Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
Söngsveitin Fflharmonía og Sinfóníuhljómsveit íslands:
Næstkomandi fimmtudagskvöld
munu Sinfóníuhljómsveit Islands og
Söngsveitin Fílharmonía ásamt
einsöngvurunum Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur sópran, Sigurði Björns-
syni tenór, og Halldóri Vilhelmssyni
bassa flytja eitt af stórverkum tón-
bókmenntanna, óratoríuna Sköpunina
eftir Joseph Haydn undir stjórn
Marteins Hungers Friðrikssonar.
Þetta er 19. starfsár Söngsveit-
arinnar Fílharmoniu og er vart þörf á
að kynna söngsveitina frekar, þar sem
hún hefur vissan sess i tónlistarlífi
. landsins, með flutningi allra helztu
kórverka tónbókmenntanna í gegnum
árin.
Þó ber að nefna þátt söngstjórans
Marteins Hungers Friðrikssonar, sem
tók við stjórn kórsins fyrir þremur
árum eftir nokkra lægð frá andláti
stofnanda Söngsveitarinnar, dr.
Róberts Abrahams Ottóssonar. Með
mikilli eljusemi og áhuga hefur
Marteini tekizt að ná fram þeim
gæðum og reisn sem kórinn hafði
að bera í tið Róberts. \
Um hundrað manns skipa Söngsveitina Fílharmóniujvið uppfærsluna á Sköpuninni; myndin er tekin á æfingu I Háskólabiói síðastliðinn laugardag.
DB-mvndir Kristján Ingi.
FLYTJA EITT AF STÓRVERK-
Óratoríuna Sköpunina samdi Joseph
Haydn á árunum 1795—1798. Verkið
er í hefðbundnum óratoríustíl, samið
fyrir fjórraddaðan kór, þrjá einsöngv-
ara og hljómsveit. Er þetta eitt af
hans stærstu verkum og er talið að
engin af tónsmíðum hans hafi borið
nafn hans jafn víða. Verkið tekur hátt
á aðra klukkustund í flutningi.
Áður hefur Sköpunin tvivegis verið
flutt hér á landi. Hún var frumflutt
árið 1939 í Bilaskála Steindórs af kór
Tónlistarfélagsins og karlakórnum
Kátir félagar ásamt Hljómsveit
Reykjavikur undir stjórn Páls ísólfs-
sonar. Síðan var hún flutt af Söng-
sveitinni Filharmoníu og Sinfóníu-
hljómsveit íslands úndir stjóm dr.
Róberts Abrahams i Háskólabíói árið
1973.
Þess má að lokum geta að í byrjun
UM TONBOKMENNTANNA
— óratoríuna Sköpunina í Háskólabíó næstkomandi fimmtudagskvöld
marz hefjast æfingar á Níundu
sinfóníu Beethovens sem sennilega er
eitt þekktasta og vinsælasta verk allra
tíma.
Verkið verður flutt i byrjun júní i
Háskólabíói. Við flutning verksins
verður að fjölga mikið í öllum
röddum kórsins, og verða nýir félagar
raddprófaðir á næstunni.
Eins og fyrr segir verður óratorían
Sköpunin fiutt næstkomandi
fimmtudagskvöld og hefst í Háskóla-
bíói kl. 8.30.
KIE.
Hér má sjá stjórnandann, hljómsveitina og kórinn á æfingu I Háskólabíói.
Marteinn Hunger Fríðriksson stjórnandi otar sprotanum.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
argus
Miðakaup og
endumýjun
Þeir sem misstu af miðakaupum í janúar,
gefst nú kostur á að eignast miða og
spila með.
Hæstu vinningar í 2. flokki eru 2 milljónir
sem verða að 10 milljónum á trompmiða.
Vinsamlega endurnýjið tímanlega og
forðist þröng síðasta daginn.
Við drögum 13. febrúar.
2. ftokkur
9 @
9 -
36 -
207 —
378 —
7 947 —
8.586
36 -
8 622
2 000.000
1.000.000.
500.000
100.000.
50.000.
25.000.
75.000,-
18.000 000 •
9.000.000 ■
18 000.000 ■
20.700.000.-
18.900.000.-
198.675.000 ■
283.275.000-
2.700.000-
285.975.000-