Dagblaðið - 01.03.1979, Side 17
DAGBLAÐIÐ
Þóll Þorgerður Ingólfsdótlir sé kunnust fyrir stjóm sína á Hamrahliðarkórnum er starf hennar að tónlistarmálum
niklu víðtækara. Hún kennir tónfræði og tónlistarsögu við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar skipuleggur hún I vetur
tvö meiriháttar námskeið erlendra tónlistarmanna. Á þvi fyrra var Gerad Souzay söngvari og á því seinna, nú í apríl,
verður Willy Tráder kórstjórnandi frá Hannover.
Ennfremur hefur hún skipulagt tvö sumarnámskeið í nýrri tónlist og það þriðja, sem verður í sumar. Þá verður
nemendum erlendra tónlistarskóla i fyrsta sinn gefinn kostur á að verða þátttakendur. Kennari er heimsfrægur
fiðluleikari, Paul Zukovsky, og virðast þessi námskeið vera vísir að þeim tónlistarháskóla í landinu sem marga dreymir
um.
Á vegum Sinfóníuhljómsveilar íslands hefur Þorgcrður serið úGkýrandi og kynnir á fjölskyldutónleikum.Árið 1974
var hún ein af átta ungum kórstjórnendum, sem boðið var að stjórna í l.incoln Center i New York. Og fyrir nokkrum
dögum hringdi norska sjónvarpið til að biðja hana að syngja islenzk þjóðlög fyrir Norömenn — en óvíst er hvort hún
getur gefið sér tima til að taka þvi boöi.
„Þcgar maður hefur einu sinni
fengið kórbakteriuna losnar maður
aldrei við hana aftur,” segir Þor-
gerður Ingólfsdóttir.Hún stóð sjálf
varla út úr hnefa, þegar hún fór að
syngja i kór. Nú hefur hún stjórnað
menntaskólakórnum í Hamrahlíð í
12 ár og náð svo góðum árangri að
hann hefur hlotið upptöku í heiðurs-
samtök ungra kóra i Evrópu og er
boðið að syngja á mikilli hátíð
— Evrópa Canta — í Luzern i Sviss
næsta sumar. Reyndar hefur kórinn
sungið næstum árlega erlendis —
lengst komizt til ísrael — og er rétt
búinn að gefa út sína fyrstu — en
varla seinustu — plötu.
Þetta er góður árangur ekki sízt
þegar þess er gætt, að árlega hverfa
margir nemendur úr skólanum og þar
með kórnum — og nýir og óvanir
koma i staðinn.
,,Það er rétt eins og það væru
klipptir allir fingurnir af hljóðfæra-
leikara og hann þyrfti að biða þess
að þeir yxu fram aftur,” segir Þor-
gerður. Hún heldur áfram:
,,Krakkarnir koma á æfingar urn
fimmleytið. Svöng, þreytt eftir að
vera i skólanum frá því klukkan átta
um morguninn, flest að deyja úr of
mikilli eða of lítilli ást. Þau leggja frá
sér skólatöskurnar, fara að baksa við
að ná hreinum tón í einhverju litlu
VÍTAMÍN
FYRIR
SÁLINA
rætt við Þorgerði Ingólfsdóttur,
sem hlaut Menningarverðlaun DB
stað fyrr en allir hafa heyrt í okkur!
Við skulum vona að þeir hafi eins
gaman af því og við!"
Að sjálfsögðu syngur kórinn við
brautskráningu nentenda og
Þorgerður hefur frá upphafi haft
þann sið að fá eitthvcrt islenzkt
tónskáld til að semja verk sérstaklega
fyrir kórinn í hvert skipti. Fer það að
verða dágott söngvasafn.
Hún er einnig kunn að þvi að vclja
fjölbreytta dagskrá. Á einum og
sömu tónleikum geta verið vísur
Vatnsenda-Rósu, amerískir negra-
sálmar, spánskir madrigalar frá 16.
öld og ný verk, t.d. eftir Þorkel
Sigurbjörnsson eða Pál Pampichler.
Eitt lag hefur kórinn þó tekið sér-
stöku ástfóstri við, en það er „Vér
lyftum hug í hæðir” eftir gamla
Bach (þýtt af' Böðvari Guðmunds-
syni). Og það eru hátiðlegar stundir,
þegar gamlir kórfélagar i áheyrenda-
hópi rísa upp og taka undir þetta lag
á opinberum tónleikum.
Margir af beztu raddntönnunum i
reykvískum kórum ráku upp sitt
fyrsta bofs undir stjórn Þorgerðar i
Hamrahlíð — og byrjuðu þó sumir
hálfnauðugir, sérstaklega fyrstu árin.
