Dagblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
13
í tilefni af eldvarnarviku JC:
Hvemig er
heimili þitt
búið undir
eldsvoða?
Frá fyrstu tið hefur eldur verið
okkur mönnunum nauðsynlegur og
þannig mun það verða meðan lif
finnst á jörðu. Óbeizlaður eldur getur
hins vegar verið hinn miskunnarlausi
eyðingarmáttur. Hefur þú einhvern
tima ihugað hvað gæti komið fyrir á
þínu heimili ef eldur yrði laus? Þú
gætir t.d. misst ástvin eða týnt eigin
lífi vegna þess að þú hafðir ekki
kynnt þér fyrirbyggjandi ráðstafanir.
Við skulum þess vegna fara í eftirlits-
ferð um heimilið og sjá hvað við
getum fært til betri vegar, er varðar
eldvarnir.
1. í forstofu hússins ætti að vera
eitt 6 kg ABC dufthand-
slökkvitæki á þar til gerðum
snaga á vegg og ætti það ætið að
vera aðgengilegt.
2. Síðan skulum við athuga vartöflu
hússins og aðgæta hvort réttir
vartappar séu þar. Ómetanlegt er
öryggisins vegna að hafa
lekastraumsliða á rafkerfr
hússins.
3. Er við komum inn i eldhús skulum
við aðgæta hvort myndazt hafi ló
á bakvið ísskápa og eldavél,
einnig að sigti í gufugleypi sé
hreint. Leiðslur á kaffivél,
brauðrist, hraðsuðukatli og
öðrum rafmagnsáhöldum séu
teknar úr sambandi eftir notkun
og séu heillegar. Hafa skal
asbestteppi, 120x 120,á áberandi
stað i eldhúsi, þannig að hús-
móðirin gæti hæglega náð til þess
ef eldur kemur upp í feitipotti
eða pönnu.
4. Aðgæta skal í stofu og borðstofu
að rafmagnssnúrur séu aldrei
undir gólfteppum, slikt gæti
hæglega valdið skammhlaupi.
Það er þægilegt að hafa arin og
hann setur aðlaðandi svip á
íbúðina, en það verður að búa vel
um arininn. Það er algjör
nauðsyn að hafa hlíf fyrir framan
hann.
5. Ef þú leggst til hvílu, mundu að
reykja ekki.
6. Háaloftið er dæmigerður staður til
þess að setja í hluti sem þú ætlar
að nota aftur, en gerir líklega
aldrei. Láttu risið þitt ekki verða
að eldgildru, hreinsaðu það.
7. Ef olíukynding er i húsinu ætti að
yfirfara hana tvisvar á ári og sjá
svo um að öll öryggistæki hennar
séu i fullkomnu lagi, og að góð
umgengni sé í kyndiklefa. Dæmi
eru til þess, að eldsvoðar hafa!
orðið, þó svo að góð hand-
slökkvitæki hafi verið til staðar,
en vegna vankunnáttu
viðkomandi ánotkun þeirra, hafa
þau ekki komið að gagni. Eru hér
nokkur dæmi.
a. Eldur kom upp í vélarrúmi báts, er
lá í höfn, en verið var að vinna í
vélarúmi. Þá gerðist það að einn
bátsverji greip næsta hand-
slökkvitæki en gat ekki fengið
það til að virka, þar sem hann
vissi ekki að fjarlægja þyrfti
öryggispinna þess. Varð af þessu
stórtjón.
b. í öðru tilfelli var vatnshand-
slökkvitæki í húsi, en eigandi
hafði tæmt tækið og sett í
staðinn steinolíu, var það gert til
þess að lifga upp eld í arni.
Nokkrum mánuðum seinna var
gripið til tækisins af öðrum aðila
til þess að slökkva eld, sem
komið hafði upp í kjallara
hússins. Afleiðingar urðu stórtjón
og inaður brenndist.
c. Börn voru að leik með eldspýtur í
heimahúsi og kveiktu í dívani. Er
grípa átti til handslökkvitækisins
úr næsta húsi reyndist tækið tómt
og varð þarna milljóna skaði.
d. Bóndi nokkur'hafði fengið gefins
6 kg þurrduftshandslökkvitæki.
