Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.' 27 BÆJARINS BEZTU {Stutt kynning á því athyglis-. jverðasta sem kvikmyndahús [borgarinnar bjóða upp á Traffic iLMkstjóri: Jacquas Tati, garð I Frakklandi I ftalkj 1970. Sýningarstaöur Regnboginn. Regnboginn endursýnir um þessar mundir Traffic sem var jóla-( mynd Hafnarbíós 1975. Myndin hefur lítiðelzt þvienn hlæja áhorf-' endur innilega. Þess vegna er það furöulegt að bíóstjórar skuli ekki ■hafa keypt hingað til lands eldri Tatimyndir sem eru jafnvel enn> fyndnari en Traffic. Myndin fjallar um ferð franskra bílframleið-'' enda á bílasýningu í Amsterdam. Áður en þeir komast með isýningargripinn á áfangastað gerast spaugilegir hlutir. Enn Isem fyrr gerir Tati grin að tækninýjungum nútimans og blikkbeljan fær háðuglega útreið. Þess vegna er það tilvalið að þeir sem voru1* með eitthvert píp hérna um daginn sjái þessa mynd og jafnframtjt sjálfa sig í sinni hryggilegustu mynd. Capricorn One Leikstjórí: Peter Hyams, gerö í Bandaríkjunum 1977. Sýningarstaður Regnboginn. Hugmyndin að baki Capricorn One er nokkuð athyglisverð. Geim- far er sent til Mars og tilkynnt að 3 geimfarar séu innanborðs þótt það sé víðs fja.rri sannleikanum. Með tæknibrellum og sjónhverf-1 jingum tekst að láta þjóðina trúa þessu þangað til forvitinn blaða-i imaður kemst í málið. Upp frá því tekur myndin á sig meira yfir- ■bragð hasarmyndar. Þótt Capricorn One fari hægt af stað tekst jleikstjóranum að skapa töluverða spennu þegar fer að líða á seinni hlutann. Heildarútkoman verður því þokkaleg afþreyingarmynd, ■með töluverða alvöru að baki. Leikurinn er ekkert sérstakur en tæknivinnan mjög góð á köflum. Superman Leikstjórí: Richard Donner. gerfl I Bretlandi 1978. Sýningarstaflur Háskóiabió. Superman hefur þann vafasama heiður að vera talin ein dýrasta Imynd sem gerð hefur verið enda ber hún greinilega merki þess. Myndin er ein tæknibrella í gegn og eru sum atriðin ótrúlega vel unnin. Þar á stóran hlut kvikmyndatökumaðurinn Geoffrey Uns- worth. Efni myndarinnar er byggt á teiknimyndaseriunni Super- man, sem sköpuð var 1938 og fjallar um ofurmennið Clark Kent sem kom til jarðarinnar frá plánetunni Krypton. Þessi Kent hefur flesta kosti og dyggðir sem fyrirmyndarsonur flestra ætti að hafa. |Þannig má segja að Superman sé draumasonur vísitölufjölskyld- unnar. Margt frægra leikara kemur fram en Gene Hackman í hlut- ■ verki þorparans kemur sterkast út. Einnig fer óþekktur leikari, Christopher Reeve, mjög vel með hlutverk Superman. ■c,——.—.— ” * Stay Spacek og Sheöy Dartl ItUu stér hlntrerk I my i3ko 3 konur L«fl»4óri: Robart Ahman. garil I Bvdrafijuraim 1977. Sýningarataflur Nýja Bió. Að öllu forfallalausu mun Nýja Bíó taka til sýningar 3 konur um! hvítasuijnuna. Robert Altman byggir söguþráðinn á draumi, ef söguþráður skyldi kallast, og gefur þetta myndinni dulrænan blæ. I myndinni eru 3 aðalpersónur, sbr. heiti myndarinnar, sem eru mjög ólíkar. Altman tengir þær mjög vel saman og notfærir sér til þess drauma jafnt sem raunveruleikann. Leikur er talinn mjög