Dagblaðið - 12.02.1979, Side 12

Dagblaðið - 12.02.1979, Side 12
12 WBIAÐIÐ frjálst, úháð dagblað Útgefandt DagblaOUI h>. FramkvnmdastJóH: Sveinn R. EyjóKsson. RHslJórí: Jónas Krístjónsson. Fróttastjórí: Jón Birglr Pétursson. RKstJómarfuBtrúi: Haukur Heigason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannes ReykdaL Iþróttir: Haikir Simonarson. Aðstoðarfréttaafjórar AtJi Steinarsson og Ómar Vaidi- marsson. Manningarmál: Aöabteinn IngóHsson. Handrít Ásgrímur Páisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefénsdóttir, Gissur Slgurðs- son, Gunnlaugur A. Jónsson, HaBur HaHsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Óiafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pélsson. Ljósmyndir: Ámi Péll Jóhannsson, Bjamlelfur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Slgurðs- son, Svoinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þréinn ÞoHeifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Drelfing- arstjóri: Mér E.M. HaUdórsson. Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, éskriftadeild, augtýslngar og skrifstofur Þverholti 11. Aðabimi biaðsins er 27022 (10 Ifnur). Áskrift 2500 kr. é m^nuði innanlands. i lausasöki 125 kr. ekitakiö. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Slðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Siöumúla 12. Prentún: Árvakur hf. Skoifunni 10. Hún er kolbikasvört „Flekkótt” er ekki rétta orðið um hina nýju skýrslu Hafrannsóknastofnunarinn- ar um hæfilega veiði á þessu ári. Hafi fyrsta fræga skýrslan af þessu tagi átt skilið að heita „svarta skýrslan”, má nefna hina nýju skýrslu „kolbikasvarta”. Ár eftir ár sígur á ógæfuhliðina, þrátt fyrir brott- rekstur útlendinga úr fiskveiðilögsögunni. Ár eftir ár mokum við upp sjálfu útsæðinu. Hrygningarstofn þorsks komst í fyrra niður í 165 þúsund tonn. Aldrei áður hefur hann verið jafnlítill. í fyrra vildu fiskifræðingar, að veidd yrðu 270 þúsund tonn af þorski á árinu. Eins og áður vildu út- gerðarmenn fara að ráðum þeirra og báðu stjórnvöld um sanngjarnar reglur um takmörkun. Eins og áður gerðu stjórnvöld of lítið of seint. Afleiðingin var sú, að þorskaflinn fór upp í 330 þúsund tonn, langt upp fyrir hættumörk. Hinum sterku árgöngum frá 1973 og 1976 var mokað upp, sumpart í gúanó. Á netaveiðum fóru 30% í annan flokk og 20% í þriðja flokk. í fyrra var vandinn hinn sami og árin þar á undan. Við höfðum heybrækur í ríkisstjórn. Þær þorðu ekki að gera það, sem allir málsaðilar vissu, að þyrfti að gera. Nú höfum við nýja ríkisstjórn. Engin sérstök ástæða er til að bera meira traust til hennar en hinnar fyrri. En hún er þó eina vonin, sem við höfum nú á elleftu stund. Árið 1979 ræður úrslitum um endanlegt hrun þorsk- stofnsins. í þetta sinn er enn erfiðara að taka málið föstum tökum en það var í fyrra, hittifyrra og árið þar á undan. Svigrúmið hefur minnkað með hverju árinu. Dæmi, sem áður var unnt að leysa utan ríkissjóðs, verður nú aðeins leyst innan ríkissjóðs. Vertíðin er góð um þessar mundir. Bátaflotinn er al- mennt kominn með blýteina í veiðarfærin og heldur uppi harðri samkeppni við skuttogarana. Það