Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979. ; DB á ne ytendamarkaði Þeir Reykvíkingar sem tryggt hafa sér kartöflugarða til leigu við Korpúlfsstaði geta farið að setja niður um helgina. Þegar ljósmyndari Dagblaðsins ók fram hjá görðunum í vikunni var verið að plægja og undir- búa jarðveginn. í kartöflugörðunum i Skammadal er hins vegar ennþá nokkurt frost í jörðu en ef þíðan helzt verður byrjað að plægja þar eftir helgina. Sunnlendingar mega vist aldeiiis prísa sig sæla með þetta á meðan norðanmenn stynja undan snjó og klaka. DS. kariöfíur um hebdna Kartöflugarðarnir við Korpúlfsstaði plægðir. DB-mynd Sv. Þorm. Enn aukin þjónusta Höfumopnaó Smurstöð í GarÖabæ Við hliðina á SHELL bensínstöðinni við Vífilsstaðaveg Þar bjóðum við bifreiðaeigendum fjölbreytta þjónustu, meðal annars: Olíufélagið Skeljungur hf. • alhliöasmurnmgsvinnu 3 1 9 • loft- og olfusfuskipti Smurstöð Garðabæiar • endurnyjun rafgeyma og tilheyrandi hluta Pors,ei„n ,„gi Kragh • viftureimaskipti, rafgeymahleðsla, ofl. ofl. simi: 42074 Verið velkomin og reynið þjónustuna hjá liprum og vönum mönnum. NU GETA ALLIR BÚIÐ TIL SÍIMA EIGIN PIZZA APPIRN WAY PIZZA TILBUIÐ DEIG MTiAN WAV- | PIZZA 5 | spread easy .. % f i o u r m'iJi i KRYDD- SÓSA AMERISK GÆDAVARA FÆST í HELZTU MATVÖRUBÚDUM ESKIFJARDARDEILD NEYTENDASAMTAKANNA Eskifjarðardeild Neytendasamtak- anna var stofnuð sl. laugardag. Reynir Ármannsson, formaður Neyt- endasamtakanna, kom til Eskifjarðar og upplýsti fólk um nauðsyn samtak- anna. Síðan svaraði Reynir skil- merkilega öllum fyrirspurnum sem fundarmenn báru fram. Á stofnfundinn komu 33 menn og gengu allir i Eskifjarðardeildina. Áhugi var mikill meðal fundar- manna. Reynir tók fram að hvergi fyrr, þar sem slikar deildir hafa verið stofnaðar, hefðu allir fundarmenn gengið í deildina. Sex manna nefnd var kosin á stofn- fundinum. Formaður var kosinn Sveinn Benónýsson, varaformaður Gunnlaugur Ragnarsson, Gréta Jóns- dóttir gjaldkeri, Bragi Haraldsson ritari og meðstjórnendur Herdis Hermóðsdóttir og Guðbjörg Björns- dóttir. -Regína/JH Málmurinn ítannkremstúpum: Hættulaus með öllu Jón Á. Guðmundsson skrifar: Ég vildi gjarnan spyrjast fyrir um það hvort málmurinn sem er í Kópral flúor tannkremstúpunum sé banvænn, stórhættulegur eða bara dálítið hættulegur. Svo er mál með vexti að ég keypti mér umrædda tannkremstegund en eftir nokkurra daga notkun tók ég eftir því að það tannkrem sem fremst var í stútnum frá því ég notaði það síðast var komið með málmlit. Einnig er greini- legt að innan i tappanum, sem er úr plasti, kemur málmlitur í tannkrem- ið. Þetta kann að virðast smámuna- semi en þið hafið nú oft veitt minni hlutum meiri athygli en þetta kallar á.__ Db hafði af þessu tilefni samband við Heilbrigðiseftirlit ríkisins og fékk þar eftirfarandi svar: í túpur sem þessar er nær undan- tekningarlaust notað hreint ál sem ekki telst vera hættulegt þó það komist í snertingu við tennur og slím- himnu í munni eða jafnvel þó þess sé neytt í dálitlu magni. Samkvæmt upplýsingum framleiðandans eru túpur undir Kópral flúor tvílakkaðar að innan og því á kremið ekki að komast í snertingu við málminn en það inniheldur dálítið af efnum sem gætu verkað ætandi á ál. Annað- hvort er þá að lakkhúðin hefur gefið sig eða að umræddur málmlitur stafar af því að tannkrem hefur komizt í snertingu við ytra byrði stútsins sem í þessu tilviki er úr áli (nú orðið er algengt að stútur slíkrar túpu sé hafður úr plasti), kemur þetta heim og saman við upplýsingar bréf- ritara um málmlit innan í tappanum. Blýtúpur eru i dag einungis notaðar undir málningarliti, lím og hliðstæða vöru að því er undirrituð- um er kunnugt. Raddir neytendá HQT ÁVAXTAKAKA Guðrún Guðmundsdóttir í Hafnar- firði sendi okkur þessa uppskrift að heitri ávaxtaköku sem hún sagði að væri alveg sérstaklega góð: •egg 1 bolli sykur 1 bolli hveiti 1 og 1/4 tsk. lyftiduft. 1/2 dós ananas, kurlaður 1/2 bolli kókósmjöl 1/2 bolli púðursykur is eða rjómi. Lyftidufti, hveiti, sykri og eggi hrært saman við ávaxtasafann. Síðan eru ávextirnir látnir saman við. Blandan er látin í eldfast mót, ekki djúpt. Ofan á er stráð kókosmjöli og púður- sykri, sem blandað hefur verið saman. Þetta er bakað í 160 gráða hita í 20 mínútur. Kakan er borin fram með is eða þeyttum rjóma, lík- lega ís núna í verkfallinu. Kakan er einnig góð köld með þeyttum rjóma. Kakan kostar um 900 krónur. -DS. Uppskrift dagsins

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.