Einn þeirra segir: ,,Það þurfti ntarga
hesta til að tosa mér til þess að vera
með, en nú þyrfti jarðýtur til að
draga mig burt.”
Viltu litla stúlku?
Þorgerður er dóttir Ingólfs
Guðbrandssonar, stjórnanda Póly-
fónkórsins og hún á fjórar yngri
systur, Rut, Vilborgu, Unni Maríu og
Ingu Rós, sem allar spila forkunnar-
vel á hljóðfæri. „En langmesti lista-
maðurinn af okkur öllum er hún
mamma mín,” segir Þorgerður.
,,Hún er bjargið sem allt hvílir á.”
Foreldrar hennar skildu mcðan
dæturnar voru ungar og eins og oft
vill verða i slíkum tilvikum lcnti
uppeldi dætranna mest á móðurinni,
Ingu Þorgeirsdóttur. „Hún er
uppalin á Skeiðunum, sem þá voru
lengra frá Rcykjavik — og þar með
möguleikum til músíknáms — heldur
cn New York er i dag. En hún hefur
lagt þeim mun harðara að sér til að
við systurnar fengjum að læra.
Ég byrjaði í tónlistarnámi hjá
Róbert A. Ottóssyni, svo lítil, að
hann leiknaði litlar ntýs i nóturnar til
þcss að ég skildi þær betur. Árin liðu
og ég lauk prófi frá Tónlistar-
skólanum og seinna í tónvísindum
frá háskólanum í lllinois. Og alltal
vorunt við Róbert perluvinir. Þegar
ég kom heirn frá námi og vissi ekki
enn hvað ég ætti að taka mér fyrir
hendur vildi hann endilega að ég
gerði eitthvað ,,alveg sérstakt”. Ég
gleymi því ekki þegar hann tók upp
sintann, hringdi i Guðmund
Arnlaugsson, rektor i Hamrahlíð, og
spurði: „Mundi þér ekki finnast
gaman að fá litla stúlku til að gera
eitthvaðskemmtilegt í skólanum?”
Jú, það fannst Guðmundi og upp
úr þvi fæddist kórinn, sem rektor
hel'ur alla tíð síðan stutt með ráðum
og dáð, öllum hugsanlegum ráðum
og farið með i fiest söngferðalögin.
Litla stúlkan reyndist vel, en eins
og hún segir: „Mér finnst þetta bara
svo ógurlega gaman sjálfri.
Það er ólýsanleg tilfinning, sem
fylgir þvi að syngja mörg saman —
cins og allir renni saman i eina sál og
krakkarnir eru alveg yndislegir, cn
auðvitað er þetta feikileg vinna, sem
leggst ofan á kennslu mína við
Tónlistarskólann. Það má segja, að
ég sé gift kórnum. Ef ég ætti mann,
sem biði heima eftir inniskóm og
kjötsúpu, þá gæti ég þetta aldrei.”
-IHH.
fyrir tónlist
„Tökum þella aðeins aflur" — Þor-
gerður hællir ekki fyrr en hver lónn
er orðinn engil hreinn.
lagi og þá cr eins og þú lyftist upp.
Söngur er nefnilega eins og vitamín
fyrir sálina.”
Fyrsta bofsið
Þessi kór lokar sig ekki inni í
skólanum. Stundum fer hann
syngjandi unt göturnar í
höfuðborginni. Oft — og þó einkum
fyrir jólin — syngja krakkarnir á
Hrafnistu, Kleppi, Vífilsstöðum og
öðrum líknarstofnunum í ná-
grenninu. Og út á land hafa þau farið
margar ferðir. „Þá syngjum við í
frystihúsum, sláturhúsum, kirkjum
og félagsheimilum,” segir stjóm-
andinn. „Við förum ekki af neinum
Inga Huld
Hákonardótlir
17
N
í aðalkórnum eru um fimmtiu nemendur. Þau voru mjög áhugasöm og vildu helzt ekki þurfa að gera hlé á æfingunni vegna heimsóknar Ijósmyndara
DB-myndir Hörður,
■MP A m -v.«j \ . if1 . .
• ||pH P&K |f| ?wl™M WWm n
w 1 K J iiy ■ fímh
f ■ g|jj 'ÆgjtiH t . MW- m 1
1 HpBwwl Ní -v W &£ ,Æ 'ft W****||
r Ik'rM I ifM sSStf 1 WmMls ' iÆf ■ ■Æ jmL J mk. '