Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979. 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir i iari mynd Bjamieifs kljást þeir um knöttinn, Ingi Bjöm og Guðmundur Baldursson 91 augunum vítaspymu menn gátu andað léttar í gærkvöldi gaf vel út í teiginn til Rafns, sem skallaði knöttinn áfram til Guðmundar Steinssonar. tíuðmundur nikkaði knettinum skemmtilega aftur fyrir sig og nafni hans í Valsmarkinu tók að þessu sinni fram sparihanzkana og varði af snilld. Þunginn í sókn Valsmanna tók að aukast en þeir áttu í erfiðleikum með að finna leið framhjá Marteini Geirssyni í Framvörninni. Á 71. mínútu skallaði Atli rétt framhjá eftir aukaspyrnu Harðar og skömmu síðar hitti Ásgeir Elíasson boltann illa við hitt markið í upplögðu færi. Fjórum mínútum fyrir leikslok kom upp misskilningur í Valsvörninni og Pétur Ormslev, sá eldsnöggi miðherji, komst einn í gegn, en Dýri náði að komast fyrir skot hans á elleftu stundu. Varla þarf að spyrja að leikslokum ef skot Péturs hefði fengið að sigla óáreitt að marki. Það er oft skammt stórra högga á milli í knattspyrnu, sem og annars staðar og á nasstu mínútu fengu Vals- menn dæmda vítaspyrnu. Boltinn barst inn í teig Framara þar sem Ingi Björn náði til hans .Engin hætta virtist á ferðum en skyndilega vippaði Ingi boltanum snyrtilega upp í hendina á Gunnari Guð- mundssyni, sem átti sér einskis iUs von, og vítaspyrna var umsyifalaust dæmd. Ingi Björn skoraði sjálfur úr spyrnunni af stöku öryggi að vanda. Á lokamínútu leiksins komst Jón Einars- son óvænt í gott færi, en það rann út í sand- inn. Þegar upp var staðið var jafntefli e.t.v. sanngjarnast, en Framarar voru ekki nema hársbreidd frá sigri í gær. Af þeirra leikmönnum ber fyrst aðnefna Martein Geirsson, sem flestar snkn”- Vals strönduðu á Þá vöktu þeir framherjar Guð- mundur Torfason, nafni hans Steinsson og Pétur Grmslev mikla athygli fyrir knattlip- urð. Guðmundur Steinsson oflék þó oft á tíðum er brotið var á honum og ætlaði að freista þess að blekkja dómarana með lát- bragði sínu. Guðmundur er ekki sterkbyggð- ur leikmaður né hávaxinn en getur ekki búizt við þvi að hann fái meiri vernd frá dómara en aðrir leikmenn. Þá vakti Ásgeir Elíasson athygli fyrir óvenjuslakan leik að þessu sinni. Gunnar Bjarnason lék sinn fyrsta leik með Fram og virtist ekki finna sig, enda ekki i góðri æfingu enn sem komið er. Valsmenn leika nettan fótbolta eins og áður en allan brodd vatnar í sóknina hjá þeim. Atli og Hörður voru yftrburðamenn í gær og báðir hafa þeir frábært auga fyrir samleik. Undarlegt annars að Hörður skuli ekki vera í landsliði. Þá varði Guðmundur oft mjög vel í markinu. Valsmenn voru án Guðmundar Þorbjörnssonar og í lið Fram vantaði Kristin Atlason. Sævar Sigurðsson dómari dæmdi leikinn prýðilega ef undan er skiiin yfirsjón hans í lokin. Hann dæmdi tvívegis vítaspyrnur, harðir dómar það, en hafði í báðum tilvikum á réttu að standa. MAGNÚS OG EYJÓLFUR í RAÐIR VALSMANNA? Allir straumar virðast nú Uggja yfir i Vai i handboltanum. Fyrir skömmu gekk Gunnar Lúðviksson úr Gróttu yfir i Val og þá einnig Hörður HUmarsson úr Stjörnunni yfir i Val, en Hörður hefur geUð sér gott orð með knattspyrnuUði þeirra Valsmanna. Fyrr i vik- unni fréttist það að Stefán HaUdórsson úr HK ætiaði yfir í Val og nú hefur DB heyrt það eftir áreiðanlegum heimUdum að Vals- mönnum muni berast enn frekari Uðsauki á næstunni. Þeir félagar Magnús Teitsson og Eyjólfur Bragason úr Stjörnunni munu báðir hafa fuUan