Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
20 i
Efstu liðin sigruðu i 1. deildinni i gær,
svo Beveren hefur enn fjögurra stiga for-
ustu. Hins vegar tókst Lokeren ekki að
sigra Charleroi á útivelli. Þar varð jafn-
tefli án marka en Standard sigraði í sin-
um leik. Úrslit:
Charleroi—Lokeren 0—0
Winterslag—Beerschot 1 — 1
Molenbeek—La Louviere 1 — 1
Beveren—Waterschei 2—0
FC Brugge—Beringen 2—1
Lierse—Anderlecht 0—1
Courtrai—Liege 0—0
Standard—Waregem 1 —0
Berchem—Antwerpen 1—0
Staðan er nú þannig:
Beveren 19 34- -11 29
Anderlecht 19 43- -23 25
Lokeren 19 24- -19 23
FC Brugge 19 25- -18 23
Molenbeek 19 25- -21 22
Antwerpen 19 22- -16 22
Standard 19 23- -17 21
Waterschei 19 19- -16 20
Beringen 19 23- -21 19
Beerschot 19 24- -24 18
Charleroi 19 21- -25 18
Lierse 19 22- -24 17
Winterslag 19 23- -25 17
Waregem 19 14- -24 15
La Louviere 19 25- -41 14
Beerchem 19 12- -25 14
FC Liege 19 20- -31 13
Courtrai 19 10- -27 12
íþróttir
Skot Kalla Joh. small í
stöng og Fram sigraði
— Fram sigraði HK í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í gær 22-21 þar sem
Karl Jóhannsson var millimetrum frá að jaf na tveimur sekúndum fyrir leikslok
Fram sigraði nýliða HK 22-21 i
hörkuviðureign 1 Laugardalshöll 1 gær-
kvöld. Það var hvergi gefið eftir frá
fyrstu minútu til hinnar siðustu og aðeins
tveimur sekúndum fyrir leikslok small
skot gömlu kempunnar Karls Jóhanns-
Heimsmet
Natalia Marasescu, Rúmeniu, setti
nýtt heimsmet innanhúss i 1500 metra
hlaupi kvenna á múti i Búdapest á laug-
ardag. Hljóp vegalengdina á 4:03.00
min. Hún átti sjálf eldra metið, 4:05.00
sett á sama stað i febrúar i fyrra.
Pétur skoraði
tvívegis
„Það var ekkert leikið i úrvalsdeild-
inni htr i Hollandi i gær en við hjá Feyje-
noord lékum æfingaleik við áhuga-
mannaliðið Rosendal. Það var á vellinum
hjá áhugamannaliðinu og Feyenoord
sigraði með 7—0.
Léttur leikur og ég skoraði tvö af
mörkum Feyenoord,” sagði Pétur
Pétursson, miðherjinn ungi frá Akra-
nesi, þegar DB ræddi við hann i morgun.
Pétur bjúst við, að knattspyrnan i
Hollandi færi á fulla ferð um næstu helgi
— en veður hefur verið slæmt og vellir
vondir, svo ekki hefur verið hægt að
leika. Leikmenn Feyjenoord fóru til
Kanarieyja og æfðu þar i tiu daga i janú-
ar.
sonar i markstöng Fram — er stóð þvi
uppi sem sigurvegari. Fjórði leikur Fram
i röð sem vinnst með einu marki en Fram
hefur nú 11 stig úr 10 leikjum. HK
vermir hins vegar enn botnsæti 1. deildar
með aðeins 4 stig. Þeir voru ólánsamir
Kópavogsbúar i gærkvöld að hljóta ekki
dýrmætt stig i 1. deild. Báðir leikirnir
gegn Fram hafa nú tapazt með einu
marki.
Það var mikil stemmning i Höllinni
og greinilegt að bæði lið ætluðu sér
sigur, ekkert nema sigur. Þegar frá upp-
hafi sat harkan í fyrirrúmi en leikurinn
var þrátt fyrir það ávallt mjög skémmti-
legur á að horfa. Viðureign ungra liða er
setja markið enn hærra — eru enn í mót-
un.
Stefán Halldórsson, hinn 19 ára gamli
Kópavogsbúi, var maður leiksins.
