Dagblaðið - 27.04.1979, Síða 10

Dagblaðið - 27.04.1979, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979. frfálst, úháð dagblaú Útgofandi: Daghlaöifl hf. FramkvnmdMtjióri: Svakin R. EyJÓHsson. Rltstjóii: Jónas Krfstjánsson. Fréttastjórí: Jón Blrglr Pétursson. RhstjómarfuRtrúi: Haukur Halgason. Skrífstofustjórí rttstjómar. Jóhannas RaykdaL Iþróttin HaHur Simonarson. Aöstoóarfréttastjóran Atil Stalnarsson og ómar ValdL marsson. Mannkigarmái: Aöabtalnn Ingólfsson. Handrít Asgrímur Páisson. Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragl Slgurösson, Dóra Stafánsdóttir, Gissur Slgurös- son, Gunnlaugur A. Jónsson, HaHur HaNsson, Halgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Gaksson, ólafur Jónssón. Hönnun: Guöjón H. Pálsson. Ljósmyndir Ámi Páfl Jóhannsson, Bjamlelfur Bjamlaifsson, Höröur Viihjálmsson, Ragnar Th. Slgurös- son, Sveinn Pormóösson. Skrífstofustjóri: Ólafur EyJóHsson. Gjaldkeri: Þrálnn ÞoríaHsson. Sökistjóri: Ingvar Svalnsson. DraHlng- arstjórt Már E.M. HaNdórsson. Ritstjóm Siftumúla 12. Afgraiösla, áskríftadaHd, auglýsingar og skrífstofur ÞvarhoW 11. Aðalsimi blaösins ar 27022 (10 Knurí. Áskríft 3000 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. Satning og umbrot Dagblaöið hf. Siöumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hlmfcr hf. Slöumúla 12. Prentun: Arvakurhf. SkaHunni 10. Lífskjörum haldið niörí Gjaldeyrishöftin okkar eru skerðing mannréttinda, sem ekki þekkist nema í einræðisríkjum. íslendingum er ætlað að búa við átthagafjötra vegna tak- mörkunar á yfirfærslum eigna fólks í erlendan gjaldeyri, hyggist það flytja af landi brott. Þetta samrýmist ekki mannréttindayfirlýsingum, sem íslenzk stjórnvöld hafa undirritað. Gjaldeyrishöftin draga auk þess úr fram- leiðslu og halda niðri lifskjörum landsmanna almennt. Ferðafólk verður að kaupa erlendan gjaldeyri tiu prósentum hærra verði en skráð gengi er, sem þýðir tvöfalt gengi. Sú haftastefna, sem vikið var frá að nokkru í innflutningsverzluninni í upphafi viðreisnar, heldur enn kverkataki um gjaldeyrismálin. Sannað er, að aukið frjálsræði á öðrum sviðum varð grund- völlur stórbættra lífskjara á fyrstu viðreisnarárunum. Almenningur fagnaði frelsinu, og framleiðsla efldist. Sömu lögmál gilda um gjaldeyrisviðskipti. „Heft gjaldeyrisviðskipti og óraunhæf gengis- skráning hefur ekki styrkt útflutningsatvinnuvegina og örvað nýjan útflutning heldur dregið úr gjald- eyristekjum, takmarkað ferðafrelsi og búferlaflutninga landsmanna, leitt til erlendrar skuldasöfnunar og boðið heim margvíslegri spillingu,” segir í stefnuskrá Verzlunarráðs íslands, sem nýlega kom fram. Um þessi atriði ættu menn að geta verið sammála. Gjaldeyrisverzlunina á að gefa frjálsa. Gengi krónunnar á ávallt að vera rétt skráð. Með þeim hætti einum fá atvinnuvegir þjóðarinar nægilegt svigrúm til að standa undir bættum lífskjörum landsmanna í framtíðinni. Öllum landsmönnum á að leyfa að eiga, kaupa og selja erlendan gjaldeyri, svo að gengið ráðist af aðstæðum á hinum frjálsa markaði. Þetta frelsi er bæði mannréttindamál og brýnt efnahagslegt hagsmunamál þjóðarinnar. Haftakerfi, sem hindrar frjálsa verðmyndun og stýrist af geðþótta- ákvörðunum nokkurra útvaldra, leiðir til óhag- kvæmrar skiptingar gæða. Frelsi í þessum viðskiptum sem öðrum eykur framleiðni fyrirtækja og hagkvæmni atvinnulífsins. Margir, sem viðurkenna þessar staðreyndir um aðra þætti viðskipta, streitast enn gegn frelsi í gjaldeyrisviðskiptum og tína til ýmis smáatriði. Af frjálsu gengi leiddi, að röng gengisskráning stæði útflutningsatvinnuvegunum ekki fyrir þrifum eins og oftast hefur verið raunin. Enginn mun and- mæla staðhæfíngu iðnrekenda í nýútkominni stefnu- skrá þeirra, þar sem segir: „Forsenda fyrir heilbrigðri iðnþróun, hvort sem er um framleiðslu fyrir innan- landsmarkað eða til útflutnings að ræða, er raunhæf gengisskráning.” Þar er minnt á einn hinn versta þátt í mismunun stjórnvalda