Dagblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR2. MARZ 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
19
Iþróttir
Iþróttir
I
Islenzka unglingalandsliðið ásamt Garðari Alfonssyni þjálfara. Kristin, Sif, Helgi, Guðmundur og Broddi.
DB-mynd Bjarnleifur.
f
Strákarnir i Val, sem ætla að setja íslandsmet. Neðrí röð frá vinstri: Snorri Ægisson, Guðjón B. Guðjónsson, Jónas
Geirsson og Helgi Sigurðsson. Aftari röð, Sigurður Sveinbjörnsson, Þorsteinn Sigurðsson, Sigurður Erlingsson og Pétur
H. Sigurðsson.
Landsliðsþjálfarinn
eldar ofan f þá
—Strákarnir í 2. flokki Vals ætla í maraþonknattspyrnu,
og Lárus Loftsson unglingalandsliðsþjálfari sér
Strákarnir í Val eru staðráðnir í því
að setja nýtt íslandsmet í innanhúss-
knattspyrnu nú um helgina — það er 2.
flokkur Vals. Þeir ætla að byrja á
morgun klukkan tvö og leika stanzlaust
unz nýtt met hefur litið dagsins Ijós en
Menntaskól-
inn við Sund
— sigraði í svigkeppni
Flokkasvig fyrir framhaldsskóla.
Mótið haldið við Hamragil við ÍR skál-
ann á miðvikudag. Skíðafélag
Reykjavikur sá um framkvæmd móts-
ins. Sól skein í heiði, frost 10 stig og
skiðafærí gott. Sveitir 12 skóla mættu
til leiks. Hlið voru 42 og úrslit urðu:
1. Menntaskólinn við Sund 131,7
í sigursveitinni voru: Kristinn Sig-
urðsson, Jónas Ólafsson, Einar Úlfs-
son, Helgi Geirharðsson.
2. íþróttakennaraskólinn 146,3
í henni voru: Valþór Þorgeirsson,
Hans Kristjánsson, Margrét Baldvins-
dóttir, Anna Dýa Erlingsdóttir.
3. Réttarholtsskóli 146,8
í henni voru: Hafliði Harðarson,
Inga Traustadóttir, Árni Garðarsson,
Kristin Guðmundsson.
Innan skamms verður keppt I boð-
göngu fyrír framhaldsskólana, þátt-
taka tilkynnist sem fyrst til Skiðafélags
Reykjavíkur.
um eldamennskuna
íslandsmetið eiga Selfyssingar, 30
klukkustundir og 33 mínútur. Það var
sett um siðustu helgi.
Strákarnir hafa undanfarið gengið í
hús og safnað áheitum. Og það er
margt, sem þarf að hugsa um þegar
ráðizt er í maraþonknattspyrnu. Sjá
um læknisaðstoð, búninga og mat. Þar
ættu strákarnir að vera vel birgir því
sjálfur unglingalandsliðsþjálfarinn,
Lárus Loftsson, ætlar að elda ofan í þá
en hann er kokkur á Múlakaffi. Það
ætti ekki að væsa um strákana um
helgina.
Punktamót ung-
linga á Dalvík
— haldið um síðustu helgi
Punktamót unglinga var haldið á
Dalvík dagana 24. og 25. febr. Skráðir
þátttakendur voru 142, ræstir voru
122.
Úrslit urðu sem hér segir:
Stórsvig, drengir 13—14ára
1. Daníel Hilmarsson, Dalvik 117.35
2. Ingi J. Valsson, Ak. 120.44
3. Sveinn Aðalgeirss., Hús. 120.58
Stórsvig, stúlkur 13—15ára.
1. Nanna Leifsd., Ak. 117.13
2. ÁstaÁsmundsd., Ak. 122.82
3. Kristín Símonard., Dalv. 124.39
Stórsvig, drengir 15—16ára.
1. Björn Olgeirsson, Hús. 110.07
2. Elías Bjarnason, Ak. 113.81
3. Ólafur Harðarson AK. 116.12
Stórsvigsbrautir voru 1050 m lang-
ar. Hæðarmism. 220 m. 36 hlið.
Svig, stúlkur 13—15 ára
1. Nanna Leifsd., Ak. 84.90
2. Lena Hallgrímsd. Ak. 89.88
3. Þórunn Egilsd. R. 90.54
Svig, drengir 13—14 ára
1. Daníel Hilmarsson, Dalv. 79.15
2. Bjarni Bjarnason, Ak. 82.22
3. Gunnar Svanbergss., Ak. 85.18
Svig.drengir 15—16ára
1. Björn Olgeirs., Hús. 74.91
2. Ólafur Harðars., Ak. 79.16
3. Guðmundur Jóhanness., ísaf. 79.48
Svigbrautir voru 600 m langar.
Hæðarmismunur 110 m. Hlið 45.
Jón Halldórsson, Dalvík.
ísland mætir
Færeyingum
—tvívegis íblaki — í kvöld norður á
Akureyri, bæði í karla og kvennaflokki
íslenzku karia og kvennalandsliðin
leika um helgina landsleiki í blaki við
Færeyinga, í kvöld norður á Akureyri
og á morgun í Hagaskóla. íslendingar
hafa undantekningariaust sigrað lær-
eyinga í blaki karla en leikur kvenn-
anna er fyrsti landsleikur þeirra og því
er kvennaleikurinn stórt spurningar-
merki.