Kraftur, snerpa og ákveðni þessa snjalla
leikmanns kom vörn Fram hvað eftir
annaö í vandræði. Og áður en yfir lauk
hafði Stefán skorað 12 mörk — flest sér-
lega falleg með þrumuskotum. En það
dugði HK ekki til — og þá fyrst og
fremst vegna þess að enn kunna leik-
mennirnir ungu með Karl Jóhannsson í
broddi fylkingar ekki aö verjast. Vörnin
er stóri höfuðverkurinn og ætli HK sér
að halda sæti sínu í 1. deild þá hlýtur
Axel Axelsson, þjálfari liðsins, að leggja
megináherzlu á þennan veikleika.
Þegar frá upphafi var mikill hraði í
Höllinni. Bæði lið léku á fullu frá upp-
hafi og það var engin lognmolla. Jafn-
ræði var með liðunum — jafnt á öllum
tölum upp í 9-9. En þá kom slæmur kafli
HK — eins og raunar oftar í vetur. Rétt
eins og leikmenn missi einbeitinguna og
Fram skoraði þrjú síðustu mörk fyrri
hálfleiks.
Fram komst síðan í fjögur mörk yfir,
15-11, en með mikilli baráttu, þar sem
hver einasti leikmaður HK hvatti hver
annan, jöfnuðu þeir, 17-17, og náðu for-
ustu á 21. minútu, 19-18, með marki —
jú, hvers annars en Karls Jóhannssonar.
Theódór Guðfinnsson, er i haust gekk úr
Breiðabliki í Fram og hefur sýnt gífur-
legar framfarir, jafnaði 19-19. Stefán
Halldórsson kom HK enn yfir, 20-19, en
tvö mörk Fram fylgdu, 21-20 og þrjár
mínútur eftir. Ragnar Ólafsson jafnaði
er tæpar tvær mínútur voru eftir, 21-21.
Fram með knöttinn og þegar rétt mínúta
var eftir fiskaði Birgir Jóhannsson víti.
Gústaf Björnsson skoraði af öryggi.
Sekúndurnar tifuðu hver af annarri en
ekki fann HK glufu í vörn Fram. Er
tvær sekúndur voru eftir skaut Karl
Jóhannsson, aðþrengdur úr erfiðri
stöðu, en skot hans fór i stöng — í raun
vel gert hjá Karli en gæfan brosti ekki
við honum. Fram hreppti því dýrmæt
stig — 22-21.
Fram er framtíðarlið — að stofni til,
skipað ungum leikmönnum er sannar-
lega eiga framtíðina fyrir sér. Atli
Hilmarsson og Gústaf Björnsson eru þar
fremstir en einnig Birgir Jóhannsson og
Theódór Guðfinnsson, sem hefur komið
skemmtilega upp í síðustu leikjum. Með
þeim eru þeir Sigurbergur Sigsteinsson
og Pétur Jóhannsson er skapa kjölfest-
una i vörninni. Það er bjart frani undan
hjá Fram, aðeins spurning hvernig tekst
til að vinna úr þessum mannskap. Þá
mun Hannes Leifsson væntanlega leika
með Fram næsta vetur. Ef vel tekst til
mun Fram skipa sér aftur á bekk meðal
þeirra beztu á íslandi — og auðvitað á
Fram hvergi annars staðar heima i ís-
lenzkum handknattleik.
HK hefur ekki yfir sömu kjölfestu að
ráða og Fram né jafn glæsta sögu. En
þau rúmlega tiu ár síðan HK var stofnað
hafa sannarlega verið glæst og nú sæti i
1. deild. En HK vermir botnsætið og
fyrst og fremst vegna þess að liðið
skortir dýrmæta reynslu. Varnarleikur-
inn er í molum, leikmönnum hættir til
að missa einbeitingu. í sókninni ber oft á
skemmtilegum töktum, og í gærkvöld
flestum í kringum Stefán Halldórsson er
vissulega sómdi sér vel í íslenzka lands-
liðinu. Eini landsliðsmaður HK, Hilmar
Sigurgíslason, var óvenju atkvæðab'till.
Það vakti furðu mína, að hann var
lengst af látinn spila inn á linu og eins
hve lengi hann vermdi varamannabekk-
ina. Þar er einnig skemmtilegur leik-
maður, sem áreiðanlega er hægt að ná
meir úr.
