Dagblaðið - 27.04.1979, Side 6
6 \ DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979.
10 þingmenn knýja á
um rækjutogara
—fyrir Dalvíkinga------
Tíu þingmenn úr öllum flokkum
báru i gær fram tillögu um að Alþingi
skori á ríkisstjórnina að veita Söltunar-
félagi Dalvíkur heimild til að kaupa
rækjutogara til útgerðar á djúpslóð.
Hér er töluvert deilumál á lcrðinni.
Snorri Snorrason skipstjc i á Dalvík,
brautryðjandi í rækjuveiðum á djúp-
slóð hér, hafði árið 1976 sa'itið um
smiði á fullkomnum rækjutogara að
norskri og færeyskri fyrirmynd.
Smíðin var stöðvuð á lokastigi samn-
inga.
Dalvíkingar keyptu þá lítinn frysti-
togara frá Ítalíu og breyttu eftir
föngum i rækjutogara. Útkoma veið-
anna, eftir að rækjan fannst á Dorn-
banka, hefur orðið slík að viðskipta-
banki söltunarfélagsins, Landsbank-
inn, styður kaup fyrirtækisins á
fullkomnari rækjutogara, segja flutn-
ingsmenn. Þeir benda á að veiðarnar
eru stundaðar 100 sjómílur norðan við
yztu skip íslenzka flotans, í erftðum sjó
og gjarnan innan um ís. Færeyskir
rækjutogarar eru búnir miklu traustari
isvörn en okkar traustustu skip en Dal-
borgin, rækjuskip Dalvíkinga, er
óvarin fyrir is.
Flutningsmennirnir beina skeytum
að sjávarútvegsráðherra er þeir segja
að vænlegra sé að kaupa rækjutogara,
miðað við verndum þorsksins, en
„bæta nú við skuttogurum”. Með til-
lögunni reyna þessir landsbyggðarþing-
menn , flestir af Norðurlandi, að knýja
fram breytingu á stefnu sjávarútvegs-
ráðherra gagnvart kaupum á rækjutog-
ara. Flutningsmenn eru: Stefán Jóns-
son (AB), Árni Gunnarsson (A), Lárus
Jónsson (S), Stefán Valgeirsson (F),
Jón G. Sólnes (S), Pálmi Jónsson (S),
Ingvar Gíslason (F), Bragi Sigurjóns-
son (A), Páll Pétursson (F) og Kjartan
Ólafsson (AB). -HH
Grásleppan spókar sig um
allan sjó við Suðurnesin
Kanadamenn hafa nær mettað markaðinn fyrir hrognin
Mikil óvissa ríkir nú um markaðs-
horfur fyrir grásleppuhrogn. Þvi veldur
öðru fremur verulega aukið framboðá
mörkuðum okkar af þessum sjávaraf-
urðum frá Kanada, nánar tiltekið
Nýfundnalandi.
Grásleppukarlar á Nýfundnalandi
hafa aukið svo veiðar sinar, að
markaðurinn virtist nær mettaður i
byrjun vertíðar hér, að minnsta kosti
miðað við það verð sem við getum sætt
okkur við. Raunar er ekki enn búið að
samþykkja endanlegt verð á grá-
sícppuhrognum, sem héðan verða seld.
Samband islenzkra samvinnufélaga
er umboðsaðúi fvrir marua Kf.n/k:'
verkunaraðila Samkvæml upplýsingum
Ólafs Jónssonar t Sjavaraluröade
SÍS verður nokkurt magn flutt út á
vegum hennar. Það verður þó talsvert
minna en í fyrra að öllu óbreyttu.
Verulegur samdráttur hefur orðið í
hrognaverkun vegna hafíssins fyrir
norðan og norðaustan land. Hefur
ísinn þannig valdið búsifjum þótt ekki
Aukin tillitssemi
bætir umferðina
sé enn alveg ljóst hversu alvarlegar þær
eru i reynd miðað við versnandi
markaðshorfur i þessari útflutnings-
grein.
Þrátt fyrir verulegan samdrátt í
verkun norðanlands og austan hafa
grásleppukarlar á Suðurnesjum enn
ekki þorað að hefja veiðar að neinu
marki, samkvæmt heimildum DB þar.
-BS.
Þær sálu í bliðunni undir grindverki nærri skólanum, þessar stúlkur úr þriðja bekk
Réttarholtsskóla, þegar Ijósm. DB bar þar að í gær. Alla þessa kvenlegu fegurð
stóðst hann ekki. -DB-mynd: Sv. Þorm.
Skemmdarverk unnin
á splunkunýjum bflum
Tveir óseldir bílar hjá Bifreiðum og niður með húsinu i átt að Suðurlands-
landbúnaðarvélum urðu fyrir ágangi brautinni.
skemmdarvarga fyrir stuttu. Bílarnir Ekki létu þeir þar við sitja heldur
stóðu að húsabaki hjá fyrirtækinu er réðust þeir að innréttingu að minnsta
að þeim var ráðizt og með einhverjum kosti annars bílsins, skáru sæti og léku
hætti tókst skemmdarvörgum að koma grátt. Má sjá þær skemmdir á með-
þeim af stað í hallanum og renna þeim fylgjandi mynd Sveins Þormóðssonar.
Þórshafnarkona
týndi skart-
gripabuddunni
Einn af lesendum blaðsins, kona á
Þórshöfn, sem sagðist vera „frosin upp
fyrir hné í hafís og kulda” hringdi í DB
og bar upp vandræði sin. Hún varð
fyrir því óláni, er hún var að koma úr
sinni fyrstu utanlandsferð, snemma í
marzmánuði, að tapa rauðri leður-
buddu sem hún geymdi alla skartgrip-
inasinai.
í fyrstu hélt hún að skartgripabudd-
an hefði orðið eftir hjá vinafólki í Dan-
mörku en svo reyndist ekki vera. Ekki
hafði buddan heldur fundizt hjá vina-
fólki í Reykjavík þar sem gist var eina
nótt áður en haldið var með Flugfélag-
inu tilÞórshafnarmeðviðkomuá Akur-
eyrarflugvelli.
„Mér dettur helzt i hug að ég hafi
misst budduna upp úr handtöskunni
minni í veitingasalnum i flugafgreiðsl-
unum, annaðhvorl á Reykjavíkur- eða
Akureyrarflugvelli,” sagði lesandinn
okkar á Þórshöfn.
Ef einhver hefur orðið var við þessa
gripi er hann vinsamlega beðinn að láta
vita um það á ritstjórn Dagblaðsins, en
þar verður séð um að koma þeim til
skila til rétts eiganda. -A.Bj.
Nýkomnir HOGGDEYFAR
í eftirtaldar bifreiðir:“"1”.....
BR0NC0, BLAZER, CHEROKEE, L. ROVER,
RANGE ROVER, HUNTER, CORTINA, MINI,
MOSKVITCH, MAZDA, ESCORT, AVENGER,
TAUNUS 17M, COMET,
VOLGA, V0LV0, VW,
RAMBLER, DODGE, M. BENZ
CHEVROLET,
VIVA, FIAT.
O.FL.
G.S.
varahlutir
Ármúla 24—Sími 36510
íPóstsendum