Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 9
DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979. 9 Vöruflutningaskipum fjölgar óðum við bryggjur, sem afleiðing verkfalls yfirmanna á farskipum og verkbanns sem fylgdi í kjölfarið. Á meðan flyzt ekki fiskur úr landi og ekkert til landsins sjóleiðis. Aðstoðarf ramkvæmdastjóri Sjávaraf urðadeildar SÍS: Eríendir kaupendur fara að skipta við aðra fiskseljendur Skortir þegar fisk til að standa við samninga í Bandaríkjunum „Það alvarlegasta er, þegar til lengri tíma er litið, að nú þegar vant- ar fisk til að uppfylla þarfir kaup- enda í Bandaríkjunum. Með hverjum deginum vex hættan á að þeir beini viðskiptum sínum til annarra en okk- ar vegna óstöðugleika í afgreiðslum okkar og kynni það ástand að verða varanlegt,” sagði Ólafur Jónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Sjávar- afurðadeildar SÍS, í viðtali við DB í gær. Sagði Ólafur ástandið nú mun verra en í útfiutningsbanninu í fyrra, þegar talsverðar undanþágur voru veittar í þessu tilviki. Farmanna- og fiskimannasambandið veitti sl. föstu- dag leyfi til þess að Skaftafellið yrði lestað fiski til útflutnings, en aðeins í dagvinnu. Mat Ólafur þennan skilning sam- bandsins mikils þar sem með undan- þágunni er unnt að leysa brýnasta vanda nokkurra húsa hvað geymslu- rými snertir. Víða eru frystigeymslur húsanna orðnar troðfullar þrátt fyrir mjög þétta og dýra handstöfiun, sem rýrir afkomu húsanna, samfara því að koma afurðunum ekki i verð. Jafnvel þó farmannadeilan leystist strax, sagði Ólafur að ástandið í hús- unum yrði ekki orðið eðhlegt fyrr en í haust. -GS. Framleiðandi Tropicanadrykkjanna: Salan hefurtvöfaldazt — en tvíeggjuð anægja vegna flutningskostnaðar flugleiðis „Það er allt að helmingi meiri sala í ávaxtadrykkjunum en nokkru sinni fyrr, sem við rekjum m.a. til mjólk- urskortsins,” sagði Haukur Gröndal, framkvæmdastjóri Sólar hf„ sem framleiðir Tropicanaávaxtadrykkina, í viðtaU við DB í gær. ,,En það er tvíeggjuð ánægja af þessum sölukipp því síðustu vikumar höfum við þurft að flytja allt hráefni fiugleiðis, með geysilegum auka- kostnaði í för með sér. Við fram- leiðum því vöruna á núUi, ef svo má segja, því við megum ekki hækka okkar vöru eins og innflytjendur ferskra ávaxta, okkar framleiðsla heyrir nefnUega undir iðnað,” sagði hann. -GS. Landsbyggðin: Víða orðið olíulítið — Litlaf ell og Kyndill sigla þó nú á undanþágu Sjón eins og þessi er ekki lengur algeng, enda hefur innflutningur á ávöxtum enginn verið nema með flugi. Við það hækkar verðið undantekningarlaust um helming og var það Drottins orð þó dýrt fyrir... Ekki bætir yfirvofandi skortur á olíu úr skák víða norðanlands. Litlafell og Kyndill hafa þó undanþágu til flutn- inga. „Það er víða orðið olíulítið úti á landi,” sagði örn Guðmundsson, skrifstofustjóri Olíuverzlunar íslands hf. „Það fékkst þó undanþága fyrir siglingu Kyndils til Vestfjarða og Litlafells til Vestfjarða og Húsa- víkur. Það hefur takmarkað mikið nýt- ingu skipanna að aðeins hefur verið leyfð vinna við losun í dagvinnu. Við eðlilegar aðstæður er unnið við skipin dag og nótt. Skipin eru allt upp í þriðjungi lengur. Venjulegir landflutningar á olíu suðvestanlands ganga eðlilega, en landfiutningar frá birgðahöfnum úti á landi dragast eðlilega saman, þegar birgðir minnka. Það ætti þó að koma í veg fyrir vandræðaástand að veitt var þessi undanþága til skipanna og þess má geta að FFSÍ hefur sýnt skilning á þessum málum. -JH. Hráefni i „þjóðar- drykkinn" kók er upp- urið eftir hálfan mánuð. Þar með > HTður kannski fokið f flcst skjól að margra dómi. Framkvæmdastjóri ColaCola: Lokum innan hálfs mánaðar —flutningar yrðu allt of viðamiklirogdýrir „Við erum ekki farnir að merkja neinn sölukipp enn vegna mjólkur- skorts, enda búumst við ekki við því fyrr en upp úr þessu,” sagði Pétur Björnsson, framkvæmdastjóri Coca Cola verksmiðjunnar i viðtali við DB ígær. Sagði hann söluna hafa aukizt undanfarið, en rakti það allt eins til hlýnandi veðurs suðvestanlands. Verksmiðjan hefur hráefn; til hálfs- mánaðar framleiðslu i mesta lagi og hafi farmannaverkfallið ekki leystzt fyrir þann tíma verður verksmiðjunni lokað. Taldi Pétur útilokað að beina svo viðamiklum flutningum sem verksmiðjan þarf inn á flugið. -GS. Laser Kynnizt Laser Eignizt Laser Einn vinsælasti seglbátur sinnar tegundar i heiminum i dag. Um 70.000 bátar hafa þegar veriö framleiddir. Helztu kostir LASER: Mjög léttur — aöeins 59 kg. Gerður úr trefjaplasti — litið viðhald. Auðveldur i flutningi — t.d. á toppgrind. Fljótlegt að sjósetja hann — ca. 5 mín. Leitið upplýsinga — einkaumboð á tslandi. ISTÆKNI HF. UMBOÐS- & HEILDVERZLUN GRENSÁSVEGI22 - SÍMI34060. Hafnarfjörður - Útboð Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í að steypa gangstéttir, alls 3500 ferm. Útboðsgögn fást í skrifstofu bæjarverkfræð- ings, Strandgötu 6. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudag- inn7. júníkl. 11. Bæjarverkfræðingur Frá Armúlaskóla Á næsta ári mun Ármúlaskóli starfa sem fjöl- brautaskóli með áfangakerfi. Nemendur geta valið milli þriggja námssviða og nokkurra námsbrauta á hverju sviði eins og hér segir: 1. HEILBRIGÐISSVIÐ, tveggja ára heilsu- gæslubraut til sjúkraliðanáms og framhalds- braut að stúdentsprófi. 2. UPPELDISSVIÐ, þrjár brautir — tvær tveggja ára grunnnámsbrautir, fóstru- og þroskaþjálfabraut og félags- og íþróttabraut — og fjögurra ára menntabraut að stúdentsprófi. 3. VIÐSKIPTASVIÐ, þrjár tveggja ára brautir að almennu verslunarprófi, tvær þriggja ára brautir að sérhæfðu verslunarprófi. Af öllum brautum viðskiptasviðs er nemend- um tryggð framhaldsmenntun að stúdents- prófi. Innritun fer fram þriðjudaginn 5. júní og mið- vikudaginn 6. júní í Miðbæjarskólanum í Reykjavík kl. 9.00—18.00 báða dagana. Fimmtudaginn 7. júní og föstudaginn 8. júní fer innritun fram í Ármúlaskóla kl. 9.00— 18.00. Skólastjóri

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.