hug á að ganga til Uðs við Valsmenn. DB vissi tU þess, að lagt var hart að Magnúsi að ganga yftr i FH, en hann mun heldur hafa vUjað ganga tU liðs viö Valsmenn. Eyjólfur hyggst einnig ganga yfir í Val þannig að Vals- menn eiga nú stórskyttur á hverju strái. Ef svo fer, að Magnús og Eyjólfur ganga yfir í Val má segja að kjami Stjömuliðsins, sem féll niður i 3. deild í vetur sé þar með farinn. Þessir tveir ieikmenn ásamt Herði HUmarssyni hafa verið burðarásar liðsins undanfarin ár og ekkert lið má við því að missa sUka leikmenn. Þrátt fyrir ágætis mannskap féll Stjarnan öUum á óvart, og sennUega strákunum sjálfum hvað mest í 3. deUdinni. Það eru því allar líkur á því að dvöl Stjörnunnar verði lengri i 3. deildinni en í fyrstunni var fyrirhugað. Helgi varði víta- spymu Janusar! —og Víðir sló FH út í bikamum í gærkvöldi Það var mikið um að vera á knatt- spyrnuvöilum víða um land i gær- kvöldi, en þá fór fram 1. umferð f for- keppni bikarkeppni KSÍ. Þá áttu að fara fram 14 leikir, en tveimur varð að fresta. Þau úslit, sem mest komu á óvart voru vafalitið þau, að Víðir úr Garði vann 2. deildarlið FH 7-5 eftir vitaspyrnukeppni. Þá kom sigur Stjörnunnar yfir Reyni í Sandgerði áifka á óvart en þar máttu Reynismenn bita í það súra epU að tapa 0-1 fyrir 3. deildarliði Stjörnunnar. TU þess að gera langa sögu stutta skulum við byrja f höfuðborginni og vinna okkur vestur á við. Fylkir — Öðinn 2-0. Nágrannaliðin Fylkir og Óðinn áttust við í gærkvöldi á FylkisveUinum í Árbænum. Eftir lát- lausa pressu Fylkis aUan leikinn höfðu þeir aðeins uppskorið tvö mörk, sem þeir Grettir Gíslason og Andrés Jóns- son skoruðu. Mörkin hefðu allt eins getað orðið 10 talsins, en tvö nægðu Fylki að sjálfsögðu fylUlega þar, sem liðið heldur áfram og mætir Grindavík í næsta leik. Víkingur, Ólafsvík — Grótta 1-4 (0- 1). Þessi úrsUt komu einnig verulega á óvart. Vikingur hefur löngum verið erfiður heim að sækja og er skemmst að.minnast þess, að sjálfir Skagamenn unnu aðeins 3-1 í Bikarkeppninni í Ólafsvík fyrir nokkrum árum. Gunnar Lúðvíksson skoraði eina mark fyrri hálfleiksins og í þeim síðari komst Grótta í 4-0 með mörkum frá Gunnari, Gísla Gíslasyni (víti) og Friðriki Friðrikssyni. Eina mark heimamanna skoraði Guðmundur Kristjánsson rétt fyrir lelkslok. Grótta mætir Heklu næst. Bolungarvík — ísafjörður. Þessi leikur var einn af mörgum, sem þurfti að framlengja. Jafnt var eftir venjuleg- an leiktíma og einnig eftir framleng- ingu. Var þá notazt við vftaspyrnu- keppni og í henni sigruðu ísfirðingar. Tindastóll — Völsungur 4-1. Heima- menn höfðu umtalsverða yfirburði í þessum leik eins og tölurnar gefa til kynna, en það kom á óvart hversu slöku liði Völsungar höfðu á að skipa. Þeir hafa reyndar misst marga mjög góða leikmenn og má þar nefna Kristján Olgeirsson til ÍA og Hafþór Helgason til Þórs á Akureyri. Tinda- stóll mætir næst Reyni frá Árskógs- strönd. Leiftur — Magni frestað. Leik Leift- urs og Magna varð að fresta vegna þess, að ekki var hægt að leika á vellin- um í Ólafsfirði í gærkvöldi. Þar er enn snjór yfir öllu og illmögulegt að iðka knattspyrnu. Er við höfðum samband við Jóhann Helgason, formann knatt- spyrnudeildar Leifturs, sagði hann að þeir ætluðu að reyna aftur í næstu viku og væri þá vonazt til að hægt væri að ljúka leiknum af. Huginn — Einherji frestað. Mjög illa gekk að fá upplýsingar um af hverju leiknum hafi verið frestað. Það fékkst þó á hreint að leiknum var frestað, en hvenær leika á vissi