Dagblaðið - 02.03.1979, Side 11

Dagblaðið - 02.03.1979, Side 11
Eitt af fjölmörgum sýningaratriðum forsetans Amins. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979. Mustafa Adrisi varaforseti var annað fórnarlamb tortryggni forset- ans. Hann slasaðist alvarlega i bíl- slysi í námunda við Kampala í apríl sl. og var fluttur til Kaíró til meðferð- ar. Er hann kom aftur heim var hann settur af.Adrisi er einnig múhameðs- trúarmaður og naut hann fylgis tölu- verðs hóps í hernum. Mest hefur borið á andstöðu gegn Amin meðal svonefnds SUM hóps, en sá hópur berst fyrir „björgun Uganda”. Þessi hópur lýsti yfir stuðningi við Adrisi í síðasta mánuði. SUM hópurinn hefur lýst sig ábyrgan fyrir mörgum hermdarverkum innan- lands, þar á meðal sprengjutilræði, sem olli rafmagnsleysi í Kampala um tíma. Skriðdrekar gæta hernaðarlega mikilvægra staða i Kampala, þar á meðal póststofunnar og Amin forseti er varari um sig en nokkru sinni fyrr. Forsetinn hefur lifað af um 20 bana- tilræði ávaldaárum sínum. Forsetinn hefur haldið stuðningi meirihluta hersins með því að sjá fremur um efnalegar þarfir her- manna en almennings í landinu. En nú blasir við mikill efnahagsvandi i Uganda. Bandaríkjamenn, sem verið hafa helztu innflytjendur á kaffi frá Uganda, settu viðskiptabann á Uganda í haust vegna brota á mann- réttindum. Þá deildi Amin harkalega við rótgrónustu vini sína, Líbýu- menn, í haust þegar forsetinn ásakaði Líbýumenn um að senda vopn til andstæðingsins Tanzaníu. Til þess að afla stuðnings fór for- setinn í skyndiferð til Saudi-Arabíu, þar sem hann bað um fjárhagsaðstoð og sendi nefndir til annarra araba- ríkja í leit að stuðningi, þar á meðal íraks og Egyptalands. Ekkert hefur verið birt opinberlega um stuðning arabaríkjanna, en óstaðfestar fréttir herma að nýlega hafi komið um þúsund manna herlið frá arabaríkjunum til Kampala. Um síðustu helgi sendi Amin erindi til Einingarsamtaka Afríkuríkja, þar sem hann fór fram á það að reynt yrði að koma á vopnahléi milli Uganda og Tanzaníu. Forsetinn sagði að Uganda gerði engar landa- kröfur til Tanzaníu en krafðist þess að Tanzaníumenn yrðu á brott með herliðsitt. • „Þingflokkurinn vill enn þreyja þorr- ann og góuna í bið sinni og von um að hænan verpi egginu.” Áhugaleysi ffstóru" flokkanna Oddvitar stjórnmálaflokkanna hljóta að hafa velt því fyrir sér til hvers allsherjaratkvæðagreiðsla af þessu tagi gæti leitt. Sjáandi fram á, að hún gæti leitt til þingkosninga á næsta vori hafa þeir efalaust hugleitt, hvort slík þróun væri æskileg fyrir viðkomandi flokk hvers og eins. Ekki er líklegt að framsóknarmenn séu mjög áhugasamir fyrir því að ganga til kosninga á næstunni, varla telja þeir að flokkurinn hafi náð sér svo eftir síðustu kosningar eða styrkzt svo á nýjan leik, að kosningar nú yrðu honum tilhlökkunarefni. Senni- lega er afstaða sjálfstæðismanna nokkuð svipuð, líklega lifa þeir í von- inni um að ríkisstjórnin eigi enn eftir að valda sem fletum stuðningsmönn- um sínum vonbrigðum og jafnframt telja þeir sig sjálfsagt þurfa meiri tíma til þess að koma á nýjan leik upp sæmilegri samheldni innan flokksins. Hvers vegna var ekki f rumvarpið lagt fram? Þótt upphlaup Vilmundar á þing- inu hafi sett Alþýðubandalagið