Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 9

Dagblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979. Sveitaball: VERÐUR” „...ÞAR SEM FJÖRIÐ öðrum. Það er nefnilega slæmt að verða eftirlegukind á sveitaballi og engin von á leigubíl. Eftir japl og jaml og fuður fara bílarnir að tínast af stæð- inu og hverfa út á þjóðvegina. Sætaferðabílstjórinn hættir ekki á að fara fyrr en rétt undir það að allir eru farnir til að farþegar hans verði ekki eftir. Einhver afföll hafa þó orð- ið, sumir fengið far í bæinn með öðrum. Annað hljóð í strokknum Ástandið um borð er nú gjörbreytt Engin venjuleg náttúruskoðun Ekki er komið langt út fyrir bæinn með stefnuna á Flúðir i Hruna- mannahreppi þegar Ijóst er að far- þegar eru ekki í náttúruskoðun, í þess orðs merkingu. Brakhljóð, þegar innsiglið á „bokkunni” er rofið, samfara hviss- hljóði þegar kókið er tekið upp, glingur stút við stút, þegar blandað er á milli og: „Æ, dj . . . sóðinn þinn” þegar bíllinn ekur í holu, blöndunin tekst ekki sem skyldi og einhver fær yfir sig gusu af gosi eða víni eftir at- vikum, — verðuraðstöðugum klið. Klúryrði í Kömbunum Háreysti vex eftir því sem bíllinn klifrar hærra yfir sjávarmál upp á Hellisheiðina. Klúryrði byrja að fjúka í Kömbunum og í miðju ölfus- inu: „Ég míg í sætið ef þú stoppar ekki í hvelli!” æpir Stína við mikinn fögnuð farþega sem hvetja hana óspart til þess. Bílstjórinn stoppar í ofboði og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama og Stína ef þeim sé að verða mál. Einhver rifjar upp brandarann um Óla Ket sem sagður er hafa látið kvenfólk fara öðrum megin við bílinn og karlmenn hinum megin og síðan ekið á brott þegar fólk hafði brugðið brókum. „Dj ... kjaftæði,” muldar einn við þessu — sá fyrsti orðinn of fullur og gæti farið að æla hvað úr hverju. Bölvað klúður og rútan ekki nema hálfnuð upp eftir. Nokkur „pissustopp " En heppnin er með, enginn ælir og bara nokkur „pissustopp” í viðbót. Komin að Flúðum og þegar orðið mikið af bílum. Bílafjöldinn svona snemma veit á að hér verður stuðið í kvöld. Þetta þýðir að einhvers staðar annars staðar verður slúttað hálf- tómu balli i miðju kafi og spældur lýðurinn kemur á Flúðir upp úr mið- nætti. Bjánar að fatta ekki hvar liðið yrði. Nú blanda allir og það svo ríflega. að kókið verður glært eins og þvag- prufa. Síðan er skeiðað á staðinn — kominn þangað sem fjörið verður — eins og auglýsingin sagði. „Vá, maður, sex þúsund kall, Kalli, lánaðu tvö upp á blöndu á eftir.” Einhver nýgræðingurinn þekkir ekki verðlagið til sveita. skála. Þá hefur ást tekizt með pari. Einn kastar upp en trygglynd vinkonan Sú feita gengur út Einn „lúðinn” hefur drukkið í sig kjark og lætur sig nú hafa þá feitu og djótu sem ekki hvarflaði að honum í upphafi. Stuðið vex og loks verður eins og allt iði tilgangslaust í húsinu, utan við allan takt hljómsveitarinnar. Slíkt stemmning hefur þann ágæta kost að letja menn til slagsmála sem nánast heyra fortíðinni til á sveita- böllum nú. j Svo er ballið búið. Sumir reyna að æpa fram hljómsveitina aftur, án árangurs. Aðrir fara að ráfa út en sumir bara hreyfa sig ekki og munuekki gera það hjálparlaust í bráðina — dauðir. Umsjónarmaður hússins horfir yfir vettvang og sér fyrir sér langan og strangan vinnudag á morgun. Ekki ætla ég að reyna að lýsa hugsunum hans. Nú hefst mikið bílflaut, hróp, köll og meldingar á planinu fyrir utan. Þeir sem ekki náðu sér í stelpu á ball- inu gera síðustu örþrifa tilraunina. Gengur þeim upp og ofan og miklar „spekúlasjónir” hefjast nú um hvar þessi og hinn sé niður kominn, hvort hann ætli með eða hafi farið með frá því fyrr um kvöldið: ýmist hljóðir elskendur sem slíta vart munn frá munni í holum og „hossingi” í tæpa tvo tíma eða örþreyttir sofandi ein- staklingar af báðum kynjum — sjúskaðir. Einn reynir að halda uppi drykkju- skap við litlar undirtektir, hættir og sofnar. Stoppað til að æla og pissa, en svo fer að kvikna Iíf á einum og einum þegar nálgast borgina. Síðasta vonin Nonni vaknar, horfir sljóum augum í kringum sig, að því er virðist i óljósum tilgangi, en svo er þó ekki. Tveim sætaröðum framar steinsefur stelpa út i hliðargluggann. Nqttni staulast í sætið við hliðina á henni 'og fer að gera sig til við