enginn, sem við náðum í. Leíknir — Þróttur 1-5. Þarna þurfti vitaspyrnukeppni til að útkljá leikinn eins og víðar. Staðan var 1-1 að venju- legum leiktima loknum og einnig eftir framlenginguna. í vítaspyrnukeppn- inni voru heimamenn hins vegar alger- lega heillum horfnir og skoruðu ekki úr einni einustu á meðan Þróttarar tryggðu sér sigurinn með því að skora úr fjórum af sínum fimm spyrnum. Þróttur mætir Súlunni næst. Súlan — Sindri 2-1. Súlan, Iitla félagið á Stöðvarfirði, vann sætan sigur á nágrönnum sínum, Sindra frá Hornafirði, með mörkum þeirra Óttars Ármannssonar og Jóns Björnssonar Hrafnkell Freysgoði — Austri 0-2. Loksins tókst Austra að vinna sigur. Lítið er vitað um þennan leik utan það, að sigur Austra mun hafa verið fylli- lega sanngjam i alla staði. Selfoss — Afturelding 3-0 (1-0). Sel- fyssingar hefndu tapsins fyrir Aftureld- ingu í Bikarkeppninni á dögunum er þeir töpuðu 1-3 með því að skella þeim 3-0 á Selfossi í gærkvöldi. Selfyssingar höfðu undirtökin allan tímann, en það þurfti þó sjálfsmark til að koma þeim á bragðið í fyrri hálfleik. í þeim siðari bættu Ámundi Sigmundsson og marka- kóngurinn Sumarliði Guðbjartsson við mörkum og öruggur sigur Selfoss var i höfn. Selfoss leikur við Leikni, Reykjavík, í næstu umferð. Þór, Þorlákshöfn — Ármann. Þór gaf. Að sögn Stefáns Garðarssonar í Þorlákshöfn urðu Þórsarar að gefa leikinn vegna þess, að þeir höfðu ekki nógan mannskap í lið. Fimm leik- manna þeirra era í skóla og gátu ekki komizt til leiksins. Víðir, Garði — FH 7-6. Það er víst ekki of mikið sagt að segja að mikið hafi gengið á í Garðinum í gærkvöldi þegar 3. deildarlið Víðis lagði 2. deildarlið FH að velli í æsispennandi leik eftir vítaspymukeppni. Lið Víðis er skipað ungum leikmönnum en þeir eru baráttuglaðir og gefa ekkert eftir og það fengu FH-ingarnir að reyna. Það var þó FH, sem náði forystunni i leiknum. Það var Valur Valsson, sem var rétt kominn inn á sem varamaður, sem skoraði. Þeir Guðjón Guðmunds- son, FH, og Jónatan Ingimarsson sáu síðan um að skora jöfnunarmark Viðis — hálfgert sjálfsmark hjá Guðjóni. Að venjulegum leiktíma loknum var staðan jöfn og þurfti að framlengja. Guðmundur Jens Knútsson kom þá Víði yfir með góðu marki, en Janus Guðlaugsson, FH, jafnaði svo að segja á sömu mínútu. Liðin voru enn jöfn eftir 120 minútur og þurfti þá að fara fram vítakeppni. Bæði liðin skoruðu úr fjóram fyrstu vítaspyrnum sínum og mikil spenna var undir lokin. Janus Guðlaugsson tók 5. spyrnu FH, en Helgi Bjarnason, mark- vörðúr Víðis, gerði sér lítið fyrir og varði víti Janusar. Víðir átti eina spyrnu eftir og gat tryggt sér sigur með því að skora úr henni. Jónatan Ingi- marsson var of fljótur á sér því hann skaut og skoraði áður en dómarinn hafði gefið merki. Hann varð því að taka spyrnuna aftur og honum urðu engin mistök á og skoraði af öryggi við geysilegan fögnuð félaga sinna. Reynir, Sandgerði — Stjarnan 0-1 (0- 1). Sigur Stjörnunnar kom eins og þrama úr heiðskíru lofti yfir Reynis- menn, sem höfðu átt góðan leik gegn Þrótti, Nes. um sl. helgi. Þeir áttu hins vegar ekkert svar við ágætum leik bar- áttuglaðra leikmanna Stjömunnar og sátu því eftir með sárt ennið. Birkir Sveinsson skoraði markið. Að sögn var leikurinn mjög slakur og lítið um mark- tækifæri í honum. Stjarnan leikurgegn Breiðabliki í næstu umferð, en Víðir færÁrmann. ÍK — Grindavík 2-4. Í þessum leik átti það óhapp sér stað að markvörður ÍK fótbrotnaði og hjálpaði það upp á sakimar. Annars var það Jósep nokkur Ólafsson, sem kom inn á í hálfleik hjá Grindavík, sem átti mestan þáttinn í sigri þeirra. Staðan í hálfleik var 0-0 og 2-2 að venjulegum leiktíma loknum. í framlengingunni höfðu svo Grindvík- ingar betur og tókst að knýja fram sigur. Þeir mæta Fylki í næsju umferð. -emm / SSv. Þrumuskalli Francis Nottingham Forest varð f gærkvöldi Evrópumeistari féiagsliða. Þrumuskalli Trevor Francis, milljón punda leik- mannsins, rétt fyrir lok fyrri hálfleiks nægði Forest.