er alveg hægt að búast við, að hámarksaflinn verði búinn um eða rétt fyrirmitt ár. Hvað tekur þá við? Á að leggja öllum þorskveiði- flotanum? Þetta er ekkert smáræðis vandamál, jafnvel þótt nú þegar verði gripið til strangari takmarkana, er treint geti þorskveiðina fram eftir árinu. Fiskifræðingarnir hafa undanfarin ár reynzt hafa rétt fyrir sér í hinum árlegu aðvörunum. Nú hafa þeir lagt til samdrátt í þorskveiðum, sem nemur ársafla 20 skuttog- ara. Hvaða 20 togurum ætti að leggja? Kák undanfarinna ára hefur leitt til þess, að afli á sóknareiningu hefur minnkað. Sífellt fleiri skip skarka í sífellt minni afla. Kostnaður í olíu og mannskap eykst á hvern dreginn þorsk. Áratugum saman voru þorskveiðin og síldveiðin sú stóriðja, sem þjóðlífið byggðist á. Þaðan flæddi fjár- magnið um allt ísland og bjó til nútímaríki á þessari af- skekktu eyju. Þessi tími er nú liðinn. Framleiðni í útgerð hefur hrapað. Engin atvinnugrein er lengur til að halda uppi þeim lífskjörum, sem við höfum vanið okkur á. Með róttækum ráðstöfunum í ár má breyta þessu. Ef við sættum okkur við 250 þúsund tonna þorskafla í ár og 270 þúsund tonna á næsta ári, getum við smám saman komið hrygningarstofninum upp í 500 þúsund lestir árið 1983. Þá getur útgerðin aftur orðið stóriðja íslands. Ástæða uppgangs hryðjuverkaíiópa á Vesturiöndum — Sovétmenn eru oftsinnis sakaðir um að veita þessum hópum bæði f járhagslegan og siðf erðilegan stuðning Á hverjum einasta degi berast fréttir frá Vestur-Evrópu um sprengjutilrasði, tilræði við fólk, íkveikjur, morð og töku gisla í pólitískum tilgangi. í sumum löndum V-Evrópu eru stjórnleysi og hryðjuverk orðin brýnt vandamál. Athyglisvert er, að flestir málsvarar „niðurrifs”aflanna þverneita öllum tengslum við stjórnleysisstefnu. í flest- um tilfellum segjast þeir „berjast gegn heimsvaldastefnu” eða jafnvel vera „marxistar”. Oft gefa þeir samtökum sínum „glæsileg” nöfn, svo sem „rauðu herdeildirnar”, „öreiga- sellurnar”, „framsókn til kommúnismans” o.s.frv. Til þess að gera likinguna enn meiri hafa nútima stjórnleysingjar tekið upp i pólitískt orðasafn sitt marxiskar kennisetningar. Hugmyndafræðingar „rauðu herdeildanna” í V-Þýskalandi hafa auk heldur vitnað í Lenin i þvi skyni að sanna, að gagnrýni hans á of- beldisaðgerðir einstaklingsins skírskoti til þolandans en ekki gerandans. Þetta er vísvitandi mistúlkun vegna þess, að Lenin var einmitt mjög andvígur ein- staklingsárásum á ráðherra. Hann rit- aði: ....Reynslan af byltingunni og gagnbyltingunni í Rússlandi hefur sannað betur en tuttugu ára barátta gegn ofbeldi sem hernaðaraðferð, að flokkur okkar hefur rétt fyrir sér.” Það eru hugmyndir maóista en ekki falsaðar tilvitnanir í marxismann, sem eru meginatriði þeirra nýjunga, sem skotið hafa upp kollinum 1 kenningum stjórnleysis- og ofbeldisaflanna. Nútima hryðjuverkahópar lita á kenningar „Mao Tse-tung um vopnaða baráttu ekki aðeins sem fræðilegar kenningar, heldur og sem leiðsögn um aðgerðir.” Þessar kenningar mæla með því, að áhang- endur þeirra skuli líta á óeirðir sem allsherjar ráð til jDess að ná þeim mark- miðum, sem