Mörk fram skoruðu: Atli Hilmarsson
7, Gústaf Bjömsson 4, 2 víti, Theódór
Guðfinnsson 5, Pétur Jóhannsson og
Sigurbergur Sigsteinsson 2, Erlendur
Davíðsson og Birgir Jóhannsson 1 mark
hvor. Mörk HK: Stefán Halldórsson 12,
3 víti, Jón Einarsson, Ragnar Ólafsson
og Hilmar Sigurgíslason 2 hver. Berg-
steinn Þorsteinsson, Kristinn Ólafsson
ogKarl Jóhannsson 1 markhver.
Þeir Valur Benediktsson og Jón Her-
mannsson dæmdu leikinn.
- H Halls.
(AHH
Sjálfsmark
La Louviere
— rændi liðið stigi gegn
einu af efstu liðunum
í Belgíu, Molenbeek
„Þetta var mjög gott stig, sem við
hlutum i Briissei gegn Molenbeek. Eng-
inn hafði gefið La Louviere hina minnstu
möguleika gegn einu af toppliðum deild-
arinnar á útivelli — og svo vorum við
mjög óheppnir að hljóta ekki bæði
stigin,” sagði Þorsteinn Bjarnason,
landsliðsmarkvörður úr Keflavik, þegar
DB ræddi við hann i Belgiu i mrogun.
Molenbeek náði jafntefli 1—1, þegar
einn leikmaður La Louviere skallaði
knöttinn f eigið mark nokkrum minútum
fyrir leikslok.
„Það var grátlegt að fá þetta mark á
sig. Molenbeek fékk aukaspyrnu og
knötturinn stefndi beint í fangið á mér,
þegar einn varnarleikmaður La Louviere
greip inn í. Ætlaði að skalla knöttinn i
hom en tókst ekki betur til en knöttur-
inn flaug í markið. Breytti um stefnu svo
ég gat ekki komið neinum vörnum við.
Það var grátlegt og mikil óheppni að
hljóta ekki bæði stigm,” sagði Þorsteinn
ennfremur.
„Það er greinilegt að allt er að breyt-
ast til hins betra hjá La Louviere. Við
náðum forustu i leikum snemma í síðari
hálfleik, þegar belgíski landsliðsmaður-
inn Dardenne skoraði mjögfallegt mark.
Og þannig stóð þar til sex mínútum fyrir
leikslok að Molenbeek jafnaði. Karl
Þórðarson lék siðari hálfleikinn og átti
ágætan leik — betri en í fyrsta leiknum
gegn Courtrai. Kalli byrjaði ekki þar
sem þjálfarinn Leon Semmling vildi hafa
sína leikreyndustu leikmenn með — en
Semmling hefur mikið álit á Karli og ég
hef trú á því að hann hafi tryggt sér sæti
i liðinu með leik sínum í gær. Hann er að
ná upp hraðanum og úthaldinu. Það er
auðvitað erfitt fyrir mig að dæma um
eigin leik. Ég er þó á þvl að þetta sé einn
albezti leikur, sem ég hef leikið. Kominn
í miklu betri æfingu en nokkru sinni fyrr
— gripin mjög góð,” sagði Þorsteinn
ennfremur.
Sporting að ná
Real Madrid
Jón Pétur reyndist FH-ingum erfiður i gær
— skoraði átta mörk, fimm úr langskotum, sumum langt utan af velli.
DB-mynd Hörður
ÓliBi
vam
— Stórsnjö
Snjöll markvarzla þeirra Brynjars
Kvaran og Ólafe Benediktssonar fleytti
íslandsmeisturum Vals yfir erfiðan
þröskuld f gær i 1. deildinni I handknatt-
leiknum. Valur sigraði þá FH í Hafnar-
firði með fjögurra marka mun, 20-16,
eftir að Ólafur Benediktsson hafði varið
fimm vitaköst FH-inga i leiknum. Mark-
varzia Óla Ben. var svolítið sveiflugjörn i
gær. Hann lék fyrstu sautján minúturnar
i marki Vals — og var óvenju slakur.
Varði þó eitt víti frá Geir Hallsteinssyni
— og svo kom Brynjar Kvaran i mark
Úrslit i 1. deild á Spáni í gær urðu
þessi:
Zaragoza—Sporting 1-0
Sociadad—Celta 1-0
Vallecano—Recreativo 1—1
Sevilla—Burgos 1—1
Racing—Bilbao 1-1
Valencia—Las Palmas 3-1
Salamanca—Barcelona 1-0
Real Madrid—Hercules 0-0
Staða efetu hða:
Real Madrid
Sporting
Sociadad
Atl.Madrid
Sevilla
Las Palmas
irz
is