Á leið sinni heim kom hann að
bifreið er eldur hafði orðið laus í.
Með tækinu kom hann í veg fyrir
stórtjón. Nokkrum mánuðum
seinna heimsótti eftirlitsmaður
bóndann er sagði honum frá at-
burðinum. Eftirlitsmaðurinn
óskaði eftir að fá að sjá tækið.
Eftir nokkra leit fannst það í
kjallara hússins, kom þá í Ijós að
tækið var tómt og því óvirkt.
Kynnið ykkur notkun hand-
slökkvitækja og meðferð þeirra.
Munið að kynna yður hvernig
boða á út slökkvilið og hver
slökkviliðsstjóri umdæmisins er.
Til hans getið þið leitað varðandi
ráðleggingar um brunavarnir.
Hefur þú nokkurn tímann setzt
niður með fjölskyldu þinni og rætt
við hana um hvað gera skuli ef
kviknar í hjá ykkur og hvernig þið
eigið að bjarga lífi ykkar? Mikill
fjöldi húsbruna verður á tímanum frá
miðnætti og fram til klukkan 6 um
morguninn. Venjulegur maður, sem
vaknar af værum blundi er oft dálítið
vankaður. Ef hann vaknar við elds-
voða getur hann orðið algerlega
ruglaður, þótt hann sé annars hinn
gætnasti. Ef hann hefði áður verið
búinn að hugsa um undankomuleið
yrði hann kannski rólegri. Láttu
börnin þín leika sér við að hugsa um
undankomuleið. Ef mögulegt er
ættuð þið að upphugsa tvær undan-
komuleiðir úr hverju herbergi. Gættu
þess vel að allir viti um báðar
leiðirnar. Hafðu brunaæfingar heima
hjá þér, svo allir séu öruggir um und-
ankomuleiðir. Traustar og vel
lokaðar dyr tefja eldinn í nokkrar
mínútur, sem þú átt að nota til þess
að fiýja. Opnaðu ekki dyrnar ef
hurðin er heit viðkomu eða ef reykur
síast inn milli stafs og hurðar. Mundu
það, opnaðu þær ekki. Notaðu
dyrnar sem öryggislás Komistu ekkiút
um dyrnar þá notað elum: bað
er mjög áríðandi að akveða að allir í
fjölskyldunni skuli hittast á einum
ákveðnum stað, ef þeir flýja húsið í
eldsvoða. Það hefur alltof oft komið
fyrir að foreldrar, sem finna ekki
eitthvert barna sinna og vita ekki að
það er sloppið út og óhult, halda að
það sé lokað inni í húsinu og brjótast
inn til þess að bjarga því en bíða svo
sjálf bana að óþörfu.
Tekið saman af Gunnari Péturs-
syni og Guðmundi Haraldssyni.
Brunamálastofnun ríkisins.
Kldvarnarkynning í barnaskóla í Reykjavík. Alla þessa viku hefur Slökkvilið Reykjavíkur í samráði við JC-Reykjavík
gengizt fyrir slíkum kynningum í skólum. DB-mynd Hörður.
A
r
Stokkseyri
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á
Stokkseyri er Guðbjörg Hjartardóttir
Eyrarbraut 16, sími 99—3324.
^BLAÐÍÐ
STÓR
AFSLATTUR
A HÚSGAGNAÁKLÆÐUM
100% dralonefni í mörgum litum, einnig hin vin-
scelu skýjuöu plussefni í úrvali.
Gerið góð kaup strax.
VÖNDUÐ OG GÓÐ VINNA
Tökum að okkur klœðningar á öllum gerðum
bólstraðra húsgagna, komum heim og gerum til
boð yður að kostnaðarlausu.
VERZLUNIN
HÚSMUNIR
Á HORNI
VITASTÍGS
OG
HVERFISGÖTU
Sími verz/unar
13655
Sími verkstæðis -
39530
0
&
r