Dagblaðið - 02.03.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
HEIMILISLÆKNIR SVARAR
Getur „sprengipilla” bjargað
frá skyndidauða?
K.T.H.spyr:
Nú getur snöggt kransæðakast
valdið ótimabærum dauða. Væri
hugsanlegt fyrir heilbrigða að ganga
með tungurótar„pillu” á sér sem var-
úðarráðstöfun, ef þeir sjálfir eða ein-
hver nærstaddur fengi slíkt kast? Ég
hef sjálf verið nærstödd, þar sem
sjúklingur fékk slíkt kast og náði
ekki lifandi til læknis. Þess vegna
langar mig að spyrja hvort þessi svo-
kallaða „sprengipilla” gæti komið
aðgagni í slíkum tilvikum.
Svar:
Skyndidauði í svona tflvikum or-
sakast yfirleitt af bráðu drepi í
hjartavöðvanum og meðfylgjandi
hjartsláttartruflunum. Á slík fyrir-
bæri verkar nítróglýcerin („sprengi-
pilla”) ekki, þótt það dugi vel gegn
brjóstverkjum, sem stafa af hjarta-
öng, þ.e. súrefnisskorti i hjartavöðv-
anum. Það verkar þannig á krans-
æðaköst sem stafa af þröngum
kransæðum, svo fremi sem ekki sé
komið, eða yfirvofandi, drep i vöðv-
ann.
Nítróglýcerin veldur oft tals-
verðum höfuðverk, svima o.fl.
óþægindum, þannig að gild ástæða
þarf að vera til töku þess. Niður-
staðan er því sú að sprengipillur komi
ekki í veg fyrir skyndidauða og þar
sem þær þar að auki valda óþægileg-
um aukaverkunum sé ekki gagnlegt
að nota þær eins og þú stingur upp á.
í því sambandi má minna á að lang-
flest brjóstverkjaköst orsakast af
öðru en kransæðaþrengslum. Ókleift
getur verið fyrir þolanda verkjarins
að greina þarna á milli og því hætt
við að nítróglýcerinát yrði langt úr
hófi ef allir gengju með pillur í vasan-
um til þessara nota, aukaverkanir og
óþægindi einnig.
Hvað er laroxyl?
Helga Jónsdóttir, Urðarbraut 10,
Kóp. hringdi:
Mig langar til að spyrja
heimilislækninn þriggja spurninga
um lyfið laroxyl.
1. Á hvaða líkamshluta verkar það?
2. Hverjar eru aukaverkanir þess?
3. Hvað má taka það lengi?
SVAR:
„Laroxyl” ereitt sérheita efnisins
amitriptylin, sem einnig er selt hér-
lendis undir nafninu „tryptizol”. Um
efni þetta hefur áður talsvert verið
fjallað i þáttum þessum og svörin því
stutt nú.
1. Þetta er geðlyf, ætlað að gera
þunglyndi bærilegra eða helst aflétta
því.
2. Mestar í byrjun, syfja,
munnþurrkur, truflun á sjónskerpu
og þvaglátum. Hjartasjúklingar gæti
sérstakrar varúðar.
3. Konti lyfið að gagni eru engin tak-
mörksett notkunarlengd.
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
i öll skírteini.
barna&fþlsk/ldu-
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði 2. áfanga póst- og síma-
húss í Kópavogi.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu umsýslu-
deildar, Landssímahúsinu við Austurvöll,
gegn 30.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu umsýsludeild-
ar mánudaginn 19. marz kl. 11 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin.
Starf bæjarstjóra
í Hafnarf irði
Starf bæjarstjóra í Hafnarfirði er laust
til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. marz nk.
Starfið veitist frá og með 1. júlí nk.
Umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og störf skulu sendar undirrituðum,
að Strandgötu 6, sem veitir nánari upp-
lýsingar.
Bæjarstjórinn í Hafnarf iröi.
Kristinn Ó. Guðmundsson.
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
„Multiple sclerosis”
er ólæknandi veiki
3721—6143 spyr:
Hvað er M.S.? Ég veit að þetta er
stytting á latnesku orði, en mig lang-
ar að vita hvaða sjúkdómur þetta er
j og hversu langt getur hann leitt »
sjúklinginn. (Sumir kalla þetta
dauðalömun).
>
SVAR:
„Multiple sclerosis” er skamm-
stafað M.S. og þýtt „mænusigg”
á islensku. Þetta er hrörnunar-
sjúkdómur í miðtaugakerfi, þ.e.
skemmdir á taugafrumum, sem geta
orðið hvar sem er í heila eða mænu,
þannig að einkenni verða mjög
fjölbreytileg. Orsök er óþekkt, helst
er talið að um hægfara veirusýkingu
geti verið að ræða. Þetta er kvilli
tempraðra og kaldra landa, algengari
hjá konum og byrjar oft snerhma á
fullorðinsárum. Gangur sjúkdómsins
er mjög mismunandi en einkennist
venjulega af veikindaköstum með
góðri líðan á milli. Einkenni geta
verið frá öllum hlutum miðtauga-
kerfis; sjóntruflanir, minnkaðir
kraftar vöðva, stundum lamanir,
dofi, svimi, titringur og skjálfti út-
lima o. fl. o. fl. Sjúkdómurinn er
ólæknandi og veldur þolanda að
tokum örkumlum með miklum
lömunum þannig að t.d. sýkingar
eiga hægara um vik en ella. Fólk lifir
með þetta i nokkra mánuði og allt
upp í marga áratugi, engin leið er að
spá fyrirfram um hraðgengi
sjúkdómsins. Meðferð fer eftir
einkennum, ekki hafa enn fundist lyf
er haft geta áhrif á sjálfan
sjúkdóminn.
IGEGN
FRÁ HINU HEIMSÞEKKTA FYRIRTÆKISEM ALLIR ÞEKKJA
njóta mikilla vinsœlda um allan heim,
enda hefur RANK ávallt verið ífararbroddi
með nýjungar á tœknisviðinu.
Inline blackstripe myndlampi, spennuskynjari, snertirásaskipting, aðeins
6 einingar í stað 14, kalt kerfi, spónlagður viðarkassi í stað plastfilmu
sem flest önnur tœki eru með.
Frábœr mynd- og tóngæði, sannfærizt sjálf
SJÓNVARP & RADIO
VITASTÍG 3 SÍM112870
Verð
22" frá kr. 425.500
26" frákr. 513.000.
Gerið
verðsamanburð.