gagnvart íslenzkum iðnaði. Út- flutningsiðnaðinum hefur blætt vegna rangrar gengis- skráningar, meðan sjávarútveginum hefur verið haldið gangandi með „reddingum” langtímum saman. Núverandi ríkisstjórn er ekki líkleg til að auka frelsi í gjaldeyrismálum frá því, sem nú er, en í sumum stjórnmálaflokkunum hefur orðið vart nýs frelsisanda. Gamlir haftaflokkar, svo sem Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, setja fram kenningar um aukið frjálsræði. Þarna gætir meðal annars áhrifa markvissr- ar baráttu Verzlunarráðs og annarra á síðustu árum. Enginn skyldi þó treysta stefnuyfirlýsingum flokkanna, fyrr en þeir láta verkin tala. DREKKA BRENNIVIN 0G SK0KKA EKKERT —en eru heimsins langlífasta þjóð, segir bandarískur greinarhöf undur um íslendinga Nýjustu tölulegar upplýsingar sýna að það land sem fóstrar heilbrigðasta fólkið er nákvæmlega eins og ég hafði imyndað mér það. Þetta land heitir ekki Bandaríki Norður- Ameríku, þar sem allir eru uppteknir við megrunarkúra, heilsubótarskokk og annað því um líkt. Heilbrigði fólks er bezt á íslandi og þar lifir kvenfólk í 79,2 ár að meðal- tali og karlar í 73 ár. Er þetta hæsti meðalaldur, sem þekkist í nokkru landi. Sambærilegar tölur í Banda- ríkjunum eru 76,5 ár fyrir konur og þarlendir karlar geta að meðaltali ekki vænzt þess að lifa lengur en 68.7 ár. Ekki þarf að minnast á lönd eins og Uganda og önnur fátæk ríki þar sem meðalaldurinn er mun lægri og að sjálfsögðu ræðst meðalaldurinn nokkuð af því hvernig Idi Amin og aðrir harðstjórar eru í skapinu í það og það skiptið. Þannig hefst grein, sem birtist í bandarískum blöðum fyrir nokkru eftir dálkahöfundinn Michael Kilian. Greinarhöfundur heldur áfram. Mjög athyglisverð eru þegar hug- leiddar eru ástæðurnar fyrir heil- brigði og langlifi íslendinga þau mörgu atriði, sem þeir láta algjörlega hjá líða að stunda.Er þá áti við ýmiss konar lífsháttu, sem eiga að bæta heilsu fólks og langlífi. Til dæmis skokka íslendingar alls ekki. Þeir leika að vísu stundum knattspyrnu og rölta um á jöklun- um. Einnig fá þeir sér öðru hvoru sundsprett í hinum heitu laugum. Hinar hefðbundnu heilsuræktar- íþróttir láta þeir hins vegar alveg afskiptalausar. Megrunarkúrar eru einnig nær óþekktir á íslandi. Þeir telja sig lítið hafa að gera við megrandi fæðu eins og jógúrt, allskyns gerla, sykurlausa drykki og annað af því taginu. Aftur á móti borða þeir fisk, lambakjöt bæði feitt og magurt, kartöflur, brauð og ost. Allt þetta er borðað i miklu magni. Þá er að hugleiða hvað það er, sem hinir langlífu íbúar þessa lands gera. Þeir drekka til dæmis áfengi. Áfengisd-ykkja er hin þjóðlega tóm- stundaið.t. . Bandarískir læknar klifa stöðugt á þeirri fullyrðingu, að hóf- semi í áfengisneyzlu sé eitt af frum- skilyrðum fyrir langlífi og góðu heilsufari. Hinir langlífu íslendingar mundu kalla það hófsemi í drykkju ef þeir létu aðeins ofan í sig eina flösku af vodka á kvöldi í stað tveggja eins og venjuiega. Áfengissýki er óvenju tíð hlutfalls- lega á íslandi miðað við önnur Evrópulönd og þar á meðal eru meira að segja lönd eins og írland og Sovét- ríkin. Þess eru dæmi að skólabörn hafi sést drekka þjóðardrykkinn — Svarta dauða — á skólalóðinni. Svarti dauði er nær því hreinn spiritus, sem kryddaður er með ofur- litlu af kúmenolíu. Bandarískir læknar predika einnig að hófsemi í kynferðismálum sé leiðin til lengri iífdaga. Slík fullyrð- ing mundi einnig hljóma heimskulega i eyrum íslendinga. íslenzkar konur eru taldar einhverjar þær fegurstu í heimi og hlutfall fæðinga utan hjóna- bands er um það bil 25%. íslenzkur prestur sem ég kynntist kom eitt sinn í samkvæmi ungs fólks. Þegar farið var að líða á samkvæmið og fólk almennt farið að dansa uppgötvaði hann að hann var einn örfárra sam- kvæmisgestanna, sem enn var í fötum. Langlífi íslendinga stafar ekki áf erfðum frá forfeðrunum. ísland var numið af Norðmönnum, Dönum og í minna mæli af írum. Meðalaldur í Noregi