Dagblaðið - 01.03.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979.
3
„Kosningasvikin”:
Athugasemd við frétt
DB af aðalfundi NLFR
Bjarni Kjartansson skrifar:
Það stakk mig óneitanlega að sjá
birta mynd af mér í DB þann 26.2.
þar sem sterklega er gefið í skyn að ég
hafi staðið í kosningasvindli á aðal-
fundi NLFR í Háskólabiói síðastlið-
inn laugardag því þótt nafns míns
hafi ekki verið getið þá segir þekkjan-
leg ljósmynd sína sögu. Sé ég mér
ekki annað fært en að gera athuga-
semdir og leiðréttingar við þennan
fréttaflutning. í greininni er því hald-
ið fram að ungur maður hafi rétt
konu bunka af seðlum í fatahenginu
sem líktust atkvæðaseðlum. Og
síðar: „Upp úr miðjum fundi gerð-
ist svo sú tilraun til kosningasvika
sem lýst var hér að framan.” Það er
jú rétt að fyrir fundinn afhenti ég
ungri konu, sem ég er vel kunnugur,
blaðsnepla í fatahenginu en þeir voru
alls óviðkomandi málefnum NLFR.
Þykir mér ekki sæmandi blaðamanni
að fleipra svo án þess að hafa nokkuð
fyrir sér í málinu.Líklegt þykir mér að
konan, sem stakk nokkrum seðlum i
kjörkassann, sé sizt of ánægð með að
fá mynd af sér á forsíðu blaðsins
undir yfirskriftinni: „DB Ijósmynd-
aði kosningasvikin”. Það kom í ljós
eftir fundinn að málið er í raun þann-
ig vaxið að nokkrir einstaklingar
söfnuðu saman atkvæðaseðlum fé-
laga sinna og spöruðu þeim sporin.
Er það í hæsta máta eðlilegt því kjör-
kassinn blasti við almenningssjónum
fyrir neðan sviðið og fundarstjóra
hafði láðst að tilkynna hvenær kosn-
ing til landsfundar NLFÍ skyldi fara
fram! í stuttu máli sagt, þá hefur
ekki verið sýnt fram á að kosninga-
Hljómsveitin Viliage People:
„Þorparar” ekki góð þýðing
9642—7980 skrifar:
Að undanförnu hef ég orðið var
við að nafnið á bandarísku hljóm-
sveitinni Village People hefur verið
þýtt yfir á íslenzku sem Þorpararnir.
Þetta er misskilningur sem mig lang-
ar til að leiðrétta. Hljómsveitin
dregur nafn sitt af borgarhluta í New
York sem heitir Greenwich Village
og er þekktur um öll Bandaríkin og
jafnvel víðar fyrir að íbúarnir þar
eru að yfirgnæfandi meirihluta
homosexualt fólk. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru allir frá þessu hverfi
og eru hver fyrir sig fulltrúi
ákveðinna stétta í þjóðfélaginu, það
er að segja stétta sem venjulega eru
ekki settar í samband við
homosexualt fólk t.d. herinn, verka-
menn, lögreglan eða kúrekar. Þetta
gera þeir til að leggja áherslu á að
„homrna” er að finna í öllum starfs-
greinum og þjóðfélagshópum, en
ekki bara meðal hárgreiðslumanna
og ballettdansara. Þetta sést ljóslega
ef athugaður er klæðaburður hljóm-
sveitarmeðlimanna. í nöfnum og
textum laganna sem hljómsveitin
hefur gert fræg kemur þetta jafnvel
enn betur í Ijós. Samanber San
Fransisco og Hollywood sem þekktar
eru fyrir háa hlutfallstölu „homma”
meðal íbúanna, Fire Island, sem er
einn vinsælasti sumardvalarstaður
„homma” í Bandarikjunum. Village
People, sem skýrir sig sjálft, Macho,
sem þýðir karlmannlegur karlmaður,
Cruiser, sem þýðir hér að vera á
veiðum eða að „pikka” upp og
Y.M.C.A., en víða um heim má
finna gististaði með þessu nafni sem
eingöngu eru ætlaðir karlmönnum,
eins og Y.W.C.A. er eingöngu
ætlaðir kvenmönnum. (Y.M.C.A.
stendur fyrir K.F.U.M. og Y.W.C.A.
stendur fyrir K.F.U.K.) Eini textinn
sem ekki fjallar um karlmenn er í
laginu I love the women, (Who know
they are women), en það lag er
tileinkað ýmsum af þeim leik- og
söngkonum, sem hafa verið í miklu
uppáhaldi meðal „homma” í Banda-
ríkjunum, t.d. Barbara Streisand,
Betty Davis, Judy Garland, Carol
Channing, Gloria Gaynor, Dianna
Ross eða Lisa Minelli, svo eitthvað
sé nefnt.
