Dagblaðið - 27.04.1979, Qupperneq 25

Dagblaðið - 27.04.1979, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979. 29 Gary’s Gang—alls óþekkt hljómsveit til skamms tíma Ævintýrín gerast enn Á nákvæmlega sömu stundu og þú, lesandi góður, litur yfir þessar línur, eru tugir eða hundruð óþekktra hljómsveita að stritast við að æfa lögin sín í kjöllurum og bilskúrum úti um allan heim. Og flestar dreymir þær sama drauminn. Að fá að hljóðrita plötu, slá í gegn og eignast fé og frama. New York-hljómsveitin Gary’s Gang var einmitt ágætis dæmi um slíka hljómsveit. Árangur hennar sannar að ævintýrin geta enn gerzt. Gary’s Gang sló sem sagt í gegn með lagi, sem hljóðritað var í bílskúrs- stúdíói, sem einn af liðsmönnum hljómsveitarinnar hafði baslað við að koma sér upp. Lagið nefnist Keep On Dancin’ og það komst í sjöunda sæti enska vinsældalistans. Sömuleiðis náði það töluverðum vinsældum í Bandaríkjunum. Aðalmennirnir á bak við Gary’s Gang eru þeir Eric Matthew og hægri hönd hans Gary Turnier. Saman semja þeir öll lög hljómsveitarinnar. Þeir sáu einnig um upptökustjórn og útsetningar á nýrri stórri plötu, sem heitir eftir aðallaginu, Keep On Dancin’. Þeir hafa þekkzt frá því að þeir voru smápollar og starfað saman að tónlist síðan þeir voru þrettán ára gamlir. Smíðaði stúdíó í bflskúrnum Á meðan Gary Turnier lauk menntaskólanámi dundaði Eric Matthew sér við að innrétta átta rása stúdíó í bílskúmum heima hjá sér. Hann hafði allt frá æsku leikið sér með segulbönd, kvikmyndatökuvélar og þess háttar, og var orðinn býsna snjall við hljóðupptökutækin. Til að hafa eitthvað að gera fékkst hann við ýmiss konar smá hljóöritanir fyrir fólk auk þess sem hann sótti tíma í tónlistarskóla og lék í hljómsveit með Garyum helgar. Hjólin fóru ekki að snúast svo að neinu næmi fyrr en Eric varð sér úti um sextán rása upptökuborð, sem var orðið of gamalt og slitið til að vera nothæft í fullkomnum hljóðverum. Fyrsta lagið sem strákarnir hljóðrituðu á stóra borðið var einmitt Keep On Dancin ’. Urðu að selja lagið strax „Við urðum að selja lagið eins fljótt og mögulegt var til að fá til baka eitthvað af því fé, sem við eyddum í upptökuna,” segir Eric Matthew. Þeir fóru með upptökuna til eiganda smáfyrirtækisins SAM- Records. Hann heyrði þegar í stað að lagið hafði ýmislegt gott til að bera og gerði samning við strákana. Stuttu síðar tók Columbia útgáfufyrirtækið að sér að dreifa plötunum hjá SAM og þar með var Gary’s Gang í raun og veru komið að hjá stórfyrirtæki. Eftir að Keep On Dancin’ tók að seljast ákváðu þeir Eric og Gary að smala saman í nýja hljómsveit og hljóðrita stóra plötu. Þeir söfnuðu saman 5 vinum sínum til viðbótar og hópurinn tók síðan til óspilltra málanna í bílskúrsstúdíói Erics við að hljóðrita plötuna. Á henni eru sex lög. Fimm þeirra eru með diskótakti, en eitt, You’ll Always Be My Every- thing er rólegt og hugljúft. Tónlist Gary’s Gang er ákaflega létt diskópopp. Platan þeirra er full keimlík, en lög eins og Keep On Dancin’, Do It At The Disco og You’ll Always Be My Everything sýna það og sanna að þeir Eric Matthew og Gary Tumier geta samið áheyrileg og grípandi dægurlög. -AT- GARY’S GANG — Strákamir sjö sem gerðu plötuna Keep On Uancln’ saman. SITTUW AFHVURJU Hefurðu pokkurn tíma veitt nefinu á Ólafiu Newton-John nokkra sérstaka athygli? Ekki það? En samt er það nú svo að nebbinn á henni var kosinn sá mest kynæsandi í heimi. Það var sérfræðingur í fegrunaraðgerðum, Dr. Brent Joseph, sem sæmdi nefið á Oliviu Newton-John þessum titli. Hann benti jafnframt á nítján nef til viðbótar, sem gæfu nefi söngkon- unnar frægu ekkert eftir. Meðal eigenda þeirra em Warren Beatty, Jane Fonda, Kris Kristofferson og Grace prins- essa afMónakó. Til skýringar á vali sínu sagði Dr. Joseph, að nef þessa fólks væru hvorki of stór eða of litil. Þau pössuðu svo nákvæmlega við andlitið að engin skurðaðgerð gæti bætt þar um betur. Fairport Convention undirbýr sig nú af kappi undir síðustu hljómleikaferðina. Hún hefst i lok þessa mánaðar og á að standa til 20. ágúst. Á þeim tima hyggst hljómsveitin ferðast vitt og breitt um veröldina og hætta að þvi loknu. Sú hugmynd hefur skotið upp kollinum að hljóðrita tvenna eða þrenna hljómleika og setja rjóm- ann af þeim upptökum á kveðju- plötu til aðdáendanna. Fairport Convention var stofn- uð árið 1967 og hefur allt frá upp- hafi verið leiðandi hljómsveit í brezku þjóðlagarokki. Ástæðan fyrir því að hljómsveitin hættir nú er sú að aðalmaður hennar, Dave Swarbrick fiðluleikari og söngvari missir nú ört heyrn. Það heyrnarleysi er rakið til hávaða hljómsveitarinnar á hljómleikum. □ Tom Robinson Band — TBR TWO Ný plata með nýbylgjumeistaranum Tom Robinson. Todd Rundgren „producerar” þessa plötu á sniildar- legan hátt. □ Graham Parker and the Rumour — Squeezing out Sparks Graham Parker and the Rumour þykir einhver bezta hljómsveit sem fram hefur komið siöustu árin. Þessi plata á örugglega eftir að auka hróður þeirra. □ Viilage People — Go West Nýjasta hit-lag Village People, In the Navy, er á þess- ari nýju plötu þeirra fclaga. STÓRAR PLÖTUR: □ Eric Clapton — Backless □ Terry Reid — Rogue Waves □ Bee Gees — Spirits Having Flown ; Dr. Hook — Pleasure & Pain ÍTT Linda Clifford — Let Me Be Your Woman lj Dire Straits — Dire Straits □ McGuinn, Clark & Hillman □ Olivia Newton-John — Totally Hot □ Queen — Jazz □ Jefferson Starskip — Gold □ Baccara — Light My Fire □ Instant Funk — Instant Funk □ Amii Stewart — Knock On Wood □ Amanda Lear — Never Trust A Pretty Face □ David Essex — Imperial Wizard □ Gonzalez — Haven’t Stopped Dancin’ □ Gruppo Sportivo — Back To 78 □ Generation X—Valley Of The Dolls □ Journey — Evolution □ One Big Happy Family — Ýmsir □ Manfred Mann’s Earth Band — Angel Station □ La Bionda — Bandido LITLAR PLÖTUR: □ Dr. Hook — Allt the Time in the Word □ Barry Manilow — Could It Be Magic □ Queen — Don’t Stop Me Now □ Blondie — Heart of Glass □ Abba — Chiquitita □ Keith Richard — Run Rudolph Run □ David Essex — Imperial Wizard □ Linda Clifford — Bridge Ovcr Troubled Water □ Olivia Newton-John — Totally Hot □ Bee Gees — Tragedy □ Curtis Mayfield — This Year □ Tom Robinson Band — Bully For You □ Chris Denning — Jamaica Farewell □ Amanda Lear — Fashin Pack □ Boney M. — Hooray, Hooray, It’s A Holy- Holiday FALKIN N Suðurlandsbraut 8. Sími 84670 Laugavegi 24. Sfmi 18670. Vesturveri. Sími 12110.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.