þvi ekki voru fleiri mörk gerð f leiknum. Þetta er i fyrsta skipti, sem Forest vinnur til þessa titiis, en bikarinn fer nú til Englands þriðja árið í röð. Það voru víða stór auð svæöi á ólympíuleikvanginum í Múnchen, þar sem leikurinn fór fram, í gærkvöldi. Rúmlega 20.000 áhangendur Forest komu til Múnchen til að fylgjast með leiknum og gleði þeirra var mikil eftir leikinn. Árangur Forest hefur verið hreint ótrúlegur eftir að Brian Clough dreif liðiö upp úr annarri deild fyrir tveimur árum. f fyrra varð liðið enskur meistari og vann deildabikarinn og í ár vann Forest deildabikarinn á ný og svo þennan eftirsóttasta titil allra liða, Evrópumeistaratitilinn. Forest hafði lengst af undirtökin i ieiknum en fyrstu 15 minúturnar ein- kenndi mikil taugaspenna leikmenn liðsins. Smám saman fóru leikmenn liðsins að spila af eðlilegri getu og þá kom munurinn fljótlega ! ljós. f lið Malmö vantaði tvo þeirra beztu varnar- menn auk þess, sem Staffan Tapper meiddist skömmu fyrir leikhlé. Malmö notaði mjög mikið rang- stöðutaktik í leiknum og leikmenn Forest létu hvað eftir annað góma sig langt fyrir innan vömina. Eina mark leiksins kom eins og fyrr sagði rétt fyrir leikhlé. Franris tók þá 30 metra sprett inn í teiginn hjá Malmö og skallaði knöttinn glæsilega í netið eftir góða fyrirgjöf frá John Roberts- son, sem margsinnis fór illa með vörn Svíanna, en alls tókst Svíunum 18 sinnum að plata leikmenn Forest i rangstöðugildruna. John Robertsson fór herfilega að ráði sínu á 64. mín. er hann hafði nægan tíma til að skora, en skot hans fór i stöngina eftir frábæra sendingu Trevor Frands, sem var tvímælalaust bezti maður vallarins. Þetta var fyrsti Evrópuleikur Francis, sem hann var ekki löglegur fyrr í keppninni vegna sölu hans frá Birmingham. Framkvæmdastjóri Forest, Brian Clough sagði 1 gær, að þessi sigur væri æðsti draumur hvers framkvæmdastjóra og aö áhangendur Forest hefðu sýnt liðinu mikla tryggð með því að fjölmenna á leikinn. „Við vorum stoltir af áhangendum okkar í kvöld,” sagðiClough. Bob Houghton, stjóri Malmö, var hins vegar ekki eins hress og sagði: „Eftir tvær vikur mun enginn einu sinni muna eftir okkur. Það eina, sem gildir er að sigra í svona úrslitaleikjum, annars minnist manns enginn.” Hinir ungu leikmenn Malmö stóðu sig þó flestir mjög vel, en fyrir leikinn hafði enginn gert sér hinar minnstu vonir um sigur Malmö nema ef vera skyldi þeirra allra hörðustu aðdáendur. Stemmingin á vellinum varð aldrei neitt sérstök — til þess vora allt of stór svæöi í áhorfendapöllunum auð. Liðin vora þannig skipuð í gær- kvöldi: Forest: Peter Shilton, Viv Anderson, Frank Clark, John McGovern, Larry Lloyd, Kenny Bums, Ian Bowyer, Gary Birtles, Tony Wood- cock, John Robertsson. Malmö: MöUer, Roland Anderson, Ingemar Erlandsson, Jönsson, Magnus Andersson, Staffan Tapper, (Malm- berg á 35. mín.), Anders Ljungberg, Prytz, Tommy Hansson (Tommy Andersson á 83. mín.) Tore Cervin og KinnvaU.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.