Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979. 5 Gallaða olíumölin á Austf jörðum: UNDIRLAG OG SLIT- LAG MISHEPPNAÐ —Rannsóknastofnun byggjngariðnaðarins varaði sveitarstjórnir við þeirri möl er notuð var Nú liggja fyrir niðurstöður Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðarins á olíumöl sem lögð var á Austfjörð- um í fyrra en hefur reynzt meira og minna gölluð, eins og DB hefur skýrt frá. Oliumöl þessi var blönduð árið 1977 og lögð í fyrra á Neskaupstað, Reyðarfirði og Eskifirði. Olíumölin var fengin frá Olíumöl hf. Samkvæmt upplýsingum Ásbjörns Jóhannessonar hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins var mölin blönduð úr steinefnum úr Melshorni við Reyðarfjörð. Þetta efni hefur verið í sigtinu í nokkuð mörg ár og hafa verið teknar all- nokkrar prufur af því. Þær hafa reynzt misjafnlega og stafar það af þvi að jarðlög eru þarna lagskipt og í lögunum skiptist á gott efni og slæmt. Erfitt er að halda þeim að- skildum. Olíumölin, sem lögð var í fyrra, er farin að skemmast nún'a og sums staðar allverulega. Að sögn Ásbjörns eru ástæðurnar aðallega tvenns konar: í fyrsta lagi er undirbyggingin undir olíumölina ekki nógu góð á sumum stöðunum og í öðru lagi grotnar olíumölin í sundur. Grófari jefnin losna frá og detta upp úr slitlag- inu. ,,Ég tel að ástæðan fyrir þvi að ekki sé nógu góð binding milli stein- efnanna og vegolíunnar,” sagði Ás- björn. Norsk olíumöl var lögð á Aust- fjörðum fyrir nokkrum árum og sagði Ásbjörn að einnig skipti í tvö horn með þá olíumöl en hún hefði þó reynzt mjög vel þar sem undirlagið væri gott. Mikið byggist á því að það ,sé vel gert. Möl hefur einnig verið tekin upp á Héraði, svokölluð Hólsmöl, og þar sem hún hefur verið notuð er olíu- mölin óskemmd eftir tveggja ára notkun. Hún er ekki sambærileg við mölina úr Melshorni. Áður en mölin úr Melshorni var inotuð voru sveitarstjórniraðvaraðar og greint frá því að prufur hefðu reynzt misjafnar. Mölin var notuð þrátt fyrir þessar aðvaranir. JH. HÍFÐURINN í „SVÖRTU MARÍU” A ÓÆÐRIENDANUM Hann er heldur liflaus, ungi maðurinn sem lögregluþjónarnir eru að drösla á milli sin og inn i „Svörtu-Mariu”. Svona getur farið þegar menn eru ungir, voru að Ijúka prófum og fengu sér neðan í því um of í óreyndan likama. DB-myndir Sv. Þorm. Njarðvíkurprestakall: Sr. Þorvaldur Karl kjörinn í gærmorgun voru talin á skrifstofu atkvæði og sr. Þorvaldur Karl Helga- biskups atkvæði í prestskosningum í son, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, Njarðvikurprestakalli er fram fóru sl. hlaut 421 atkvæði. Áuðir seðlar voru 6. fimmtudag, uppstigningardag. Tveir Á kjörskrá voru 1070 en atkvæði prestar voru í kjöri. Sr. Gylfi Jónsson, greiddu 628. Kosningin er lögmæt. sóknarprestur i Bjarnarnesi, hlaut 200 -GAJ- Bekkurínn og gólfið var útatað og eins gott að setjast ekki á bekkinn í Ijósu sumar- fötunum. DB-myndir RagnarTh. Biðskýli SVR á Hlemmi: Þegar sólin skín hitnar vel í hinu nýja biðskýli SVR á Hlemmi. Slíkt hefur nokkur óþægindi í för með sér því þá lekur niður svart efni úr gluggum hins nýja húss. Fyrst í stað var talið að um tjöru væri að ræða en svo mun ekki vera. Bekkur fyrir farþega var fyrir neðan' annan gluggann og draup efnið niður á hann og var þar lítt fýsilegt að setjast. Elínborg Þorgeirsdóttir, vörður i biðskýlinu, sagði að hún hefði þegar látið yfirmenn hjá SVR vita af þessum leka og hefði bekkurinn verið fjarlægð- ur. Elínborg vissi aðeins um eina konu sem hefði fengið óþverra þennan í kápu sína. Bekkurinn var þveginn og náðist efnið burt með vatni og sápu þannig að það ætti að vera hægt að hreinsa föt þótt einhver hefði setzt á bekkinn ein- hvern undangenginna sólardaga. Aðallekinn var úr glugga við kaffi- teríuna, skammt þar frá sem blöð og ritföngeruseld. -JH. Sem sjá má draup hið svarta efni niður úr glugganum þegar hann hitnaði i sólinni. ÓÞVERRINN LAK NIÐUR A BEKKINN — þegar sólin skein á gluggann Erum fluttir tv/ Reykjavíkur Vorum að fá sendingu afþessum vinsælu MALA GUTI-léttum bifhjólum. Hjólin em sjálfskipt og mjög einföld í akstri. Bensíneyðsla aðeins 9lítrará lOOkm ENDURBÆTUR Á ÁRG. 1979: Stærri mótor, hærra undir mótor, steyptar felgurfengir teinar) o.fl. o.fl. KARL H. C00PER, VERSLUN Höfðatúni 2 —105 Reykjavík—Sími 10-2-20 Fyrsta 50cc hjólið á Islandi yer£ meðsteyptum k 345 500 _ magnesíumfelgum *r' ^DDUU-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.