upp að veggnum er ekki víst að það myndi kvíða því að ganga til kosn- inga nú. Hið sama gildir um Alþýðu- flokkinn, hann myndi ekki fúlsa við þvi að ganga til kosninga á grundvelli þeirrar miklu og harðskeyttu baráttu gegn dýrtið og verðbólgu, sem hann hefur háð allt frá því fyrir síðustu kosningar. En kosningar á næstunni eru sennilega möguleiki sem er úr sögunni um sinn, a.m.k. Engu að síður er þingsályktunartillaga Vil- mundar þakkarverð, því að hún sýnir, að þingflokkur Alþýðuflokks- ins er enn ekki af baki dottinn og vill snúa fleytunni upp í vindinn. Hitt getur verið umhugsunarefni fyrir áhugamenn hvers vegna þingsálykt- unartillaga sá dagsins ljós en ekki lagafrumvarpið sjálft. Það hefur Iengi legið í loftinu, og raunar verið samþykkt á fundum í Alþýðuflokkn- um að verði ekki frumvarp forsætis- ráðherrans fljótlega lagt fyrir þingið ætti flokkurinn sjálfur að leggja það fram. Það gerist ekki, heldur hið óvænta, að með þingsályktunartil- lögu er krafizt þjóðaratkvæða- greiðslu. Sjálfsagt er skýringin á þessu sú, að enn vill þingflokkurinn þreyja þorrann og góuna í bið sinni og von um að hænan verpi egginu og unginn komi úr skurninu. Þings- ályktunartillagan hefur þá verið nokkurs konar ögrun eða a.m.k. brýning. Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri. 11 FIOREGG OKKAR „Þúsundáraríkið” mun aldrei sjá dagsins ljós á jörðunni. Það er draumur sem reynt hefur verið að framkvæma en ávallt mistekist. Aðferðirnar við sköpun þessa ríkis hafa spannað allt litróf mannlegrar hugsunar. Þar hefur verið á ferðinni fegursta hugmyndafræði byggð á þrauthugsaðri fræðikenningu og harðsviruð og ómennsk valdbeiting., En hvort sem upphaflegi grunnur- inn hefur verið byggður á mennskum eða ómennskum forsendum hafa all- ar tilraunir til að koma á „þúsund- áraríkinu”, hinu varanlega þjóð- skipulagi, alltaf mistekist. Hin jákvæða viðleitni í þessa átt hefur strandað á þeim eiginleikum mannsins sem felast i þröngsýni og eigingirni hans og því að stjórnendur hafa misst yfirsýnina og ekki tekist að halda þessum eiginleikum í skefj- um og oft hafa stjórnendur sjálfir fallið í sömu gryfjuna. Sérstaða íslands Það er þó dálítill munur á því að finna þjóðfélagi viðunandi form eftir stöðu þess í efnahagslegu og menn- ingarlegu tilliti. Það er til að mynda mikill munur á aðstæðum þjóða, sem eiga litlar auðlindir eða illa nýttar, og þeirra þjóða, sem náð hafa valdi á auðlindum sínum, hafa fullt frelsi og búa við svokallað „lýðræðisfyrir- komulag” í stjórnun. ísland er eitt þeirra tiltölulega fáu landa sem hafa yfir að ráða miklum auðlindum og frelsi til að nýta þær sjálfir og skipta þjóðarauðnum eftir eigin mati. Og auðlindir íslendinga Brotalöm lýðræðisins Það virðist orðið eitt aðalvanda- mál í lýðræði okkar íslendinga, að val forustumanna er komið í afar hæpinn farveg. Þegar upp er staðið, virðist það meira tilviljun, hverjir veljast til forustu. Það er ef til vill þess vegna sem afskipti af stjórn- málum eru búin að fá á sig það orð að það séu ekki endilega alltaf bestu mennirnir sem fást til þessara mikil- vægu starfa. Og þó að hæfir menn væru fyrir hendi, þyrftu þeir áður að fara í gegnum síu flokkakerfisins eða standa fyrir mjög ógeðfelldu lýð- skrumi