Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR l.MARZ 1979.
Fjðr í Rfó
A.m.k. 30 manns voru myrtir og 27
drepnir í umferðarslysum á fjögurra
daga kjötkveöjuhátíð i Río de
Janeiro, en hátiðinni lauk í gær.
BAZARGAN HÓTAI?
AÐ SEGJA AFSÉR
— láti róttækir og trúarsinnar ekki af andstöðu sinni
Mehedi Bazargan forsætisráðherra
írans, sem aðeins hefur verið tvær
vikur við völd, hefur hótað afsögn, ef
bæði róttækir hópar og trúarhópar
láti ekki af andstöðu sinni. Báðir
þessir hópar ásamt fleirum stóðu að
þvi að fella keisarann, en siðan hefur
samkomulagið ekki verið upp á
marga fiska.
í útvarpsávarpi gagnrýndi Bazarg-
an aðstoðarráð Ayatollah
Khomeinys, en það var Khomeiny,
sem útnefndi Bazargan forsætisráð-
herra. Þá gagnrýndi hann og aðgerðir
róttæklinga allt frá því að keisaran-
um var steypt.
Styrkur hinnar nýju stjórnar
kemur í Ijós á næstu dögum. Þá sést
hvort hægt verður að hefja oliuút-
flutning á nýjan leik, en efnahagur
írans byggist að miklu leyti á olíuút-
flutningi. Hinn 30. marz nk. verður
síðan atkvæðagreiðsla meðal þjóðar-
innar um það hvort upp skuli tekið
lýðveldi múhameðstrúarmanna. Líf
stjórnarinnar byggist á úrslitum þess-
ara mála.
Börn bak við rimla i Auschwitz. Fæst þeirra sluppu þaðan lits.
H0L0CAUST RYFUR ÞOGNINA
Bandariski sjónvarpsþátturinn Holo-
caust hefur vakið mikil viðbrögð og
umræður viða um heim þar sem þáttur-
inn hefur verið sýndur. Þátturinn fjall-
ar um hryðjuverk nasista á stríðsárun-
um og blómatíma þriðja ríkisins.
Nú er verið að sýna þáttinn i Dan-
mörku og er umræðuþáttur fyrirhug-
aður í sjónvarpinu á eftir hverjum
þætti. Umræðuþáttur verður í kvöld,
föstudagskvöld, laugardagskvöld og
sunnudagskvöld.
Norsk yfirvöld höfðu ákveðið að
þátturinn yrði ekki sýndur þar í landi,
en breyttu síðan ákvörðun sinni. Þá er
verið að sýna framhaldsþáttinn i V-
Þýzkalandi og hefur hann vakið mikla
umræðu. Þar hefur sú þögn er umlukið
hefur hryðjuverk þýzkra nasista á
stríðsáarunum verið rofin. Margir eldri
Þjóðverjar sjá nú nakinn sannleikann
um Auschwitz og útrýmingarbúðirnar í
fyrsta sinn.
WrnlÁTrA
Sýningarsaíur
Togund Arg. Verð
Rat 132 GLS 78 3.900 þús.
Fíat 132 GLS. 77 3.500 þús.
Rat 132 GLS 76 2,900 þús.
Rat 132 GLS 75 2.300 þús.
Rat132 GLS 74 1,800 þús.
Bronco '66 1.550 þús.
Lada station 74 1.050 þús.
Nova 74 2.350 þús.
Mazda 818 76 2.500 þús.
Rat 131 Sp. ■77 2.800 þús.
Fíat 131 Sp. 76 .300 þús.
Rat 131 Sp. station II 3.400 þús.
Rat 128 CL 77 2.450 þús.
Rat 128 Sp. 76 2.000 þús.
Rat 128 75 1,200 þús.
Rat 128 74 900 þús.
Wagoneer '66 1.500 þús.
Skoda Amigo 77 1.450 þús.
Cortina 71 900 þús.
Toyota Corolia 77 3.100 þús.
Rat 127 CL 78 2.400 þús.
Rat127 77 1.900 þús.
Rat .127 Sp. 76 1,700 þús.
Fiat 127 76 1.550 þús.
Rat127 74 900 þús.
Rat 125 P station 78 2.000 þús.
Rat 125 P station 77 1.850 þús.
Fiat 125 P 78 7 ogp þýs
Fiat 125 P 77 1.700 þús
Rat125 P 76 1.550 þús.
// FlAT EINKAUMBOO A ISLANDI //1
// DAVÍÚ SIGURÐSSON hf. // 1
#/ BlOUMULA 38. SlMI B8SBB. /# 1
Ltt-"" ’ 1
Kosningar á Spáni í dag:
Suarez spáð naumum sigri
Spánverjar ganga til kosninga í dag
til þess að ákveða hver fari með
stjórn landsins næstu fjögur ár.
Skoðanakannanir benda til þess að
fylgi stjórnarflokksins, miðdemó-
krata, sé mjög svipað fylgi stjórnar-
andstöðuflokksins, sósialíska verka-
mannaflokksins. Þar takast á Adolfo
Suarez forsætisráðherra og foringi
stjórnarandstöðunnar Felipe Gonzal-
es.
Munurinn er þó heldur Suarez í vil,
en ólíklegt þykir að annar flokkurinn
fái hreinan meirihluta eða 176 sæti af
350 í þinginu.
Miðdemókratar höfðu 158 sæti á
þingi, en sósíalíski verkamannaflokk-
urinn 125 sæti. Bæði Suarez og
Gonzales hafa lagt áherzlu á það að
flokkar þeirra þyrftu að ná meiri-
hlutafylgi í kosningunum, en í einka-
viðtölum hafa þeir báðir viðurkennt
að ólíklegt sé að svo fari.
Flestir stjórnmálasérfræðingar
telja að flokkur Suarez vinni nauman
sigur, þannig að hann komi til með
að mynda samsteypustjóm með litl-
um flokki á þingi.
Kosningaspjöld í Madrid til stuönings Suarez.
ídag
OPNUM VIÐ Á NÝJUM STAÐ
SÍÐUMÚLA 20
Gluggatjaldaefni,
áklæði,
teppi, húsgögn, lampar
eldhúsinnréttingar
Bandaríkin: ■ ■
Hótun gegn Israel? ICpCll hft
Haft var eftir Moshe Dayan utan-
ríkisráðherra ísraels í gær, að Carter
Bandaríkjaforseti hefði sett ísraels-
mönnum og Egyptum þá kosti, að ef
þjóðirnar næðu ekki samkomulagi um
friðarsamning innan tíu daga, myndi
Bandaríkjastjórn endurskoða afstöðu
sína til ríkjanna í Mið-Austurlöndum.
Talsmaður Carters forseta neitaði
þegar þessum fréttum en spurði jafn-
framt hvort Dayan hefði látið sér þetta
um munn fara. Fulltrúar á ísraelska
þinginu, Knesset, sögðu þetta hótun
Bandaríkjastjórnar gagnvart ísrael.
Dayan utanríkisráðherra gerði grein
fyrir því að hann hefði sagt varnar-
málanefnd þingsins frá þvi að mögu-
leiki væri á því að ísraelsmenn fengju
ekki að vita um nýja stefnu Banda-
ríkjamanna í löndum fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Sími 36677
Opið kl. 10—18. — Opið í hádeginu.
Opið á laugardögum kl. 10—12.