Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
Að halda sér
vakandi
Nú er hægt að fá keypt 1 Japan sér-
stakt tæki sem heldur ökumönnum
vakandi við aksturinn þött heitt sé i
veðri og umferðin gangi hægt. Er það
sett á ennið og vilja menn kalla þetta
rafeindaknúinn heilakæli. Verðið er
um það bil jafnvirði fjörutiu þúsunda
islenzkra króna.
Sjámmord
númer
ertt
verður framið í hljóðfœraverzlumnni
Tónkvísl í kvöld kl. 7.
Hljoðfæraleikarar:
Pólmi Gunnarsson, Sigurður Karlsson,
Guðmundur Ingólfsson, Björgvin Gísla
son og Lárus Grímsson.
Gæðin framar ollu.
MIKIL OVISSA OG
BAK1IAR FARINN
/ -•'
— orðrómur um sjálf smorð hans—hundruð hafa fallið
í óeirðum um helgina — herinn virðist ætla að vera hlut-
laus í átökunum — f ylgismenn Khomeinys fagna sigri
Tilkynnt hefur verið i íran að
Baktiar forsætisráðherra hafi sagt af
sér. Einnig hefur verið sagt frá því í út-
varpsfregnum þaðan að hann hafi
framið sjálfsmorð. Engin staðfesting
hefur þó fengizt á síðarnefndu fregn-
inni og alls óvíst um afdrif Baktiars,
sem var skipaður forsætisráðherra rétt
áður en keisarinn fór úr landi. Hann
hlaut einnig traust íranska þingsins,
sem enn hefur ekki lýst yfir vantrausti
gegn honum.
í útvarpsfregnum i gær var sagt frá
því að stuðningsmenn Khomeinys trú-
arleiðtoga, sem nú er talinn valda-
mestur manna í íran, hafi gert húsleit
á heimili Baktiars skömmu eftir að
hann lýsti yfir afsögn sinni í gær. Ekki
var nánar skýrt frá tilgangi eða
árangri leitarinnar. Ekki var heldur
gefið í skyn að sjálfsmorð Baktiars hafi
verið í tengslum við húsleitina.
Miklar óeirðir voru í Teheran um
helgina. Fregnir bárust um að her-
menn hefðu barizt gegn stuðnings-
mönnum Khomeinys og hafi í það
minnsta tvö hundruð manns fallið.
Einnig hafa borizt fregnir af bardög-
um á milli lífvarðar keisarans og liðs-
manna úr flugher landsins. Margir
stuðningsmenn Khomeinys eru sagðir
innan hans.
Herstjórnin í lran tilkynnti í gær að
öllum hermönnum væri skipað að
koma til búða sinna. Ætlar herinn að
sögn ekki að hafa frekari afskipti af
stjórnmáladeilum í landinu. Þrátt fyrir
þessa tilkynningu var uppi orðrómur
um bardaga á milli hermanna og
stuðningsmanna Khomeinys í nótt.
Ef svo reynist að Shapur Baktiar
fráfarandi forsætisráðherra hafi ráðið
sér bana er fallinn frá einhver ötulasti
andstæðingur keisarastjórnarinnar.
Mun hann meðal annars hafa verið
fangelsaður sex sinnum af stjórnmála-
orsökum. Hann var 63 ára að aldri og
hlaut menntun sína sem lögmaður í
Beirut og París. Eins og fleiri jafnaldr-
ar hans i íran var hann vel heima i
franskri menningu. Stjórnmálaskoð-
anir Baktiars eru taldar nálgast stefnu
sósialdemókrata í Evrópu.
Abel Muzorewa biskup, einn þerra svertíngjaleiötoga, sem tök sætí I bráöabirgðastjórn Ians Smith forsætísráðherra. Hann
heldur nú fundi viðs vegar um landið og hvetur svarta til að samþykkja nýja stjórnarskrá sem greiða á atkvæði um I apríl
næstkomandi.
Ródesía:
Drepsóttir og sjúk-
dómar munu aukast
Ef borgarastyrjöldinni í Ródesíu
heldur áfram öllu lengur er veruleg
hætta á að drepsóttir breiðist út um
landið og sjúkdómar komi harðar niður
en áður á almenningi. Svo segir í yfirlýs-
ingu frá læknasamtökum landsins. Þar
kemur fram að í bardögum á milli her-
manna stjórnarinnar í Salisbury og
svartra þjóðernissinna hafi bæði sjúkra-
hús og læknamiðstöðvar um alla
Ródesiu verið eyðilagðar.
Einnig mun mörgum litlum sjúkra-
húsum og miðstöðvum hafa verið lokað.
Sérstaklega mun þetta éiga við þær
stöðvar sem liggja nærri frumskógum
landsins þar semskæruliðar hafa verið
hvað öflugastir og bardagar mestir.
Þetta ástand mun koma verst niður á
svörtum íbúum Ródesíu. Vitað er að
milljónir svartra eru nú án nokkurrar
læknishjálpar, sem þó var komin í sæmi-
legt horf áður en hernaðarátök hófust í
landinu fyrir um það bil sex árum.
Læknarnir benda einnig á að farið sé að
bera á ýmsum hörgulsjúkdómum bæði
meðal barna og fullorðinna.
FATÆKTIN TEKUR
TOLL í NAPOLÍ
Tveir smádrengir, sex og átta mán-
aða, létust í gær I Napolí á ítaliu. Mun
dánarorsök þeirra hafa verið sú sama og
sextíu og eins barns, sem látizt hefur af
veirusjúkdómi á síðastliðnu ári. Læknar
jhafa einangrað veiruna og telja hana
upprunna i fátækrahverfum borgarinn-
ar.
öll þau börn sem látizt hafa eru úr fá-
tækum fjölskyldum. Þau börn betur
stæðra sem sýkzt hafa munu öll hafa lif-
að af.
Sjúkdómurinn leggst á öndunarfæri
barna og hefur valdið miklu hugarangri
fólks í Napoli því framan af var ekki vit-
að um beina orsök þó böndin bærust
brátt að örbirgð og fábreyttu atlæti.