til að komast í aðstöðu til að taka þátt í að móta og reka þjóðfé- lagið. Þetta er meiri eldraun en margir einstaklingar vilja ganga gegnum. Þarna er á ferðinni ein stærri brotalöm lýðræðisins. Og þarna er að .finna eina aðaðorsökina fyrir þeirri þróun sem ríkt hefur undanfarna ára- tugi í stjórnun landsins. Þeir sem gengið hafa í gegnum hafa mál þeirra farið inn í dóms- kerfið og seint eða aldrei komið þaðan aftur eða jafnvel fyrnst. Þetta dæmi er tekið vegna þess að það er Ijós vitnisburður á öðru sviði um veikleika lýðræðisins. Verkn- aður þeirra aðila, sem komast þessar leiðir, er ekkert annað en þjófnaður. Það er verið að brjóta lög landsins um eignarréttinn. Þessi tegund af- brota er hinsvegar litin öðrum augum en venjuleg afbrot. Þegar um er að ræða lítilfjörleg afbrot eða beina þjófnaði, jafnvel atferli síbrota- manna, er oft tekið rösklega á málun- um í dómskerfinu. Viðkomandi verður að hlíta frelsissviptingu strax og fangavist siðar og er talinn hættu- legur samfélaginu. Stórtækir afbrotamenn, sem nota tæknileg vinnubrögð, eru oft með- höndlaðir á allt annan hátt. Þeir fá iðulega áralangan aðlögunartima án frelsissviptingar og margir þurfa aldrei að svara endanlega til saka nema þá til málamynda. Allt bendir líka til þess að flestir þessara aðila lifi ævina langa án þess að komast nokkru sinni undir manna hendur. „Lögbrotin hverfa inn koma þaðan aftur.” kerfið og fæst síuna verða að halda áfram skrípa- leiknum meira og minna, þegar í valdastólana er komið, og þeir hafa ekki efni á því að hafa að nokkru marki aðrar skoðanir en þeir þrýsti- hópar innan og utan flokkanna sem að baki þeirra standa. Það er einnig ákaflega mikill galli á lýðræðisfyrirkomulaginu, að eftir að æðsta valdastofnun landsins hefur verið kosin, labbar þjóðin aftur heim til sín og hefur engin afskipti af gangi mála þangað til á næsta kjördegi. En þó stærsti hluti almennra kjós- enda hafi ekki mikil persónuleg af- skipti af störfum alþingis beint, eru aðilar úti í þjóðfélaginu, sem hafa veruleg áhrif á stjórnun þjóðfélags- ins, skiptingu þjóðarkökunnar og þróun efnahagsmála. Hraf n Sæmundsson T veir tannlæknar eru ekki faldar í jörðu og illnýtanleg- ar, heldur hefur tekist að ná valdi á þeim og ausa upp verðmætunum, meira að segja með svo mikilli tækni að víða liggur við rányrkju. Auðlindir íslendinga eru ekki fræðilegt hugtak, heldur eru þær nýttar nú þegar að því magni að þessi dvergþjóð hefur mikið til skiptanna og allir gætu haft yfrið nóg. En þarna kemur að sama veikleik- anum og áður er að vikið. Það strandar á manninum sjálfum að skipta. Sumir fá of mikið en aðrir of lítið. Þetta vafasama fyrirkomulag hefur raunar fengið heitið „frelsi” og þó að það sé gallað og óréttlátt þá veigra menn sér við að skipta á því og ófrelsi eða einræði. Tilraunir i mann- kynssögu með það fyrirkomulag eru það geigvænlegar, að heldur vilja menn búa við galla lýðræðisins en taka þá áhættu. Innan lýðræðisfyrirkomulagsins er hins vegar mikill sveigjanleiki. Ekkert er því til fyrirstöðu að hægt sé að reka þjöðfélagið af sæmilegu viti innan þessa ramma. Það er þó ekki alltaf gert og hlýtur það að stafa af einhverjum veikleika hjá þeim sem sjá um framkvæmd og rekstur þjóð- félagsins