Ef þið endilega þurfið að snúa
nafninu yfir á islenzku ráðlegg ég
ykkur að finna eitthvað meira viðeig-
andi, sjálfum finnst mér ekkert
athugavert við að kalla þá einfaldlega
Village People. Með þökk fyrir
birtinguna.
svindl hafi átt sér stað en Dagblaðið
þykist þess megnugt að sýna hvernig
svindlið hafi farið fram og birtir
myndir af þeim einstaklingum sem i
því eiga að hafa staðið. Þokkaleg
blaðamennskaþað.
Fleira má tína til þessum frétta-
flutningi til hnjóðs. Lengst af fund-
arins sat Ijósmyndari Dagblaðsins
skammt frá mér á fremsta bekk.
Hann vakti athygli mína á því að þær
fáu manneskjur sem komið höfðu að
kassanum, höfðu sumar stungið álit-
legum bunka af seðlum í kassann. Að
vonum brá mér nokkuð ónotalega i
fyrstu og hélt að um kosningasvindl
gæti verið að ræða. Það fyrsta sem ég
gerði var að koma boðum um þetta
til Jóns Gunnars Hannessonar stjórn-
armanns, sem síðan gerði fundar-
stjóra viðvart. Það er því þokkaleg
mótsögn að ég hafi siaðið i meintu
svindli frammi í anddyri og gert hlut-
aðeigandi aðilum viðvart síðar. En
það er náttúrlega hægur leikur að
dylja allar mótsagnir með þvi að
þegja um þá hluti sem stinga í stúf við
það sem haldið er fram. Ég ætla nú
ekki að hafa þetta lengra en vil þó
benda á eitt í lokin. Viðkomandi
grein í Dagblaðinu er undirrituð JK
og vita þeir sem vita vilja að þar
skrifar Jónas Kristjánsson. Ég ætla
mér sizt að fara að setja út á Jónas
persónulega þótt mér þyki skrif hans
ekki bera honum vel söguna. Fn
Jónas stendur í tengslum við þau öfi í
NLFR sem hvað hörðust eru í and-
stöðunni gegn „unga fólkinu” og fer
öruggum heimildum af því að stinga
hafi átt upp á honum í framboð. í
Ijósi þessa verður því að skoða skrif
Jónasar um málið, sem eru vægast
sagt einsýn og hleypidómafull.
L
'wmr
Ulnc-oíc-lun*
flítrtrlciluu*
ER ÞAÐ SEM VIÐ BJOÐUM GESTUM OKKAR UPP A I KVOLD
I örit itntouii
Hefur stundaö nám í klassískum
gitarleik við LICEO óperuna í
Barcelona undanfarin ár.
Hann hefur haldið tónleika bœði
hér heima og á Spáni, og hlotið
mikið lof fyrir leikni sína
I kvöld gefst gestum ÓÐALS
kostur á að sjá og heyra þennan
unja og mjög svo efnilega
listamann.
1 \ ÍÍ J Hann kemur í heimsokn í CLUB1.
LOGGINS & MESSINAOG
BROWNSVILLE STATION
verða á videoskerminum
íPertthúsíð
VERÐUR MEÐ SÍNA VINSÆLU
KAFFIDRYKKI A BOÐSTOLUM
Heiða Gylfadóttir: Já, ég fékk bollur
og finnst þær góðar. Ég borðaði yfir
mig.
Spurning
dagsins
Fékkstu bollur
á bolludaginn?
Slcriðnr Sóley Guðnndóltir: Já, ég fék k
bollur, en ég fékk samt enga magapinu.
Hulda Aradótlir: Já, ég fékk bollur, en
mig langar ekki í fleiri núna. Nei, ég
fékk enga magapínu.
Narfi Rúnarsson: Nei, ég fékk engar
bollur heima hjá mér.
Sigurður Daníelsson: Já, ég fékk boll-
ur. Nei, bara eina og finnst þær ekkert
góðar.
Fidel Helgi: Já, ég fékk bollur en bara
eina hérna á barnaheimilinu á bollu-
daginn. Svo fékk ég 4 bollur heima hjá
mér daginn áður.