti sem ég hefði átt að fermast, ef
það hefði komið til mála, sem það
gerði auðvitað ekki.
Nú eru þeir allir dauðir, þessir strák-
skrattar, sem gjörbreyttu jassinum og
ollu slíku róti i partíum pabba og
mömmu, að margir hafa ekki náð sér
síðan. Allir dauðir, nema Dizzy. Og
við erum svo hamingjusöm, og frek,
og áreiðanlega stórsniðug, að fá hann
hingað til að spila og spila og spila, á
trompettinn. á mikrófóninn, á okkur
púplikkumið o.s.frv., o.s.frv. En
Gillespie þessi er enginn venjulegur
jassgaur, sem svingar sér á milli klúbb-
anna hálfur og sæll, og fleytir sér á
meðfæddum smásálargáfum. Hann er
harðsvíraður músikant, með full-
komna teoritíska menntun sem tón-
skáld og hljómsveitarstjóri, fyrir utan
að vera einnmagnaðasti trompettleik-
ari sem uppi er á byggðu bóli.
En hann hefur líka staðið í ströngu
á pólitíska sviðinu, af því hann er
svertingi, og af því hann er stór og
mikil manneskja. Hann mótmælti á
sínum tima kristnu afturhaldi, hvitu
og svörtu, með þvi að taka múhameðs-
trú, og er liklega einn sá fyrsti sem
kom fram hreinn og beinn sem „Black
Muslim”.
Við, sem erum svo heppin að fá að
njóta tónlistar Dizzys, ættum nú að
krjúpa saman í bæn um að draumur
hans og allra góðra listamanna um
réttlátt samfélag manna hér á jörð-
inni, megi rætast. Kannski meira að
segja áður en Alþýðubandalagið
verður þurrkaðaf töflunni. Nei, þarer
nú til of mikils mælst.
Leifur Þ.
Dizzy Gillespie á sviðinu f Háskólabíói með hljómsveit sinni i gærkvöld.
DB-mynd RagnarTh.
V
Vestf irðingar til-
búnir til að taka við
rafmagni frá
byggðalínu
— 600-700 milljóna kostnaður vegna
keyrslu dfsilvéla
Annar áfangi Mjólkárlinu er nú
fullgerður, en það er línan frá Breiðadal
til Bolungarvikur fyrir byggðina við
Djúp. Fyrri áfanga frá Mjólká lauk i
fyrra. Þá hefur og verið unnið við
byggingu aðveitustöðvar og er hún nú
tilbúin.
Að sögn Ólafs Kristjánssonar
stjórnarmanns í Orkubúi Vestfjarða er
þessi línulagning stærsta verkefni starfs-
manna Orkubús Vestfjarða. Línan frá
Mjólkárvirkjun í Breiðadal er 35 km og
274 staurasamstæður og liggur línan
hæst 760 m yfir sjávarmáli. Línan frá
Breiðadal til Bolungarvíkur er 17 km og
liggur hún hæst 750 m yfir sjó.
Vestfirðingar eru nú tilbúnir til þess
að taka við dreifingu frá byggðalinunni.
„Það er mjög þýðingarmikið að fá raf-
magn til Vestfjarða frá byggðalínunni,”
sagði Ólafur. „Ef Mjólkárvirkjun tengist
ekki byggðalinunni haustið 1980 eins og
,ráðgert er verðum við að greiða 600—
700 milljónir króna í kostnað vegna
keyrslu disilvéla til rafmagnsframleiðslu.
Kostnaður við rafmagnsframleiðslu með
dísilvélum er fjórum sinnum hærri en
það verð sem hægt er að selja rafmagnið
út fyrir til rafhitunar. Þetta er því mjög
þungur baggi á Orkubúinu.”
„Það sem nú liggur á borðinu,” sagði
Ólafur, „er að skipta Vestfjörðum i
svæði, þar sem annaðhvort verður not-
uð fjarvarmaveita eða rafhitun. Það er
nauðsynlegt fyrir bæjar- og sveitarfélög
að vita það fyrir, hvort kerfið verður
notað varðandi alla skipulagninguna.
Sem dæmi má nefna að nýja byggðin i
Bolungarvík verður rafhituð en eldri
byggðin notarfjarvarmaveitu.
Tryggja þarf öryggi Vestfirðinga með
því að fá loforð stjórnvalda um tengingu
vesturlínu og hugsa um Arnfirðinga og
Patreksfirðinga, sem eru háðir sæstreng
yfir Arnarfjörð.”
-BB/JH.
Búðardalur:
Vilja hef ja leirvinnslu
— stærstu leirnámur landsins við bæjardyrnar
íbúar Búðardals hafa nú mikinn
áhuga á að nýta sér allan þann leir sem í
jörðu er í plássinu og nágrenni þess, en
þar eru mestu leirnámur landsins. Meðal
afurða sem vinna má úr honum eru
flísar til flisalagna i heimahúsum.
Aðal leirsvæðið er í mynni Laxárdals á
um 5 ferkílómetra svæði, að mestu í eigu
hreppsfélagsins. Liklegt er talið að 3 til 5
efstu metrar leirmyndunarinnar þar séu
nýtanlegir.
Talsverðar rannsóknir hafa farið fram
undanfarin ár á svæðinu og hafa heima-
menn nú ákveðið að koma á kynningar-
og umræðufundi um hugsanlega leir-
vinnslu í Búðardal. Verður hann
haldinn eftir viku og er þar vænzt sér-
fræðinga til að skýra frá rannsóknum og
niðurstöðum.
páskaferdir
<§> til ÍRLANDS
þessum vinsælu og ódýru ferdum
hef ur verió bedid ef tir meö óþreyju
Brottfarardagar:
12/4 - 16/4 - 5 dagar - 0 vinnudagartapast - kx 98.000
11/4 - 17/4 - 7 - - 1 - 113.000
11/4 -25/4 - 14 - 6 - - 185.000
Nú er um aó gera aó panta strax, þvi þessar feróir seljast á ótrúlega
skömmum tíma.
'TSamvinnuferðir® LANDSÝN
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMI 27077
■GS/AF. Búðardal.