á hverjum tima. Raunverulega er alþingi og ríkisstjórn ekki svo lítið stjórnaðutan frá. En það er ekki meginþorri kjós- enda, sem stendur fyrir þessum af- skiptum. Þar eru oft á ferðinni minnstu og sterkustu þrýstihóparnir og ýmsar valdastofnanir tengdar framkvæmdavaldinu og svo forusta verkalýðshreyfingarinnar, sem að visu telst fulltrúi fjölmennra þjóðfé- lagsstétta. Hægt væri að rekja fjölmörg dæmi um það, hvernig lýðræðið hangir víða á bláþræði. Mörg þessara dæma eru smá miðað við heildina. Þarna eru á ferðinni örlitlir þrýsti- hópar sem sett geta stjórnvöldum stólinn fyrir dyrnar. Nýlegt dæmi um slíka smáhópa eru tveir tannlæknar sem knúið gátu fram lagabreytingu, sem gengur í þá átt að lögbundin rétt- indi almennings voru afnumin. Þetta og önnur hliðstæð dæmi sýna fram á, að jafnvel innan ramma lýðræðisins er auðvelt að misnota þessi réttindi á óhugnanlegan hátt. Stærri dæmi um veikleika lýðræð- isins er, þegar lög eru ekki virt og lagabrot látin viðgangast, ef vissir aðilareigaíhlut. Undanfarin ár hefur það verið auðveldur leikur fyrir þá sem brjóta lögin, að nota seinvirkt dómskerfi til að sleppa við að þurfa að standa ábyrgir gerða sinna. Þó að þessi teg- und manna hafi jafnvel orðið uppvís að beinu misferli í einhverri mynd, Þetta er órökstudd ályktun, en flestir sem þetta lesa vita mætavel að einka- neysla margra athafnamanna og þátt- taka þeirra i sameiginlegum rekstri þjóðfélagsins passar ekki saman. Þetta er opipbert leyndarmál. Síðasta skóladæmið um þetta er nú aðgerast á meðal okkar. Einn angi af rannsókn þeirri sem gerð hefur verið á innflutningsversl- uninni er sá að talið er nær öruggt að innflytjendur stingi undan umboðs- launum i verulegum mæli og steli þeim einnig undan skatti. Þótt látið væri liggja á milli hluta, hvort lög landsins um verslun og viðskipti séu góð eða vond, þá er hér verið að brjóta þessi lög. Undanfarin ár hafa komið upp á yfirborðið fjölmörg álíka mál. Þau hafa öll horfið inn í kerfið og fæst komið þaðan aftur. Hvað þolir réttarríkið? í þessu sambandi hlýtur sú spurn- ing að vakna og verða stöðugt nær- göngulli, hvað það fjöregg okkar, sem við köllum lýðræði og frelsi, þolir lengi þessa meðferð. Eru ekki einhver takmörk fyrir því, hvað rétt- arriki þolir lengi að lögin séu ekki virt af hluta þegnanna og að þeim haldist það uppi? Þar við bætist að lögin sjálf vernda í mörgum tilfellum ótrúlegt óréttlgeti og misrétti, og þar brestur einnig i undirstöðum lýðræðisins. Þeir aðilar, sem kosnir eru i lýð- ræðislegum kosningum til setu á æðstu valdastofnun landsins, komast upp með að láta viðgangast, að land- inu er ekki nema að hluta stjórnað eftir þeim lögum, sem þessi sama valdastofnun hefur sett. Fram- kvæmdavaldið, sem að sjálfsögðu heyrir undir alþingi, framfylgir oft ekki lögunum nema þá seint og síðar meir eða aldrei. Það hlýtur að vera mjög hættulegt til lengdar, að reynt skuli þannig til hins ítrasta á það stjórnarfarslega fyrirkomulag, sem kallað er lýðræði. Það fyrirkomulag sem hefur þó ýmsa jákvæða öryggisventla til verndar þegnunum og er þrátt fyrir galla sína það skásta sem völ er á við núverandi aðstæður. Hrafn Sæmundsson prentari.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.