íslenzka karlalandsliðið í kvöld
verður eingöngu skipað leikmönnum
frá „þreim þrem sterku”. Það er ÍS,
UMFL og Þróttur. Þeir eru Kjartan
Páll Einarsson, ÍS, Leifur Harðarson,
UMFL, Guðmundur E. Pálsson,
Þrótti, Benedikt Höskuldsson, Þrótti,
Jason ívarsson, Þrótti, Gunnar Árna-
son fyrirliði, Þrótti, Böðvar Sigurðs-
son, Þrótti, Samúel Örn Erlingsson,
UMFL, Haraldur Geir Hlöðversson,
UMFL, Indriði Arnórsson, ÍS, Sigfús
Haraldsson, ÍS. Halldór Jónsson þjálf-
ar bæði liðin en Hreinn Þorkelsson,
UMFL mun leika síðari leikinn í Haga-
skóla. íslenzka kvennalandsliðið, sem
mætir Færeyingum á Akureyri i kvöld
er þannig skipað: Anna Guðný Eiríks-
dóttir, ÍS, Helga Jónsdóttir ÍS, Björg
Björnsdóttir, Þrótti,SigurhannaSigfús-
dóttir, Þrótti, Sólveig Þráinsdóttir
Þrótti, Erna Þórarinsdóttir, ÍMA
Margrét Jónsdóttir, ÍMA, Björg Jóns
dóttir, Völsungi, Ásdis Jónsdóttir
Völsungi, Laufey Skúladóttir, Völs
ungí, Kristjana Skúladóttir, Völsungi
Jóhanna Guðjónsdóttir Völsungi.
Kvennaleikurinn hefst í Skemmunni í
kvöld klukkan 18, en karlaleikurinn kl.
20. Á morgun fara siðan fram síðari
landsleikirnir, þá leika konurnar kl. 14
og karlarnir kl. 16 í Hagaskóla.
Landsleikir við
Færeyinga
íborðtennis
— að Varmá í kvöld
ísland leikur i kvöld landsleik við
Færeyinga í borðtennis að Varmá og
hefst landsleikurinn kl. 8.30. Keppl
verður i karlaflokki, og unglinga-
flokkum, eldri og yngri.
Þeir Tómas Guðjónsson, KR,
Stefán Konráðsson, Víkingi, og
Hjálmtýr Hafsteinsson, KR, skipa
íslénzka karlalandsliðið. Og i eldra
unglingaliðinu eiga KR-ingar tvo lands-
liðsmenn, þá Örn Fransson og Tómas
Sölvason, en Bjarni Kristjánsson,
UMFK, er einnig i eldra unglinga-
liðinu. í yngra unglingaliðinu eru
Jóhannes Hauksson, KR, Stefán
Birkisson, Erninum, og Einar Einars-
son, Víkingi.
Á morgun verður síðan opið mót í
Gerpluhúsinu í Kópavogi og hefst það
kl. 2.30.
Á NM unglinga
í Málmey
— íslenzka unglingalandslidið á
Norðurlandamótið íbadminton
íslenzka unglingalandsliðið i bad-
minton fær erfitt verkefni um helgina
á Norðurlandamótinu i badminton,
sem fram fer í Málmey. Fimm íslenzkir
unglingar hafa verið valdir, en
keppendur verða frá öllum
Norðurlöndunum, 75 talsins, þar af
langflestir frá Sviþjóð og Danmörku,
28 frá hvorri þjóð.
Fyrirfram má búast við að unglingar
frá Sviþjóð og Danmörku setji mestan
svip á NM. íslenzku unglingarnir mæta
i fyrstu leikjum sínum, öllum nema
tveimur, keppendum frá Sviþjóð og
Danmörku. Sjálfsagt verður þar við
ramman reip að draga. En í einliðaleik
kvenna keppir Kristín Magnúsdóttir
við finnska stúlku og í tvenndarleik
lenda þau Sif Friðleifsdóttir og
Guðmundur Adolfsson í baráttu við
Finna.
íslenzka unglingalandsliðið er skip-
að:
Kristín Magnúsdóttir, TBR,
Sif Friðleifsdóttir, KR,
Broddi Kristjánsson, TBR,
Guðmundur Adolfsson, TBR,
Helgi Magnússon, í A.
Fararstjóri verður Garðar Alfons-
son.____________________________
Gunnar
meistari
íkrambúl
Gunnar Hjartarson, vann Kjarlan K.
Friðþjófsson í úrslitum íslandsmótsins
í krambúl. Það var gífurleg spenna á
Klapparstígnum og sigurinn gat lent
hvört heldur hjá Gunnari eða Kjartani.
Gunnar fór með sigur af hólmi, 500—
490, tæpara gat það vart verið.
Mótið var með útsláttarfyrirkomu-
lagi en menn féllu þó ekki út fyrr en á
öðru tapi. íslandsmeistarinn fyrrver-
andi, Stefán Aðalsteinsson, tapaði i
undanúrslitum fyrir Gunnari Hjartar-
syni. Gunnar var með eitt tap fyrir úr-
slitaleikinn, tapaði fyrir Kjartani í
fyrstu umferð.
Kjartan K. Friðþjófsson sigraði
Sverri Þórisson, íslandsmeistara í
snóker 300—294.
En Kjartan var taplaus fyrir, og
mátti tapa einum leik. Þeir voru því
þrír með eitt tap á bakinu og var dregið
um hver færi beint í úrslit. Það varð
hlutskipti Gunnars en Kjartan sigraði
Sverri síðan örugglega, 300—227 í síð-
ari leiknum og lék því til úrslita. Kjart-
an er íslandsmeistari í 1. flokki svo
hársbreidd munaði að hann yrði
tvöfaldur íslandsmeistari.