er 71.3 ár fyrir karla og 77.6 ár fyrir konur. í Danmörku geta konur búizt við að lifa að meðaltali 76,3 ár og karlar 70.3 ár. í írlandi eru Oflugar aðgerðir 1. maí Gegn kaupráni og ~samráðsf,makki 1. mai í ár verður haidinn við aðstæður sem einkennast af því, að kraftahlutföllin milli stéttanna hafa þróast verkalýðsstéttinni í óhag. 1. maí nk. mun reyna á það hvort vonleysið, deyfðin og óvirknin, sem náð hefur sterkum tökum á verka- fólki almennt og samtökum þess, muni ráða ferðinni og setja sinn jarðarfararsvip á aðgerðirnar 1. maí, eða hvort verkafólk og róttæk öfl innan vinstri hreyfingarinnar muni nota 1. maí til að setja hnefann í borið og segja: Hingað og ekki lengra! Mun verkafólk nota 1. maí til alls- herjarmótmælaaðgerða gegn kaup- ránsstefnu ríkisstjórnarinnar og undanhaldi og „samráðs” pólitík verkalýðsforystunnar? Prófsteinninn á þetta gæti 1. maí nk. vissulega orðið. Hinn þinglegi bjálfaháttur Ávinningar Sólstöðusamninganna ólu vissulega talsverðar vonir meðal margra baráttusinna innan verka- lýðshreyfingarinnar, enda viss ástæða til? Bæði hafði skapast, meðan á samningunum stóð, vísir að baráttusinnnaðri hreyfingu meðal launafólks og opnari starfsháttum innan verkalýðshreyfingarinnar. Miðað við stéttarvitundarstig isl. verkalýðsstéttar, eins og það hefur verið sl. áratug, er sérhver slíkur vísir ákaflega þýðingarmikill, vegna þeirrar einföldu staðreyndar að lif- andi og samhent verkalýðssamtök verða ekki byggð upp á eintómum ósigrum. Þvert á móti grafa þeir undan því afli sem í stéttasamtök- unum býr, veikja innviði þeirra og auka á sundurlyndi og vonleysis „móral”. Kjallarinn Guðmundur Hallvarðsson Ábyrgðin á þessum ósigri verka- lýðsstéttarinnar og þvi vonleysi sem fyigt hefur í kjölfarið hvilir sameig- inlega á forystuliði verkalýðs- hreyftngarinnar og verkalýðsflokk- unum. Sök verkalýðsforystunnar felst i því að hlaupast undan merkjum þegar mest reið á að hún veitti raun- verulega forystu. Sök hennar felst m.ö.o. í því að nýta ekki ávinninga Sólstöðusamninganna til að byggja upp hreyftnguna og undirbúa hana fyrir kerfisbundna vörn þess kaup- máttar er um hafði verið samið. í stað þessa gerir hún það sem er ein- . kennandi fyrir liðhlaupa allra tíma. Hún gefst upp og er gripin heljar- tökum þingræðisglýjunnar. Hinar þingræðislegu tálsýnir verða svo yfir- þyrmandi og forysta verkalýðs- hreyftngarinnar svo ilia haldin af þessum fjanda, að hún virðist sann- færast um að það sem ekki verði leyst með baráttu verkalýðsins muni leysast i kjölfar kosninganna. Skyndilega voru kosningarnar orðnar beittasta vopnið i stéttabaráttunni. „Kosningar eru kjarabarátta” og „upp úr kjörkössunum verða kjara- bæturnar upp taldar." Þannig hljómuðu hin hljómfögru lausnar- orð. Sök verkalýðsflokkanna felst í því að nota kosningasigurinn frá því i sumar til að fleyta sér inn i borgara- lega samsteypustjórn með pólitísk- um fulltrúum borgarastéttarinnar, þ.e. Framsóknarflokknum, í stað þess að nýta hann til eflingar verkalýðssamtakanna, sem sjálf- stæðra stéttasamtaka, óháð borgarastéttinni. Verkalýðsflokkun- um hefði verið nær að vinna að enduruppbyggingu verkalýðssamtak- anna, sem lýðræðislegrar lifandi fjöldahreyfingar, sem fær væri um að sinna þeim faglegu verkefnum að verja kjörin og sem til lengri tíma gætu staðið undir pólitískum völdum. Á þennan hátt hefðu verka- lýðsflokkarnir getað skipulagt sig i nánum tengslum við fjöldasamtök verkalýðsins til samfelldrar stjórnar- andstöðu gegn borgarastéttinni. En auðvitað völdu þeir ekki þessa leið. Trúir stéttasamvinnu og endur- bótastefnunni völdu þeir fyrri kost- inn — leið samsteypustjórnanna, sem er hvað skýrust pólitísk birtingar- mynd stéttasamvinnustefnunnar. Hverju hefur stjórnin áorkað Varðandi afrek stjórnarinnar ætla ég að fara fljótt yfir sögu. Út frá s jónarmiði! verkalýðsstéttarinnar og stéttarlegum hagsmunum hefur hún

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.