Dagblaðið - 01.03.1979, Side 19

Dagblaðið - 01.03.1979, Side 19
DISKÓ! DISKÓU DISKÓ!!! DISKÓ!!!! Saturday Night Fever dansar. Greasedansar. Billjantín. Diskótek. Diskódanskeppni. Þetta eru hlutirnir sem líf fjölmargra islenzkra unglinga snýst i kringum þessa dagana. Gamla fólkið með síða hárið er bara frat og helvitis hippar. Nú eiga allir að líkjast sem mest honum Jóni Travolta og Ólafíu. Þá eru þeir töff. Tvær kvikmyndir, Grease og Satur- day Night Fever, hafa valdið hugar- farsbreytingu hjá fjölda unglinga. Einna mest áberandi er viðhorf þeirra til dansins. Til skamms tíma voru það bara stelpustrákar sem fóru i dans- skóla. Nú eru skólamir fullir út úr dyr- um. Og ótrúlega mikill fjöldi þeirra, sem sneri sér undan í hryllingi við það eitt að líta dansgólf augum fyrir nokkr- um mánuðum, er nú kominn út á sama gólf og virðist skemmta sér prýðilega. Þjóðkunnur maður, Ingólfur Guð- brandsson forstjóri, sagði í ræðu fyrir nokkrum dögum að þegar frá liði myndu menn minnast ársins 1979 sem árs dansins. Það er áreiðanlega margt til í þeim orðum. Diskótekin hafa mætt þessum sí- aukna dansáhuga á miðri leið og efna nú mörg til keppni i fótmenntinni. Klúbburinn reið á vaðið með maraþon- danskeppni para. Þar sýndi fjöldi ungl- inga mikla elju og dansaði timunum saman. Nokkru síðar gekkst æskulýðs- staðurinn Dynheimar á Akureyri fyrir maraþondanskeppni einstaklinga þar sem stór hópur stóð sig með mestu prýði. Veitingahúsið Óðal og dagblaðið Vísir efndu til íslandsmeistarakeppni einstaklinga í diskódansi sem stóð í margar vikur. Lokapsretturinn í þeirri keppni vakti svo mikla athygli að færa varð hann í eitt stærsta samkomuhús landsins, Háskólabíó. Nú stendur yfir á vegum Klúbbsins og ferðaskrifstofunn- ar Útsýnar diskódanskeppni para og hópa. Og þann 11. marz fer fram is- landsmeistarakeppni unglinga í diskó- dansi einstaklinga, para og hópa. Hátt á annað hundrað unglingar hafa látið skrá sig til þessarar keppni. Ekki fer hjá því að þessi hugarfars- breyting ungs fólks til dansins kalli á skipulagsbreytingar veitingahúsa. Dansgólfin, sem viðast hvar hafa verið allt oflitil, eiga núaðstækka til muna. Óðal hefur þegar látið breyta sínu gólfi og til stendur að stækka eitt af dans- gólfum Klúbbsins um helming. Hálf- gert neyðarástand skapast í Hollywood um helgar þegar sem flestir vilja fá sér iJOHN TRAVOLTA — gæinn msern öllu kom af stað. Með ^Haðalhlutverkum sínum í Satur- ^H|day Night Fcvcr og Grease er ÆHshann orðinn fyrirmynd ungra ^^■manna á aldrinum fimm til yjHSfimmtán ára. Innflytjendur ■^Bbrilljantíns mættu að skaðlausu Hliciéra piltinn fyrir að varningur Hþeirra er nú loksins farinn að lseljast aftur. snúning í einu og þannig er ástandið áreiðanlega víðar. Heiðar Ástvaldsson danskennari hefur bent á það árum saman að dansgólf skemmtistaða séu allt of lítii. Hann talaði alltaf fyrir daufum eyrum — þar til nú. Erlendis berast fregnir af því að sama þróunin eigi sér stað. Vinsælustu lögin í Englandi og Bandaríkjunum eru nú diskólög. Gamlar rokkstjörnur hafa margar hverjar aðlagað sig þessu breytta hugarfari og eru nú farnar að syngja diskó. Sem dæmi um slikar stjörnur má nefna Rod Stewart, Rick Wakeman, Herbie Mann, Mike Old- field og hljómsveitirnar Rolling Stones og Blondie. íslenzkir tónlistarmenn fara sér hæg- ar í sambandi við diskótónlistina. Margir hverjir hafa þeir á henni djúpa fyrirlitningu, . líkt og brilljantingæjar ársins 1963 hötuðust við Bítlana, Roll- ing Stones og allt það síða hár og árás- arkenndu tónlist sem þeim fylgdi. Dæmið hefur gjörsamlega snúizt við. -ÁT- Annað paranna tveggja sem sigraði i Klúbbkeppninni síðasta sunnunagskvöld. Þau heita Sigurður Einarsson og Fanney Gunnlaugsdóttir. Hin Ivö, sem kom sl u- fram í lokabaráttuna, eru Reynir Kristinsson og Ragnheiður Lára Hanson. * I il hægri er einn dansarinn úr flokki Heiðars Ástvaldssonar sem sigraði i hóp- keppninni. DB-myndir RagnarTh. Styrkið og fegriö líkamann Ný 4ra vikna námskeið hefjast 5. marz FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi. MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun — mæling — holl ráð. SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Innritun og upplýsingar aiia virka daga kl. 13—22 ísíma 83295. Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd. \ 0 ) JúdódeiidArmanns Ármúia 32.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.