góður og fékk Shelly Duvall m.a. verðlaunin í Cannes 1977 fyrir besta leik- konuhlutverkið en hún var „uppgötvuð” af Altman og hefur leikií mikið í myndum hans. 3 konur ásamt Nashville og MASH hafa verið taldar bestar mynda Altmans en honum eru oft mislagðar hendur. Útvarp Sjónvarp ÁFANGAR—útvarp í kvöld kl. 23,10: LÍTT ÞEKKTAR ROKKHUÓM- SVEITIR KYNNTAR „Þessi þáttur er einn hlekkur i þeirri viðleitni okkar að varpa nokkru ljósi á lítt þekktar rokkhljómsveitir samtim- ans,” sagði Guðni Rúnar Agnarsson, annar umsjónarmanna Áfanga, í sam- tali við DB. „Ymsir hafa viljað draga þessar hljómsveitir I einn dilk og nefna ný- bylgjurokk en við erum ekki hlynntir þeirri aðgreiningu. Hafa verður i huga margar sögulegar og tónlistarlegar for- sendur og þvi er erfitt að flokka þetta. í þessum þætti ætlum við að taka fyrir söngkonur og kvenlagasmiði sem hafa komið fram á stðustu árum. Við munum kynna söngkonuna Patti Smith en hún er að mðrgu leyti nokkuð leið- andi afl innan þessa tónlistarafbrigðis. Hún er nokkuð eldri en það fólk sem hefur verið að koma fram á allra síðustu mánuðum og er nokkurs konar guðmóðir þessa rokkfyrirbæris. En margar þær söngkonur sem við höfum verið að kynna hafa komið fram á allra siðustu mánuðum. Við reymum að draga fram tengsl þessara listamanna við fortiðina,” sagði Guðni Rúnar. -GAJ- t-----—....... \ LEIKRITVIKUNNAR —útvarpíkvöld kl. 21,05: peningar Leikrit vikunnar að þessu sinni er Blóðpeningar eftir R.D. Wingfield, í þýðingu Jóns Björgvinssonar. í bankaútibúi t brezkum smábæ er sitthvað á seyði. Nýr útibússtjóri tekur við en hann á dálítið grugguga fortíð og einn af starfsmönnum bankans telur sig standa nær þvi að fá stöðuna. Ekki bætir það úr skák að viðvaningur er á simaskiptiborðinu. Og þegar konu úti- bússtjórans er rænt fer heldur betur að hitna í kolunum. Leikstjóri er Þorsteinn Gunnarsson en í stærri hlutverkum eru Helgi Skúla- son, Gísli Alfreðsson, Sigurður Sigur- jónsson, Hanna María Karlsdóttir o.fl. Flutningur leiksins tekur liðuga klukkustund. Höfundurinn, R.D. Wingfíeld, er orðinn vel kunnur íslenzkum útvarps- hlustendum, því að þetta er fimmta leikrit hans sem flutt er hér. Hann er afkastamikill höfundur sem einkum skrifar fyrir brezka útvarpið og er mjög vinsæll þar í landi. Auk þess sem leikrit hans eru afar spennandi eru þau með gamansömu ivafi og uppáfinningasemi Wingfields virðist eiga sér litil tak- mörk. ■nnBi SKARTGRIPIR við öll tœkifœri SIGMAR Ó. MARÍUSSON Hverfísgötu 16A — Sfmi 21355. «* NILFISK V Nú er sterka ryksugan sterkari... NILFISK StlPER /f NYR SUPERMÓTOR: Áflur sogkraftur. NÝ SOGSTILLING: AuflveK afl tampra kraftinn NYR PAPPÍRSPOKI MEÐ HRADFESTINGU, ennþá stærri og þjálli. sogorka í sérflokki Ofantaldar og fleiri Nðfisk: ■ og fyllsta notagHdi. Jé, svona ar Nilfisk: Vöndufl og 1 sltt verk f(ótt og vel, ár eftir ár, með I : tii lengdar ódýrust. , gerfl tH að vinna NILFISK Stórorfl, Afborgunarskiimálar. Traust þjónusta FYRSTAFLOKKSFRÁ /rO nix Hátúni — Sími 24420

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.