þeir hafa sett sér. („Alla visku marxismans má draga saman i eina setningu: Óeirðir eru réttlæt- anlegar.” Mao Tse-tung). Þegar um er að ræða upphlaup stjórnleysingja, þá mynda þau röð einstakra ofbeldisað- gerða, sem framkvæmdar eru undir slagorði maóista: „Refsið einum hundrað til viðvörunar.” Engin þessara „nýjunga” hefur þó gætt „niðurrifs”kenningar stjórn- leysingja neinu frumlegu inntaki. Kjarni þeirra er óbreyttur. Þeir treysta á vald og ofbeldi sem allsherjar ráð til þess að ná þeim markmiðum, sem þeir hafa sett sér. Skirskotanir nútíma stjórnleysingja til maóismans benda til skyldleika þessara stefna, sem báðar eru jafn framandi marxismanum. Nægir að minna á það mat, sem 25. flokksþing KFS lagði á hugmynda- fræði og stefnu maóista. Það er of vægt að orði komist að segja, að maóísk hugmyndafræði og stefna sé ósamþýðanleg kenningum marx- leninismans: Þær eru algerar andstæð- ur þeirra. Samt halda sum vestræn blöð áfram að halda því fram af ráðnum hug, að nútíma stjómleysis- stefna sé „grein af marxismanum”. ítalska blaðið La Domenica del Corriere gekk meira að segja svo langt að halda því beinlínis fram, að nútima hryðjuverkamenn fengju ekki aðeins hugmyndir sínar frá, heldur gengjust þeir og undir þjálfun i skemmdarverka- starfsemi i sérstökum búðum í einu af sósíalísku rikjunum. SpringerblaSið Die Welt i V-Þýskalandi fullyrti, að stjórnleysingjar nytu stuðnings vissrar leyniþjónustustofnunar, sem er „í þjónustu kommúnista er fylgja Moskvustefnunni”. Hryðjuverkamenn fá vissulega stuðning erlendis frá. En ekki þaðan sem höfundar fyrrnefndra rógskrifa segja. Hvatamenn nútíma ofbeldis- stefnu er að finna í hinum vestrænu löndum sjálfum, fyrst og fremst meðal þeirra, sem nota ofbeldi til þess að koma fram pólitískum markmiðum sínum. Hvers vegna ieyfðu erindrekar v- þýsku leyniþjónustunnar þrem hryðjuverkamönnum að sleppa lausum i ágúst 1978? Það er staðreynd að fjöldi vitna hafði borðið kennsl á glæpamennina. Þeir voru ljósmynd- aðir af lögreglunni, sem hélt því fram á sama tima, að hin grunaða þrenning hefði notað bil með fölsku númers- skilti. Hvernig gat það gerst, að allir verðir Moabit-fangelsisins í V-Berlín létu tvær konur ógna sér, sem höfðu komist inn i fangelsið á fölsuðum vegabréfum og með vopn og tókst aö frelsa stjórnleysingjann Till Meyer? Önnur staðreynd. Hryðjuverkamað- urinn Hans-Joachim Klein, sem lög- reglan hefur árangurslaust leitað að síðan 1975, er hann tók þátt i að ræna ráðherrum OPEC-landanna, hefur leitað sér hælis í ísrael og stendur nú undir vernd ísraelsku leyniþjón- ustunnar. Hvernig gat þetta gerst? Ránið og morðið á Aldo Moro, sem félagar úr „rauðu herdeildunum” stóðu að, hefur knúið marga ítali til þess að líta á hryðjuverkavandamálið frá nýju sjónarhorni. Sú spurning hefur vaknað: Hafa ekki voldugri öfl, og þá einkum bandariska leyniþjónustan, verið viðriðin þennan vandlega undirbúna glæp? Það er staðreynd, að litið var á þennan fyrr- verandi forsætisráðherra ítaliu sem óæskilega persónu af vissum öflum, og það ekki aðeins vissum öflum handan Atlantshafsins. Þetta er ekkert leynd- armál. Nýlega