hana. „Hættessu, láttu mig vera, þú ert ógeðslegur,” og Nonni réttir úr sér í. sætinu og starir galtómum augunum fram í tilgangsleysið. Fólk með rænu tínist úr bilnum á leiðinni um bæinn áleiðis til BSÍ en þar ranglar síðasti hópurinn út og einhvern veginn hverfur — kominn þaðan sem fjörið var. GS —já, ekkert jaf nast á við sveitaball „Komið þangað sem fjörið verður . . . hinir frábæru . . . leika . . . sætaferðir frá BSÍ klukkan.......... munið nafnskírteinin. . .” og fyrr eða síðar lætur maður undan tveggja daga tilkynningaskammti í útvarpi og sams konar auglýsingum á hverjum sjoppuglugga fyrir helgina. Þegar öllu er á botninn hvolft er maður svo sem alveg til í svolítið fjör, til tilbreytingar, frábær tónlist er allt- af vel þegin, hvað er á móti skemmtilegri ökuferð út í sveit? og svo á maður nafnskírteini. Sem sagt, allt klárt, og maður mætir á BSÍ á til- teknum tíma. Brottförin dregst að vísu, því lengi á bílstjórinn von á einum, en brátt hefst ökuferðin út í náttúruna. Nútíma rútubílar eru orðnir svo hljóðlátir að gamall sveitaballajálkur hefði ekki komizt í stemmningu hefði ótrúlega mikið glerjaglamur í far- angri farþega ekki bætt þar úr. Sumir fara að leita annarra leiða til að komast inn í húsið, svo sem í gegnum glugga, öðrum er sama hvort þeir drekka inni eða úti, því sveita- böllin fara hvort eð er jöfnum höndum fram inni í húsunum, í bil- unum og úti í guðs grænni náttúr- unni. Mörg þúsund vatta græjur „grúppunnar” sjá til þess að ómur- inn af tónlistinni berst út og heldur uppi stemmningunni. Balliðúti !og inni Svo má líka fara inn og út af þéttar á þær en kösin í kring gefur til- efni til að þjappa þeim saman. Og svo heyra strákarnir bara ekki „múkk” fyrir hljómsveitinni ef stelp- urnar reyna að malda eitthvað i mó- inn. Þær komast ekki svo auðveld- lega undan á flótta í þrönginni og svo getur þetta allt „græjazt” með tím- anum. Rétt er að láta skína í stútinn upp úr buxnastrengnum og sjá hvort vonin um einn gráan mildar hana ekki. Hún slakar til og sjóðheitt ástar- samband kviknar. Grípur fólk nú til þess ráðs í þessari stöðu að halda fast hvort utan um annað á dansgólfinu í Stund milli stríða. blunduðu fyrir vígum. Dæmigerð utanhússena frá sveitabailí. Lengst til hægri ræða félagar málin og passar blönduna á meðan. Loks hefur einn fengið nóg af öllu f bili og blundar. sveitaböllum með því að fá miða við útganginn og afhenda aftur þegar maður kemur aftur inn. Slíkt fyrir- komulag kemur sér einkar vel af ýmsum ástæðum. T.d. hrapar hrein- læti salemanna niður fyrir staðla sal- erna í arabiskum fátækrahverfum og kjósa menn þá heldur að létta á sér við húsvegginn. Gildir einu hvort kynið er. Og á stöðum — þar sem fjörið er — er ótakmörkuðum fjölda selt inn þannig að neyðarástand ríkti ef fólk gæti ekki verið á rápinu inn og út. Loks má svo nefna að vínveitingar eru ekki á sveitaböllunum svo sam- komugestir þurfa oft að skreppa út í bíl eftir meira af glæru kóki. Inni gengur mikið á. Hljómsveitin gefur ekkert eftir svo maður finnur hljóðbylgjumar skella á sér. Sam- ræður fara því fram með hátt á ann- að hundrað desibela styrk sem talinn er skaðlegur heyrn manna. Táknmál í hávaðanum Táknmál kemur i staðinn. Stelp- urnar skilja nokk hvað strákarnir eru að fara þegar þeir rekast tíðar og von um að troðningur aðskilji það ekki. Til öryggis krækir það saman tungum við og við. Einn og einn „lúði” ráfar um, nær sér ekki í stelpu en drekkur þá gjarn- an mun meir en aðrir í staðinn. Ást í aftursæti Elskendurnir tveir þreytast nú á ónæðinu og kemur þá enn einn kostur þess að geta farið inn og út úr húsinu í ljós. Parið leiðist út og kapp- inn hefur „innhlaup” í bíl vinar síns. Þar hefur parið næði til að þróa ást- arlíf sitt. Hvergi á víðavangi er jafn- mikið elskazt og á bílastæðum félags- heimila til sveita. Kvikna þar jafnt hjónabönd, ein- staklingar og eldar í aftursætunum þegar elskendurnir gleyma að drepa í sígarettunum í hita leiksins. Aftur á ballið. Þrátt fyrir góðan ásetning kvenfélagsins og ungmenna- félagsins um að hafa húsið hið snyrti- legasta eru innanstokksmunir teknir að riðlast, gólfið að klístrast af gosi og víða eru glerbrot í hornum og undir stólum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.