voru birt sérstök leyni- leg fyrirmæli til erindreka bandarisku leyniþjónustunnar erlendis, skjal FM 30—31, sem staðfesta þennan grun. Höfundar fyrirmælanna leggja til, að unnin verði ýmisss konar skemmdar- verk, m.a. að komast inn í raðir rót- tækra „vinstri” hópa, svo sem „rauðu herdeildanna”, í því skyni að skapa ringulreið, óróa, og að ræna pólitísk- um leiðtogum sem eru í andstöðu. Þessar leiðbeiningar voru samdar sér- staklega fyrir „vinveitt” lönd, þ.e. bandamenn Bandarikjanna í Nato. Sagt er i einum af leynilegum fyrir- mælum CIA, að þessar aðgerðir skuli fremja í því skyni að láta almenning halda, að byltingarsinnar standi að þeim. Slíkar aðgerðir á ekki aðeins að vinna með tilstilli ógrunsamlegra stjórnleysingja, heldur og nýfaista og jafnvel glæpamanna. Dæmið um „rauðu herdeildirnar” sýnir hvaða braut höfundum þessarar áætlunar tókst að ryðja. Fyrst var þessum hóp meintra róttækra „vinstri- sinna” breytt í gróðrarstöð fyrir dulbúna nýfasista í lok sjöunda ára- tugarins. Eftir byltinguna í Portúgal 1974 fannst nafn Curcio, eins af frum- kvöðlum „rauðu herdeildanna” I skjölum Againter, vestur-evrópskrar nýfasistamiðstöðvar, sem hafði höfuðstöðvar sinar i Lisabon. Hann var talinn öðrum til fyrirmyndar. Sagt var, að hann væri snjall við að lauma dulbúnum nýfasistum inn í raðir „rauðu herdeildanna”. Einnig var sagt i skjalinu, að þessir hópar „stunduðu áróður og fremdu ofbeldisaðgerðir likt og sú starfsemi væri unnin af and- stæðingum okkar, kommúnistum”. Þegar i ljós kom eftir morðið á Aldo Moro, að nýfaistar og „rauðu” hryðju verkamennirnir höfðu sama heimilis- fang í Róm, þá kom það engum á ó- vart. Það er einnig þess vert að fjalla um þá staðhæfingu, að hryðjuverkamenn fái sérstaka þjálfun. Sumum er vissu- lega kennt það sérstaklega að hand- fjatla vopn og sprengiefni, einkum í herstöð Nató á Sardiníu og í búðum nýnasista í Bæjarlandi, þ.e. undir leiðsögn leyniþjónustumanna frá Bandaríkjunum, Vestur-Þýskalandi og Ítalíu. Vestur-þýska blaðið Unsere Zeit hefur t.d. ritað um þetta. Hryðju- verkamennirnir fá líka yfirleitt allt sem þeir þarfnast til þess að fram- kvæma verknað sinn, eftir sömu leiðum. Saga stjórnleysis- og ofbeldistefnu er samofin starfsemi leyniþjónustanna. Hinar siðartöldu koma erindrekum sinum inn i raðir baráttuhópa á öllum timum. Reglan er, að skipulagning og framkvæmd ofbeldisaðgerða er i sam- ræmi við óskir yfirvalda. Það er t.d. staðreynd, að Napóleon III. keisari Frakklands fyrirskipaði lögreglunni, sem átti erindreka sína í hópi stjórn- leysingja, að sviðsetja „dramatiska morðtilraun við sig". Þótt þessi verkn- aður væri unninn eftir forskrift og með samþykki lögreglunnar, kom það ekki í veg fyrir að stjórnvöld refsuðu stjórnleysingjunum harðlega, en þá grunaði ekki einu sinni að þeir hefðu verið notaðir sem leikbrúður. Keisar- inn notaði þessa misheppnuðu morð- tilraun við sig sem afsökun fyrir því að berjast gegn „óvinum ríkisins” með þvi að setja kúgunarlöggjöf. Beindist hún einkum gegn stjórnarandstöðunni en alls ekki gegn ofbeldismönnunum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.